Tíminn - 19.02.1987, Blaðsíða 1
í STUTTU MÁLI...
ÞRÖSTUR LEÓ Gunnarsson,
leikari, hlaut nýlega viðurkenningu úr
Afmælissjóði Leikfélags Reykjavíkur.
Markmið sjóðsins er „að uppörva ungt
leikhúsfólk, sem vinur sína fyrstu sigra
á leiksviði Leikfélags Reykjavíkur".
Áður hafa leikararnir Hjalti Rögnvalds-
son og Hanna María Karlsdóttir fengið
viðurkenningu úr sjóðnum. Formaður
sjóðstjórnar er Sveinn Einarsson, fyrr-
verandi leikhússtjóri.
BYLGJAN, eða íslenska, út-
varpsfélagið, hefur fenaið leyfi Útv-
arpsréttarnefndar til ao opna nýja
úvarpsrás. Að sögn forsvarsmanna
mun sú stöð, þegar hún fer í loftið, eiga
að höfða til annars hóps en hlustar á
Bylgjuna. Nýja rásin verður með sama
hlustunarsvæði og Bylgjan, eða suð-
vestur hornið.
SNJÓTROÐARI Ólafsfirð-
inga náðist upp í fyrradag. Tíminn
skýrði frá því að hann hefði fallið niður |
gegnum ís á Ólafsfjarðarvatni síðast-
liðinn sunnudag og tveir menn sem §
voru við stjórn sluppu heilir á húfi.
Björgunin tókst mjög vel. Útbúinn
var nokkurskonar sleði undir troðar- |
ann. Bitar voru reknir undir beltin og 1
boltaðir saman. Um þrjú hundruð j
metra taug var fest i sleðann og í (5
Payloader sem stóð á landi. Fyrst í |
stað braut troðarinn ísinn undan sér, 1
en á endanum reis hann upp úr |
vatninu og hefur nú verið komið inn á
verkstæði þar sem kannaðar eru ;
skemmdir þær sem urðu vegna I
óhappsins.
Troðarinn er nýr í eigu Ólafsfirðinga
en hefur verið í notkun í einkaeign i |
Þýskalandi frá því hann var smíðaður
árið 1979. Troðarinn hafði verið í > .
notkun á Ólafsfirði í hálfan mánuð
þegar óhappið átti sér stað.
VIÐ AÐRA UMRÆÐU á
frumvarpi til laga um breytingar á
kosnincjalögum kom fram breytingartil-
laga fra Steingrími Hermannssyni for-
sætisráðherra. Hér er um að ræða
tillögu sem felur í sér ákvæði til
bráoabirgða um að kjördagur við al-
mennar alþingiskosningar í ár verði
laugardagurinn 25. apríl.
í nefndaráliti kosningalaganefndar,
sem Páll Pétursson mælti fyrir í neðri
deild í gær, er kveðið á um að
kjördagur skuli vera annar laugardagur
í maímánuði.
SPRENGJUGABB
reynt í gærmorgun á Akureyri. Var
hringt til lögreglunnar og tilkynnt um
sprengju en ekki tilgreint hvar henni ,
hefði átt að vera komið fyrir. Fyrr skellti
skálkurinn á. Lögreglan rakti símtalið
til almenningssíma í kaffihúsi en ekki
hefur enn tekist að hafa uppi á þeim
sem hringdi.
„ B er er hver að baki,
nema þar sé Jaki! “
BBSaBMBMHBMBBaaMMHi
Fræöslustjóramálið á Alþingi:
Alþýðubandalagið
bjargar stjóminni
Frávísunartillaga sjálfstæðismanna samþykkt í neðri deild
Atkvæðagreiðsla um frávísunar-
tillögu Ólafs G. Einarssonar for-
manns þingflokks sjálfstæðis-
manna á frumvarp um rannsóknar-
nefnd skipaða af Hæstarétti til að
athuga samskipti menntamálaráð-
uneytisins og fræðslustjóraembætt-
is fór fram í neðri deild Alþingis í
gær.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar voru
þau að tuttugu og einn þingmaður
Með nýjum sveitarstjómarlög-
um hefur verið ákveðið að svokall-
aðar héraðsnefndir taki við verk-
efnum sýslufélaga og að sýslu-
nefndir verði lagðar niður í síðasta
lagi í árslok 1988. Þar með eru
sýslusjóðir lagðir niður, en þeir
hafa fengið fjármagn frá hreppum
viðkomandi sýslu.
Á fulltrúaráðsfundi Sambands
fsl. sveitarfélaga í Borgarnesi á
morgun og laugardag verður rætt
samþykkti frávísunartillöguna, en
sautján voru á móti.
Þingmenn Sjálfstæðisflokks í
deildinni voru einhuga fylgjandi
tillögunni en þingmenn Álþýðu-
flokks og Kvennalista einhuga á
móti henni. Þingmenn Alþýðu-
bandalags og Framsóknarflokks
skiptust í afstöðu sinni.
Það má segja að afstaða tveggja
þingmanna Alþýðubandalags hafi
um hvermg tekið verður á þessum
málum, m.a. hvernig héraðsnefnd-
ir verða stofnaðar og hvar þær eiga
að fá fjármagn.
Á fundinum verða einnig lögð
fram drög að frumvarpi um fram-
haldsskóla, en það mál er nú búið
að vera á döfinni á annan áratug.
Nýlega hefur stjórnskipuð nefnd
skilað af sér þessum frumvarps-
drögum.
„Heildarniðurstaða þessara til-
ráðið úrslitum um að frávísunartil-
lagan var samþykkt.
Guðmundur J. Guðmundsson
greiddi atkvæði með frávísunartil-
lögunni, m.a. á þeirri forsendu að
ekki hefði verið um mistök fræðslu-
stjórans að ræða í ráðstöfun fjár
heldur ásetningur. Þá greiddi
Garðar Sigurðsson ekki atkvæði
og Hjörleifur Guttormsson hafði
. fjarvistarleyfi.
lagna er sú að sveitarfélögin hætti
þátttöku í rekstri fjölbrautaskól-
anna en verði áfram þátttakendur
í stofnkostnaði. Ríkið tæki að sér
allan rekstrarkostnað og á núvirði
er talið að þetta þýddi 135 milljónir
króna aukaútgjöld fyrir ríkið,“
sagði Magnús E. Guðjónsson
framkvæmdastjóri Sambands ísl.
sveitarfélaga.
ABS
Þingmenn Framsóknarflokksins
skiptust einnig í afstöðu sinni.
Ráðherrar flokksins, þeir Steing-
ríntur Hermannsson, Alexander
Stefánsson og Halldór Ásgríms-
son, og Ólafur Þ. Þórðarson sögðu
já við tillögunni, en Ingvar Gísla-
son, Guðmundur Bjarnason, Stef-
án Valgeirsson, Stefán Guðmunds-
son, Páll Pétursson og Þórarinn
Sigurjónsson sögðu nei við frávís-
unartillögunni.
Þeir þingmenn Framsóknar-
flokksins sem voru á móti tillög-
unni byggðu andstöðu sína einkum
á því að slík frávísunartillaga væri
andstæð þingvenjum, óeðlilegt
væri að frumvarpið fengi ekki eðli-
lega umfjöllun á Alþingi. Ingvar
Gíslason ítrekaði að hér væri ekki
um vantraust að ræða heldur gagn-
rýni á tiltekið embættisverk og
sagðist hann ekki skilja ofurkapp
sjálfstæðismanna í þessu máli.
Steingrímur Hermannsson og
Ólafur Þ. Þórðarson töldu hins
vegar óeðlilegt að Hæstiréttur
hefði afskipti af málinu með nefnd-
arskipun, þegar Sturla Kristjáns-
son hefði sjálfur vísað málinu til
dómstóla.
Með þessari afgreiðslu er frum-
varp Ingvars Gíslasonar o.fl. út úr
myndinni, en afgreiðslu bíða hins
vegar tvær þingsályktunartillögur
um sama mál.
ÞÆÓ
Rauði krossinn:
Styrkir
fórnarlömb
eldsvoða
Um er að ræöa fólk sem
i missti allt sitt í bruna á
Völlum í Mýrdal og
Freyjugötu
Rauði krossinn hefur nú lagt
fram og safnað 250 þúsund
| krónur fyrir fjölskylduna á
Völlum í Mýrdal sem missti
' allt sitt þegar heimili hennar
brann nú fyrir nokkru. Strax
daginn eftir brunann lagði
Rauði krossinn fram 100 þús-
und krónur til Rauðakross-
deildarinnar í Vík í Mýrdal.
Deildin setti af stað söfnun í
héraðinu. Rauðakrossdeildin á
Kirkjubæjarklaustri fylgdi
fordæmi Víkverja og safnaði
líka. Einnig var tekið við frjáls-
um framlögum á skrifstofunni
í Reykjavík.
Ung kona missti allt sitt í
eldsvoða sem varð nýlega á
Freyjugötu í Reykjavík. Rauði
kross íslands lagði fram fimm-
tíu þúsund krónur til Reykj-
; , avíkurdeildarinnar og mun hún
taka við frjálsum framlögum
j næstu daga. Reykjavíkurdeild-
in er til húsa að Öldugötu 4 og
síminn er 2 82 22 og er opið á
! venjulegum skrifstofutíma.
Margeir Pétursson tekur i hönd Viktors Kortschnois, en þeir tefla hvor gegn öðrum í 1. umferð mótsins.
Kortschnoi er stigahæsti þátttakandinn á mótinu. Portisch glottir íbygginn. (Tímamynd: Pjetur)
IBM - skákmótiö:
Dregið um töfluröð
Fyrsta umferð IBM-skákmóts-
ins, sterkasta móts sinnar tegund-
ar sem haldið hefur verið á ís-
iandi, hefst í dag klukkan 16.30 á
Hótel Loftleiðum. Mótið er hald-
ið í tilefni af 20 ára afmæli
fynrtækisins. Meðalstigatala
keppenda er 2583 ELO-stig.
í gærkvöld komu saman til
fundar og til að draga um töfluröð
allir tólf þátttakendur í mótinu. í
fyrstu umferð tefla saman eftir-
taldir: Jón L. Ámason, 2540, og
Helgi Ólafsson, 2550. Margeir
Pétursson, 2535, og Viktor
Kortschnoi, 2625. Nigel Short,
2615, og Ljubomir Ljubojevic,
2620. Jan H. Timman, 2590, og
Simen Agdestein, 2560. Lajos
Portisch, 2610, og Mikhail Thal,
2605. Og loks Jóhann Hjartar-
son, 2545, og Lev Polugaévskí,
2585. þj
Sambands ísl. sveitarfélaga:
HERAÐSNEFNDIRI
STAÐ SÝSLUNEFNDA
- en hvað kemur í stað sýslusjóða sem hafa fjármagnað ýmsar
framkvæmdir í sýslunum til þessa?