Tíminn - 07.05.1987, Blaðsíða 20

Tíminn - 07.05.1987, Blaðsíða 20
„Svo uppsker hver sem sáir“ Gullbók og Metbók rísa báðar undir nafni BÚNAÐARBANKIMM TRAUSTUR BANKI FJALLALAMBÁ MINUTUM Stendurðu oft frammi fyrir því að fólk borðar ekki þessa eða hina kjöttegundina. Þá, sem oftar, er lambakjötið lausnin. Þar ertu í öryggi, bæði með bragð og árangur. Og uppskriftir af stórkostlegum lambakjötsréttum eru á hverju strái, því að hráefnið er einstakt ef það er meðhöndlað eins og það á skilið. Hér er ein góð. Tj iríkur Ingi Friðgeirsson 1-j matreiðslumeistari á Hótel Holti ]ét okkur í té þessa ljúffengu uppskrift sem allir hljóta aðfallafyrir. --Í)!.* «\l - 'ifl Hunangsbakaður lambahryggur fyrir 4-5. Lambahryggur ca. 1,800-2 kg. U.þ.b. ómatsk. hunang (þunnt). Salt og sítrónupipar. Hvítlauksduft. 5 dl. ratn. Maizena sósujafnari (brúnn). Hryggvöðvinn með rifbeinunum er klofinn eftir endilöngu frá hryggnum. Mesta fitulagið er fjarlægt frá rifbeinunum. Þá er lengjan skorin í ca. 200 gr. bita, kryddað (sjá uppskrift) og brúnað á vel heitri pönnu í ca. 2 mín. á hvorri hlið. Bitunum er síðan raðað í ofnskúffu og hunanginu smurt á kjötið. Ofninn er hitaður í 250 gráður og kjötið bakað í 10-15 mín. 5 dl. af vatni er bætt í ofnskúffuna þegar helmingur af bökunartímanum er liðinn. Safinn er síðan sigtaður í pott, bragðbættur ef með þarf (með kjötkrafti) og jafnaður með brúnum Maizena sósujafnara, sósan á að vera frekar þunn. Hryggbeinið má einnig brúna og steikja með í ofnskúffunni til þess að fá sósuna bragðsterkari. Þessi réttur er borinn fram með snöggsoðnu grænmeti, bökuðum jarðeplum og soðsósu. MARKAÐ5NEFND Gleðiefni fyrir ferðalanga: Flugleiðir framlengja helgarpakka út á land Flugleiðir hafa ákveðið að halda áfram meið hina geysivinsælu helg- arpakka út á land til 1. júní. Tímabil pakkaferðanna átti að enda nú um helgina en vegna mikillar eftirspurn- ar hefur verið ákveðið að halda áfram enn um sinn. Framlengingin gildir þó aðeins frá Reykjavík, en ekki til borgarinnar. Pakkarnir gilda til ísafjarðar, Akur- eyrar, Húsavíkur, Egilsstaða og Hornafjarðar. Helgarpakkarnir hafa verið not- aðir af ótölulegum fjölda farþega í báðar áttir í vetur, enda fargjald og gistiverð til muna ódýrara í þeim. Flugleiðir bjóða upp á þessa pakka í samvinnu við ýmsa gististaði úti á landi. Og nú fer hver að verða síðastur. -SÓL Veöbankar í Englandi: Miklar hreyfingar og Island á niðurleið Miklar hreyfingar eru í gangi í veðbönkum í Englandi og sam- kvæmt nýjustu tölum frá Ladbroke's í Englandi eru Danir nú í fyrsta sæti með hlutföllin 2:1 en voru í fyrradag í 4. sæti með hlutföllin 8:1. Annars er spáin svona: 1. Danmörk 2:1 2. Svíþjóö 5:1 3. -4. Irland 6:1 3.-4. Bretland 6:1 5. Júgóslavía 7:1 ísland-lendir svo í 12. sæti með hlutföllin 18:1, en var f fyrradag með hlutföllin 16:1 og var þá í 10. sæti. ísraelar eru aftur á hraðferð upp á við og eru nú með hlutföllin 20:1 og eru í 13. sæti en voru fyrir tveimur dögum í 22. sæti. Ladbroke's er langstærsta veð- bankafyrirtæki í Bretlandi, ef Litt- lewoods er undanskilið, en þeir taka ekki við veðmálum um Eurovision og benda á Ladbroke's. Tölur þeirra eru því þær áreiðanlegustu á Bret- landi. -SÓL KRUMMI „Skyldi útvarpið spila lagið einu sinni, einu sinni, einu sinni enn...?!

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.