Tíminn - 19.02.1987, Blaðsíða 8

Tíminn - 19.02.1987, Blaðsíða 8
8 Tíminn, SPEGILL Hertogynjan af York Það er ekki eintóm sól og sæla að vera tengdadóttir Elísabetar Bretadrottningar og hertogynja. Það hefur Sarah fyrrum Ferguson og nú hertogynja af York fengið að reyna og svíður undan. Foreldrar Söruh skildu á sínum tíma og móðir hennar settist að í Argentínu. Hún giftist þarlendum manni og heitir núna Susan Barrantes. Og þar stendur hnífur- inn í kúnni, Bretar og Argentínu- menn hafa ekki tekið aftur upp stjómmálasamband eftir Falk- landseyjastríðið, sem Andrew prins tók reyndar þátt í, og þess geldur Sarah. Hún fær ekki að heimsækja móður sína. Þessi .napurlega staðreynd rann ekki upp fyrir Söruh fyrr en fyrir nokkru þegar hún frétti af móður sinni á gjörgæsludeild sjúkrahúss í Buenos Aires. Hún hafði dottið af hestbaki og hlotið alvarlega áverka, þótti reyndar tvísýnt um líf hennar. Og Sarah gat ekki einu sinni fengið fréttir af líðan hennar frá fyrstu hendi, óveður hafði slitið niður símalínur að búgarði stjúpa hennar. Auðvitað vildi Sarah kom- ast til móður sinnar á þessari stundu, en því miður varð svarið að vera nei. Sjálf Margaret Thatc- her varð að svara bón Söruh neit- andi. Það voru erfiðir dagar hjá Söruh á meðan ekki var séð hvernig móður hennar reiddi af og hún varð sjálf að vera víðs fjarri. Sarah hertogynja af York varð! að sinna opinberum skyldum! þó að henni væri þungt um hjartarætur. Susan Barrantes er mikil hestakona en nærri lá að hest- aástin kostaði hana lífið. Hún býr á búgarði í Argent- ínu og þangað fær dóttir hennar ekki að heimsækja hana. Agutter: FráþviW'—dón“ inni >'Var LeVSt töluvert i 'sstss**? 11 ára ao kvikmyndum Það er nokkuð síðan að í sjón- varpi hér á landi voru þættir sem nefndust „Börnin við járnbraut- ina“ og þóttu vandaðir og skemmti- legir. í þessum þáttum lék Jenny Agutter - þá 16 ára - en hún er í dag 34 ára kvikmyndastjarna í Hollywood. - Það var mesta lán sem ég hef orðið fyrir, segir Jenny Agutter í viðtali, að vera valin í aðalhlutverk í „Börnin við járnbrautina", því eftir það gekk mér allt í haginn. Jenny sagðist þó fyrst hafa fengið hlutverk í kvikmynd þegar hún var 11 ára, en það var í mynd sem hét „East of Sudan“. Jenny Agutter fæddist 20. des- ember 1952 í Taunton í Somerset í Englandi. Nú býr hún í stóru lúxushúsi í Hollywood Hills við Los Angeles í Bandaríkjunum. Hún segir reyndar, að það sem fari mest af öllu í taugarnar á sér í Hollywood sé lífsmáti fólks þar, - óðagotið og óhófið á öllum sviðum. „Það er mikilvægt fyrir þá sem vilja halda jafnvægi í lífinu, að sogast ekki inn í hringiðuna,“ sagði Jenny. Hún er áhugasöm um heilsufæði, og uppáhalds drykkur hennar er geitamjólk og jurtate (þó ekki saman). Einnig segist hún vera „sjúk í súkkulaði", og láta eftir sér að borða töluvert af því, þó það tilheyri alls ekki heilsufæð- is-prógramminu. Ein frægasta myndin sem Jenny hefur leikið í var „Varúlfur í London“, sem margir muna eftir sem mjög spennandi hryllings- mynd. Það er ekki nema von að 1 áhorfendur fengju hroll í sig þegar aðalpersónan, þ.e.a.s. Jenny sjálf, Jenny Agutter hefur komið sér vel fyrir í Hollywood, - en líkar ekki glaumurinn þar og glysið var lengi að jafna sig eftir upptök- urnar því hún varð hvað eftir annað svo hrædd og slegin svo miklum óhug! Einnig varð fræg mynd sem Jenny Agutter lék í í Ástralíu og sýnd hefur verið hér í sjónvarpi og heitir „Eldvígslan“. í kvikmyndablaði fengum við þær upplýsingar um Jenny Agutt- er, að hún hefði græn/brún augu og brúnt hár. Hún væri ógift, - en ætti kærasta og tvo ketti, hún stundaði yoga, hefði gaman af að taka 1 íAcrr»\/r»Hir naro \/íA HiiHrnr! Fimmtudagur 19. febrúar 1987 Fimmtudagur 19. febrúar 1987 Tíminn 9 ÍÞRÓTTIR Molar ■ CARL LEWIS ólympíu- meistarinn fjórfaldi í frjálsum íþróttum náði aðeins þriðja sæti á stóru frjálsíþróttamóti um helg- ina. Honum tókst samt að stela senunni, hann gerði sér lítið fyrir og söng bandaríska þjóðsönginn einn og án aðstoðar annars en míkrafóns fyrir framan nær 15.000 áhorfendur. ■ MARITA KOCH hlaupa- drottningin frá Rostock í A- Þýskaiandi virðist hætt við að hætta, hún er skráð á bandaríska meistaramótið í frjálsum íþrótt- um f lok þessa mánaðar. Koch sagði fyrir skömmu að hún væri hætt keppni vegna þrá- látra meiðsla. ■ STEFAN EDBERG frá Sví- þjóð er tekjuhæsti tennisleikari heims um þessar mundir og er hann með helmingi hærri laun en sá sem næst kemur, Tim Mayotte frá Bandaríkjunum. í kvenna- flokki er Hana Mandlikova frá Tékkóslóvakíu langhæst en Zina Garrison frá Bandaríkjunum kemur næst. Martina Navratilova sem talin er sú besta kemur í 3. sæti í „peningaröðinni" og Ivan Lendl frá Tékkóslóvakíu sem er meðal efstu manna í árangri er aðeins 11. f peningaröðinni. Mandlikova og Edberg hafa unnið sér inn svipaða upphæð, um 6,5 millj. ísl. kr. ■ MICHEL PLATINI, franska knattspyrnustjarnan hjá Juventus hefur stofnað sjóð til styrktar eiturlyfjasjúklingum. Hann er ætiaður til hjálpar ungum eitur- lyfjasjúklingum sem vilja losna við eiturlyfin og mun þeim einnig verða hjálpað um vinnu í 1/2 - 1 ár. Platini sem sjáifur hefur aldrei komið nálægt eiturlyfjum segist gera þetta þar sem hann eigi börn sjáifur og vilji hjálpa öðrum bömum. V . ■-1, ■ READING sigraði Hudders- field með 3 mörkum gegn 2 í leik liðanna í 2. deild ensku knatt- spyrnunnar í fyrrakvöid. Leikur- inn átti upphafiega að vera á dagskrá 29. nóvember en var frestað. ■ SKOTAR sigruðu íra með 4 mörkum gegn 1 í leik liðanna í Evrópukeppni landsliða U-21 árs íknattspyrnu ífyrrakvöld. Skotar hafa forystu í 7. riðli, eru með 4 stig en Belgar og írar hafa 1 stig. ■ EDMONTON OILERS hafa bestu stöðuna f íshokkýdeild þeirra Bandaríkjamanna. Þeir hafa 79 stig og eru efstir í Smy the- deildinni. Philadelphia Fiyers eru efstir í Patrickdeildinni með 74 stig, Hartford Whalers í Adams- deildinni með 64 stig og Detroit Red Wings leiða Norrisdeildina með 56 stig. ■ VRENI SCHNEIDER frá Sviss er í efsta sæti í kvenna- keppni heimsbikarkeppninnar á skíðum með 230 stig, Maria Wall- iser landa hennar kemur fast á hæla hennar með 229 stig og Birgitte Oertli frá Sviss er þriðja með 174 stig. Fjórða svissneska stúlkan, sjálf Erika Hess kemur svo í 4. sæti með 130 stig. Knattspyrna: Landsliðið til Kuwait fslenska knattspyrnulandsliðið mun leika tvo landsleiki gegn liði Kuwait þar í landi á næstunni. Leikið verður fimmtudaginn 26. og laugardaginn 28. febrúar. Sigfried Held landsliðsþjálfari og Guðni Kjartansson að- stoðarlandsliðsþjálfari hafa valið eftirtalda leikmenn til þátttöku í leikjunum: Markverðir: Bjami Sigurðsson Brann....... Friðrik Friðriksson Fram..... Aðrir leikmenn: Ágúst Már Jónsson KR......... Landsleikjafjöldi: ................ 15 ................. 5 ................ 8 Guðni Bergsson Val .... Gunnar Gíslason Moss . . Halldór Áskelsson Þór . . Hlynur Birgisson Þór . . . Kristján Jónsson Fram . . Loftur ólafsson KR.... ólafur Þórðarson ÍA . . . . Pétur Amþórsson Fram . Pétur Pétursson KR .... Siguróli Kristjánsson Þór Sævar Jónsson Val..... Viðar Þorkelsson Fram . . Sem sjá má eru tve .báðir úr Þór Akureyr FIM á skíðum í Oberstdorf: Gull til Sovét Sovétmenn sigruðu í 4x5 km boðgöngu kvenna á heimsmeistaramótinu í norrænum greinum skíðaíþrótta í Oberstdorf í gær. Sovéska sveitin gekk á 58:08,8 mín. en sú norska sem varð í 2. sæti fékk tímann 58:46,1 mín. eftir mikla keppni við Sovét- menn. Það var Anfissa Reztsowa sem tryggði sinni sveit sigurinn með góðum lokaspretti. í þriðja sæti varð sænska sveitin á 59:41,0 mín. Knattspyrna: Blokhin til Ungverjalands Oleg Blokhin, þekktasti knattspyrnu- maður Sovétríkjanna er á förum til Ung- verjalands. Hann mun leika með ungverska 1. deildarliðinu Ujpest Dozsa en hann lék sem kunnugt er með Dynamo Kiev í Sovétríkjunum. Ungverska útvarpið sagði að Ungverjar og Sovétmenn hefðu gert með sér samning þar sem þetta hefði m.a. verið ákveðið og myndi kona Blokhins, Irina Derryugina einnig fá vinnu í Ungverj- alandi en hún er þjálfari í nútímafimleikum. r nýliðar í hópnum, Hópurinn er í heild skipaður ungum leikmönnum og hafa flestir þeirra færri en 10 landsleiki að baki. Leikreyndastur er Sævar Jónsson Val með 32 landsleiki. í hópnum eru 15 leikmenn, Sigi Held sagði s.l. sumar þegar hann valdi aðeins 15 í landsleiki að hann hefði ekkert við fleiri að gera og það hefur greinilega ekkert breyst. ■ Sævar Jónsson er leikreyndastur í landsliðshópnum sem fer til Kuwait, hann á 32 landsleiki að baki. Knattspyma: Italir unnu Portúgala ítalir sigruðu Portúgala með 1 marki gegn engu í leik liðanna í B-riðli í undankeppni Ólympíuleikanna í knatt- spyrnu. Leikurinn var í Lecce á Ítalíu í gær. Sigurmarkið skoraði Roberto Galia á 72. mín. Önnur lið í B-riðli eru ísland, Holland og A-Þýskaland og leika íslendingar gegn ítölum í apríl. Bikarkeppnin í handknattleik: Stjarnan áfram Stjarnan sigraði Ármann með 23 mörk- um gegn 18 í leik liðanna í bikarkeppninni í handknattleik í fyrrakvöld. Staðan í hálfleik var 12-10 fyrir Stjörnuna og var leikurinn mjög jafn nema rétt í lokin. Bikarkeppnin í körfuknattleik: Haukar unnu Haukar sigruðu ÍR í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum í bikarkeppni KKÍ í fyrra- kvöld. Lokatölur urðu 84-79 eftir að ÍR var yfir 44-43 í hálfleik. Seinni leikur liðanna verður næstkomandi mánudag í Seljaskóla. iþróttirnar í kvöld Körfuknattleikur verður í aðalhlutverki á íþróttadagskrá kvöldsins, Haukar og UMFN leika í úrvalsdeildinni kl. 20.00 í Hafnarfirði, Þór og Fram mætast í bikarn- um kl. 19.30 á Akureyri og í 1. deild kvenna verða tveir leikir, ÍBK-ÍS kl. 20.00 í Keflavík og Haukar-UMFN kl. 21.30 í Hafnarfirði. B-heimsmeistarakeppnin í handknattleik: Aðeins tvö lið komast á Ólympíuleikana í Seoul - meðal liðanna sem berjast um lausu sætin eru Sovét- menn, Rúmenar, Pólverjar, Danir, V-Þjóðverjar og Tékkar B-heimsmeistarakeppnin í handknattleik hófst í Bolzano á Ítalíu á þriðjudaginn. Mörg gífurlega sterk lið eru í B-keppninni, m.a. austantjaldslönd sem ekki mættu á Ólympíuleikana í Los Angeles 1984. Að- eins tvö efstu liðin í B-keppninni fá sæti á Ólypipíuleikunum í Seoul svo ljóst er að barist verður til síðasta blóðdropa ef svo má að orði komast. Því má kannski skjóta hér inní ef það skyldi hafa farið framhjá einhverjum að ísland er A-þjóð, varð í 6. sæti í A-heimsmeistarakeppninni í fyrra og farseðillinn til Seoul er þegar tryggður. Við skulum líta aðeins á möguleika einstakra liða. Keppt er í fjórum riðlum í undankeppninni. Þeir er þannig skipaðir: A-riðilI: B-riðill: riðlum undankeppninnar skipa annan og C og D hinn. Þar keppa liðin þrjá leiki, við þau lið sem þau eiga eftir, t.d. keppir efsta liðið í A riðli við öll þrjú liðin í B riðli o.s.frv. Efstu liðin í hvorum riðli leika úrslitaleikinn og eru þau tvö Iið sem fara tii Seoul. Það sem þetta þýðir er m.a. að aðeins eitt lið úr A-B og eitt úr C-D fer til Rúmenía Póiland Finnland ftalía Sovétríkin Frakkland Noregur Japan C-riðili: D-riðill: Danmörk V-Þýskaland Sviss' Tékkóslóvakía Búlgaría Bandaríkin Túnis Brasilía Fjögur þessara liða detta út eftir undan- keppnina, þau neðstu í hverjum riðli. f riðlunum keppa allir við alla en í aðal- keppninni eru tveir riðlar, liðin í A og B Stephan Schöne reynir skot að marki So- vétmanna í Eystrasaltskeppninni í fyrra mánuði. Þá töpuðu V-Þjóðverjar 18-24. Vel hugsanlegt er að V-Þjóðverjar og Sovétmenn verði þau tvö lið sem keppa til úrslita í B-keppninni og tryggja sér þar með þátttökurétt á Ólympíuleikunum. Seoul og þá t.d. aðeins annaðhvort Sovét- menn eða Rúmenar. Úrslitaleikurinn gæti því hugsanlega orðið milli Sovétmanna, Rúmena eða Pólverja annarsvegar og mót- herjarnir þá t.d. V- Þjóðverjar, Tékkar eða Danir. Hvernig þetta þróast allt kemur í ljós 26. febrúar þegar keppni í riðlunum tveimur lýkur en úrslitaleikurinn verður 28. febrúar. Úrslit Úrslit í fyrstu leikjum B-heimsmeistarak- eppninnar í handknattleik í fyrrakvöld: A-rlðiU: Rúmenía-Finnland ..........................29-23 Pólland-Ítalía..............................20-16 B-riðill: Noregur-Japan ..............................24-22 Sovétríkin-Frakkland ......................29-19 C-riðill: Sviss-Túnis ...............................24-19 Danmörk-Búlgaría............................25-16 D-riðill: Tékkóslóvakía-Brasilía......................39-10 V-Þýskaland-Bandaríkin......................24-14 Tékkar áttu stórleik á móti Brasilíu eins og úrslitin bera með sér. Sovétmenn lóku einnig vel á móti Frökkum og V-Þjóðverjar einnig gegn Bandaríkjam- önnum sem menn áttu von á að veittu meiri mót- spyrnu. Túnisbúar réðu ekki við ákveðna Svisslend- inga og Búlgarar misnotuðu fjögur víti þegar þeir töpuðu fyrir Dönum. ítalir skoruðu ekki fyrr en eftir 20 mín. á móti Pólverjum en tókst að klóra í bakkann í lokin. Leikir Rúmena og Finna annarsvegar og Norð- manna og Japana hinsvegar voru svo jafnir og spennandi. Molar ■ EÐVARÐ ÞÓR EÐ- VARÐSSON sundmaður úr Njarðvík og íþróttamaður ársins 1986 á 8. besta árangur í 200 m baksundi í Evrópu fyrir árið 1986. Ttmi hans er 2:03,03 mín. en besta tímann á Igor Polansky frá Sovétríkjunum, 1:58,73. Hann er sá eini sem synti undir 2:00 mín. í fyrra. Þá er Eðvarð í 12. sæti f 100 m baksundi með tímann 57,86 sek en Poiansky er fyrstur á 55,58 sek. ■ PIRMIN ZURBRIGGEN frá Sviss hefjjr forystu í heimsbik- arkeppninni á skíðum eftir síð- ustu helgi. Hann hefur 261 stig. Markus Wasmeier frá,V-Þýska- landi er i 2. sæti með 167 stig og Joel Gaspov frá Sviss þriðji með 145 stig. Gamla kempan Ingemar Stenmark kemur svo í fjórða sæti með 134 stig. ■ INGEMAR STENMARK vann sér það til frægðar 'um síðustu helgi að koma fyrstur í mark í 85. skipti á ferli sínum í heimsbikarkeppninni á skíðum. Stenmark sigraði í sérgrein sinni, svigi og á eftir þennan sigur möguleika á að vinna heimsbikar- inn í svigi í 9. skipti. Það þarf varla að taka fram að Stenmark er sigursælasti skíðamaður fyrr og síðar í alpagreinum. ■ MORTEN FROST frá Dan- mörku sigraði á bclgíska Grand Prix mótinu í badminton um síðustu helgi. Hann vann ianda sinn JensPeterNierhoff 15-11 og 15-11 í úrslitaleik. f kvennaflokki gekk hoilenska stúlkan Astrid van de Knaap hreinlega yfir Sar- wendah Ksumawardani sem vann hollenska meistaramótið fyrir skömrnu. Knaap vann 11-2 og 11-0 og var aðeins korter að því. ■ PAUL-ERIK HOYER- LARSEN frá Danmörku hefur forystu í Grand Prix mótunum í badminton eftir síðustu helgi. Hann hefur 305 stig. Misbun Sidek frá Malasíu er annar með 290 stig og þeir Steve Baddeiey frá Bretlandi og Xiong Goubao frá Kína eru jafnir t 3. sæti með 280 stig. Morten Frost er f 5. sæti með 250 stig. ■ KIRSTEN LARSEN frá Danmörku hefur forystuna í Grand Prix mótunum í kvenna- flokki í badminton. Hún hefur 430 stig. Hwang Hye Young frá Suður Kóreu er önnur með 360 stig. Þess má geta að Christine Magnusson frá Svíþjóð er í 7.-9. sæti með 195 stig. /fllK Lestunar- áætlun Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: Aarhus: Alla þriðjudaga Svendborg: Alla miðvikudaga Kaupmannahöfn: Alla fimmtudaga Gautaborg: Alla föstudaga Moss: Alla laugardaga Larvik: Alla laugardaga Hull: Alla mánudaga Antwerpen: Alla þriðjudaga Rotterdam: Alla þriðjudaga Hamborg: Alla miðvikudaga Helsinki: Hvassafell........ 3/ 3 Gloucester: Jökulfell..............27/2 Jökulfell..............27/3 New York: Jökulfell..............28/2 Jökulfell..............28/3 Portsmouth: Jökulfell..............28/2 Jökulfell..............28/3 SK/PADE/LD SAMBANDS/NS LINDARGATA 9A PÓSTH. 1480 • 121 REYKJAVlK SÍMI 28200 TELEX 2101 TÁKN TRAUSTRA FUUTNINGA ÖLL ALMENN PRENTUN LITPRENTUN TÖLVUEYÐUBLÖÐ • Flönnun • Setning • Filmu- og plötugerð • Prentun • Bókband PRENTSMID JAN ai Cl HF. SMIÐJUVEGl 3, 200 KÓPAVOGUR SIMl45000 Aldraðir þurfa líka að ferðast— sýnum þelm tlllltssemi |JUI^FERQAR \

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.