Tíminn - 07.05.1987, Blaðsíða 1

Tíminn - 07.05.1987, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1987-100. TBL. 71. ÁRG. Ruslahauganefnd hefur lokið störfum: Þeir vilja keyra til Krísuvíkur Tímamynd BKEIN Tíminn hefur sagt frá ágrein- ingi um losunarstað sorps, sem berst frá Reykjavíkurborg, en öskuhaugar borgarinnar í Gufu- nesi verða yfirfullir eftir fjögur ár. Nauðsynlegt er að leysa vandann strax. Ýmis náttúruverndarsjónar- mið koma í veg fyrir að hægt sé að losa borgarruslið þar sem það er ódýrast og Kjalarnes- hreppur stendur gegn því, að keyra megi sorpið á stór lands- svæði þar, sem hefðu hentað sem losunarstaður að mati nefndar, sem hafði með þetta mál að gera. Nefndin hefur lokið störfum og skv. hennar skýrslum og samræðum við nefndarmenn er eini valkosturinn sem eftir er landssvæði sunnan við Krísuvík. Það er dýrt að færa öskuhauga Reykjavíkur þangað, - það hefði kostað um 500 milljónir króna á verðlagi í janúar 1985. Leggja verður nýjan veg, sem kostar 100 milljónir króna. Reisa umhleðslu- stöð við Mjódd í Reykjavík og sorpbrennsluofna í Krísuvík. Reynt verður að nýta ruslið til arðbærra framkvæmda. Tíminn knýr á um lausn strax. Umþóttunartími sveitarfélaga er iiðinn. Athafna er þegar þörf. sjá bls. 2 sjá bls. 3 Þeirbjóða Glasgow- verð ef.. Það er unnt að gera verðlag á íslandi hlið- stætt verðlagi í Glas- gow ef vilji er nægur og fyrir hendi hjá öll- um aðilum - okkur, stjórnvöldum, þeim er þjónusta verslun- ina og þér landsmað- ur góður segja ís- lenskir storkaup- menn. EF... atriðin sem þeir telja að þurfi til að koma felast m.a. í: Nýrri tollskrá, afnámi aðflutningsgjalda af flutningskostnaði til landsins og lækkun hans, jöfnun tolla frá helstu viðskiptalönd- um íslendinga, af- námi skatta á fjar- skiptatæki og önnur framleiðslutæki og sérsköttum af versl- un og að innflytjend- um sé veittur að- gangur að lánsfé þar sem hagkvæmast er hverju sinni. Hlutverk almennings sé svo að veita versluninni aðhald með því að fylgjast stöðugt með verðlaginu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.