Tíminn - 17.02.1987, Qupperneq 12

Tíminn - 17.02.1987, Qupperneq 12
12 Tíminn BÓKMENNTIR lllll!!l!!l!!ll!!!lll!llllllllllllllllllll!!llllllllll|l!!ll!! Þriðjudagur 17. febrúar 1987 Sígild sönglög Nú fyrir jólih gaf Svart á hvítu, hið fjörmikla og hugumstóra útgáfufyr- irtæki, út lítið sönglagakver með „Sígildum söngvum - texta, nótum og gítargripum“. Gylfi Garðarsson bjó kverið til prentunar. Svart á hvítu hefur reynt það, sem Penguin- útgáfan breska komst að fyrir löngu, að það er mikill markaður fyrir góðar bækur af öllu tagi: íslendinga- sögurnar (í 2 bindum), Nafn rósar- innar, Grámosinn glóir, svo dæmi séu nefnd. Lengi hefur verið þörf fyrir kver af þessu tagi; það er e.k. nútíma-afbrigði af „fjárlögunum“ og „Nýju söngvasafni handa skólum og , heimilum“ (1949), þar sem gítargrip eru komin í staðinn fyrir píanó- undirspil, og lögin spanna stærra svið. Þarna eru samankomnir yfir 100 söngvar til að syngja í rútubílum, skíðaskálum, á kvöldvökum, í heimahúsum og hvar annars staðar sem er, ættjarðarlög, sígildir slagar- ar, jólasálmar, þjóðlög (Ó mín flask- an fríða), drykkjusöngvar - næstum því allt, sem Islendingar syngja með- an þeir eru ungir eða búnir að fá sér í glas. Jafnvel Yfir kaldan eyðisand, ef einhver skyldi þurfa að rifja upp lag eða texta. Þarna er raunar saman kominn lunginn úr því, sem gefið hefur verið út af söngvum í vasasöngbókum og söngvasöfnum á undanförnum áratugum, og söng- hæft getur talist fyrir venjulega nú- tíma- íslendinga. Og sitthvað, sem ekki hefur komið út nótusett áður. f formála segir Gylfi Garðarsson um kverið: „í þeirri bók sem hér birtist er reynt að tengja vasasöngbókina og- nótusettu söngbókina saman á þann hátt sem tíðkast hefur um nokkurt skeið erlendis. Öll lögin, nema tvö tvísöngslög, eru hljómsett með hljómabókstöfum og tíl hægðarauka fyrir þá sem geta leikið undir á gítar eru gítargrip hljómanna - „vinnu- konugrip“ - birt með hvetju lagi. Tónteg- undir laganna eru annars vegar mið- aðar við að þau henti almennri sönggetu og hins vegar að gítargripin séu einföld." Svo sem sjá má af þessu er hér um hið mesta öndvegiskver að ræða, vandaða bók og skemmtilega með talsvert uppeldislegt gildi í bland, því þeim fjölgar nú óðum sem engan íslenskan texta kunna og geta tæp- lega betur en raulað hin algengustu þessara laga. Eins og aðrar bækur Svarts á hvítu eru „Sígild sönglög" vel unnin og myndarlega - fyrir- myndarbók frá fyrirmyndarforlagi. Sig. St. Krummi krunkar úti Hiísgangur Þjóalag A E E7 f» BSBHi b. Jjjrti , ! | 1 ~jjl|A' ~ 11 Krumm-i knmk-ar út - i, kall-ará nafn-a sinn.: ^,Ég fann höf-uð af ^ hrút - i, hrygg og gær - u - skinn. frfrhHfiLu'Lijn i rniUii Komd-u nú og kropp-að-u meS mír, knimm-i, nafn - i minn.” Kveðið á Sandi Kristján Jónssoo Þjóðlag Yf-ir kald-an eyð - i - sand einn um nótt ég sveim-a; nú erhorf-ið Norð-ur - land, nú á ég hverg-i heim - a. Illlllllllllilllllllllllllll TÓNLIST lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll GUESITÓNLEIKAR Efnisskrá: Szymon Kuran: Sinfónía Concertante Rachmaninoff: Píanókonsert nr. 2. Gustav Mahler: Sinfónía nr. 1. Sinfóníuhljómsveit Islands hóf síðara misseri vetrarins með tón- leikum í Háskólabíói hinn 5. febrú- ar. Auglýsing fyrir tónleikana hafði tekist sérlega vel - meira að segja var látið að því liggja, að einleikar- inn, sovétmaðurinn Dmitri Alexejef (f. 1947), drægi fólk frá útlöndum að tónleikunum. Enda var Háskólabíó troðfullt áheyrendum, og tvíselt í mörg sæti, rétt eins og hjá Flugleið- um. Og, ólíkt því sem stundum er, stóðu tónleikarnir fyllilega undir þeim væntingum sem við þá voru bundnar og urðu í tölu ágætustu tónleika Sinfóníuhljómsveitarinnar í langa hríð. Sem er ekki lítið sagt, því hljómsveitin er í sterkri upp- sveiflu um þessar mundir, og aðsókn að tónleikunum betri en nokkru sinni fyrr. Þegar svona glæsilega tekst til er tæplega neinu einu að þakka, enda fór hér saman örugg og innblásandi hljómsveitarstjórn Franks Shipway frá Bretlandi, glæsi- spilamennska Alexejefs, prýðileg viðfangsefni og skemmtileg áheyrn- ar og Sinfóníuhljómsveitin í sínu besta formi. Szymon Kuran er Pólverji sem hefur starfað með Sinfóníuhljóm- sveit íslands síðan 1984, og að auki tekið mikinn þátt í íslensku tónlistar- lífi sem tónskáld og hljóðfæraleikari. Verk hans, Sinfonia concertante. í minningu D. Sjostakovits var samið á árunum 1975-77, en Sjostakóvitsj andaðist 1975. Verkið er ritað fyrir flautu, fimm pákur og strengjasveit. Fyrrnefndu hljóðfærin gegna mikil- vægu einleikshlutverki í öllu verk- inu. Einleikarar voru MartialNarde- au á flautu og Reynir Sigurðsson á pákur. Nardeau er franskur, eins og nafnið bendir til, en kvæntur ís- lenskri konu. Hann er í röð fremstu flautuleikara hér um slóðir og hefur tekist á við tónlist allt frá hinu samtímalegasta til tónlistar forn- manna til jass. Nardeau hefur fagran tón og óbilandi tækni. Reynir Sig- urðsson er einn helsti slagverksleik- ari Sinfóníuhljómsveitarinnar, jafn- vígur á þríhyrning, pákur og bongó bongó. Og Sinfónía concertante eftir Kuran féll mönnum afar vel í geð, eins og raunar fleiri verk hans hafa gert, sem hér hafa verið flutt. Eða, eins og tónlistarmaður nokkur Frank Shipway benti á í fyrra, þá er samtímatónlist aftur að verða þannig að menn koma syngjandi út af tónleikum, en fyrir fáum árum komu menn gnístandi tönnum af „nútímatónleikum“. Píanókonsert Rachmaninoffs er meðal vinsælustu konsertstykkja 20. aldar, saminn um aldamótin 1900. Dmitri Alexejef spilaði af miklum glæsibrag, svo sem vænta mátti af sovéskum píanista, því þeir gersku senda aldrei tónlistarmann vesturyf- ir nema hann sé í fremstu röð. Alexejef virðist hafa dálítið sér- viskulega framkomu, svo sem vænta mætti af ungum stórkúnstner, en hreyfingar hans bera vitni um gríðar- lega líkamsþjálfun, því hann fjaðrar eins og stálbentur gúmmíkarl; úln- liðatæknin er slík, að hann gæti látið vínglas standa á framhandleggnum án þess að hrærast þótt hann tæki hina hröðustu áttundaskala, en slíkt Alexejef spilaði „með stálfingra- tækni“, og var það lof. í Mahler máttu allir sýna sitt besta, strengir, tré, blikk og slagverk, og spiluðu með dæmafáum glæsibrag, allir sem einn. Þótti vin- um 1. sinfóníu Mahlers sem þessi spilamennska væri „líkt og úti í Danmörk forðum", eins og segir í rímunni. í þessu langa verki var aldrei dauft augnablik, og ber sjálf- sagt að þakka stjórnandanum stóran þátt í því. Sig. St. I FRÍMERKI llllllllllllllllllllllll Verðlistar 1987 IIIIIIIIIM LESENDUR SKRIFA Ar kattarins gengið í garð P.s. Mjór möguleiki er á að eitthvert annað land hafi 1987 sem ár kattar. En fréttin er engu að síður alröng. Áreiðanleiki DV- frétta tíundaður íslensk frímerki og íslenski frí- merkjalistinn, sem enn eru með því verði, sem er hvað raunhæfast í sölu frímerkja, eru í ár þegar á heildina er litið, nær alveg sammála um verð íslenskra frímerkja. Þeir eru því enn þeir listar sem gefa kaupendum sínum hvað réttastar hugmyndir um verðmæti safnanna. Aldrei skyldu menn þó gleyma því að verð þeirra er miðað við að merkin séu á þessu verði, er þau eru seld úr verslun. Því er hvorki innifal- inn söluskattur, né heldur gildir þetta verð um innkaup frímerkjakaup- manna. Þeir greiða aðeins hluta þessa verðs þegar þeir kaupa inn. Facit, sænski listinn yfir frímerki Norðurlandanna, er hins vegar orð- inn eins konar skiptilisti. Þar er verð merkjanna allt of hátt og má segja að safnarar og jafnvel sumir kaup- menn, selji frímerkin samkvæmt þeim lista, og dragi þá frá 45-50%. Svipaða sögu er að segja um AFA, eða danska frímerkjaverðlistann. Þó skyldi þess gætt að í verði þess lista er söluskattur innifalinn. Því þarf fyrst að draga hann frá og síðan að finna út hvaða prósentu skal nota til að finna raunverulegt söluverð. Af heimslistunum er kannske Mic- hel hinn þýski mest notaður á ísl- andi. Þetta er listi sem alla tíð hefir haft sinn umboðsmann á fslandi og þegið ráð um skráningu íslenskra merkja. Því er skráningin þar einna réttust af heimslistunum að vera. Varðandi það að finna raunverð frímerkjanna eftir þeim lista hefir mér virst réttast að tífalda verð hans í þýskum mörkum, þó nægir það ekki alltaf. Svo mega safnarar ekki gleyma því, að fyrsta flokks merki með óskertu lími, séu þau ónotuð, eða fallega stimpluð séu þau notuð, seljast ávallt á nokkuð hærra verði en frímerkjalistar segja til um. Þá er og hitt, að minnsti galli dregur úr verði merkjanna og það svo um munar. Geta jafnvel dýrustu merki aðeins orðið verð 1-10% af verðlista- verði vegna galla, þótt þau líti sæmi- lega út á síðu frímerkjabókarinnar. En þessi mál hefi ég svo oft rætt. þáttunum að ekki skal haldið lengra nú. Miklar umræður hafa átt sér stað meðal safnara, um jólafrímerkin á undanförnu ári og það sem af er þessu. Sýnist þar flestum, að til vandræða horfi ef gera eigi jóla- merkin að „afstrakt" myndum ársins á frímerkjum. Hægt er að vera sammála þessu. Hví þá ekki að nota þær hugmyndir er réðu í upphafi, þegar merkin voru með myndum laufabrauðs? Taka fyrir á hverju ári eitthvað séríslenskt er snertir jólin. Við eigum marga jólasveina, sem mundu prýða þau. Auk þess eigum við fagrar og fágætar kirkjur. Torf- kirkjur, bysantísku kirkjuna að Auðkúlu, Grundarkirkju með fallegu umhverfi. Teikningarnar af gömlum kirkjum í Skálholti og svona mætti lengi telja. Jólasögur og ævintýri úr þjóðsögum, sem við gætum ekki síður látið gera frímerkjamyndir í sambandi við en Kórea. En látum þetta duga að sinni. Alþjóðleg málaralist á rétt á sér að vissu marki á frímerkjum, en látum hið séríslenska ekki síður koma fram, því að frímerkin eru nú einu sinni nafnspjald þjóðarinnar út á við. Sigurður H. Þorsteinsson 1 næst síðasta helgarblaði DV blasti við okkur lesendum feitletruð fyrirsögn: Ár kattarins gengið í garð Eitthvað fannst mér þetta undar- legur fréttaflutningur og fór að afla mér heimilda. Kínverska sendiráðið staðfesti svo endanlega grunsemdir mínar. Ár kattarins er ekki til í kínverskri astrologíu. Árið í ár er ár kanínunnar. Skyldu allar DV fréttir vera jafn áreiðanlegar og þessi! (Tekið skal fram að ég opnaði ekki DV fyrr en á, þriðjudag.) MA

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.