Tíminn - 17.02.1987, Qupperneq 10
10 Tíminn Þriðjudagur 17. febrúar 1987
lllllllllllllllllllllHll ÍÞRÓTTIR lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllll
Enska knattspyrnan:
Evertonhéltvelli
- Arsenal gerði jafntefli og er enn í 2. sæti en
Liverpool er skammt undan eftir sigur á Leicester
Frá Guðmundi Fr. Júnassyni fréttar^tara Tímans
í Fnglandi:
Everton hélt efsta sætinu í Eng-
landi eftir að þeir gerðu jafntefli við
Oxford. Oxford eyðilagði meistar-
avonir þeirra í fyrra en nú tókst
Everton að næla í eitt stig með
síðbúnu marki eftir að þeir voru
undir. Arsenal gerði líka jafntefli og
tókst ekki að komast í efsta sætið
aftur en þeir eiga leik til góða.
Liverpool nálgast toppinn eftir sigur
á Leicester, þeir voru eina liðið af
þeim fjórum sem efst eru sem náðu
að sigra um þessa helgi. Lítum á
úrslitin:
Coventry-Chelsea 3-0: Bryan
Kilcline skoraði fyrsta markið úr
vítaspyrnu á 14. mín., Lloyd
mcGrath skoraði annað á 42. mín.,
hans fyrsta mark fyrir liðið og Nick
Pickering gulltryggði sigurinn í síð-
ari hálfleik. Chelsea fékk aðeins eitt
færi í leiknum er Terry Dixon skaut
hátt yfir eftir að hann komst einn
innfyrir.
Liverpool-Lcicester 4-3: Paul
Walsh kom Liverpool yfir á 30. mín.
eftir sendingu frá Jan Mölby en
þremur mínútum seinna varð Craig
Johnston fyrir því að skalla boltann
í eigið mark eftir hornspyrnu. lan
Rush kom Liverpool aftur yfir á 40.
mín. eftir sendingu frá Mölby og
stuttu síðar var Rush aftur á ferð-
inni, nú eftir sendingu frá Steve
McMahon. Alan Smith náði síðan
að minnka muninn eftir varnarmi-
stök. Rush skoraði sitt þriðja mark
á 87. mín. með skalla en Alan Smith
náði enn að minnka muninn á síð-
ustu mínútunni.
Luton-Aston Villa 2-1: Aston
Villa byrjaði mun betur en Steve
Foster náði þó forystunni fyrir Luton
á 23. mín. með þrumuskoti af 25 m
færi. Mick Harford skoraði annaö
markið úr víti á 34. mín. en Alan
Evans minnkaði muninn undir lokin,
einnig úr víti.
Manchester Cnited-Watford 3-1:
Markahæstir
1. deild
Mörk -
Clive Allen (Tottenham)................34
Ian Rush (Liverpool) ..................29
Tony Cottee (West Ham).................25
John Aldridge (Liverpool) .............21
Colin Clarke (Southampton)............ 18
2. doild
Michael Quinn (Portsmouth).............22
Kevin Wilson (Ipswich).................20
Wayne Clarke (Birmingham)............. 19
Duncan Shearer (Huddersfield)......... 18
Trevor Senior (Roading)............... 17
Knattspyrnuúrslit
Belgía
Waregem-Lokeren............... 3-1
Mecholen-Racíng Jet........... 2-0
Gont-Seraing ................. 2-2
Beveren-Kortrijk ............. 2-1
Anderlecht-Molenbeek.......... 1-1
Corcle Ðruges-Charleroi....... 1-1
Antwerpen-Beerschot........... 1-1
Berchem-Standard.............. 1-0
Anderlecht .... 20 14 5 1 53-13 33
FC Malines .... 20 13 5 2 32-9 31
Beveren........ 20 10 10 0 30-11 30
Club Bruges ... 19 11 5 3 40-20 27
Lokeren........ 20 10 7 3 30-22 27
Spánn
Atletico Madrid-Sevilla......... 0-2
Sabadell-Athletic Bilbao........ 0-0
Cadiz-Real Valladolid........... l-l
Roal Mallorca-Rcal Madrid....... 1-0
Racing-Espanol ................. 1-3
Barcelona-Real Murcia........... 2-0
Osasuna-Las Palmas.............. 2-1
Real Betis-Real Zaragoza........ 0-1
Real Sociedad-Sporting.......... 2-1
Barcelona .... 27 15 11 1 40-13 41
Real Madric . . 27 14 9 4 48-24 37
Espanoi........ 27 13 8 6 42-25 44
Athletic Bilbao . 27 10 9 8 34-29 29
Real Mallorca . 27 11 7 9 35-32 29
Real Sociedad . 27 10 7 10 33-29 27
Atletico Madrid . 27 9 9 9 29-30 27
Real Betis .... 27 10 7 10 27-35 27
Holland
Sparta-Don Haag............. 2-0
WV Venlo-Ajax .............. 3-0
Ajax............ 20 16 2 2 66-17 34
PSV Elndhoven . 19 16 3 1 57-12 33
Don Bosch....... 19 8 7 4 36-27 23
R«h» JC......... 18 8 6 6 26-26 21
Sporta ......... 19 7 6 8 36-27 20
Bryan Robson átti stórleik og aldrei
var nein spurning hvernig leikurinn
færi. Paul McGrath skoraði gott
mark af 15 m færi á 26. mín.,- Peter
Davenport skoraði annað á 48. mín.
úr víti eftir að Terry Gibson var
felldur og Gordon Strachan skoraði
þriðja markið á 65. mín. eftir send-
ingu frá Jesper Olsen. KennyJackett
náði svo að minnka muninn þremur
mínútum fyrir leikslok.
Norwich-Manchester City 1-1:
Það er orðið hátt í ár síðan Man.
City hefur unnið útileik. Peir náðu
þó forystunni á 43. mín. með marki
Brightweli. Þeir voru varla búnir að
fagna markinu er Ian Crook jafnaði
beint úr aukaspyrnu af 20 m færi. Ný
stúka var formlega vígð fyrir leikinn,
hún kostaði 1,7 millj. punda.
Nottingham Forest-VVest Ham 1-1:
Gary Birtles kom Forest yfir á 42.
mín. úr víti eftir að Stewart Robson
hafði brugðið Neil Webb. Ray Stew-
art náði síðan að jafna úr víti á 67.
mín. Forest hefði átt að vinna leikinn
því þeir óðu í færum.
Oxford-Everton 1-1: John Trew-
ick kom Oxford yfir úr vítaspyrnu á
25. mín. Eftir hana var Everton mun
betri aðilinn en þeir náðu þó ekki að
skora fyrr en á 88. mín. og var Paul
Wilkinson þá þar að verki.
QPR-Newcastle 2-1: Paul Godd-
ard kom Newcastle yfir á 62. mín.
en John Byrne náði að jafnaog Mike
Fillery tryggði QPR sigurinn á 75.
mín. með marki af stuttu færi.
Shcfficld Wed.-Arsenal 1-1: Jafn
leikur og hefði getað endað á báða
Úrslit
1. deild:
Coventry-Chelsea ................. 3-0
Liverpool-Leicester............... 4-3
Luton-Aston Villa ................ 2-1
Manchester United-Watford......... 3-1
Norwich-Manchester City .......... 1-1
Nottingham Forest-West Ham........ 1-1
Oxford-Everton ................... 1-1
Queen’s Park Rangers-Newcastle .... 2-1
Sheffield Wednesday-Arsenal....... 1-1
Tottenham-Southampton............. 2-0
Wimbledon-Charlton................ 2-0
2. deild:
Birmingham-Brighton............... 2-0
Crystal Pal.-Bradford ............ 1-1
Grimsby-Reading................... 3-2
Leeds-Barnsley.................... 2-2
Millwall-Sheff. Utd............... 1-0
Oldham-Ipswich.................... 2-1
Plymouth-BIackburn................ 1-1
Portsmouth-Hull................... 1-0
Shrewsbury-Huddersfield .......... 1-2
Sunderland-Derby.................. 1-2
West Bromwich-Stoke............... 4-1
Skoska úrvalsdeildin:
Celtic-Hearts..................... 1-1
Dundee Utd.-Motherwell ........... 2-0
Hamilton-Dundee .................. 1-1
Hibernian-Clydebank............. 4-1
St. Mirren-Rangers ............... 1-3
Frá Guúmundi Fr. Jónassyni frcttarílara Tímans
í Fnglandi:
Breytingar eru í vændum í ensku
knattspyrnunni, nú geta þrjú lið
fallið í 2. deild en jafnframt eiga þrjú
lið möguleika á að komast upp í 1.
deild. Hingað til hafa tvö lið fallið
en því verður breytt þannig að
þriðja neðsta liðið í 1. deild leikur
við fimmta efsta lið í 2. deild, liðin
ÍS tryggði sér sæti í undanúrslitum
í bikarkeppninni í blaki með því að
sigra Víking 3-1 um helgina. Urslit í
einstökum hrinum urðu 15-7, 15-11,
14-16 og 15-9. Stúdentar mæta
Frömurum í undanúrslitum en dreg-
ið var í gærkvöld. Hinn undanúr-
vegu. Niall Quinn kom Arsenal yfir
með góðu skallamarki á 9. mín. en
Mark Chamberlain náði að jafna
með skalla á 52. mín. eftir sendingu
frá James Snodin. Charlie Nicholas
var ekki valinn í 12 manna hópinn
hjá Arsenal í fyrsta skipti í vetur.
Sigurður Jónsson lék með liði Sheff-
ield Wed. allan leikinn.
Tottenhani-Southampton 2-0:
Sigurinn var mjög öruggur og léku
leikmenn Tottenham andstæðingana
oft á tíðum grátt. Richard Gough
skoraði fyrra markið með góðum
skalla eftir sendingu frá Glenn
Hoddle á 10. mín. en Steve Hodge
skoraði annað markið á 62. mín.
með stórglæsilegum skalla eftir send-
ingu frá Hoddle sem síðan var
útnefndur maður leiksins.
Staðan
1. deild:
Everton . . .28 16 6 6 53-23 54
Arsenal . . . 27 15 8 4 42-16 53
Liverpool . . .27 15 6 6 49-27 51
Nott. Forest.... . . . 28 13 8 7 50-34 47
Luton . . .27 13 7 7 31-26 46
Tottenham ... . . . . 26 13 5 8 43-29 44
Norwich . . 27 11 11 5 38-37 44
Coventry . . 28 11 7 10 31-32 40
West Ham ...21 10 8 9 41-44 38
Watford . . 27 10 7 10 45-36 37
Man. Utd . . 27 9 9 9 36-29 36
Wimbledon . . . . . . 26 11 3 12 34-35 36
Q.P.R . . 27 10 6 11 29-33 36
Sheffield . . .28 8 11 9 40-44 35
Oxford . . . 28 8 9 11 31-46 33
Chelsea . . 28 8 8 12 36-48 32
Southampton . .. ..21 8 4 15 41-52 28
Man. City . 21 6 10 11 25-36 28
Leicester . .27 7 6 14 37-49 27
Charlton ..21 6 8 13 26-37 26
Aston Villa ..21 6 6 15 31-56 24
Newcastle .. 21 5 7 15 28-48 22
2. deild:
Portsmouth . .27 17 6 4 35-16 57
Derby . . 26 15 5 6 41-25 50
Oldham . . 27 14 6 7 42-29 48
Plymouth . . 27 11 9 7 42-36 42
Ipswich . . 27 11 8 8 43-31 41
Stoke . 27 12 5 10 42-31 41
Millwall . 27 11 6 10 31-28 39
Birmingham . . .. . .27 9 11 7 37-34 38
Leeds . . 27 10 8 9 32-33 38
Crystal Palace .. . 27 12 2 13 36-43 38
West Bromwich . . 27 10 7 10 37-30 37
Grimsby . .28 8 12 8 31-35 36
Sunderland . 26 8 9 9 32-32 33
Sheffield . . 27 8 9 10 33-36 33
Shrewsbury .. . . . 27 10 3 14 25-35 33
Reading . . 26 8 6 12 37-42 30
Blackburn . .26 7 8 11 24-31 29
Huddersfield . . . . . . 25 8 5 12 32-41 29
Hull . . 26 8 5 13 26-46 29
Brighton . . 27 7 7 13 25-35 28
Bradford . . 26 7 6 13 40-47 27
Barnsley . . 26 6 9 11 26-33 27
Skoska úrvalsdeildin:
Celtic .. 33 21 8 4 68-26 50
Rangers . . 32 22 5 5 63-17 49
Dundee United .. . .31 20 6 5 53-24 46
Aberdeen . 31 16 11 4 47-20 43
Hearts . .32 16 9 7 53-32 41
Dundee . 30 11 7 12 42-39 29
St. Mirren . . 32 9 9 14 28-39 27
Hibernian . . 33 8 8 17 30-53 24
Motherwell . 32- 7 9 16 32-50 23
Falkirk . . 30 6 6 18 25-50 18
Clydebank .. 33 5 7 21 26-74 17
Hamilton . . 31 3 7 21 26-69 13
sem hafna í 3. og 4. sæti í 2. deild
leika innbyrðis og loks leika sigur-
vegararnir úr þessum tveimur viður-
eignum um lausa sætið í 1. deild.
Leikið verður heima og heiman.
Þessar breytingar munu ganga
niður allar deildir en að auki geta lið
nú fallið úr 4. deild, neðsta liðið
fellur út en efsta utandeildaliðið
kemur í staðinn.
slitaleikurinn verður viðureign KA
og Þróttar á Akureyri. í undanúrslit-
um í kvennaflokki leika UBK og
KA annarsvegar en ÍS og Þróttur
hinsvegar. Leikirnir verða að öllum
líkindum leiknir 14. og 15. mars.
Nýjar reglur í ensku knattspyrnunni:
Þrjú lið geta fallið
Bikarkeppnin í blaki:
fSí undanúrslit
Héðinn Gilsson skoraði fjögur falleg mörk í síðustu viðureign íslenska unglingalandsliðsins í handbolta gegn vestur-þýskum
jafnöldrum sínum. Hér er eitt þeirra í uppsiglingu, ekki tekið út með sældinni að skora mörk eins og sjá má. Tímamynd Sverrir
HM á skíöum í Oberstdorf:
Einar í 34. sæti
Einar Ólafsson varð í 34. sæti í 15
km göngu á Heimsmeistaramótinu í
norrænum greinum skíðaíþrótta í
Oberstdorf í V-Þýskalandi á sunnu-
dag. Einar gekk vegalengdina á
46:51,0 mín.
íþróttirnar
í kvöld
í kvöld hefst keppni í 8 liða
úrslitum í bikarkeppni KKÍ. Stór-
leikur kvöidsins verður viðureign
UMFN og ÍBK í Njarðvík kl.
20.00. Á sama tíma keppa KR og
Valur í Seljaskóla en Haukar og
ÍR mætast í Hafnarflrði kl. 21.30.
Einn leikur verður í 2. deildinni
í handknattleik, Grótta og
UMFA keppa í íþróttahúsinu á
Seltjarnarnesi kl. 20.00.
Körfuknattleikur:
ÍBK vann ÍR
Keflvíkingar sigruðu ÍR í eina
leik helgarinnar í 1. deild kvenna
í körfuknattleik. Lokatölur urðu
67 stig gegn 46, nítján stiga
munur.
Sigurvegari í 15 km göngunni varð
Marco Albarello frá Ítalíu sem gekk
á 43:01,8 mín., Thomas Wassberg
frá Svíþjóð varð annar og Mikhail
Deviatiarov frá Sovétríkjunum
þriðji. Gunde Svan frá Svíþjóð varð
í 23. sæti í göngunni, rúmri mínútu
á undan Einari.
Stefán til
KR
Stefán Arnarson markvörður hefur ákveðið að
ganga til liðs við KR. Hann lék með Val á síðasta
keppnistímabili en lék lítið með vcgna meiðsla, aðeins
6 lciki. Stefán á að baki 50 lciki í 1. deild og 2 U-18
landsleiki. Stcfán lék áður með KR.
Úrvaisdeildin í körfuknattleik:
Haukar höfðu Fram
Það voru uppi raddir um það í Hagaskóla á
sunnudagskvöldið að nú myndu Framarar
næla sér í sín fyrstu stig í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik. Mótherjarnir, Haukar frá
Hafnarfirði, voru þó ekki á þeim buxunum að
veita Frömurum nokkur stig og sigruðu örugg-
lega í leiknum með 80 stigum gegn 65. Staðan
í hálfleik var hinsvegar 39-38 fyrir Fram.
Framarar byrjuðu vel, Símon Ólafsson og
Þorvaldur Geirsson voru í hörkustuði og
skiptust á að skora stigin fyrir Reykvíkingana.
Símon hitti reyndar vel allan leikinn og var er
yfir lauk langatkvæðamestur Framara.
Haukarnir virkuðu ekki sannfærandi, sér-
staklega í sóknar og varnarfráköstum þar sem
Framararnir Símon, Þorvaldur og Ómar Þrá-
insson nær einokuðu þau til að byrja með.
Pálmar Sigurðsson, Henning Henningsson og
ívar Ásgrtmsson héldu þó Hafnfirðingunum á
skorspjaldinu og Framarar leiddu því aðeins
með einu stigi er gengið var til leikhlés.
í síðari hálfleik keyrðu Haukarnir upp
hraðann og breyttu á stuttum tíma stöðunni úr
46-41 í 61-48. Þar með var spurningunni um
hvert stigin færu svarað.
Pálmar Sigurðsson var bestur Hauka og lék reyndar
aíar vel allan tímann. Hann skoradi 30 stig fyrir sitt lið,
þar af fjórar þriggja stiga körfur. ívar Ásgrímsson lók
einnig vel, skoraði grimmt, alls 21 stig, og lék vel í vörn
sem sókn. Henning Henningsson fylgdi þeim fólögum
skammt á eftir, skoraði 14 stig. Aðrir sem skoruðu fyrir
Hauka voru Tryggvi Jónsson, 5 stig, Sigurgeir Tryggva-
son (4), ólafur Rafnsson (4) og Ingimar Jónsson (2).
Símon ólafsson var bestur Framara. Hittni hans með
afbrigðum góð og hann og Auðunn Elíasson raunar þeir
einu í Framliðinu sem hittu ofan í körfuna án þess að
tilviljunarlögmálið róði rikjum. Símon skoraði 25 stig og
Auðunn var með 15 stig. Þorvaldur Geirsson byrjaöi
leiklnn vel en siðan datt hann niður á lœgra plan. Hann
skoraði 10 stig fyrir Fram. Jóhann Bjarnason (11), Ómar
Þróinsson (2) og Þorsteinn Guðmundsson (2) sáu um
afganginn af körfum Framara sem enn verða að halda
áfram að berjast fyrir sínum fyrstu stigum í deildinni.
Sú barátta gæti reynst erfið.
Það voru Bergur Steingrimson og Kristinn Albertsson
sem dæmdu þessa viðureign.
Þriðjudagur 17. febrúar 1987
Tíminn 11
ÍÞRÓTTIR
ísland og Vestur-Þýskaland mættust í unglingalandsleikjum í handknattleik um helgina:
Þeir íslensku reyndust
ofjarlar Þjóðverjanna
Það vantar ekki efniviðinn í hand-
boltann hér á landi, það sást greini-
lega í leikjum íslenska unglinga-
landsliðsins, skipað leikmönnum 18
ára og yngri, gegn vestur-þýskum
jafnöldrum sínum. í fyrsta leiknum
sem var á föstudagskvöldið sigruðu
íslensku strákarnir létt og það sama
var upp á teningnum bæði á laugar-
dag og sunnudag í íþróttahúsi
Digranesskóla.
Konráð Olavsson úr KR var
markahæstur íslensku leikmann-
anna á laugardag er ísland sigraði
27-21. Konráð skoraði 9 mörk, þar
af 4 úr vítum, en Árni Friðleifsson
úr Víking og fyrirliði unglinganna
skoraði 5 mörk.
Leikurinn á sunnudaginn var ólík-
ur hinum að því leyti að nú héngu
Vestur-Þjóðverjarnir í íslensku
strákunum meirihlutann af fyrri hálf-
leik og virtust hvergi bangnir. Undir
lok hans skildu þó leiðir, staðan í
hálfleik 11-7 og í síðari hálfleik var
ekki spurt að úrslitum. Viðureign-
inni lauk með sigri íslendinga 23-17.
Konráð Olavsson, sá skæði horna-
maður, var enn á ný markahæstur
íslensku leikmannanna, skoraði 5
mörk en 4 þeirra komu úr vítum.
Héðinn Gilsson, stórskytta úr FH,
skoraði 4 falleg mörk og þeir Halldór
Ingólfsson úr Gróttu og hornamað-
urinn snaggaralegi úr Aftureldingu,
Sigurður Sveinsson skoruðu 3 mörk
hvor. Mörk Halldórs komu úr vít-
askotum. Guðmundur Pálmason
KR, Óskar Helgason FH og Sigurp-
áll Aðalsteinsson úr Þór frá Akur-
eyri, í sínum fyrsta landsleik, skor-
uðu allir tvö mörk. Ólafur Kristjáns-
son FH og Þorsteinn Guðjónsson
KR, geysisterkur varnarmaður og
góður í sókn ef því var að skipta, sáu
um afganginn af mörkunum fyrir
íslenska unglingalandsliðið.
Sigtryggur Albertsson úr Gróttu
og Leifur Dagfinnsson úr KR vörðu
markið fyrir landsliðið í þessum leik
og stóðu sig báðir ágætlega.
Vestur-þýska liðið var ekki svo
slakt, leikmenn þess stórir, þó eng-
inn sem Volker Zerbe sem var
rúmlega tveir metrar á hæð, en helst
til of atkvæðalitlir á köflum. Raunar
var engum blöðum um það að fletta
að þeir þýsku hittu hreinlega ofjarla
sína á handboltasviðinu í heimsókn
sinni til íslands.
Svanhildur setti
tvö íslandsmet
Svanhildur Kristjónsdóttir setti
tvö íslandsmet á Norðurlandam-
eistaramótinu í frjálsum íþróttum
í Osló um helgina. Svanhildur
hljóp 200 m á 25,32 sek. og varð í
4. sæti. Þá hljóp hún 60 m á 7,66
sek. Þórdís Gísladóttir varð í 4.
sæti í hástökki, stökk 1,84 m, sömu
hæð og þær stúlkur sem urðu í 2.-3.
sæti. Oddný Árnadóttir hljóp 400
m á 57,10 sek. og 200 m á 26,02
sek. Hjörtur Gíslason hljóp 60 m
grindahlaup á 8,34 sek. sem er
aðeins 5/100 sek. frá íslandsmeti
hans. Sigurður T. Sigurðsson stökk
4,80 m í stangarstökki og varð í 5.
sæti og Kristján Gissurarson stökk
4,50 m.
Urvalsdeildin í körfuknattleik:
IBK náði að sigra
eftir að Valsmenn voru yfir lengst af
Frá Margréti Sandcrs í Njardvík:
Keflvíkingar sigruðu Valsmenn
með 73 stigum gegn 70 í leik liðanna
í úrvalsdeildinni í körfuknattleik á
sunnudagskvöldið.
Valsmenn náðu þegar yfirhönd-
inni og eftir 4 mín. var staðan orðin
10-2 og höfðu þeir góða forystu
framan af fyrri hálfleik. Um miðjan
hálfleikinn tók Guðjón Skúlason
góða syrpu, skoraði þá m.a. tvisvar
þriggja stiga körfu og staðan var
orðin 24-20 fyrir Val. Aftur dró
sundur með liðunum og í hálfleik
varstaðan 40-33 fyrirVal. Valsmenn
héldu enn forystunni en Keflvíking-
ar náðu loks að jafna á 30. mín.,
63-63. Bræðurnir Hreinn og Gylfi
Þorkelssynir voru potturinn og
pannan í þeim breytingum og einnig
því að Keflvíkingar náðu að sigra
73-70. Þeir skoruðu báðir grimmt í
lokin. Á síðustu mínútunni var gíf-
urleg spenna, Keflvíkingar með
nauma forystu og Valsmenn með
boltann. Sturla Örlygsson reyndi
frítt þriggja stiga skot 19 sek fyrir
leikslok en það geigaði og Keflvík-
ingar sigruðu.
Guðjón Skúlason var bcstur í liði
Keflvíkinga í fyrri háfleik, skoraði
þá 15 stig og átti stórgóðan leik. í
seinni hálfleik voru það bræðurnir
Hreinn og Gylfi sem stóðu sig með
afbrigðum vel, sérstaklega í lokin.
Hjá Val voru það Tómas Holton,
Einar Ólafsson og Torfi Magnússon
sem stóðu uppúr.
Keflvíkingar voru mjög óákveðnir
í fyrri háfleik og vantaði tilfinnan-
lega Jón Kr. Gíslason í lið þeirra en
hann er meiddur. Þeir komu mun
ákveðnari til leiks í síðari hálfleik og
náðu að sigra en stigin tvö hefðu
Staðan
Staðan í úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leik:
UMFN ... ...16 14 2 1322-1155 28
ÍBK ...16 11 2 1215-1052 22
Valur .... . .. 16 9 7 1127-1072 18
KR 7 8 1025-1107 14
Haukar ...15 6 9 1093-1090 12
Fram .... ...16 0 16 950-1252 0
auðveldlega getað lent Valsmegin.
Stigin, ÍBK: Hreinn Þorkelsson
21, Guðjón Skúlason 20, Gylfi Þor-
kelsson 13, Ólafur Gottskálksson
11, Falur Harðarson 4, Matti Ó.
Stefánsson 2, Sigurður Ingimundar-
son 2. Valur: Einar Ólafsson 19,
Torfi Magnússon 19, Tómas Holton
18, Björn Zoéga 6, Leifur Gústafs-
son 5, Páll Arnar 3.
Dómarar: Kristinn Albertsson og
Ómar Scheving.
Falur Harðarson Keflvfldngur kominn á auðan sjó eftir hraðaupphlaup.
Einar Ólafsson er greinilega ilia svekktur að hafa ekki náð að stöðva hann.
Myndina tók Sverrir í leik ÍBK og Vals í úrvalsdeildinni á sunnudagskvöldið.
■ Pétur Guðmundsson körfu-
knatíleiksmaður hefur verið seldur
frá Los Angeles Lakers í banda-
rísku atvinnumannadeildinni í
körfuknattleik. Pétur hefur ekki
getað leikið með vegna meiðsla í
vetur. Nýja liðið er San Antonio
Spurs.
■ Jordanka Donkova frá Búlgar-
íu setti um helgina nýtt heimsmet
í 60 m grindahlaupi innanhúss,
hljóp á 7,74 sek. Eldra metið, 7,75
sek., átti Bettine Jahn A-Þýskal-
andi frá 1983.
■ Igor Lotorev Sovétríkjunum
setti heimsmet í 1000 m hlaupi
innanhúss um helgina, hljóp á
2rl8,00 mín. Eldra metið átti Se-
bastian Coe frá Bretlandi, 2:18,58
mín. sett í mars 1983.
■ A-sveit Ármanns sigraði í
karlaflokki í sveitakeppni Judos-
ambands fslands sem fram fór um
helgina. A-sveit KA varð hlut-
skörpust í drengjaflokki.
■ ftalir sigruðu Portúgala með
einu marki gegn engu í leik liðanna
í Evrópukeppni landsliða í knatt-
spyrnu um helgina. Markið skoraði
Alessandro Altobelli í fyrri hálf-
leik.
■ Groningen frá Hollandi sigraði
í borgakeppninni í knattspyrnu í
Kuala Lumpur í Malasíu um helg-
ina. Groningen vann Seoul 7-1 í
úrslitaleik. 1 undanúrslitum vann
Groningen Luzern sem ÓmarTor-
fason leikur með 2-1 og Seoul vann
Kuala Lumpur 1-0.
WNBA
Úrslit í leikjum helgarinnar í
bandarísku atvinnumannadeild-
inni ■ körfuknattleik:
Deth>it-Cleveland ......... 113-109
Houston-New Jersey......... 121-00
Milwaukee-Seattle........... 106-104
Washington-Denver Nuggets . 121-115
Boston Celtics-Golden State .. 134-112
Sacramento-Dallas.......... 129-125
Detroit-Phil. 76ers........ 125-107
Chicago Bulls-N.Y. Knicks ... 112-108
Dallas-L.A. Clippors ...... 138-107
Milwaukee-Houston ......... 116-101
Denver Nuggets-Indiana .... 129-113
Utah Jazz-S.A. Spurs....... 108-95
Sacramento-Washington .... 136-111
Golden State-Atlanta ...... 103-96
N.J. Nets-Cleveland........ 120-104
L.A. Lakers-Boston Celtics .. . 106-103
Portl. T. Blazers-Atl. Hawks .. 98-93
Staðan: 1
Austurströndin:
Atiantshafsdeildin: U T
Boston Celtics ...............37 13
Philadelphia 76ers...........28 22
' Was.úngton Bullets......... 26 23
New York Knicks...............15 35
New Jersey Nets...............12 37
Miðdeild:
Detroit Pistons...............32 16
Atlanta Hawks.................31 18
Milwaukee Bucks...............32 21
Chicago Bulls.................25 23
Indiana Pacers................23 „27
Cleveland Cavaliers .........19 31
Vesturstróndin:
Miðvesturdeild:
Dallas Mavericks..............32 17
Utah Jazz ....................29 20
Houston Rockets .............26 23
Denver Nuggets................23 28
San Antonio Spurs.............18 33
Sacramento Kings..............16 33
Kyrrahafsdeild:
Los Angeles Lakers............38 12
Portland Trail Blazers........31 21
Golden State Warriors ........26 26
Seattle STupersonics..........25 25
Phoenix Suns..................22 29
Los Angeles Clippers ......... 8 41
UMSJÓN:
Árnadóttir
IBLAÐAMAÐUR