Tíminn - 20.12.1986, Blaðsíða 15

Tíminn - 20.12.1986, Blaðsíða 15
Laugardagur 20. desember 1986 Tíminn 15 um jól og áramót 1986 S1 VKk I Sl IÓLMUR - GRUNDARI UuR DUR f ró Rv ík fró Stykkishólmi l’AKKAAI CRI IDSLA 0í)St (Súr 1. h«i f i: Scrl. Hclgd Péturssondr hf) Hiigg l d - og pdkkddfgreiðsld sérleyfishdfd i í Umferðdrmiðstöðinni er opin um jól og órdmot scm hcr segir: ?3. dcs. Þr iðjuddg (Þorl.) kl. 09:00,19:00 kl. 18:00 ?4. dcs. Miðv.ddg (Aðf.ddg) Engin ferð Engin ferð ?5. dcs. Timmtuddg (Jóldddg) Engin ferð Engin ferð ?(). dcs. Ldug.ird.ig k1. 07:30 - 18:00 ?6. dcs. föstud.ig (ii. jíin k1. 09:00,19:00 k1. 18:00 ?7. dcs. Ldugdrddg kl. 13:00 k1. 08:30 ?l. dcs. Sunnuddg kl. 10:00 - 17:00 - - ??. dcs. Mdnud.u) k1. 07:30 - ?1:30 31. dcs. Miðv. d.ig (Cdml.írsd. ) k1. 09:00 Lngin ferð 1. j.m. ( immtuddg (Nyórsddg) Engin ferð Engin ferð ?3. des. Þriðjud.ig (Þorl.) k1. 07:30 - 22:00 ?. j.m. (östuddg k1. 09:00,19:00 kl. 18:00 ?4. dcs. Miðvikuddg (Aðf.ddg) k1. 07:30 - 14:00 I t«í Crunddrfirði fer bííl 1 klst . fyrir brottför fró Stykkishólmi ?5. des. 1 immtuddg (Joldddg) L0KAD -Að öðru leyti er óbreytt dætlun- ?6. des. ( östuddg (II. jó1) L0KAÐ 31. dcs. Miövikurd.ig ( Gdmícírsd.) ... ki. 07:30 - 14:00 NORLÁkSHiil II 1 r«i Rv ík 1 ró Þorldkshöfn 1. jdll. 1 immtud.ig (Nýórsddg) L0KAD (Scrl .luf i: SI3S hf) ?. J.II1. föstuddg kl. 07:30 - 21:30 ? 3. dcs. Þriðjud.ig (Þorl.) k 1 . 11:00* 18:00 k1. 09:00,11:00, 1?:50 Að öðru leyti er .ifgreiösl.wi opin vlrkd cidgd kl. 07:30 - 21:30 og ?4. dcs. Miðv.ddg (Aðf.ddg) k 1. 10:00* 13:00 k1. 1?:50 ?S. dcs. rimmtuddg (Jóldddg) Engin fcrð Engin ferð ?C>. dcs. 1 östud.ig 1 ( Il.jol) k 1. 16:30* ??':00' kl. 1?: 50,17: 30, ?(): 30 ^ Scrleyfi shdfdr viljd eindrcgið hvetjd foJk Lil dð komd með pdkk.i ; 31. dcs. Miðv.ddg (Cdmí«írsd. ) kl. 10:00* 15:00 kl. 1?:50 |)cir bcrist móttdkcndum örugglegd fyrir Jól. i. jdn. fimmtuddg (Ny.irsddg) k1. ??:00 kl. ?0:30 f nnfrcmur livetjum við fólk dö mcrkjd p.ikkd sínd vdndlcgd með ndfn Alhugið breyttan opnundrt íma við ferðir Herjólfs UPI’LÝSINCAR UM PERÐIR MLR3ÓLFS 'símum 686464 og 98-179?, 98-1433 -Að öðru ieyti er óbreytt dætlun- simdnuinmer mottdkend.i svo og nafnl senddndd. begdi* pdkkd ervitjdð í p.ikkddlgreiðslu er nduðsynlegt dð vltd hverníng pdkkinn v.ir merktur og hver er senddndi. Pessdr upplysingdr fiýtd mjög fyrir dfgreiðslu og kemur í veg fyrir ó|)drf«i l)ið. AIIAH NÁNAIU UI’PLVSINCAH UM fLRÐIR SLRLLYI JSLUFRLIDA UM JÓL 0C ÁRAMÓl CLIUR U.S.i. UMI LRÐARMIOSlÖOJNNI sími 91-??300 *CJ eðileg jól og gott og fdrsælt aýtt ór * Höröur Högnason: Fjársöfnun Rauða krossins - er hún peninganna virði? Skammt er sfðan íslenska þjóðin vaknaði upp við vondan draum, er til álita kom ráðvendni hjálpar- stofnunar í meðförum hennar á gjafafé til neyðarhjálpar erlendis. Þótti mörgum dýr umbúnaðurinn utan um krónur sínar, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Á svipstundu var stofnunin rúin öllu trausti, um leið og hún stórskaðaði tiltrú al- mennings á fjárstuðningi við neyð- arhjálp yfirleitt. Þegar tillit er tekið til víðfrægs höfðingsskapar og hjálpfýsi Islendinga til aðstoðar bágstöddum meðbræðrum sínum, þá er hér um mjög alvarlegan trúnaðarbrest að ræða. Um málsatvik þarf ekki að fjöl- yrða. í augum undirritaðs skipta orsakirnar meira máli, en þær vil ég frekar rekja til reynsluleysis en beins óheiðarleika. Byggi ég þá staðhæfingu á löngum kynnum og persónulegri reynslu í neyðarhjálp erlendis á vegum annarrar stofnun- ar: Rauða krossins. Hjálparstofn- unin er ung að árum og hefur hingað til skort flest það sem nauðsynlegt er ungviði í uppeld- inu, ef það á að komast til vits og þroska: Stuðning, leiðsögn og aga. Hún hlaut að læra af mistökunum, og þau voru dýrkeypt. Um Rauða krossinn gegnir öðru máli. Hann er sjálfstæð og hlutlaus alþjóðleg stofnun með 130 lands- félög og um 250 milljónir félags- manna innan sinna vébanda. hann byggir á agaðri reynslu síðustu 123 ára í starfi sínu um allan heim. Á alþjóðavettvangi sinnir hann hverskyns neyðarhjálp í stríði og náttúruhamförum. Landsfélögin gegna mikilvægu hlutverki í heilsu- vernd og neyðarvörnum hvert í sínu landi. Rauði kross íslands hlaut þessa reynslu í arf fyrir rúmum 60 árum og hefur viðhaldið henni og eflt síðan, í samvinnu við, og undir vökulu auga móðursam- takanna. Fyrir 3 árum starfaði ég á skurð- spítala Rauða krossins á landa- mærum Thailands og Kamputseu. Spítalinn var, og er enn, eina athvarf þúsunda flóttamanna frá Kampuseu er særast í vopnuðum átökum og vegna jarðsprengja á hverju ári. Reynsla mín þar var dýrmæt á margan hátt: Ég sá þar fyrst og skildi raunveruleikann í þeim hryllingi, sem fjölmiðlar heima í stofu fjalla um daglega og nefna stríðsátök, flóttamanna- vandamál og hungurvofu. Ég fann þar hve gífurlega miklu er hægt að áorka í hjálparstarfi með litlum tilkostnaði. Og ég sá þar svart á hvítu að nýtni og ráðdeild í með- höndlun fjármuna er ekki aðeins dagskipun hjá Rauða krossinum heldur viðtekin venja hvort sem það er á íslandi eða í flóttamanna- búðum í Thailandi. En dæmin tala sínu máli. Rauði krossinn hefur rekið spí- tala sinn í Khao-I-Dang flótta- mannabúðunum síðan 1979. Ennþá sjást engin merki um lausn á vanda þeirra hundruða þúsunda Kamputseumanna, sem flúið hafa yfir landamærin til Thailands, og enn geysa þar vopnuð átök, er bitna hvað mest á þeim. Spítalinn er líka óbreyttur frá upphafi: Bambus- veggir, bárujárnsþak og steingólf. Loftræsting sjálfvirk um gisna veggina, en þakið vetnshelt. Rúm- fleti sjúklinganna eru einföld og standa þétt saman. Rúmfötin sam- kvæmt venju notenda: Strámotta og teppi. Var mér oft hugsað til fínu sjúkrahúsanna heima, þar sem allt- af var verið að „spara". Hjúkrunarvörur, lækningatæki og lyf voru af skornum skammti. Ekki vegna slæmra samgangna, heldur vegna þess að hægt var að komast af án þeirra. Stuttir, hnit- miðaðir listar sögðu til um það, sem leyfilegt var að panta úr birgða- geymslum Rauða krossins í Bankok. Annað var ekki til um- ræðu. Þótti mér oft nóg um, en komst fljótt að því að þarna var löng reynsla að tala sínu máli. Allir hlutir voru gjörnýttir, þangað til þeir duttu í sulndur, t.d. sárabindi, umbúðir og s.frv. Jafnvel plast- flöskur undan innrennsluvökvum voru skornar til og notaðar sem matarílát, vatnsglös, þvagflöskur eða blævangir. Lyfjalistinn var hörmulega stuttur. Aðeins 2 verkjalyf voru leyfð. þ.m.t. magnyl. Fúkkalyf voru 4 á listanum og giltu strangar reglur um hverjir máttu fá þau og í hvaða tilfellum. Samt voru allir með ljót sár mitt í skordýrafansinum, og þeim var fæstum lokað fyrir en eftir nokkra daga, eða þegar öll merki sýkingar voru á braut. Það er með ólíkindum hvað mannslík- aminn ræður við að lagfæra sjálfur og sú staðreynd var óspart notuð. Rannsóknir voru fáar gerðar, nema röntgenmyndatökur. Þvag- rannsóknir engar og einu blóð- rannsóknirnar voru blóðflokkun og fjöldi rauðra blóðkorna. Annað var bruðl. Skurðstofurnar 2 voru tiltölulega vel útbúnar, en lausar við allt faglegt prjál. Grimm útsjónarsemi ríkti þar sem annars staðar. í þeim voru 5 skurðborð og jafnan unnið við þau öll alla daga vikunnar. Meðal annars varð þar til afsprengi rándýrra beinbrotaáhalda, (ex- ternal fixation), smtðað á staðnum, er sparaði Rauða krossinum hundruð þúsunda króna. Blóðgjafir voru talsverðar á spít- alanum, eins og gefur að skilja. Stór hluti blóðsins var gefinn af Rauða krossfélögunum í Japan og Ástralíu. í sþarnaðarskyni var blóði líka safnað í flóttamannabúð- unum. Jafnvel á þessum vettvangi var hægt að spara meira án þess að stofna lífi og heilsu sjúklinganna í hættu. Engum var gefið blóð fyrr en öll blæðing hafði verið stöðvuð. í sumum tilfellum var blóði blæð- andi sjúklinga safnað saman og þeim gefið það aftur. Og fyrir kom að tappað var blóði af sjúklingum fyrir aðgerð, ef sýnt þótti að blæð- ing yrði mikil. Það fór ekki for- görðum á meðan, og nýttist þeim eftir aðgerðina. Starfsfólk spítalans, fyrir utan um 20 lækna og hjúkrunarfræðinga voru ófaglærðir flóttamenn. Við- tekin ráðdeild þeirra var ómetan- leg, sem og vinnuframlag. Laun þeirra voru í formi matvæla. Þeir smíðuðu spítalann og allt innan- stokks og héldu því við. Þeir sáu um röntgenmyndatökur, blóð- bankann, blóðrannskóknir, um- búðagerð, sótthreinsun, birgða- vörslu og ræstingar. Þeir hjúkruðu sjúklingunum af stakri prýði undir stjórn hjúkrunarfræðinganna og önnuðust lyfjagjafir og blóðsýna- töku. Á skurðstofu aðstoðuðu þeir við svæfingar og aðgerðir. Þeir færustu saumuðu saman þegar sjálfri aðgerðinni var lokið og margir voru hreinustu snillingar í mænudeyfingum. Hækjur, hjóla- stólar, sjúkrabörur og gerfifætur smíðuðu þeir á staðnum með litlum tilkostnaði. Án þeirra hefði R.K. þurft að ráða mun fleiri lækna og hjúkrunarfræðinga, en okkur 20. Rauði krossinn veitir neyðar- hjálp víðsvegar um heiminn á degi hverjum. Khao-I-Dang er ekkert einsdæmi um ráðdeild hans með dýrmætt gjafafé. Samkvæmt minni reynslu og annarra sendifulltrúa er svo alls staðar. Þetta er vert að hafa í huga núna, þegar fyrir dyrum stendur landssöfnun Rauða kross íslands undir nafninu „Flóttamenn ’86“. Lesandi góður. Þú getur linað þjáningar ansi margra og veitt þeim af yl og birtu jólahelginnar, án mikils tilkostnaðar. Framlagi þínu til Rauða krossins daganna 21-22. desember verður vel varið. Hörður Högnason

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.