Tíminn - 07.05.1987, Blaðsíða 7

Tíminn - 07.05.1987, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 7. maí 1987 Tíminn 7 BBilll SAMVINNUMÁL BBlBBBBBBBBBBBBBlljllllllllllllllliljjM^^ Það kom fram á aðalfundi Sam- vinnubankans að afkoma hans var að ýmsu leyti hagstæð á síðasta ári, ef frá er talið að nauðsynlegt þótti að leggja til hliðar 25 miljón króna afskrift vegna gjaldþrots Kaupfélags Svalbarðseyrar. Af þeim sökum er halli á rekstrarreikningi bankans að upphæð 8,4 miljónir. Aðalfundurinn var haldinn að Hótel Loftleiðum fimmtudaginn 30. apríl. Fundarstjóri var kjörinn Eysteinn Jónsson fyrrverandi ráð- herra. Á fundinum flutti formaður bankaráðs, Erlendur Einarsson, skýrslu ráðsins og Geir Magnússon bankastjóri las og skýrði reikninga bankans fyrir liðið ár. Að vanda var einnig gefin út prentuð ársskýrsla um rekstur bankans á síðasta ári sem dreift var til hluthafa á fundinum. Á árinu jukust innlán bankans verulega umfram útlán, þannig að lausafjárstaða hans var styrk allt árið. Þó hefur vaxtamunur bankans minnkað örlítið frá 1985, er hann var um 7,4%, en var 7,1% 1986. Þetta er rakið að hluta til hárra vaxta á verðtryggðum reikningum sem bankinn kynnti í febrúar. Heildartekjur Samvinnubankans, Veðdeildar hans og Stofnlánadeildar samvinnufélaga, sem starfar við bankann, voru 904,2 miljónir. Rekstrarkostnaður varð hins vegar 912,6 miljónir, og er þá meðtalið 25 miljón króna aukafrantlag til af- skriftareiknings útlána vegna gjald- þrots Kf. Svalbarðseyrar. Áður en það framlag var ákveðið var hagnaður allra rekstrareining- anna þriggja 16,6 miljónir, en eftir það er niðurstaðan halli að upphæð 8,4 miljónir. Ekki er enn Ijóst hvert tap bankans kann að verða vegna þessa gjaldþrots, en stjórn bankans ákvað þó að leggja verulega fjárhæð til hliðar til að mæta hugsanlegu tapi vegna þess. Eigið fé og hagur í árslok 1986 nam eigið fé Sam- vinnubankans 306,4 miljónum, en hafði numið 254,1 miljón árið áður. Aukningin á eigin fé er því 52,3 miljónir eða 20,6%. Par af munaði mest um endurmat fasteigna, lausafjár og annarra eigna, en einnig kom þar til aukning hlutafjár og fleira. Eiginfjárhlutfall bankans, samkvæmt skilgreiningu laga um viðskiptabanka, var 10,6% sem er vel yfir lágmarki því sem lögin krefjast. Pá voru heildareignir bankans, veðdeildar hans og stofnlánadeildar á efnahagsreikningi 4.953,5 miljónir við lok síðasta árs. Höfðu þær aukist um 31,1% á milli ára. Eigið fé bankans, veðdeildar og stofnlána- deildar var samanlagt 346,8 miljónir við árslok og hafði aukist um 67,6 miljónir. Frá aðalfundi Samvinnubankans. Hagstæð afkoma Samvinnubankans Innlán jukust umfram meðaltal Innlán og útlán Heildarinnlán Samvinnubankans í árslokin voru 3.628,1 miljón og höfðu aukist um 1.050,0 miljónir eða 40,7%. Lánskjaravísitala hækk- aði um 14,7% á árinu, og hækkuðu því innlán bankans að raungildi um 22,7% á árinu, en sambærileg hækk- un var 18,9% árið 1985. Hjá viðskiptabönkunum í heild jukust innlán urn rúm 34%. Hlut- deild Samvinnubankans í heildar- innlánum þeirra jókst því á árinu, úr 8.2% í 8.5%. Aukning innlána í Reykjavík var 46,7%, sem er talsvert meiri aukning en í útibúunum úti á landi, þar sem hún var 34,5%. Eru innlán í Reykja- vík orðin 53% af heildarinnlánum bankans. Innstæðurá Hávaxtareikn- ingum eru nálægt þriðjungi af heild- arinnlánum, en um 23% til viðbótar eru á verðtryggðum reikningum, einkum reikningum sem bundnir eru í 18 eða 24 mánuði. Heildarútlán Samvinnubankans voru hins vegar 2.555,4 miljónir í árslok og höfðu aukist um 21,6%. Útlánaaukning viðskiptabankanna í heild var 18,9%, svo að hlutdeild Samvinnubankans hækkaði þar úr 6,2 í 6,3%. Útlánin skiptust þannig í árslok að þá voru 51,5% þeirra í aðalbanka og útibúum hans í Reykjavík, en 48,5% í útibúum utan Reykjavíkur. Geir Magnússon bankastjóri les reikninga Samvinnubankans á aðalfundin- um. Við hlið hans er Eysteinn Jónsson, sem var fundarstjóri, og Erlendur Einarsson formaður bankaráðs. (Tímamyndir: brein.) Af lánveitingum bankans til at- vinnuveganna er hlutur samvinnú- félaga stærstur, eða 552,4 miljónir. Þar næst kemur landbúnaður með 335,1 miljón. Útlán til einstaklinga eru þó langhæst, um 40,4% af heild- arútlánum bankans eða 1.031,1 miljón. Stofnlánadeild og Veðdeild Stofnlánadeild samvinnufélaga hefur starfað við Samvinnubankann frá 1972 og hefur starfsemi hennar farið vaxandi ár frá ári. Lánveitingar hennar eru bundnar við stofnlán til byggingar verslunar- eða skrifstofu- húsnæðis og til samvinnufélaga eða fyrirtækja þeirra. Nokkuróvissa hef- ur þó skapast um öflun lánsfjár fyrir deildina, þar sem lífeyrissjóðirnir lána nú Byggingarsjóði ríkisins sí- fellt stærri hluta af ráðstöfunarfé sínu. Á síðasta ári veitti Stofnlánadeild- in níu lán að upphæð samanlagt 32,4 miljónir. Heildarútlán deildarinnar voru þar með samtals orðin 723,8 miljdnir. Nokkuð dró úr eftirspurn eftir nýjum lánum á árinu. Þá tók Veðdeild Samvinnubank- ans til starfa á síðustu mánuðunt ársins 1986 í samræmi við ákvörðun síðasta aðalfundar. Heildarútlán hennar í árslok námu 34,3 miljónum króna. Þá var fjármögnunarfyrirtækið Lind hf. stofnað í júlí á síðasta ári. Eigendur þcss eru Samvinnubank- inn og Santvinnusjóður íslands hf., sem eiga 30% hlutafjár hvor, og franskur banki, Banque Indosuez, sem á 40%. Fyrirtækið stundar við- skipti á sviði fjármögnunarleigu, en af hálfu Samvinnubankans er stofn- un þess liður í þeirri stefnumörkun hans að taka þátt í þeim breytingum og nýjungum sem hafa verið að koma fram á íslenskum fjármagns- markaði að undanförnu. Hlutafé Hlutafé Samvinnubankans í árs- lok var 228,7 miljónir, og á aðalfund- inum var ákveðið að auka það um 20% með útgáfu jöfnunarhluta- bréfa, eða sem svarar rúmlega 45,7 miljónum króna. Jafnframt þvt' var samþykkt að greiða hluthöfum ekki arð nú í ár. Einnig var bankaráði heimilað að gefa út ný hlutabréf á næstu þrernur árum að fjárhæð 200 miljónir kröna samtals. Bankaráð Samvinnubankans var endurkjörið, en í því eiga sæti Erl- endur Einarsson formaður, Vil- hjálmur Jónsson varaformaður og Guðjón B. Ólafsson. Varamenn eru þeir Hallgrímur Sigurðsson, Hjalti Pálsson og Ingólfur Ólafsson. Endurskoðendur bankans eru Geir Geirsson og Óskar Jónatansson. Bankastjóri Samvinnubankans er Geir Magnússon, og aðstoðarbanka- stjóri Pétur Erlendsson. -esig UM STRÆTI OG TORG Kristinn Snæland: Aksturskostnaður ríkisins Nýlega gaf svokölluð ferða- kostnaðarnefnd ríkisins út aksturs- gjald sem svo er nefnt, en það er sú upphæð sem ríkið greiðir starfs- mönnum sínurn fyrir ekinn kíló- metra á eigin bílum. Þetta gjald er forvitnilegt að bera saman við kílómetragjald það sem verðlags- ráð ætlar leigubílum. Laun laun- þega á leigubílum er algengast 50 prósent af taxta leigubílsins. Af- gangurinn er þá í reksturskostnað, fyrningu og hagnað bifreiðareig- andans. Margar leigubifreiðar eru gerðar út með þessu fyrirkomulagi. Dagvinnutaxti leigubíls er nú kr. 17,85 á kílómetra sem þýðir að eigandi bílsins fær í sinn hlut kr. 8,93 á ekinn kílómetra, ef launþegi ekur bílnum. Ríkisstarfsmaður sem ekur eigin bíl, fær auk launa sinna kr. 13,20 á ekinn kílómetra ef ekið er innanvið lO.OOOkílómetra á ári kr. 11,80 fyrir akstur innan við 20.000 kílómetra og kr. 10,40 fyrir akstur umfram það mark. Með öðrum orðum kr. 4,27 og niður í kr. 1,47 meira á ekinn kílómetra sem eigandi bílsins en leigubíls- stjóri fær fyrir sinn bíl ef annar ekur. Þessar tvær nefndir ríkisins, ferðakostnaðarnefnd og verðlags- ráð virðast komast að býsna ólík- um niðurstöðum, reyndar svo að minnir á klækjabrögð ríkisstarfs- manna í þáttunum vinsælu „Já ráðherra". Á það skal bent að láglaunaðir ríkisstarfsmenn aka gjarnan minni og ódýrari bílum, en leigubílstjórarnir verða að hafa til þess að mæta óskum farþeganna. Aðeins það atriði ætti að nægja til. þess að ofangreind dæmi væri öðru- vísi. Hinsvegar er hugsanlegt að í ferðakostnaðarnefnd séu ríkis- starfsmenn að ákveða hvaða tekjur þeir skuli hafa af eigin bílum, en í verðlagsráði séu þeir ríkisstarfs- menn sem þar sitja að ákveða útgjöld sín þegar þeir á annað borð þurfa að nota leigubíl. Sé svo er niðurstaðan skiljanleg og væntan- lega lögleg en samt siðlaus. Enn er rétt að nota greinarkorn þetta til þess að nefna þá undarlegu ákvörð- un ríkisins, að banna ríkisstarfs- mönnum að nota leigubíla í lengri ferðir. Þá ber þeim að aka annað- hvort sínum eigin bílum eða bíla- leigubílum. Svo blind er þessi ákvörðun háttsettra ríkisstarfs- manna að jafnvel ferðir sem sann- anlega eru ódýrari á leigubíl en bílaleigubíl eru farnar á bílaleigu- bílum. Skulu hér á eftir nefnd tvö hugsuð dæmi, annað gerðist reynd- ar sl. haust en er umreiknað hér til núvirðis. Bílaleigubíll, Reykjavík - Höfn Hornafirði, báðar leiðir, tvo daga. Reiknað er með bíl svipaðrar stærðár og hinir minni leigubílar eru. Fastagjald er daggjald 1550 kr. kaskótrygging 325 kr. á dag og fyrir ekinn kílómtra er greitt 15,50 kr. Eknir eru 948 kílómetrar og bensínkostnaður áætlaður 2500 kr. Bílaleigubíllinn myndi þá kosta um 25.500 krónur. Leigubíll sömu ferð kostar: Startgjald 130 kr. og 948 km á kr. 17,85 samtals kr. 17.051,00. Þá er eftir að reikna mat fyrir bílstjórann og gistingu eina nótt. Ennfremur þarf að taka tillit til þess að bílaleig- ur munu veita ríkinu einhvern afslátt. Samt sem áður er ljóst að ódýrara hefði verið fyrir ríkið að taka leigubíl í þessa ferð, auk þess að þreyta vegna aksturs hefði ekki hrjáð einn ríkisstarfsmanninn. Bílaleigubíll til Ólafsvíkur, dagsferð með 3 klukkustunda við- dvöl í Ólafsvík, sami bíll og áður myndi kosta um 12.066 kr. Leigu- bíll myndi kosta um 11.680 kr. en biðgjald hans er kr. 552,80 á klukkustund. I dæminu eru 3 klukkutímar í bið innifaldir. Dæmi þessi ættu að sýna að skrýtilega er staðið að akstursmálum ríkisins eða/og taxtagerð vegna aksturs leigubíla, nema hvorutveggja sé.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.