Tíminn - 19.09.1986, Blaðsíða 6

Tíminn - 19.09.1986, Blaðsíða 6
6 Tíminn Föstudagur 19. september 1986 lllllllllll ÚTLÖND llllllllllllllillllllllilllllllllllllllllllllllllllllllll ...Illlllllllillilllllllllllllllllllllllllllllllll.Illlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllill FRÉTTAYFIRLIT PARÍS — Sprengingin í fyrradag, sú fimmta í París á tíu dögum, varö fimm mann- eskjum aö bana og særði átján aðra alvarlega. Um þrjátíu manns slösuðust að auki í sprengingu þessari sem eyði- lagði jarðhæð Tati fataverslun- arinnar í Montparnassehverfi. DENPASAR, Indónesía - Francois Mitterrand Frakk- landsforseti hætti við að koma til móttökuathafnar á eynni Bali og hætti við margt annað sem var á dagskrá opinberrar heim- sóknarhans í Indónesíu vegna hryðjuverkanna i París og Beirút. WASHINGTON - George Shultz utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Eduard Shevarnadze utanríkisráð- herra Sovétríkjanna hittast á fundi í Whashington í dag. Andrúmsloftið þar er rafmagn- að vegna handtöku banda- ríska blaðamannsins Nicholas Daniloffs og brottvísunar sov- éskra sendifulltrúa hjá SÞ frá Bandaríkjunum. GENF — Afvopnunarviðræð- urnar milli fulltrúa frá stórveld- unum tveimur hófust að nýju í Genf. Háttsettur sovéskur embættismaður sagði brottvís- un sovéskra sendifulltrúa hjá SÞ sýna að Bandaríkjastjórn vildi einungis skapa spennu í sambúð ríkjanna tveggja. BEIRÚT — Hemaðarráðu- nautur franska sendiráðsins var skotinn til bana í Beirút og tveir franskir hermenn úr friðar- gæslusveitum SÞ særðust í tveimur aðskildum árásum í Suður-Líbanon. Óþekktur hóp- ur hryðjuverkamanna hefur lýst morðinu á franska ráðu- nautnum á hendur sér. TOKYO — Fjármálamenn í Japan virtu að vettugi beiðni frá fjármálastjórn Bandaríkj- anna um að lækka vexti og sögðu vexti þegar nógu lága. Satoshi Sumita stjórnandi Jap- ansbanka sagði hópi við- skiptamanna að hann sæi enga þörf fyrir að lækka vexti eins og málin stæðu. JÓHANNESARBORG — Samkvæmt opinberum töi- um hafa nú meira en þrjú hundruð manns látið lífið í átökum í Suður-Afríku síðan neyðarástandslögunum var komið á þann 12. júní síðast- liðinn. Ríkisstjórnin sagði þó stjórnmálauppþot halda áfram að vera í lágmarki. MADRID — Embættismenn frá Spáni og Bretlandi hófu að nýju viðræður um framtið Gí- braltar. RÓM — Hin 45ta ríkisstjórn Ítalíu síðan eftir stríð, sem komið var á laggirnar í síðast- liðnum júlímánuði eftir að stjórnarkreppa hafði ríkt, er þegarorðin völt í sessi. Stjórn- in fékk aðeins nauman meiri- hluta í fyrstu mikilvægu at- kvæðagreiðslunni á þingi. Litlir kærleikar eru með leiðtogum stórveldanna tveggja um þessar mundir og ekki eru miklar líkur að af leiðtogafundi verði þetta árið. Stórveldasambúðin: - Sovétstjórnin hótar hefndum vegna ákvörðunar Bandaríkja- stjórnar að fækka í sendiliði Sovétmanna hjá SÞ Moskvu, Washington-Rcuter Sovésk stjórnvöld vöruðu í gær Bandaríkjastjórn við hugsanlegum hefndaraðgerðum vegna þeirrar ákvörðunar Reagansstjórnarinnar að vísa 25 sovéskum sendifulltrúum hjá Sameinuðu þjóðunum úr landi fyrir 1. október næstkomandi. „Bandarískir aðilar hugsa greini- lega sem svo að þessari ákvörðun verði ekki svarað,“ sagði Boris Pyadyshev talsmaður sovéska utan- ríkisráðuneytisins á blaðamanna- fundi í gær: „Slíkar aðgerðir verða ekki framkvæmdar án afleiðinga í alþjóðaviðskiptum,“ sagði talsmað- urinn en án þess að nefna nákvæm- lega hvaða afleiðingar hann ætti við. Hann var spurður hvernig stjórnin í Moskvu hygðist svara fyrir sig þar sem engir bandarískir sendifulltrúar væru þar á vegum alþjóðasamtaka. Yfirmaður lögreglunnar í Barce- lóna á Spáni hefur rekiö fulltrúa sinn úr starfi fyrir að ráða ekki við að meðhöndla nýja ofbeldisöldu í þess- ari höfuðborg Katalóníu. Luis De Arnoja Santana lögreglu- stjóri var rekinn og fylgir brottrekst- ur hans í kjölfar aukins fjölda sprengjutilræða sem sett eru í sam- band við tilraunir borgaryfirvalda til að halda Olympíuleikana þar í borg árið 1992. Terra Lliure (Frjálst land) scm cr hópur katalónskra aðskilnaðar- „Ég myndi halda að lögmálið um speglaverkun væri ekki alltaf besta ráðið,“ sagði sá sovéski í véfréttar- stíl. Stjórnarerindrekar töldu líklegt að afloknum blaðamannafundinum að færi svo að Bandaríkjastjórn myndi hvergi víkja frá ákvörðun sinni myndi Sovétstjórnin vísa ein- hverjum bandarískum sendiráðs- starfsmönnum í Moskvu og öðrum bandarískum ríkisborgurum úr landi. Samskipti stórveldanna tveggja hafa versnað verulega á síðustu dögum eða eftir handtöku banda- ríska blaðamannsins Nicholas Dani- loffs sem sovésk yfirvöld saka um njósnir. Ákvörðunin um að vísa sovésku sendifulltrúunum úr landi þykir benda til að Reagan Banda- sinna hefur lýst nýlegum sprenging- um í tveimur bönkum á hendur sér. ríkjaforseti og stjórn hans ætli að sýna hörku í samskiptum sínum við Sovétstjórnina. Áður en þessi ákvörðun var tekin hafði Reagan verið gagnrýndur af hægrisinnuðum stjórnmálamönnum í Bandaríkjunum fyrir að hafa orðið á undan að gefa eftir í „Daniloffmál- inu“. Utanríkisráðherrar ríkjanna tveggja, þeir Georg Shultz og Edu- ard Shevardnadze, hefja viðræður í Washington í dag í andrúmslofti sem er rafmagnað vegna deilna undanfarinna daga. Þeir eiga að ræða samskipti ríkjanna tveggja svo og undirbúa leiðtogafund Reagans og Gorbatsjovs. Sérfræðingar telja hinsvegar að möguleiki á að leið- togafundur verði haldinn á þessu ári sé nú mjög lítill. Bankar þessir styðja tilboð borgar- stjórnarinnar í Ólympíuleikana. Þá særðust þrír borgaralegir þjóð- varðliðar þegar bílsprengja sprakk um síðustu helgi. Bæði Terra Lliure og Aðskilnaðarsamtök baska (ETA) lýstu þeim verknaði á hendur sér. Santana fyrrum lögreglustjóri hef- ur einnig verið gagnrýndur fyrir að hafa ekki hemil á ofbeldisaðgerðum síðastliðinn mánudag er hafnar- verkamenn fóru í verkfall. Þar slösuðust ellefu verkfallsbrjótar al- varlega. Bandaríkin: Predikari vill verða forseti Washinton-Reutcr Vakningarpredikarinn Pat Ro- bertson, sem er með trúarlegan þátt í bandarísku sjónvarpi, sagði í vik- unni að hann myndi bjóða sig fram sem forsetaéfni repúblikana fyrir næstu forsetakosningar ef nægur stuðningur fengist. „ Ef þrjár milljónir kjósenda í Bandaríkjunum skrifa undir stuðn- ingsyfirlýsingu við framboð mitt á næstu tólf mánuðum mun ég á þessum tíma á næsta ári bjóða mig fram sem forsetaefni repúblikana," sagði Robertson á blaðamanna- fundi. Pierre „Pete“ du Pont, fyrrum ríkisstjóri Delaware, varð á þriðju- daginn fyrsti einstaklingurinn til að tilkynna að hann ætlaði sér að berj- ast fyrir útnefningu sem forsetaefni repúblikana í forsetakosningunum 1988. Ronald Reagan mun láta af embætti sínu í janúar árið 1989. Aðrir sem álitnir eru koma til greina sem forsetaefni repúblikana eru Georg Bush varaforseti, Robert Dole leiðtogi repúblikana í öld- ungardeild Bandaríkjaþings og hinn íhaldssami fulltrúadeildarþingmað- ur Jack Kemp. Samskipti Póllands og ísraels: Tímamóta- koma Varsjá-Rcutcr Tveir ísraelskir stjórnarerindrek- ar eru komnir til Póllands þar sem þeir munu hafa eftirlit með vegabréfsáritunum til landsins helga. Koma þeirra markar tíma- mót þar sem þetta eru fyrstu stjórnmálalegu samskipti ríkj- anna af þessu tagi eftir að Pólland sleit stjórnmálasambandi við ís- rael árið 1967. Koma tvímenninganna fylgir í kjölfar samkomulags milli ríkj- anna tveggja er náðist á síðasta ári. Þar voru takmörkuð stjórn- málasamskipti endurnýjuð. Pólska stjórnin vill ekki taka upp full samskipti við Israelsstjóm fyrr en nokkrum skilyrðum er mætt, þar á meðal að ísraelsher víki burt frá svæðum sem tekin voru í stríðinu 1967. Hollenska sendiráðið hefur hingað til séð um að veita vega- bréfsáritanir til Israels og munu stjórnarerindrekarnir tveir, þeir David Koren og Alex Ben Zvi. hafa aðsetur í því sendiráði til að byrja með eða þar til fyrrum ísraelska sendiráðinu í Varsjá hef- ur verið komið í gagnið. Öll Austantjaldsríkin, utan Rúmenía, slitu stjórnmálasam- bandi við ísrael árið 1967. Bæði pólska stjórnin og nú nýlega Sov- étstjórnin hafa hinsvegar gengist fyrir því að taka upp takmörkuð samskipti við ísraelsstjórn á nýj- an leik. Lögreglustjóri fær reisupassa Barcelona-Rcutcr Bandarískt læknarannsóknarrit: Sígarettureykingar valda heilablóðfalli - og kóladrykkir eru Boston-Rcuter Lið rannsóknarmanna í læknavís- indum birti í vikunni nýjar sannanir sem benda til að sígarettureykingar valdi heilablóðfalli,. Sérfræðingar frá Maryland, Norð- ur-Karólínu og Hawaii sögðu í skýrslu, sem birtist í læknaritinu New England Journal of Medicine, að rannsóknir þeirra á hópi tæplega átta þúsund manna sýndu að reyk- ingarmönnum væri tvisvar til þrisvar sinnum meiri hætta búin að fá heila- óheppilegir til drykkjar blóðfall heldur en þeim sem ekki reyktu. Þegar reykingamennirnir hættu iðju sinni minnkaði hættan á heila- blóðfalli um meira en 50%. Heilablóðfall er þriðji helsti dauðavaldurinn í Bandaríkjunum, aðeins hjartasjúkdómar og krabba- mein eru tíðari. Verulega hefur þó dregið úr tíðni dauða af völdum heilablóðfalls á síðustu árum t.d. minnkaði þessi tíðni um meira en ftir niðurgangssýki 30% á árunum milli 1968 og 1976. Fækkunin hefur helst verið þökkuð læknum og öðru fólki í heilbrigðis- stéttinni fyrir að huga betur að stjórn of hás blóðþrýstings. í skýrslu rannsóknarmannanna voru sígarettureykingar sagðar geta stuðlað að heilablóðfalli með því að hækka blóðþrýsting, þrengja blóð- æðar í heila eða mynda köggla í heilablóðæðum. Þá kom fram í annarri grein í New England Journal of Medicine að kóladrykkir væru ekki heppilegir til að ná að nýju upp eðlilegu vökva- magni í líkamanum eftir niður- gangssýki. Doktor Z. Weisman frá Israel sagði Kók, Pepsi og aðra kóladrykki ekki hafa nægilegt magn af sódíum og kalíum til að endurnýja vatnsmissinn. Að hans áliti er það því þjóðsaga að gott sé að drekka Kók eða Pepsi eftir slæma niður- gangssýki. 1

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.