Tíminn - 17.02.1987, Side 19

Tíminn - 17.02.1987, Side 19
Tíminn 19 Þriðjudagur 17. febrúar 1987 Búið er að leggja á borð og gestgjafarnir Edda og Sonja bara beðið eftir Hjördís Hjartardóttir fólagsráðgjafi hefur umsjón með þættinum um réttarstöðu og félagslega þjónustu á Rás 1 kl. 13.30 í dag. Réttarstaða og félagsleg þjónusta Kl. 13.30 í dag, í þættinum í dagsins önn, verður fjallað um réttarstöðu og félagslega þjónustu í umsjá Hjördísar Hjartardóttur. Þetta efni, réttarstaða og félagsleg þjónusta verður annan hvern þriðjudag til umfjöllunar og er markmið þáttanna að koma á framfæri upplýsingum um réttarstöðu fjölskyldunnar innbyrðis og réttindum fólks almennt til félagslegra úrræða. Fyrsti þátturinn var fyrir hálfum mánuði. Byrjað er á því að taka fyrir réttarstöðu við hjónaskilnað og slit á óvígðri sambúð og verður fjallað m.a. um forsjá barna, umgengisrétt, eignaskipti, meðlög o.fl. Hlustendum er gefinn kostur á að hringja inn spurningar að lokinni útsendingu þáttarins hverju sinni og einnig er hægt að senda spurningarnar skriflega. Umsjónarmenn leita svara við þeim fyrirspurnum sem berast og verður þeim útvarpað í næstu þáttum. Þannig hafa hlustendur áhrif á það hvert umfjöllunarefnið verður hverju sinni. Fyrst um sinn verða umsjónarmenn þessara þátta tveir, þær Ásdís Skúladóttir og Hjördís Hjartardóttir. Fjörulalli íMorgunstund barnanna Kl. 9.03 á virkum dögum er Morgunstund barnanna á Rás 1. Þar eru lesnar sögur sem ungir hlustendur hafa gaman af að hlusta á, en það sama gildir líka um marga þá sem eldri eru. í gærmorgun byrjaði Dómhildur Sigurðardóttir lestur sögunnar „Fjörulalli" eftir Jón Viðar Gunnlaugsson og heldur hún áfram lestrinum í dag. „Fjörulallar" kölluðust strákar sem áttu heima í Fjörunni á Akureyri á þeim árum sem erjur milli stráka í ýmsum bæjarhlutum stóðu með mestum blóma. Þá áttust við „brekku- sniglar" (bjuggu á brekkunni), „Eyrar-púkar" (áttu heima á Oddeyrinni), „þorparar" (Glerárþorpsbúar) og “fjörulallar". Klassapíur mættar til leiks á ný! Kl. 20.40 í kvöld mæta Klassapíur aftur til leiks á Stöð 2 en þær hafa verið fjarverandi um hríð og hafa margir saknað þeirra. Konurnar fjórar sem ætla að eyða efri árunum í áhyggjuleysi í sólinni á Flórída hafa lag á því að fá alls kyns tilbreytingu inn í líf sitt. Klassapíur hlutu Golden Globe verðlaunin í ár sem besti gamanþátturinn í sjónvarpi. Islensk tón- list undir miðnættið Kl. 23.30 strax eftir endurflutning leikritsins 19. júní, hefst flutningur á íslenskri tónhst á Rás 1. Fyrst leikur Helga Ingólfsdóttir sembalsónötu eftir Jón Ásgeirsson. Þá verður „Úr dagbók hafmeyjunnar" eftir Sigurð E. Garðarsson í flutningi Gunnars Björnssonar og David Knowles á selló og píanó. Og að lokum flytja þau Guðný Guðmundsdóttir og Halldór Haraldsson Fiðlusónötu eftir Jón Nordal. Offita og megrunar- • kúrar meðal mála í Torginu Kl. 17.40 í dag er Torgið á dagskrá Rásar 1 að vanda og fjallar um neytenda- og umhverfismál í umsjón Steinunnar Helgu Lárusdóttur. Offita er lítt leysanlegt vandamál margra og það er meðal umfjöllunarefna í Torginu í dag. Þar greinir Einar Ingi Magnússon frá rannsóknum innan félagsvísinda á þeim persónulegu og félagslegu þáttum sem taldir eru hafa áhrif á holdafar fólks. Gísh Einarsson, læknir ræðir um megrunarkúra. Hann fjallar m.a. um ástæðurnar fyrir því að megrunarkúrar ganga yfirleitt illa nema helst í byrjun og ræðir um afleiðingar langvarandi megrunar á heUsu fólks. Þá verður stuttlega fjallað um afleiðingar laxeldis á umhverfi einkum með tilliti til mengunarhættu. Gunnar Steinn Jónsson hjá Hollustuvernd ríkisins mætir í talstofu. Kvöldkaffi í Andrés Björnsson, fyrrverandi útvarpsstjóri les Passíusálmana á Rás 1 í ár. Passíusálmar Kl. 22.20 í kvöld les Andrés Björnsson, fyrrverandi útvarpsstjóri annan Passíusálm á Rás 1 en lestur Passíusálma hófst í gærkvöld. Lestur Passíusálma á föstunni er gróin hefð í útvarpinu og hafa þeir verið lesnir árlega frá 1944. Fyrstur tU að lesa Passíusálma í útvarp varð Sicrurbjörn Einarsson biskup, en meðal þekktra lesara á seinni árum eru Jón Helgason, Sigurður Nordal, Sverrir Kristjánsson, Þorsteinn ö. Stephensen, Árni Kristjánsson og Halldór Laxness. Andrés Björnsson hefur lesið sálmana einu sinni áður, en það var fyrir réttum fjörutíu árum, 1947. Er ekki að efa að ýmsir munu leggja eyru við lestri Andrésar, enda hefur hann verið einn helsti ljóðalesari útvarpsins um áratugaskeið. sitja þær Edda Andrésdóttir og SonjaB. Jónsdóttir við kaffiborð í Sjónvarpinu ásamt gestum sínum. Nú eru það nokkrir kunnustu spaugarar landsins sem þær stöllur spjalla við um þá hst og atvinnu að koma fólki til að hlæja. Á nýliðnum vikum hafa þær fengið að kaffiborðinu gesti til viðræðna um kvenréttindamál, það var á 80 ára afmælisdegi Kvenréttindafélgs íslands, og annar hópur ræddi um hvernig fyrirbyggja megi að alnæmi verði að farsótt hér á landi. Bæði þessi kaffisamsæti vöktu athygli og áframhaldandi umræður manna á meðal og nú er eftir að sjá hvort þannig verður um þáttinn í kvöld. Marta Unnarsdóttir er íslandsmeistari í vaxtarrækt og mega margir öfundahanaaf þessum spengilega og vel þjálfaða líkama. Hún á greinilega ekki við offitu að stríða. Þriðjudagur 17. febrúar 6.45 Veöurfregnir. Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 Morgunvaktin - Jón Baldvin Halldórsson, Sturla Sigurjónsson og Guðmundur Benedikts- son. Fréttir eru sagðar kl. 7.30 og 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Tilkynningar eru lesnar kl. 7.25, 7.55 og 8.25. Guðmundur Sæmundsson talar um daglegt mál kl. 7.20. 9.00 Fréttir. 9.03 Morgunstund barnanna: „Fjörulalli" eftir Jón Viðar Guðlaugsson.. Dómhildur Sigurð- ardóttir les (2). (Frá Akureyri). 9.20 Morguntrimm. Tilkynningar. 9.35 Lesið úr forustugreinum dagblaðanna. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Ég man þá tíð Hermann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum. 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. Umsjón: Þórarinn Stefánsson. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 í dagsins önn - Félagsleg þjónusta. Umsjón: Hjördís Hjartardóttir. 14.00 Miðdegissagan: „Það er eitthvað sem enginn veit“. Líney Jóhannesdóttir les endur- minningar sínar sem Þorgeir Þorgeirsson skráði (5). 14.30 Tónlistarmaður vikunnar Clarence Gate- mouth Brown. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 15.20 Landpósturinn Frá Suðurlandi. Umsjón: Hilmar Þór Hafsteinsson. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fréttir. 17.03 Síðdegistónleikar: Tónlist eftir Ludwig van Beethoven a. „Prometheus", forleikur op 43. Fílharmoníusveit Berlínar leikur; Herbert von Karajan stjórnar. b. Sinfónía nr. 4 í B-dúr op. 60. Columbía-sinfóníuhljómsveitin leikur; Bruno Walter stjórnar. 17.40Torgið - Neytenda- og umhverfismál Umsjón: Steinunn Helga Lárusdóttir. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.30Tilkynningar. Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá morgni sem Guðmundur Sæmundsson flytur. 12.00 Lúðraþytur. Umsjón: Skarphéðinn H. Ein- arsson. 20.40 íþróttaþáttur Umsjón: Ingólfur Hannesson og Samúel örn Erlingsson. 21.00 Perlur. Gitte Hænning og Four Jacks. 21.30 Útvarpssagan: „Heymaeyjarfólkið" eftir August Strindberg Sveinn Víkingur þýddi. Baldvin Halldórsson les (4). 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Lestur Passíusálma. Andrés Björnsson les 2. sálm. 22.30 Leikrit: „19. júní“ eftir Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Leikstjóri: Hallmar Sigurðsson. Leikendur, Hanna María Karlsdóttir, Harald G. Haraldsson, Vilborg Halldórsdóttir, Kristján Franklín Magnús, Steinunn Þorsteinsdóttir, Þóra Friðriksdóttir, Róbert Arnfinnsson, Herdís Þorvaldsdóttir og RósaG. Þórsdóttir. (Endurtek- ið frá fimmtudagskvöldi). 23.30 íslensk tónlist a. Sembalsónata eftir Jón Ásgeirsson. Helga Ingólfsdóttir leikur. b. „Úr dagbók hafmeyjunnar“ eftir Sigurð E. Garðars- son. Gunnar BJörnsson og David Knowles leika á selló og píanó. c. Fiðlusónata eftir Jón Nordal. Guðný Guðmundsdóttir og Halldór Haraldsson leika. 24.10 Fréttir. Dagskrárlok. 9.00 Morgunþáttur í umsjá Kolbrúnar Halldórs- dóttur og Sigurðar Þórs Salvarssonar. Meðal efnis: Tónlistargetraun og»skalög yngstu hlust- endanna. 12.00 Hádegisútvarp með fréttum og léttri tónlist • í umsjá Margrétar Blöndal. 13.00 Skammtað úr hnefa Stjórnandi: Jónatan Garðarsson. 16.001 gegnum tíðina Þáttur um íslenska dægur- tónlist í umsjá Ragnheiðar Davíðsdóttur. 17.00 Allt og sumt Helgi Már Barðason stjórnar þætti með tónlist úr ýmsum áttum. 18.00 Dagskrárlok. Fréttir eru sagðar kl. 9.00,10.00,11.00,12.20 15.00,16.00 og 17.00. 17.30-18.30 Svæðisútvarp fyrir Reykjavík og nágrenni - FM 90,1 18.00-19.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni - FM 96,5 Trönur. Umsjón: Finnur Magnús Gunnlaugsson. Fjallað um menningar- líf og mannlíf almennt á Akureyri og í nærsveit- um. Þriðjudagur 17. febrúar 18.00 Villi spæta og vinir hans Fimmti þáttur. Bandarískur teiknimyndaflokkur. Þýðandi Ragnar Ólafsson. 18.20 Fjölskyldan á Friðrildaey. Tólfti þáttur. Ástralskur framhaldsmyndaflokkur fyrir börn og unglinga um ævintýri á Suðurhafseyju. Þýðandi Gunnar Þorsteinsson. 18.45 íslenskt mál. Tólfti þáttur um myndhverf orðtök. Umsjón: Helgi J. Halldórsson. 18.55 Sómafólk - (George and Mildred). 15. Ferðahugur í fólki Breskur gamanmynda- flokkur. Þýðandi Ólöf Pétursdóttir. 19.20 Fréttaágrip á táknmáli. 19.25 Poppkom. Umsjónarmaöur Þorsteinn Bachmann. 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Fröken Marple (A Pocketful of Rye). Bresk sakamálamynd í tveimur hlutum. Aðalhlutverk: joan Hickson. Þýðandi Veturliði Guönason. 21.30 í kvöldkaffi. Edda Andrésdóttir og Sonja B. Jónsdóttir spjalla við nokkra af kunnustu spaug- urum landsins um þá list og atvinnu að koma fólki til að hlæja. 22.15 Nútímaplágan eyðni (Panorama: Living with AIDS) Bresk heimildamynd um þá ógn sem mannkyninu stafar af eyðni. Fjallað er um útbreiðslu sjúkdómsins og viðbrögð yfirvalda, sérfræðinga, sjúklinga og almennings í Bret- landi, Bandaríkjunum og Afríku. 23.05 Fréttir í dagskrárlok. Þriðjudagur 17. febrúar 07.00-09.00 Á fætur með Sigurði G. Tómassyni. Létt tónlist með morgunkaffinu. Sigurður lítur yfir blöðin og spjallar við hlustendur og gesti. Fréttir kl. 07.00, 08.00 og 09.00. 09.00-12.00 Páll Þorsteinsson á léttum nótum. Palli leikur uppáhaldslögin ykkar. Afmæliskveðj- ur, mataruppskriftir og spjall til hádegis. Síminn er 61-11-11 Fréttirkl. 10.00, 11.00 og 12.00. 12.00-14.00 Á hádegismarkaði með Jóhönnu Harðardóttur. Fréttapakkinn. Jóhanna og fréttamenn Bylgunnar fylgjast með því sem helst er í fréttum, spjalla við fólk og segja frá. Fréttirkl. 13.00 og 14.00. 14.00-17.00 Pétur Steinn á réttri bylgjulengd. Pétur spilar síðdegispoppið og spjallar við hlustendur og tónlistarmenn. Fréttir kl. 15.00, 16.00 og 17.00. . 17.00-19.00 Hallgrímur Thorsteinsson í Reykja- vík síðdegis. Hallgrímur leikur tónlist, lítur yfir fréttirnar og spjallar við fólk sem kemur við sögu. Fréttir kl. 18.00. 19.00-20.00 Tónlist með léttum takti. 20.00-21.00 Vinsældalisti Bylgjunnar. Helgi Rúnar Óskarsson kynnir 10 vinsælustu lög vikunnar. 21.00-23.00 Ásgeir Tómasson á þriðjudags- kvöldi. Ásgeir leikur rokktónlist úr ýmsum áttum. 23.00-24.00 Vökulok. Þægileg tónlist og frétta- tengt efni í umsjá Braga Sigurðssonar frétta- manns. 24.00-07.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Tónlist og upplýsingar um veður. 0 <3. STOÐ2 Þriðjudagur 17. febrúar 17.00 Bræðrabönd (Brotherly Love). Bandarísk sjónvarpmynd frá CBS með Judd Hirch í aðalhlutverki. Geðveikur maður losnar af hæli og hyggst eyðileggja líf tvíburabróður síns. 18.30 Myndrokk. 19.00 Furðubúarnir Teiknimynd. 19.30 Fréttir. 20.00 í návígi. Yfirheyrslu- og umræðuþáttur í umsjón Páls Magnússonar. 20.40 Klassapíur. (Golden Girls). Nú hefjast sýn- ingar aftur á hinum bráðhressu Klassapíum, en þáttur þessi hlaut Golden Globe verðlaunin í ár sem besti gamanþáttur f sjónvarpi. 21.05 öfugt jafnrétti (Maid in America). Bandarísk gamanmynd frá árinu 1982. Fjölskylda ræður sér karlmann sem húshjálp og fylgir margt spaugilegt í kjölfarið. Aðalhlutverk: Susan Clark og Alex Karras 22.40 Bandaríski körfuboltinn (NBA). Umsjónar- maður er Heimir Karlsson. 00.10 Dagskrárlok. ÚTRÁS FM 88.6 Þriðjudagur 17. febrúar 10.00-12.00 Upp og niiur. Umsjón: Arnar Bjarnar- son og Teitur Atlason (KV). 12.00-14.00 Matargat Umsjón: Tryggvi Thayer og Ingi Þór Ólafsson (KV). 14.00-16.00 Smá Útrás. Umsjón: Páll Guðjónsson og Viðar Halldórsson (FÁ). 16.00-18.00 Styrkur Umsjón: Sigurður Ólafsson og Hallur Ingólfsson (FÁ). 18.00-20.00 Á Bakvakt Umsjón: Eva Ingadóttir og Kristín Þorgeirsdóttir (FÁ). 20.00-22.00 Vinsældalistl Utrásar Umsjón: Birgir Birgirsson og Arnar Erlingsson (FÁ) '22.00-24.00 Afgangar. Umsjón: Trausti Kristjáns- son og Ragnar Agnarsson (FÁ).

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.