Tíminn - 18.10.1986, Blaðsíða 5

Tíminn - 18.10.1986, Blaðsíða 5
Laugardagur 18. október 1986, Tíminn 5 Velaborg Bútækni hf. Sími 686655/686680 Borgarstjórn: Sjálfstæðismenn á móti borgarafundum Höfnuöu tillögu Framsóknarflokksins Tillögu Sigrúnar Magnúsdóttur borgarfulltrúa Framsóknarflokksins um aukin tengsl borgarstjórnar við borgarbúa og félagasamtök þeirra var vísað frá á fundi borgarstjórnar á fimmtudagskvöldið með atkvæð- um sjálfstæðismanna. I tillögu Sig- rúnar kom fram að efla bæri tengsl milli borgarbúa og íbúasamtaka hinna ýmsu hverfa, þannig að borgin hefði frumkvæði að borgarafundum í hverfunum í samvinnu við íbúa- samtökin. Davíð Oddsson oddviti sjálfstæðis- manna bar fram frávísunartillögu og sagðist telja að borgarfulltrúar ættu sjálfir að standa fyrir viðtalstímum á skrifstofu borgarstjórnar eða skrif- stofum flokkanna. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Bjarni P. Magnússon lýstu eindregn- um stuðningi við tillöguna og hörm- uðu mjög þessa einstrengingslegu afstöðu meirihlutans. Pau bcntu á að lýðræði kosti tíma og peninga, og þættu illt að Sjálfstæðisflokkurinn skyldi spara á þeim vettvangi. hm Nýi búningurínn til vinstrí, en sá gamli til Tímamynd: G.E. Bifreiðaeftirlits- menn í nýjum búningi Starfsmenn Bifreiðaeftirlits ríkisins státa nú af nýjum einkenn- isbúningi, í krafti reglugerðar dómsmálaráðuneytisins sem sett var fyrir síðustu áramót. Guðni Karlsson, forstöðumaður Bifreiðaeftirlitsins vildi reyndar ekki taka svo djúpt í árinni að búningaskipti hefðu farið fram, þetta hafi rétt vcrið önnur útfærsla. Hinn brúngræni litur hcfði fengið að halda sér. Belti, sem nú prýðir búninginn væri sctt starfsmönnum til hægðarauka, þegar þcir væru úti í umferðinmni að stoppa bíla. Það væri hægt að hafa endurskin í beltinu og menn sæjust því betur. Ekki hafi vcrið ráðinn sérstakur fatahönnuður vegna þessa, þetta væru staðlaðir einkennisbúningar. Alls niunu vera um 40 skipaðir bifreiðaeftirlitsmenn á landinu scm skrýðast nú þcssuni nýja búning. Söluturninn Staldrið: Var slysagildra sam- þykkt í borgarstjórn? Sjálfstæöismenn ósammála Að mati umferðarsérfræðinga var slysagildra samþykkt í borgarstjórn á fimmtudagskvöld. Júlíus Hafstein lagði fram tillögu, þvert á samhljóða samþykkt umferðarnefndar um að leyfð yrði vinstri beygja í gegnum umferðareyju í Stekkjabakka og yfir tvöfalda akrein. inn að söluturnin- um Staldrið. Röksemdir Júlíusar voru þær að með byggingu umferð- areyjar væri grundvöllur fyrir starf- semi söluturnsins skertur, þar sem hann bygðist á sölu gegnum bíla- lúgu. Júlíus taldi rétt að gefa bráða- birgðaleyfi í allt að eitt ár og sjá hvort reynslan sýndi að um slysa- gildru sé að ræða. Það vakti athygli að Davíð Odds- son og Katrín Fjeldsted greiddu atkvæði með fulltrúm Framsóknar- flokks, Alþýðubandalagsins og Kvennalista, gegn atkvæðum ann- arra sjálfstæðismanna og alþýðu- flokksmannsins Bjarna P. Magnús- sonar, sem skipti sköpum við sam- þykkt tillögunnar. ÓIi H. Þórðarson formaður Unt- ferðarráðs sagði í samtali við Tím- ann í gær að hér væri um að ræða ákvörðun sem bryti í bága við grund- vallaratriði í umferðaröryggi. hm Ingi Karl Jóhannesson og Sigríður Ingvarsdóttir formaður íslandsdeildar Amnesty International. Fyrir framan þau er þykk ársskýrsla samtakanna um mannréttindabrot í 128 löndum sem höfð voru afskipti af á síðasta ári. Tímamynd: Sverrir Amnesty International: Árleg vika helguð „gleymdum föngum11 Mánudaginn 20. október hefst árleg alþjóðleg vika á vegum Amn- esty International, en samtökin hafa um langan tíma unnið að sakarupp- gjöf samviskufanga og gegn ómannúðlegri meðferð, pyntingum og dauðarefsingu allra fanga. í ár er vikan helguð „gleymdum föngum“. Vakin er athygli á örlögum 12 fanga frá 12 löndum, sem eru valdir úr stórum hópi manna sem hlotið hafa sömu örlög. íslandsdeild Amnesty hcfur valið fjóra af þessum tólf föngum til þess að sinna sérstaklega með bréfaskrift- um til viðkomandi þjóðhöfðingja og yfirvalda. Módelbréf hafa verið sam- in þannig að þeir sem hingað til hafa gjarnan viljað hjálpa þessum föng- um en ekki treyst sér til þess að skrifa viðeigandi bréf, geta nú snúið sér til íslandsdeildarinnar í Hafnar- stræti 15 í Reykjavík eða einhvers félaga Amnesty á íslandi og fengið módelbréf í hendur. Aðeins þarf að skrifa undir þau og setja í póst. f tengslum við alþjóðavikuna sem byrjar á mánudag mun verða haldið námskeið fyrir þá sem vilja kynna sér starf Amnesty International. Námskeiðið verður haldið í Mennta- skólanum í Hamrahlíð. Námskeiðið skiptist á tvo daga, í dag frá kl. 15.00-18.00 og fimmtudaginn 23. okt. frá 20.00-22.00. Miðvikudaginn 22. okt. verður Ijóðakvöld sem til- einkað er viku þessari, en Sigurður A. Magnússon hefur umsjón með því. Það er Ingi Karl Jóhannesson. einn af stofnendum íslandsdeildar- innar sem hefur umsjón með alþjóð- legu vikunni að þcssu sinni. en hann hefur ekki verið virkur þátttakandi íslandsdeildarinnar nú um nokkurra ára skeið fyrr en nú. ABS NOTAÐAR BÚVÉLAR TIL SÖLU 1. URSUS 385 dráttarvél árgerð 1979. 2. I.H. 444 dráttarvél árgerð 1977. 3. FORD 300 dráttarvél árgerð 1973. 4. URSUS C 335 dráttarvél. 5. URSUS C 385 dráttarvél 4WD árgerð 1980. 6. URSUS 362 dráttarvél árgerð 1981. 7. New Holland 378 heybindivél árgerð 1982. 8. URSUS C 1004 4 WD. árgerð 1981. 9. 2 st. baggavagnar. 10. Rafmagnstalía 1. fasa árgerð 1982. 11. Taarup sláttutætari árgerð 1979. 12. Baggafæriband 15. m. 1 fasa árg. ’82-’84. 13. Baggafæriband 15. m. 1 fasa árg. 1982. 14. Heuma múgavél 6 hjóla árgerð 1982. 15. Taarup votheysvagnar. 16. Egeberg baggavagn, nýr. 17. Stoll heytætlur á vetrarkjörum. 18. Heimilisrafstöðvar 8 og 12 kw 3ja fasa (Nýjar).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.