Tíminn - 17.02.1987, Blaðsíða 4
4 Tíminni
Willem Alexander krónprins Hol-
lendinga líst vel á Stefaníu.
Stefaníu Mónakóprinsessu líst ekki
á hollensku hirðina.
Hollenski krónprinsinn og Stefanía?
“Aldrei”, segir hún!
Stefanía Mónakóprinsessa er
vafalaust draumaprinsessa margra,
enda er hún glæsileg, full af lífs-
krafti og margt til lista lagt. Hún er
orðin 21 árs gömul og mörgum
finnst kominn tími til að hún festi
ráð sitt. En prinsessan vill hugsa
ráð sitt vel.
Nýlega voru henni slegnir opin-
berlega gullhamrar sem sumum
fannst takandi mark á. Hollenski
krónprinsinn Willem Alexander,
19 ára gamall, var spurður hver
væri „draumaprinsessan" hans og
hann svaraði að bragði: Stefanía,
prinsessa af Mónakó.
Stefanía varð skelfingu lostin og
þóttist verða að svara þessari yfir-
lýsingu prinsins. „Tilhugsunin um
að giftast prinsinum er í mínum
augum skelfileg. Prótokollurinn
við hollensku hirðina er alltof
strangur fyrir mig,“ sagði hún og
þar með var sá draumur prinsins
búinn.
Það sópar alltaf að Grace Jones hvar sem hún fer og hún er hin mesta
valkyrja. Hún segist alveg vera jafningi Dolphs í slagsntálum, þó að hann
sé hinn mesti kappi. Það var hann sem lék boxarann Drago hinn rússneska
■ myndinni Rocky IV
Grace Jones brenndi
nýju fötin kærastans!
Hún Grace Jones er fræg fyrir
skapofsa, eins og oft hefur komið
fram í fréttum af henni og kærast-
anum, hinum sænska Dolph
Lundgren. Sum hótel sem þau hafa
gist hafa sett parið á „svartan lista"
vegna óláta og slagsmála.
Ekki hefur sljákkað í dömunni
enn, því að einhvern tíma fyrir
jólin fór kappinn og keypti sér
heilmikið af fínum fötum. Það var
ekki neitt útsöludót heldur klæðn-
aður af dýrustu tegund frá Giorgio
Armani.
En aumingja Dolph komst aldrei
til að punta sig í nýju fötin, því að
upp hófst eitt af þessum æsilegum
rifrildum þeirra - sem þau segjast
bæði hafa gaman af, þó ótrúlegt sé.
í látunum þreif Grace fötin og
henti þeim í arininn þar sem eldur
logaði glatt og þar brann öll dýrðin
upp í ljósum logum.
Nágrannarnir voru steinhissa
þegar þeir sáu hálflrrunnar silki-
skyrtuermar koma fjúkandi upp úr
strompinum og berast til himins
með reyknum!
Priscilla og Marco tilkynna um að
þau hafi gengið í „reynslu-hjóna-
band“
Vissulega er Priscilla komin með
kúlumaga, svo sem sjá má á þessari
mynd sem einn aðgangsharður
Ijósmyndari stalst til að taka af
henni
Priscilla Presley
á von á barni
í tvö ár hefur Priscilla Presley
búið með vini sínum Marco Gar-
ibaldi í Hollywood. Hún hefur
farið með honum að heimsækja
ættingja hans í Brasilíu, en þaðan
fluttist hann til Bandaríkjanna.
Nú eiga þau von á barni, og það
er víst mikil ánægja yfir því á
heimilinu; Marco er sagður geisl-
andi af gleði og dóttirin Lisa Marie
Presley, sem 1. febr. s.l. varð 19
ára er í sjöunda himni yfir að verða
loksins „stóra systir".
Eini ókosturinn er, að líklega
missir Priscilla af DALLAS-hlut-
verki sínu. Búist er við að hún
verði einhvern veginn „leikin" út
úr hlutverkinu sem Jenna, en Prisc-
illa þykir hafa staðið sig prýðilega
og sjálf var hún mjög ánægð með
að leika í Dallas.
Þriöjudagur 17. febrúar 1987
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Samtök sveit-
arstjórna á
höfuðborgar
svæðinu
Svæðisskipulag
höfuðborgarsvæðisins
í október sl. kom út á vegum
Samtaka sveitarfélaga á höfuðborg-
arsvaeðinu, greinargerð um svæðis-
skipulag höfuðborgarsvæðisins
1985-2005. Greinargerð þessi var
unnin af Skipulagsstofu höfuðborg-
arsvæðisins sem hefur allt frá því
hún tók til starfa árið 1980, unnið
markvisst að undirbúningi svæðis-
skipulags fyrir höfuðborgarsvæðið,
allt frá Kjós og suður fyrir Straums-
vík. Skipulagsstofan hefur unnið að
umfangsmikilli söfnun gagna um þá
þætti er hafa áhrif á þróun byggðar-
innar á líf fólks á höfuðborgarsvæð-
inu. Þá hefur reynt að samræma
upplýsingar og stefnu aðildarfélaga
SSH í skipulagsmálum og leggja
drög að framtíðarskipulagi höfuð-
borgarsvæðisins. Greinargerð sú er
Skipulagsstofan sendi frá sér er
liður í þessu verkefni.
Markmið með skipulagsgreinar-
gerðinni og þeim kortum sem henni
fylgdu var fyrst og fremst að gefa
yfirlit yfir þá stefnu sem mörkuð
hefur verið af stjórn SSH í framtíðar-
þróun svæðisins.
Greinargerð þessi er nauðsynleg
lesning öllum þeim sem fylgjast með
og áhuga hafa á sveitarstjórnarmál-
um á höfuðborgarsvæðinu, en
skipulagsmál er einn grunnur þeirra.
Stjórn SSH hefur falið Skipulags-
stofunni að senda greinargerð og
skipulagskort í mælikvarða
1:50.000 til aðildarsveitarfélaga
SSH og munu sveitarfélögin hafa
fengið þetta efni á undanförnum
vikum.
Almenningssamgöngur
Fyrir rúmu ári setti samgöngu-
málaráðherra á fót nefnd er fjalla átti
um almenningssamgöngur á höfuð-
borgarsvæðinu. Nefndin skilaði
skýrslu I október sl. og bar hún
yfirskriftina „Könnun á hagkvæmni
samræmingar á almenningsvagna-
samgöngum á höfuðborgarsvæð-
inu“
Kemst nefndin að þeirri niður-
stöðu að óhjákvæmilegt sé að sveit-
arfélög á höfuðborgarsvæðinu stofni
til samstarfs sín á milli og geri með
sér rammasamning um helstu fyrir-
komulagsatriði. Benti nefndin á að
nauðsynlegt væri að skipa sam-
starfsnefnd sem fyrst.
Á stjórnarfundi SSH í janúar var
samþykkt að óska eftir því við aðild-
arsveitarfélögin að þau tilnefni full-
trúa í undirbúningsstjórn samkvæmt
tillögu nefndarinnar.
Vatnsbúskapur
höfuöborgarsvæðisins
Stjórn SSH hefur sent aðildar-
sveitarfélögunum bréf þar sem sagt
er frá áætlun um rannsóknir á vatns-
búskap höfuðborgarsvæðisins og
áhuga fyrirtækja á þessum rann-
sóknum. í bréfinu voru m.a. tilmæli
til sveitarfélaganna um að þau hug-
uðu að þessum málum og tækju
jákvætt í stuðning við áðurnefndar
rannsóknir.
Svör hafa aðeins boristfrátveimur
sveitarfélögum og hefur stjórn SSH
ítrekað tilmæli sín og lagt fyrir Skipu-
lagsstofuna að halda málinu vak-
andi.
Endurvinnsla á
brotajárni
Samband íslenskra sveitarfélaga
hefur sent SSH bréf þar sem kynnt
er áfangaskýrsla „starfshóps um
endurvinnslu á brotajárni og öðrum
úrgangsefnum", sem stjórn sam-
bandsins skipaði á sl. sumri. í bréfi
sambandsins er þeim tilmælum
beint til stjórnar SSH að boðað verði
til fundar um málið með fulltrúum
sveitarstjórnanna. Málið var rætt á
síðasta fundi stjórnar SSH en
ákvörðun um aðgerðir geymd til
næsta fundar, sem verður haldinn í
þessari viku. -HM