Tíminn - 17.02.1987, Side 20
Ljúffengir
réttir í
hádeginu
BAKKI
VEITINGAHÚS
Lækjargötu 8, sími 10340
Skaftahlíð 24 - Sími 36370
Rjúkandi
morgunbrauð
kl. 8 alla daga
$ SAMBANDSFÓÐUR
P
\e 0 \b
YAMAHA
Vélsleðar
og fjórhjól
BUNADARDEILO
SftMBANDSINS
ÁRMÚLA3 REVKJAVÍK SÍMI 38900
T
^TV •
lixninn
Þriðjudagur 17. febrúar 1987
Jarðvegurinn undirbúinn fyrir stórframkvæmdir íslenskra verktaka í Kenýa:
Möguleikar á verkefnum
fyrir 2,6 milljarða kr.
Iðnaðarráðherrar ríkjanna undirrituðu bókun um það í gær
Iðnaðarráðherrarnir tveir undirrita bókunina í gær. - Tímamynd Pjetur.
Albert Guðmundsson iðnaðarráð-
herra og K.N.K. Biwott orku- og
iðnaðarráðherra Kenýa undirrituðu
í gær sérstaka bókun um samstarf
rikjanna varðandi orkumál. Voru
ráðherrarnir sammála um að efia
það samstarf, sem þegar hefur átt
sér stað.
í bókuninni voru sérstaklega skil-
greind þau verkefni á sviði orkumála
þar sem sala á íslenskri sérþekkingu
kæmi til greina. Þessi verkefni eru
hagnýting jarðvarma til rafork-
uvinnslu, hagnýting jarðvarma til
annars en raforkuvinnslu og rafvæð-
ing dreifbýlis.
Þessum skilgreindu verkefnum
fylgja síðan ákvæði um fjármögnu-
narmöguleika, starfsgrundvöll ís-
lenskra aðila í Kenýa og loks fram-
kvæmd verkþátta.
Þá voru á fundum ráðherranna
skilgreind þau sérstöku verkefni,
sem íslenskir aðilar búa yfir sérþekk-
ingu á. Hér er um að ræða verkefni,
sem áætlað er að kosti um 2,6
milljarða íslenskra króna. Loks
kemur fram í bókuninni að fram-
kvæmd málsins verður háð nánari og
endanlegunt samningum fyrirtækja
á íslandi og Kenýa.
En þessi mál verða rædd frekar og
samningarundirbúnirsíðar í Kenýa.
Ásgeir Svanbergsson formaður
viðræðunefndarinnar sagði í viðtali
að þessi bókun væri mjög þýðingam-
ikil fyrir íslenska ráðgjafar- og verkt-
akastarfsemi. Þar væri einkum unt
þrjú íslensk fyrirtæki að ræða, Virkir
hf., Jarðboranir hf. og Orkustofnun
erlendis, sem mundu taka þátt í
samningum um sérstök verkefni,
þegar Kenýumenn hafa sjálfir skil-
greint þau frekar.
Þá kom fram hjá Ásgeiri að Virkir
hf. hefur í áratug sinnt umtalsverðri
ráðgjöf í Kenýa um uppsetningu og
þróun raforkuvinnslu með jarð-
varnta, svonefnt Olkyara verkefni.
Og nýlega hefði fyrirtækið samið um
gerð reiknilíkans fyrir allt jarðhit-
asvæðið. Líklega kæmi þó stærstur
hluti verkefna í hlut Jarðborana hf.
Bora þyrfti 30 holur og kostnaður
við það gæti numið hátt á annan
milljarð íslenskra króna.
Loks sagði Ásgeir Svanbergsson
að þarna gæti verið um verkefni til
langs tíma að ræða, því endurnýja
þyrfti borholur með ákveðnu árabili.
ÞÆÓ
Vestfiröir:
Ákveðið
að bíða
efftir
landsfundi
- með ákvörðun um
framboð Samtaka um
jafnrétti á milli
landshluta
Á fundi manna innan Samtaka
um jafnrétti milli landshluta scm
haldinn var á sunnudag á ísafirði
var tekin sú ákvörðun að fresta
endanlcgri ákvörðun um fram-
boð á Vestfjörðum. þar til lands-
fundur samtakanna hefur verið
haldinn. Niðurstaða fundar í
Vestfjarðakjördæmi var sú að
taka ákvörðun um framboð
samhliða öðrum kjördæmum.
Landsfundur verður haldinn
næstkomandi sunnudag, svo
frctni að Suðurlandskjördæmi,
Vcstfirðir og Reykjavík sam-
þykkja að taka þátt í stofnun nýs
stjórnmálaflokks. Fundir í þeim
kjördæmum verða haldnir í vik-
unni. Landsfundurinn verður
haldinn annað hvort á Selfossi
eða Hveragerði að sögn Péturs
Valdimarssonar formanns sam-
takanna. ABS
Söluviðræöur Islendinga og Sovétmanna:
STÆRSTISÖLU-
SAMNINGURÁLAG-
METITIL ÞESSA
- sem hefur verið gerður í einu lagi
„Við erum búnir að ganga frá
magni og verði sem við erum mjög
ánægðir með, en það er auðvitað
ekkert endanlegt fyrr én búið er að
skrifa undir. Þetta ersamningur upp
á tæpa 120 þúsund kassa af fjórum
tegundunt lagmetis, gaffalbitum,
þorsklifur, matjes síldarflökum og
reyktum sfldarflökum. Heildarverð-'
mæti samningsins er um 200 milljón-
ir íslenskra króna eða tæplega 5
milljónir dollara. Þetta verður því
stærsti samningur sem gerður hefur
Kjördagur ákveðinn:
Kosið þann
25. apríl
Gengið hefur verið frá því að
25. apríl verður kjördagur í kosn-
ingum til Alþingis í vor. Stein-
grímur Hermannsson kynnti í
gær formönnum flokkanna
ákvörðun sína. Hann sagði í
samtali viðTímann í gær að hann
hefði ekki fengið nein andmæli
við því.
Nokkur þrýstingur var frá
Sjálfstæðisflokknum á að hafa
kjördag fyrr, en forsætisráðherra
ákvað 25. apríl.
Þá hefur náðst samkomulag
um að annar laugardagur í maí
verður hér eftir lögbundinn kjör-
dagur. _ES
verið við Sovétríkin í einu lagi. Við
gerum okkur vonir um að gera
viðbótarsamning til afgreiðslu á
fjórða ársfjórðungi," sagði Rafn A.
Sigurðsson stjórnarformaður Sölu-
stofnunar lagmetis.
Rafn sagði að Sölustofnun hefði
ávallt lagt ntikla áherslu á samninga
við Sovétmenn, því undir þeim væri
afkoma verksmiðja víða á landinu
komin að stórum hluta. Það verða
verksmiðjur á Akureyri. Dalvík,
Siglufirði, Húsavík, í Hafnarfirði og
Vestmannaeyjum sem koma til með
að framleiða lagmeti upp í þennan
samning.
Sovétviðskiptin eru um 25 til 30
prósent af heildarútflutningi alls lag-:
metis.
Verð á lagmeti til Sovétríkjanna
hækkaði á síðasta ári um 16 til 20%
frá árinu áður. Á sama tíma hcfur
doliar lækkað um eina krónu, að
sögn Rafns.
Heildarútflutningur á lagmeti á
árinu 1986 var um 4000 tonn að
tollverðmæti um 850 milljónir. Það
er um 18% verðmætaaukning frá
árinu 1985.
Theodor S. Halldórsson fram-
kvæmdastjóri Sölustofnunar lagmet-
is og Ásbjörn Dagbjartsson frá
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins
fóru til Moskvu um helgina til þess
að ganga frá ýmsum tæknilegum
atriðum varðandi samninginn, svo
sem texta á dósalokum, vigtun og
fleiru og ef allt gengur samkvæmt
áætlun ljúka þeir samningum og
koma heim í lok vikunnar. ABS
INokknr af efstu inonnuin a frambodslista I ramsoknarflokksins ■ Keykjavik.
Frá vinsfri: Finnur Ingólfsson, Guðrún Alda Harðardóttir, Sigríður Hjartar, Guðmundur G. Þórarínsson,
Anna Margrét Valgeirsdóttir, Valdimar K. Jónsson og Sigfús Ægir Árnason. (Tímamynd SvcrHr)
Framboðslistinn ákveðinn
Framboðslisti Framsóknarflokksins í Reykjavík var
ákveðinn á fulltrúaráðsfundi framsóknarfélaganna í
Reykjavík í gærkvöld. Eftirtaldir skipa fyrstu 10 sæti
listans. Listinn í heild er birtur á bls. 5.
1. Guðmundur G. Þórarinsson verkfræðingur.
2. Finnur Ingólfsson, aðstoðarmaður sjávarútvegs-
ráðherra.
3. Sigríður Hjartar, lyfjafræðingur.
4. Halla Eiríksdóttir, hjúkrunarfræðingur.
5. Sigfús Ægir Árnason, framkvæmdastjóri.
6. Anna Margrét Valgeirsdóttir, starfsmaður félags-
miðstöðvar.
7. Þór Jakobsson, veðurfræðingur.
8. Guðrún Arna Harðardóttir, fóstra.
9. Helgi S. Guðmundsson, markaðsfulltrúi.
10. Valdimar K. Jónsson, prófessor.
Sölusamningar íslendinga og Sovétmanna um freðfisk:
Viðræöum frestað
„Við áttum mjög gagnlegar vtð-
ræður við Sovétmennina. Það var
ákveðið að fresta viðræðum um tíma
nú á föstudaginn á meðan mál færu
í frekari athugun og við væntum þess
að við höfum niðurstöður úr þessum
viðræðum fyrir mánaðamót. Þetta
var allt heldur jákvætt en ekki hægt
að ganga frá viðræðum," sagði Ólaf-
ur Jónsson hjá Sjávarafurðadeild
Sambandsins en hann fór út til
viðræðna við Sovétmenn um sölu á
frystum fiski.
Enn eiga Islendingar nokkuð í
land með að uppfylla eldri samning
við Sovétmenn sem kvað á um
útflutning á um 20 þúsund tonnum.
Enn vantar um 6000 tonn uppá til
þess að sá samningur verði uppfyllt-
ur. Vegna lækkunar dollars hafa
sölusamningar við Sovétmenn síð-
asta ár orðið óhagstæðari en gert var
ráð fyrir. Viðræður nú fólust m.a. í
því hvernig staðið yrði að því að
uppfylla eldri samninginn og einnig
um magn af fiski í ár.
Ólafur vildi ekkert láta uppi um
samningaviðræðurnar en sagði ljóst
að samningurinn frá í fyrra væri ekki
í samræmi við stöðuna í dag og það
væri hluti af því sem rætt var um við
Sovétmcnn.
Ekkert er ákveðið um form á
áframhaldandi viðræðum en Ólafur
sagði að þegar búið væri að skoða
mál nánar, yrði haft samband við
Sovétmenn og þá yrði séð hver
framvinda mála yrði.
ABS