Tíminn - 07.05.1987, Blaðsíða 10

Tíminn - 07.05.1987, Blaðsíða 10
10 Tíminn Fimmtudagur 7. maí 1987 Fiskvinnslustöðvar fá óvæntar heimsóknir frá sjávarútvegsráðuneytinu: Veiðast þorskar á þurru landi? - Kannað hvort þorskframleiðsla fiskvinnslustöðva stemmir við landaðan afla Menn frá sjávarútvegsráðuneyt- inu hafa að undanförnu bankað óvænt upp á hjá fiskvinnslufyrirtækj- um sunnan og vestanlands og beðið um að fá að kíkja í bókhaldið. Leitin beinist m.a. að því hvort um ótrúlega „góða nýtingu" á þorski geti verið að ræða. Meiningin er að kanna hvort þrálátur orðrómur um að fiski sé stolið undan kvóta og að þorski sé gjarnt að breytast í „gula ýsu“ eða kannski steinbít við löndun, sé á rökum reistur. „Við teljum að það sé ástæða til að hafa aðhald að þessu öllu - það er ekki nokkur vafi,“ sagði Þórður Eyþórsson, deildarstjóri í sjávarút- vegsráðuneytinu spurður hvort menn þar hafi ákveðinn grun um að framangreindur orðrómur kunni að vera á rökum reistur. „Við viljum með þessu leita nýrra leiða til að styrkja og auka eftirlit með kerfinu okkar." Þórður sagði þann kost hafa verið valinn að athuga einstakar fiskvinnslustöðvar og þau skip sem leggja upp hjá þeim. Þegar sé búið að kanna nokkur hús og verið sé að vinna úr þeim gögnum. Áfram verði svo haldið með fleiri stöðvar, en fyrirtæki og útgerðarmenn megi að sjálfsögðu ekki vita fyrirfram hvenær verði bankað upp á hjá þeim. Athugunin felst í því að kanna hvað þau framleiða mikið af fiskaf- urðum, hvernig sú framleiðsla skipt- ist eftir fisktegundum, vinnslu og pakkningum og reikna út hvað mikið af fiski upp úr sjó hefur þurft til þeirrar framleiðslu. Það er síðan borið saman við tölur Fiskifélagsins um afla skipa sem landað hafa hjá viðkomandi fiskvinnsluhúsi. Þórður sagði ekki tímabært að segja frá neinum niðurstöðum að svo komnu máli. Frá sumum þessara fyrirtækja hafi verið óskað frekari skýringa á misræmi sem komið hafi fram í tölum og verka kunni að á því finnist skýringar, því þetta geti verið flókin dæmi. Nýting sé t.d. misjöfn milli vinnslugreina, pakkninga og húsa, þannig að þetta verði aldrei reiknað upp á kíló. Þá sé að finna út hvað miklu geti skeikað áður en það sé saknæmt og síðan í framhaldi af því kæmi þá spurningin hvaða viðurlög- um þá kunni að vera beitt. Slíkt sé ekki tímabært að ræða að svo komnu máli. „Menn hafa yfirleitt tekið okkur mjög vel“, sagði Þórður spurður um móttökurnar þar sem þeir hafa bank- að upp á til þessa. -HEI Krían komin í hólmann „Krían kemur í hólmann 11. maí.“ Þetta er setning sem margir kannast við úr stafsetningaræfingum sem lagðar voru fyrir gagnfræðaskóla- nemendur hér áður fyrr. Krían er þó nokkru fyrr á ferðinni en venjulega og í gær var hún komin í hólmann í Tjörninni í Reykjavík og sveimaði þar yfir tíguleg að vanda. Myndin var tekin við Tjörnina í gær. Tímamynd Pjetur Nemenda- tónleikar á Hólmavík Nú um mánaðamótin lauk þriðja starfsári tónskóla Hólmavíkur- og Kirkjubólshreppa með nemenda- tónleikum í Hólmavíkurkirkju. Nemendur í tónskólanum voru um 40 á liðnum vetri, en það er svipaður fjöldi og árið áður. Við skólann er starfræktur forskóli og barnakór auk hefðbundinnar kennslu á hljóðfæri. Barnakórinn tók þátt í landsmóti barnakóra undir Eyjafjöllum seinni part vetrar, og ber það nokkurn vott um uppgang tónskólans. Á nemendatónleikunum léku nemendur á píanó, orgel, gítar, blokkflautur o.fl. auk þess sem barnakórinn flutti nokkur lög. Skólastjóri tónskóla Hólmavíkur- og Kirkjubólshreppa er Anna María Guðmundsdóttir. Frá nemendatónlcikum í Hólmavík- urkirkju. Tímamynd: Stefán Gíslason. Kynferðis- leg áreitni eða árás Nýlega var gefinn út bæklingur á vegum Barnarverndarráðs, Barnahóps Samtaka um kvenna- athvarf og Menntamálaráðuneyt- is. Bæklingnum er ætlað að svara helstu spurningum sem vakna hjá foreldrum um kynferðislega á- reitni eða árás, til dæmis hverjir leita á börn, hvernig bregst barn- ið við, hvað á að segja við barnið, ásamt ýmsum öðrum spurning- um. Bæklingnum verður í fyrstu aðallega dreift til barnaverndar- nefnda og ýmissa opinberra starfsmanna, sem afskipti hafa af börnum. Vonast er til að dreifing nái síðar til foreldra skólabarna. Þeir sem hafa áhuga á að fá bækling geta snúið sér til Barna- verndarráðs, Laugavegi 36 eða Samtaka um kvennaathvarf, Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3. - Starfskynning/AÞ,ÖS,KH Hótel Saga alþjóðlegt svæði vegna Nató-fundar? Misskilningur hjá sjónvarpi -segir Hjálmar Hannesson hjá utanríkisráðuneytinu „Þetta er bara einhver misskiln- ingur, sem ég veit ekki hvaðan er kominn. Ég hef ekki heyrt neitt um þetta fyrr en Ólína Þorvarðardóttir kom með þetta í sjónvarpinu, þetta var mjög einkennileg frétt,“ sagði Hjálmar Hannesson í utanríkisráðu- neytinu, er Tíminn bar undir hann frétt ríkissjónvarpsins að lýsa ætti Hótel Sögu alþjóðlegt svæði á með- an á fundi Nato-manna stendur í júní næstkomandi. Hjálmar hefur á sinni hendi yfirumsjón með öllum undirbúningi að fundinum. Sagði Hjálmar að auðvitað yrðu þarna einhverjar öryggisráðstafanir, en þær væru undir stjórn og á ábyrgð íslensku lögreglunnar í náinni sam- vinnu við utanríkisráðuneytið. Hjálmar sagði að það væri rétt að það yrðu viss svæði sem almenningi yrðLekki hleypt inn á meðan á fundi stæði og ætti það fyrst og fremst við fundarstaðinn sjálfan, Hótel Sögu. En það væri alls ekki það sama og lýsa svæðið alþjóðlegt. -phh KrvKl tvtt" ■ pRtWj'B jjt. lO.OÖí Bjor^Ul Guðmundssyni > R*«narí Kjaria««»>T.t ? Páll Pi-afja Kriat , H.TtR.t M*ý>i:ÚK»yrt . t fyrtr brM # »iivjczit ioituft un blutaféuttf '>* T Tímamynd Pjelur Mál Hafskipsmanna dómfest í sakadómi Mál fyrrum yfirmanna Hafskips, þeirra Ragnars Kjartanssonar, Björgólfs Guðmundssonar, Páls Braga Kristjónssonar og Helga Magnússonar var tekið til dómfest- ingar í sakadómi Reykjavíkur í gær. Enginn sakborninga mætti fyrir dómarann, Harald Henrysson, saka- dómara heldur voru lögmenn á- kærðra mættir. Mál fyrrum bankastjóra Útvegs- bankans verður síðan dómsfest 15 þessa mánaðar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.