Tíminn - 09.04.1987, Side 5
Fimmtudagur 9. apríl 1987
Tíminn 5
Þróun verðlags og kaupgjalds 1984-1987:
Lágmarkslaun og bætur
hækkað umfram verðlag
- bæði á síðasta ári og síðastliðin 3 ár
Bæði tryggingabætur og lágmarks-
laun verkafólks hafa hækkað langt
umfram framfærslukostnað hvort
sem litið er til síðasta árs eða síðustu
3ja ára, samkvæmt upplýsingum
Tryggingastofnunar, Hagstofu og
Dagsbrúnar. Frá febrúar 1986 til
sama tíma í ár hækkaði vísitala
framfærslukostnaðar um 11,9%
(matvörur um 9,8%). Á sama tíma-
bili hækkuðu flestar bætur Trygg-
ingastofnunarum 31% (heimilisupp-
bót aldraðra og öryrkja um 75,5%)
og verkamannalaun um 49,1%.
Frá febrúar 1984, þ.e. síðustu 3
ár, hefur framfærslukostnaður
hækkað um 88%, en tryggingabætur
. allt frá 129% og upp í 440% og
verkamannalaun um 109% til 157%
eftir því hvort miðað er við taxta eða
lögbundin lágmarkslaun árið 1984.
En t.d. fiskvinnslufólk og aðrir sem
höfðu bónus fengu þá greitt eftir
taxta, sem hjá þeim hefur því hækk-
að um tæp 157%, sem fyrr segir.
Febrúar 1984 var valinn sem út-
gangspunktur vegna þess að vísitala
framfærslukostnaðar var þá sett á
100, og síðasta sundurliðaða vísitala
í Hagstofutíðindum er frá febrúar
s.l.
Kartöflur ekkert hækkað
Að verð á kartöflum skuli hafa
verið hið sama nú í febrúar og heilu
ári áður er kannski með því
skemmtilegra sem kemur í ljós við
skoðun á útreikningi síðustu febrú-
arvísitölu. En verðhækkun á kartöfl-
um hefur verið mikið fréttaefni
undanfarin ár, sem vísast hefur farið
fram hjá fæstum.
Sumt lækkað í verði
Það sem flestum mun kannski
koma enn meira á óvart er að
verðlækkun hefur orðið á fjórum
liðum vísitölunnar á þessu ári, mest
rúm 25% verðlækkun á feitmeti,
rúmlega 15% lækkun á rafmagni,
um 6,4% verðlækkun á kostnaði við
þarfasta þjón nútímans, einkabílinn
og 3% verðlækkun á sykri. Hækkun
matvöruliðarins í heild er 9,8% á
heilu ári.
Dýrara að klæða
sig og fara út
Mestu verðhækkanirnar hafa á
hinn bóginn orðið um 26% á síman-
um og soðningunni (fiskinum). Verð
á fatnaði og skóm hefur líka hækkað
um nær fjórðung og sama er að segja
um stóran lið sem að mestu spannar
veitingahúsaþjónustu, orlofsferðir,
ferðavörur, skartgripi, snyrtivörur
og snyrtingu sem hækkað hefur um
tæplega fjórðung.
Soðningin
hækkað hrikalega
Vísitala framfærslukostnaðar var
188 í febrúar s.l. sem þýðir að hún
hefur hækkað um 88% frá febrúar
1984. Gífurlega misjafnar verð-
hækkanir hafa verið á einstökum
liðum hennar á þessu 3ja ára bili.
Fyrst má nefna að matvörurnar hafa
að meðaltali hækkað mun meira en
annað, eða um 102% samanborið
við 84% meðalhækkun allra hinna
liðanna. Mest ber þar á 170% hækk-
un á fiski, 162% hækkun á kaffi og
slíkum vörum og 144% hækkun á
kartöflum. Hins vegar hefur sykur-
innaðeinshækkað um21% áþessum
3 árum, feitmetið um 37% og græn-
meti og ávextir um 69%.
Hækkun framfæslukostnadar, tryggingabóta og
launa frá febrúar 1986-87 og febrúar 1984-87:
Breyting Breyting
Tryggingabætur: 1 ár = % 3 ár= %
Elli-og örorkuiífeyr. einstakl. 31% 129%
Tekjutrygging einstaklings 31% 174%
Heimilisuppbót 75,5% 230%
Meðlag/barnalífeyrir 31% 174%
Mæðralaun 1 barn 31% 441 %
Mæðralaun 2 börn 31% 302%
Mæðralaun3börn 31% 256%
Hækkun verkamannalauna sömu tímabil:
Lágmarkstaxti 49,1% 157%
Lögbundin lágmarkslaun 49,1% 109%
Hækkun f ramfærsluvisitölu alls 11,9% 88%
Matvörur meðaltal 9,8% 102%
Brauðogmjölvörur 9,5% 84%
Kjöt ogkjötvörur 14,3% 124%
Fiskurogfiskvörur 26,2% 170%
Mjólk, rjómi, ostar, egg 7,9% 105%
Feitmeti, olíur lækk. 25,1% 37%
Grænmeti.ávextir 5,0% 69%
Kartöflur, nýjarog unnar 0,0% 144%
Kaffi.te, kakó, súkkul. 15,9% 162%
Sykur lækk. 3,2% 21%
Aðrarmatv. (sjoppufæði 15,3% 103%
Gosdrykkir.öl 15,6% 63%
Áfengi 13,4% 112%
Tóbak 17,3% 137%
Fatnaðurogskór 23,7% 109%
Heimilistæki og búnaður 16,7% 89%
Rafmagn lækk. 15,4% 10%
Húshitun 3,5% 47%
Símakostnaður 26,7% 18%
Heilsuvernd 20,4% 148%
Almenn flutningatæki 11,3% 77%
Einkabíllinn lækk. 6,4% 46%
Tómstundir/menntun 14,8% 101%
Veitingah. orlof, snyrting o.fl. 22,8% 110%
Tóbak og
brennivín fokdýrt
Af öðrum liðum er 3ja ára hækk-
unin mest á liðnum heilsuvernd, sem
vegur lítið í vísitölunni. Tóbak hefur
hækkað um 137%, áfengi um 112%,
framangreindur liður með veitinga-
húsum, orlofi og fleiru um 110% og
fatnaðurinn um 109%. Aðeins 10%
hækkun hefur hins vegar orðið á
rafmagninu þessi 3 ár og 18% á
símakostnaðinum.
Um 31% bótahækkun
ámóti
11,9% verðhækkunum
Elli- og örorkulífeyrir einstaklings
ásamt fullri tekjutryggingu hækkaði
úr 13.594 kr. upp í 17.816 kr. frá
febr. 1986-87 eða um 31%, sem fyrr
segir. Að viðbættri heimilisuppbót
var hækkunin úr rúmlega 16 þús. kr.
upp í rúmlega 22 þús. kr., eða um
37,8%. Meðlag og mæðralaun með
einu barni hækkuðu úr um 5.500 kr.
í um 7.200 kr. og með þrem börnum
úr tæplega 20 þús. upp í um 26.200
kr., sem hvortveggja þýðir 31%
hækkun milli ára.
Frá 160-228%
hækkun tryggingabóta
Frá febrúar 1984 til sama tíma í ár
hefur elli- og örorkulífeyrir ásamt
tekjutryggingu einstaklings hækkað
um tæp 160% og að viðbættri heim-
ilisuppbót er hækkunin tæplega
166% á þrem árum. Hækkun með-
lags og mæðralauna með einu barni
hefur á sama tíma hækkað um 228%
en með 3 börnum um 202%, sam-
kvæmt upplýsingum í fréttabréfi
Tryggingastofnunar ríkisins.
Frá 109 til 157%
hækkun lágmarkslauna
Lágmarkstaxti verkamanna var í
febrúar 1987 samkvæmt upplýsing-
228%
200%
100%
88%
0%
Lágmarkslaun (lögbundln) Elli+örorkulífeyrir
Meðlag ot' mæiralaun
m. 1 bami.
^ Þróun verðlags, lágmarkslauna
og algengra lífeyrisbóta frá
febrúar '84 til febrúar '87.
um Dagsbrúnar 26.500 kr. en í
febrúar 1986 var hann 17.776 kr. á
mánuði, sem þýðir 49,1% hækkun á
ári. í febrúar 1984 var fiskvinnslu-
taxti 10.316 kr. á mánuði, sem þýðir
156,9% taxtahækkun. Lögbundin
lágmarkslaun voru hins vegar 12.666
kr. á mánuði og miðað við það er 3ja
ára launahækkunin 109,2%.-HE1
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
Aarhus:
Alla þriðjudaga
Svendborg:
Alla miðvikudaga
Kaupmannahöfn:
Alla fimmtudaga
Gautaborg:
Alla föstudaga
Moss:
Alla laugardaga
Larvik:
Alla laugardaga
Hull:
Alla mánudaga
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Helsinki:
Hvassafell.......... 10/5
Gloucester:
Jökulfell............. 9/5
New York:
Jökulfell............ 10/5
Portsmouth:
Jökulfell............ 10/5
115^ SKIPADEILD
^Asambaa/dsins
LINDARGATA 9A
PÓSTH. 1480 • 121 REYKJAVlK
SlMI 28200 TELEX 2101
TÁKN TRAUSTRA FLUTNINGA