Tíminn - 20.12.1986, Qupperneq 6

Tíminn - 20.12.1986, Qupperneq 6
6 Tíminn FRETTAYFIRLIT MOSKVA — Háttsettur sov- éskur embættismaður sagði þá ákvörðun Mikhail Gorbat- sjovs og stjórnar hans um að hætta við einhliða kjarnorku- vopnatilraunabann sitt strax þegar Bandaríkjamenn sprengja sína fyrstu kjarnorku- sprengju á næsta ári vera til- komna vegna ótta við að Bandaríkin gætu náð vfir- burðastöðu í vígbúnaoar- kapphlaupinu. GENF — Samtök olíufram- leiðsluríkja (OPEC) voru í gær nálægt því að ná samkomulagi um samdrátt í framleiðslu sem hækkað gæti olíuverð upp í átján dollara á tunnu. JÓHANNESARBORG - Evrópubandalagið bar fram mótmæli við stjórn P.W. Botha forseta Suður-Afríku og sagði auknar sannanir vera fyrir því að mannréttindi væru fótum troðin í landinu. I gær sagði suður-afrískt dagblað frá því að minnsta kosti fimm manns hefðu látist í óeirðum í Soweto, útborg Jóhannesarborgar, sem brutust út er stjórnin til- kynnti um nýjar neyðar- ástandsreglur. MOSKVA — Vadimir Petr- ovsky aðstoðarutanríkisráð- herra Sovétríkjanna sakaði óeirðarseggi um að hafa staðið á bak við mótmælin í Alma Ata nú í vikunni þar sem nokkur hundruð stúdentar mótmæltu breytingum á æðstu stjórn kommúnistaflokksins í Sovét- lýðveldinu Kazakhastan í Mið- Asíu. ROTTERDAM — Ráðherr- ar frá ríkjum sem Rínarfljót rennur um komu saman til að ræða brunann í efnaverksmiðj- unni í Sviss í síðasta mánuoi en þar lak mikið af eiturefnum í fljótið. Fulltrúar Frakklands kröfðust strax mikilla skaða- bóta. ISLAMABAD — Fulltrúar stjórnar Rajiv Gandi á Indlandi komu til Pakistan til viðræðna um vandamál sem verulega hefur skaðað sambúð ríkjanna tveggja, nefnilega ásakanir um að aðskilnaðarsinnar úr hópi sikha á Indlandi njóti stuðnings pakistanskra aðila. Laugardagur 20. desember 1986 llllllllllllllllilllBI útlönd ....................................................................... ....... . .........Illlllllllllll.............. Sovétríkin: Sakharov látinn laus - Frægasti andófsmaðurinn austan tjalds Andrei Sakharov hefur verið látinn laus úr nauðungarvist í Gorkí - Fær að halda til Moskvu ásamt konu sinni Yelenu Bonner Lundúnir - Reuter Vestrænir embættismenn fögnuðu í gær ákvörðun sovéskra stjórnvalda að leysa eðlisfræðinginn Andrei Sak- harov úr nauðungarvist í heimalandi sínu. Flestir tóku þó fram að Sovét- stjórnin þyrfti að gera betur ætlaði hún sér að snúa við blaðinu í með- höndlun sinni á andófsmönnum. Larry Speakes talsmaður Banda- ríkjastjórnar sagði, er fréttir bárust út um að Sakharov og kona hans gætu fengið að fara til Moskvu, að hér væri um persónulegan sigur, hugrekkis þess sem hjónin væru orðin þekkt fyrir, að ræða. „Við bendum á að skipulagðar ofsóknir gegn mannréttindum halda áfram í Sovétríkjunum,“ bætti Spe- akes þó við. 1 Lundúnum sagði Sir Geoffrey Howe utanríkisráðherra Breta hins- vegar að frelsun Sakharovs og konu hans, Yelenu Bonner, væri sigur fyrir almenningsálitið í heiminum. Howe benti einnig á nauðsyn þess að Sovétstjórnin snéri við blaðinu í mannréttindamálum og Helmut Kohl kanslari Vestur-Þýskalands sagðist vonast til að sovésk stjórn- völd myndu ekki aðeins sleppa þekktum andófsmönnum úr haldi heldur einnig minna þekktum mönn- um sem fangelsaðir hafa verið fyrir stjórnmálaskoðanir sínar. í Noregi hafði Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra sér- staka ánægju til að fagna frelsun Sakharovs. Brundtland var í Sovét- ríkjunum fyrir hálfum mánuði og ræddi þar mál Sakharovs við Mikhail Gorbatsjov leiðtoga landsins. For- sætisráðherrann norski bauð Sak- harovhjónunum að setjast að í Nor- egi en þangað var Andrei neitað að fara árið 1975 til að taka við friðar- verðlaunum Nóbels. Vladimir Petrovsky varautanríkis- ráðherra Sovétríkjanna tilkynnti á blaðamannafundi í gær að Andrei Sakharov hefði beðið stjórnvöld um leyfi til að snúa frá borginni Gorkí við ána Volgu, þar sem hann hefur dvalið í útlegð hátt í sjö ár, til Moskvu og hefðu yfirvöld bæði gefið honum og konu hans leyfi til að snúa aftur. Yelena Bonner var dæmd til útlegðar í Gorkí, sem er í um 400 Andrei Sakharov: Ferðinni heitið frá Gorkí kílómetra fjarlægð frá Moskvu, árið 1984. Bæði voru sökuð um and- sovéska starfsemi. Sakharov er þekktasti sovéski andófsmaðurinn á Vesturlöndum og margoft hafa stjórnir og samtök vestra megin járntjaldsins farið fram á að hann yrði leystur úr nauðun- garvist sinni. Bretland: Lög gegn því að hundar fari í hár saman Lundúnir-Reutcr Breskur þingmaður hefur lagt fram frumvarp um breytingu á lög- um í fulltrúadeild þar sem gert er ráð fyrir harðari refsingum til handa þeim sem standa fyrir hundabardögum og horfa á slíkt. Ríkisstjórnin kvað styðja þetta frumvarp. Harry Greenway þingmaður íhaldsflokksins, sem lagt hefur fram þessa tillögu, sagði nýju lögin gera ráð fyrir að skipuleggjendur hundabardaga yrðu sektaðir um tvö þúsund sterlingspund sem sam- svarar um 120 þúsundum íslenskra króna. Sektin var áður 50 sterl- ingspund. Einnig er gert ráð fyrir fangelsisvist frá þremur upp f sex mánuði. Greenway sagði skipulagða hundabardaga vera mun algengari í Bretlandi en fólk gerði sér grein fyrir. 1 Uruguay: TILITALIU Mannréttindabrot grafin og gleymd í nafni þjóðarsáttar? Uruguay-Reuíer Öldungadeild þingsins í Uruguay hóf í gær umræður um umdeilt frum- varp þar sem gert er ráð fyrir að réttarhöld yfir lögreglumönnum og hermönnum, sem sakaðir eru um mannréttindabrot undir stjórn fyrr- verandi herforingjastjórnar, verði ekki látin fara fram. Frumvarpið var lagt fram af þing- mönnum Coloradó flokksins sem fer með völd í landinu en með því vill flokkurinn leggja áherslu á „þjóðar- sátt“. Andstæðingar stjórnarinnar hafa hinsvegar gagnrýnt frumvarp þetta harðlega. Þetta ku vera mun umfangsmeira frumvarp en það sem forseti landsins, Julio Sanguinetti, lagði fram í októbermánuði. Því var þá hafnað af öldungadeildinni. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að réttarhöldum verði hætt yfir þeim sem sakaðir eru um mann- réttindaglæpi er framdir voru fyrir mars árið 1985 þegar stjórn Sanguin- etti tókvið völdum eftir lýðræðisleg- ar kosningar. Alls þurfa sextán þingmenn að samþykkja frumvarpið eigi það að ganga í gegnum öldungadeildina. Hana skipa 14 þingmenn Coloradó- flokksins, 11 þingmenn Blanco- flokksins og 6 frá hinum vinstrisinn- uðu samtökum Frente Amplio. Washington-Reuter Lawrence Walsh, mikilsvirtursak- sóknari og fyrrum dómari og stjórn- arerindreki, mun leiða rannsókn sjálfstæðs ráðs á því hvort lög hafi verið brotin í vopnasölu Bandaríkja- stjórnar til írans og hneykslismálin sem henni tengjast. Rannsóknarráð sem þetta var einnig skipað í Wat- ergatemálinu á sínum tíma. Walsh var tilnefndur til að leiða Varsjá - Reuter Wojciech Jarúzelski leiðtogi Pól- lands mun heimsækja ftalíu í janú- ar næstkomandi og samkvæmt heimildum Reuters fréttastofunnar er líklegt að hann bjóði Jóhannesi Páli páfa til að heimsækja land sitt. Þetta yrði þriðja heimsókn páfa til heimalands síns, Póllands. Hin opinbera fréttastofa lands- ins skýrði frá væntanlegri heim- sókn Jarúzelskis í gær og var þar þetta sérstaka ráð, sem tveir aðrir dómarar skipa, eftir að Reagan Bandaríkjaforseti hafði hvatt til að því yrði komið á fót. Verkefni Walsh og félaga felst í því að rannsaka hvort lög hafi verið brotin er vopn voru seld til írans og hluti gróðans af sölunni sendur til Contra skærulið- anna í Nicaragua sem berjast gegn hinni vinstrisinnuðu stjórn þar. Komist ráðið að því að lög hafi sagt að hann færi í boði ítalska forsætisráðherrans Bettino Craxi. Heimsókn Jarúzelskis mun standa yfir dagana 12.-14. janúar. Kommúnistaleiðtoginn mun að líkindum bjóða páfa í heimsókn til Póllands í júní á næsta ári en hann hefur áður heimsótt land sitt árið 1979 og 1983. Embættismenn Vat- íkansins hafa áður sagt að páfi væri tilbúinn að taka á móti Jarúzelski kæmi hann til Rómar. verið brotin á það að ákæra formlega þá sem gerst hafa sekir um þessi lögbrot. Hinn 74 ára gamli Walsh var vara- samningamaður Bandaríkjastjórnar í friðarviðræðunum við Víetnama í París árið 1969. Hann og ráð hans hefur veruleg völd til að rannsaka þetta mesta hneykslismál sem komið hefur upp á valdatíma Reagans for- seta. Bandaríkin: Walsh leiðir sjálfstæða rannsókn á „írangatemáli“

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.