Tíminn - 19.09.1986, Blaðsíða 5

Tíminn - 19.09.1986, Blaðsíða 5
Föstudagur 19. september 1986 Tíminn 5 Kauptaxtamir bara fyrir fiskvinnslu- og landsbyggðarfólk: Dagvinnulaunin um 15-25% hærri á höfuðborgarsvæði Allflestir verkakarlar, iðnaðar- menn og skrifstofukarlar á lands- byggðinni þurftu að sætta sig við í byrjun þessa árs að félagar þeirra í sömu störfum á höfuðborgarsvæðinu hefðu 15-25% hærri laun en þeir fyrir dagvinnutímana sína, að því er fram kemur í nýju fréttabréfi Kjara- rannsóknarnefndar. Sérstakar ráð- stafanir sem ákveðnar voru til að tryggja landsmönnum 0,38% auka- lega launahækkun (rauða strikið) til að öllu réttlæti væri nú fullnægt virðast hálf hlálegar þegar þessi gífurlegi launamunur í sömu störfum er hafður í huga. Þá verður fróðlegt að sjá síðar hvort bróðurparturinn af þeim 8% launahækkunum sem nýlega hafa verið „uppgötvaðar" hafa einnig að mestu lent á höfuð- borgarsvæðinu. Á höfuðborgarsvæðinu virðast kauptaxtarnir gilda fyrir sára fáa karlmenn nema þá sem vinna í fiskvinnslunni - aðrir verkakarlar á höfuðborgarsvæðinu virðast flestir vera með 30-40 krónum hærri laun á tímann. Á landsbyggðinni virðast hinsvegar flestir verkakarlar á eða mjög nærri töxtunum, enda verka- mannakaupið þar að meðaltali um 24 krónum lægra á hverja dagvinnu- stund. Með launum er hér átt við svo- Kristján Thorlacius, formaður BSRB: Marklausar bókanir um verkfallsrétt „Ég bendi á að í lögum um kjarasamninga BSRB þá er ákvæði um að heildarsamtökin fari með samninga fyrir ríkisstarfsmenn, aðalkjarasamning og síðan fara ein- stök félög með sérkjarasamninga. Þessum lögum er auðvitað ekki hægt að breyta með öðru en lagabreytingu á Alþingi. Þessar bókanir varðandi verkfallsrétt hjá lögreglumönnum og tollvörðum eru því marklausar“ sagði Kristján Thorlacius, formaður BSRB í samtali við Tímann í gær. „í sambandi við gerð síðasta aðal- kjarasamnings var gerð bókun undirrituð af BSRB og ríkinu um að kjarasamningalögin skyldu endur- skoðuð, og það er mjög óeðlilegt að ríkisvaldið skuli vera að semja við einstök aðildarfélög um breytingar á samningsréttinum áður en samnings- réttarnefndin hefur lokið störfum. Þetta er löggjafaratriði sem á að undirbúa sameiginlega milli þessara aðila.“ Sagði Kristján að ef sú staða kæmi upp að BSRB færi í allsherjarverk- fall að þá næðisú ákvörðun einnig til tollvarða og lögregluþjóna, og það væri kjaradeilunefndar hér eftir sem hingað til að ákveða hverjir úr þessum stéttum fengju að fara í verkfall. Staðan væri því óbreytt, og ekki hægt að lýsa ákvæðum um afnám verkfallsréttar í nýgerðum samningum þessara félaga, öðruvísi en sem vilj ayfirlýsigu um að dóms- málaráðuneytið ætli sér að breyta lögum um lögreglumenn og toll- verði. „En við viljum afnám kjaradeilu- nefndar, vegna þess að við teljum að hún hafi úrskurðað nánast eins og atvinnurekendur eða ríkið vill og förum fram á það í þeirri endurskoð- un á kjarasamningalögunum sem nú ferfram," sagði Kristján Thorlacius. phh nefnt hreint tímakaup í dagvinnu en það skýrir Kjararannsóknarnefnd svo: „Laun án orlofs fyrir dagvinnu að viðbættum hvers kyns auka- greiðslum svo sem yfirborgunum, fæðis-, ferða-, fata og verkfærapen- ingum deilt með dagvinnutímum." Hvað verkakonurnar snertir er munurinn miklu minni milli lands- hluta, en nokkur þó eða rúmlega 12 krónur á tímann að meðaltali. Það sama á raunar við um konurnar t' öðrum starfsgreinum - munurinn er lítill hvort sem er á höfuðborgar- svæðinu eða úti á landi - en hins vegar töluverður þegar þær eru bornar saman við karla í sömu störfum. Af iðnaðarmönnum eru mat- reiðslumenn þeir einu á landsbyggð- inni sem skáka félögum sínum í Reykjavík - um 216 kr. á móti 194 á höfuðborgarsvæðinu. Að meðal- tali hafa iðnaðarmenn úti á landi haft um 30 krónum lægra tímakaup í dagvinnu. Mestur er munurinn um 50 kr. á tímann hjá faglærðum verkstjórum. Almenn skrifstofustörf gefa af sér um 45 krónum meira á tírnann fyrir karla á höfuðborgarsvæðinu cn úti á landsbyggðinni. M.a.s. skrifstofu- stúlkurnar í Reykjavík fara þartölu- vert fram úr landsbyggðarkörlunum. Hæstu meðallaun fyrir dagvinnu sem finnast í úrtaki Kjararannsóknar- nefndar voru rúmar 432 kr. á tímann hjá deildar- og skrifstofustjórum á höfuðborgarsvæði. Ætla má að það sé citthvað umfram V.R.-taxtana enda um 139 krónum hærra tíma- kaup en samverkamenn þeirra á landsbyggðinn bera úr býtum. í ljósi þcssa er spurning hvort umræður um launajöfnun eiga frek- ar við um jöfnun milli starfsgreina heldur en jöfnun milli sömu greina á höfuöborgarsvæðinu annars vcgar og landsbyggðinni hins vegar, sem þó hefur undanfarin ár verið samið fyrir í samfloti um sömu taxtana. -HEl starf höfuðb.sv. landsb. misni. Verkam.meðalt. 162,28 138,30 21,7% fiskv. 127,46 127,40 hafnarv. 163,97 128,44 22,7% pakkhús 162,64 123,88 33,1% byggingav. 163,68 147.55 10.9% verksmiðjuv. 165,94 132,92 24,8% slippv. 174,81 139,90 25% bifr.st. 159,07 143,46 10,9% lyftarav. 180,00 125,04 44% óf.v.trésm. 159,32 120,38 32,3% óf.v. kjötiðn. 159,65 133,20 19,9% Verkakonur mt. 134,52 121,93 10,3% fiskvinna 125,51 117,85 6,5% verksmiðjuv. 131,19 116,69 12,4% óf.v. kjötiðn. 142.14 124,01 14,6% Iðnaðarm.meðalt. 218,24 188,34 15,9% málmsm. 220,93 185,99 18,8% trésm. 216,94 194,24 11,7% bifvél.v. 198,19 170,45 16,3% rafvirkj. 223,98 194,59 15,1% kjötiðn. 245,38 202,87 21% vélstjórn 218,06 176,43 23,6% verkstj.fagl. 264,25 215,07 22,3% Skrifst.karl.mt. 283,01 233,37 21,3% alm.skrst.st. 229,40 184,80 24,1% fulltr. 347,26 288,78 20,3% d/skrst.stj. 432,31 293,09 47,5% Skr.st.konur.mt. 198,54 176,59 12,4% alm.skrst.st. 192,30 173,41 10,9 Afcr.karlarmt. 182,33 166,82 9,3% dagvöruversl. 152,0! 147,67 2,9% byggingav. 171,97 141,84 21,2% versl.stj. 268,47 206,90 29,8% Afgr.konurmt. 133,70 133,38 dagvöruvcrsl. 131,53 129,09 1,9% versl.stj. 185,65 Á þessari töflu sést munurinn á meðaltímakaupi í dagvinnu - cins og hann var á 1. ársfjórðungi 1986 - niilli sömu starfsgrcina á höfuöborgarsvæðinu annars vegar og landsbyggðinni hins vegar. Seni sjá má er hann mcstur á milli verkakarla og skrifstofukarla sem hafa 21-22% hærri laun að ineðaltali á höfuöborgarsvæöinu. En meiri mun má þó víöa sjá milli söniu starfsgreina. Einnig er athyglivert að bcra saman dagvinnutímakaup karla annars vegar og kvenna hins vcgar fyrir söinu störf. „Samrýmist ekki störf um ákveðinna starfsstétta" Þorsteinn Palsson um verkfallsrett: - samningarnir öllum til hagsbóta Orkumál: Landsvirkjun kaupir Kröflu með öllu - á 120 milljónir króna I nýgerðum sérkjarasamningum lögregluþjóna og tollvarða hefur ríkisvaldið farið inn á nýjar brautir og boðið þessum félögum verulegar kjarabætur gegn því að þau afsali sér verkfallsréttindum sínum. Þeirri spurningu hefur því skotið upp hvað ríkisvaldið telji sig vinna með slíkum samningum og hvort þær aðgerðir til kjarabóta sem nú standa þessum félögum opnar, svo sem fjöldaupp- sagnir verði ekki ríkinu erfiðari við að eiga en hefðbundin „verkföll" þessara stétta. Tíminn lcitaði álits Þorsteins Pálssonar, fjármálaráð- herra á þessu máli. „Við erum að gera samninga við þessa liópa en erum ekki í neinu stríði og við væntum þess að geta átt gott samstarf við okkar starfsfólk." - En af hverju ieggið þið þá áherslu á að taka verkfallsréttinn af? „Sannleikurinn er sá að verkfalls- réttur er takmarkaður skv. lögum og það hefur verið úrskurðarefni sér- stakrar nefndar hverjir ættu að hlíta þessum takmörkunum og um það hefur alltaf verið mikill ágreiningur. Við mótuðum þá stefnu í vetur að gera hér á verulegar breytingar, að stórum hluta til í samræmi við hug- myndir BSRB um að færa verkfalls og samningsrétt út til einstakra fé- laga. En einnig að taka af öll tvímæli varðandi hópa sem eðli málsins sam- kvæmt gegna slíkum störfum að verkfallsréttur samrýmist þeim ekki. Við teljum að þessir samningar verði öllum aðilum til hagsbóta." phh Landsvirkjun hefur fest kaup á Kröfluvirkjun og eignum Jarð- varmaveitna ríkisins í Bjarnarflagi, ásamt tilteknum rétti til hagnýtingar jarðhitaorku á því svæði. Kaupverð er 120 milljónir. Samningar þar að lútandi voru undirritaðir fyrir skömmu. Landsvirkjun tekur við gufuveit- unni í Bjarnarflagi til eignar og rekstrar ásamt skuldbindingum um afhendingu á gufu til kísilverksmiðj- unnar við Mývatn, Hitaveitu Skútu- staðahrepps og Léttsteypunnar hf. Samningurinn tekur gildi hinn 1. janúar 1987. Nýtt ráðgjafa fyrirtæki Nýtt ráðgjafafyrirtæki hefur nú tekið til starfa. Það ber nafnið Ráð- gjafar- og útgáfuþjónustan og er til húsa að Hverfisgötu 39,3. hæð. Eins og nafnið gefur til kynna hyggst fyrirtækið einbeita sér að hvers kyns þjónustu við þá mörgu sem standa í útgáfu og félagsstarfi hér á landi. Fyrirtækið getur tekið að sér vinnslu blaða, bóka og bæklinga allt frá upphafi til enda, - samið texta séð um útlit, prófarkalestur, fylgst með vinnu í verksmiðju og annast samningsgerð þar að lútandi. Fyrir- tækið er tölvuvætt og tekur að sér hvers kyns textagerð og ritvinnslu. hm

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.