Tíminn - 17.02.1987, Síða 1

Tíminn - 17.02.1987, Síða 1
ISTUTTU MAU... ÓLAFI EGILSSYNI, sendi herra hefur veriö veitt lausn frá for- mennsku í stjórn Þróunarsamvinnust- ofnunar að eigin ósk. Hefur Matthías Á. Mathiesen utanríkisráðherra, skip- I að Árna Vilhjálmsson, prófessor form- ■ ann í hans stað. Þá hefur Helgi % Ágústsson skrifstofustjóri, verio skipaður varaformaður stofnunarinnar í stað Helga Gíslasonar, sendifulltrúa sem veitt hefur verið lausn frá störfum frá sama tíma, eða 2. febrúar 1986. SVERRIR HAUKUR Gunn- | laugsson, sendiherra hefur verið gerð- ur að fastafulltrúa Islands í Genf frá 1. maí n.k. og jafnframt hefur verið | ákveðið að Þorsteinn Ingólfsson, sendiherra taki við sem skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðun- i eytisins frá sama tíma. NÁMSGAGNASTOFNUN 1 hefur efnt til samkeppni um gerð lesbóka fyrir börn á aldrinum 6-9 ára í og er ráðgert að sú samkeppni standi j næstu tvö til þrjú árin. Gert er ráð fyrir ; að handritum verði skilað inn þrisvar á 1 ári, eða þann 1. maí, 1. september og : | 1. ianúar 1988. Verða veitt þrenn | verolaun í hvert sinn auk viðurkenn- j 1 inga. í SÖFNUNINNI Átak til skjóls hafa nú safnast 2.150.000 kr. auk gjafa, svo sem tölvubúnaðar, innrétt- inga og gólfteppa. Þá hefur stjórn Skjóls verið tilkynnt að nokkrir aóilar hafi ákveðið að ánafna því aðhlynning- ar og hjúkrunarheimili sem verið er að reisa, nokkrar eignir. Stjórn Skjóls ; tekur áfram á móti framlögum til söfn- unarinnar. STOFNAÐ hefur verið Ijós- myndafélag framhaldsskólanema með það í huga að stuðla að betra samstarfi framhaldsskólanema á sviði Ijósmynd- unar. Einnig munu vera uppi áform um árlega Ijósmyndasýningu sem félags- ! menn myndu halda. Var þetta rætt j ásamt því að kosin var stjórn og lög ! samþykkt. Aðdragandinn munu hafa ! verið Ijósmyndasýningar framhalds- skólanema víðsvegar um landið. Inn- tökuskilyrði eru að nemendafélög eigi ; nemendur sem útskrifast sem stúdent- ■ ar eða eru iðnnemar. DÓMSMÁLARÁÐU -neytið hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki beri að taka til greina kröfu ■ lögmanns Ragnars Kjartansson, Jóns Magnússonar, um að ríkissaksóknari ! og embætti hans víki í málinu og sérstakur saksóknari verði skipaður. Hallvarður Einvarðsson ríkissaksókn- ari mun því ákveða hver fer með málið, hann sjálfur, vararíkis- saksóknari eða annar af hans sak- sóknurum. Málið er nú til meðferðar hjá embættinu. FORGANGSLISTAR ráð herrannanna eru að berast inn á borð forsætisráðherra og verða endanlega fyrirliggjandi í dag. Miðað við þá lista sem komir eru fram virðast eftirtalin mál koma til með að setja svip sinn á þinghald síðustu vikurkjörtímabilsins. Þau eru: Skattamálin, Útvegsbanka- málið, Vaxtafrumvarpið. Innan tíðar er von á nefndaráliti vegna umboðs- manns Alþingis og er það mál á listanum. Þá má nefna mál á borð við breytingar á umferðarlögum og sitt- hvað fleira. Eitt hitamálið sem til skamms tíma var í sviðljósinu er lánasjóðsmálið, en það verður ekki á forgangslistanum og verður því ekki afgreitt á þessu þingi. KRUMMI I „Er þá ekki næsta skref að mennta- málaráðherra dragi | uppsögnina til R baka?“ Forsætisráöherra um fræöslustjórafrumvarpið: Eðlilegast að draga frumvarpið til baka - vegna breyttra aðstæðna í kjölfar þess að Sturla kærði málið “Það er komin upp þessi breytta staða, sem við vissum ekki um þegar frávísunartillaga sjálfstæðis- manna var rædd í þingflokknum í dag, en það er, að búið er að stefna ríkisvaldinu vegna þessa máls. Eins og kom fram í máli mínu á þingi í dag þegar ég las upp úr bók Ólafs Jóhannessonar, er ekki eðlilegt að löggjafarvaldið fyrirskipi með lög- um aðra meðferð máls sem er fyrir dómstólum, en þá sem dómstólarn- ir sjálfir ákveða," sagði Steingrím- ur Hermannsson forsætisráðherra við Tímann í gærkvöld þegar hann var spurður um hver yrði fram- vinda frumvarps Ingvars Gíslason- ar, Guðmundar Bjarnasonar o.fl. vegna fræðslustjóramálsins á Norðurlandi eystra og frávísunar- tillögu Sjálfstæðisflokksins á þuð. Forsætisráðherra sagði að efnis- lega væri hlutverk nefndarinnar sem frumvarpið gerir ráð fyrir það sama og nú væri komið til úrskurð- ar hjá dómstólum og því væri óeðlilegt að skipa slíka nefnd. Aðspurður um það hvort hann teldi þá rétt að draga frumvarpið til baka sagði Steingrímur: „Ég vil taka það fram að ég tala einungis fyrir sjálfan mig þegar ég segi að ég teldi það eðlilegast að frumvarpið yrði dregið til baka í Ijósi þessara breyttu aðstæðna.“ Sjá einnig um umræðu á Alþingi á bls. 5. ES/BG Bjarni Ólafsson framleiöslustjóri er liér að ganga frá björgun- arnetinu Markúsi í þar til gerðan kassa. Innfellda myndin sýnir hvernig björgunarnetið virkar í sjónum. Tímamynd Sverrir Markúsarnetið haslar sér völl erlendis: Gert að skyldubúnaði í dönskum f iskiskipum - danski herinn og strandgæsla hyggjast einnig kaupa netið Um helgina var gengið frá samn- ingi milli framleiðenda á björgun- arnetinu „Markúsi" og danska fyrirtækisins Grenaa Smedie Maskinfabrik sem mun annast sölu á Markúsarnetinu í Danmörku. Samningur þessi kemur í kjölfar ákvörðunar dönsku siglingamála- stofnunarinnar um að gera það að reglugerðarákvæði að skylda hug- myndina um Markúsarnet um borð í öllum dönskum-fiskiskipum yfir 20 lestum. Markúsarnetið er hug- mynd Markúsar B. Þorgeirssonar, sem nú er látinn. Taka þessi ákvæði nýju reglugerðarinnar gildi þann 1. júlí nk. Að sögn Péturs Th. Péturssonar er hér um mikinn áfangasigur að ræða þar sem dönsku reglugerð- arákvæðin eru í raun mun meira afgerandi en þau íslensku og ákvörðun Dana gefur sterkt for- dæmi. Pétur sagði að frá 1985 hafi verið unnið að undirbúningi og hönnun ámarkaðssetningu netsins og því væru þetta sérstaklega ánægjuleg tíðindi. Danski herinn og strandgæslan hafa einnig ákveð- ið að taka Markúsarnetið í þjón- ustu sína strax og tilheyrandi leið- beiningar og gögn eru tilbúin á dönsku. Þá er talið líklegt að áhugi verði á því að fá netið á borpalla og víðar. Pétur segir að þetta nierki að netin verði einnig tekin upp í Færeyjum og Grænlandi og getur andvirði þessara viðskipta numið um 40 milljónum á næstu þremur árum og falið í sér sölu á um 2500 netum. Björgunarnetin eru framleidd að öllu leyti á íslandi, og eru þau að talsverðu leyti unnin af öldruðum sjómönnum á Hrafnistu í Hafnar- firði og sagði Pétur Th. Pétursson að þegar væri búið að búa svo um hnútana að fleiri verndaðir vinnu- staðir kæmu inn í framleiðsluna ef þörf krefði. - BG Viðræður um sölu á ull til Sovét Jón Sigurðarson fram- kvæmdastjóri Iðnaðardeildar Sambandsins, Ingjaldur Hann- ibalsson frá Álafossi og Aðal- steinn Helgason verksmiðju- stjóri í ullariðnaði á Akureyri eru í Moskvu um þessar mund- ir að ræða hugsanlega sölu á ull til Sovétríkjanna. „Þeir frestuðu ferð sinni heim, þeir ætluðu að koma um helgina, þannig að maður von- ar að það viti á eitthvað, þó maður viti ekki hvaö það er,“ sagði Kristinn Arnþórsson hjá Iðnaðardeild Sambandsins á Akureyri. Kristinn sagði að menn frá Iðnaðardeild hefðu farið utan til að undirbúa viðræður þessar bæði fyrir jól og eins aila síð- ustu viku. Ekki náðist samband við ís- lenska sendiráðið í Moskvu í gær til að fá upplýsingar um málið. ABS

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.