Tíminn - 07.05.1987, Page 11
Fimmtudagur 7. maí 1987
llllllliillilllllllllll
Handknattleikur:
Kemur Atli ekki?
- Enn óráðið hvort hann leikur með Fram
næsta vetur
Atli Hilmarsson í leik með landsliðinu.
Svo getur farið að Atli Hilmars-
son leiki áfram handknattleik í
V-Þýskalandi næsta vetur. Til stóð
að Atli léki með Fram á næsta
keppnistímabili en hann sagði í
samtali við Tímann í gær að það
væri enn alls óráðið.
Atli setti það skilyrði fyrir að
hann kæmi í Fram að fenginn yrði
góður þjálfari og einnig einn til
tveir góðir leikmenn. Þjálfarinn er
kominn, Björgvin Björgvinsson og
sagðist Atii í gær vera mjög ánægð-
ur með hann „en þeir hafa ekki
sýnt fram á að það sé kominn
einhver leikmaður og ég ætla að
bíða og sjá hvort þeir geta ekki
sýnt fram á það fyrst. Annars verð
ég héma áfram“ sagði Atli og bætti
því við að ekki kæmi til greina að
hann kæmi til íslands til að fara að
spila í fallbaráttu. Atli sagði rétt
vera að hann hefði verið búinn að
lofa Frömumm að leika með liðinu
næsta vetur „en þeir voro líka
búnir að lofa að fá fleiri leikmenn.
Ég ákveð ekki neitt fyrr en þeir
sína framá að þeir standi við sitt,
það er þá bara loforð á móti
loforði,“ sagði Atli.
Atli Ieikur með Leverkusen sem
er í 2. deild þýska handboltans.
Liðinu hefur gengið mjög vel síðari
hluta keppnistímabilsins og á nú
möguleika á að komast upp í
úrvalsdeildina. Kom fram í máli
Atla í gær að forráðamenn liðsins
hefu mikinn áhuga á að hann léki
með því áfram.
Leiknismenn í Búlgaríu
Leikmenn 3. deildarliðsins Leikn-
is í knattspyrnu voru fyrir skömmu
á ferð í Búlgaríu í æfingaferð. Al-
gengt er að knattspyrnulið fari til
útlanda í æfingaferðir en Búlgaría er
kannski ekki venjulegasti áfanga-
staðurinn. Eggert Jóhannesson
þjálfari Leiknis sagði leikmenn hafa
haft áhuga á að fara eitthvað annað
en venjulegt getur talist og þar sem
ferðin hefði ekki reynst svo dýr
hefðu þeir slegið til. Sagði Eggert
liðsmönnum hafa líkað dvölin í
Búlgaríu vel þó tveir þeirra hefðu átt
í vandræðum með að venjast Iofts-
laginu. Veðrið hefði verið gott og
ferðin vel heppnuð.
Leiknismenn léku tvo æfingaleiki
f ferðinni. Sá fyrri var gegn utan-
deildaliði sem er á leið inn í deilda-
keppnina. Vannst sigur í mjög svo
köflóttum leik, 5-4. Seinni leikurinn
var á móti liði í 2. deild og sigruðu
Leiknismenn einnig í honum, 2-1
eftir að hafa verið 0-1 undir á
hálfleik.
*ir*
mp NBA
Úrslit leikja ■ undanúrslitum
deildanna í bandaríska NBA
körfuboltanum á þriðjudags-
kvöld: Austurströndin: Boston-Milwaukee 111-98
(Boston leiðir 1-0) Atlanta-Detroit (Jafnt 1-1) Vesturströndin: 115-102
Seattle-Houston . 99-97
(Seattle leiðir 1-0) LA Lakers-Golden State . 125-116
(Lakers leiða 1-0) Þau lið sem fyrr sigra í leikjum komast áfram. fjórum
Leiknismenn í Búlgaríu (a.o.) og úr öðram kappleik þeirra (t.v.)
Tímamyndir G.E.
Tíminn 11
Handknattleikur á ÓL:
Ameríka í fyrsta leik
- Sovétmenn í þeim síðasta
íslenska handknattleiksliðið mæt-
ir liði frá Ameríku í fyrsta leik sínum
á Ólympíuleikunum í Seoul 1988.
Handknattleikskeppnin hefst 20.
september og verður leikið annan
hvern dag. Afríkuþjóð verður næst
á vegi íslenska liðsins, þá Svíþjóð,
Júgóslavía og loks Sovétríkin. 30.
september verður leikið til úrslita
um 5-11. sæti en 1. október um 1.-3.
sæti. íslenska liðið þarf að lenda í 3.
sæti í sínum riðli til að halda sæti
sfnu sem A-þjóð, keppa um 5.-6.
sætið lendi þeir í 3. sæti í sínum riðli.
Sá möguleiki er einnig fyrir hendi að
7. sætið dugi til að komast á A-
heimsmeistaramótið, lendi Tékkar
sem verða gestgjafar 1990 í einu af 6
efstu sætunum. fslendingar höfnuðu
í 6. sæti á síðustu Ólympíuleikum.
Ekki ræðst fyrr en undir haust
hvaða lið verða fulltrúar Afríku og
Ameríku.
Molar
MARK HATTELEY sem lék
með enska knattspyrnulandsliðinu í
Heimsmeistarakeppninni hefur ák-
veðið að hætta að leika knattspyrnu
á ftalíu. Hann hefur verið þar á
þriggja ára samningi hjá Milano.
Hateley sem er 25 ára gamall hefur
verið í sambandi við Bayern Munc-
hen og Glasgow Rangers en ákveður
um miðjan mánuðinn hvert hann fer.
KARL-HEINZ RUMMEN-
IGGE fer að öilum líkindum í
uppskurð í næstu viku. Rummenigge
sem leikur með Inter Milano á Ítalíu
er meiddur á hásin og er líklegt að
hann verði að leggja knattspyrnuna
á hilluna í þrjá mánuði eða svo.
FYRIRLIÐI TÉKKNESKA
knattspyrnulandsliðsins, Jan Fiala,
hefur gert tveggja ára samning við
franska 1. deildarliðið Le Havre.
Fiala sem er 29 ára gamall varnar-
maður á að baki 55 landsleiki. La-
dislav Vizek félagi Fiala í tékkneska
landsliðinu hefur verið hjá Le Harve
undanfarið ár.
PSV EINDHOVEN og AZ ’67
Alkmaar gerðu í fyrrakvöld marka-
laust jafntefli í 1. deild hollensku
knattspyrnunnar. PSV missti þar
með niður forskot sitt á toppi deild-
arinnar, eru nú samhliða Ajax með
49 stig. Feyenoord er í 3. sæti með
36 stig.
Gautaborg
vann fyrri
Gautaborg sigraði í fyrri úr-
slitaleiknum í Evrópukcppni fé-
lagsliða (UEFA-cup) í Gaut-
aborg í gærkvöldi. Gautaborgar-
liðið gerði eitt mark en Dundee
United ekkert. Það var Stefan
Petterson sem skoraði markið á
39. mín. Liðin leika að nýju í
Skotlandi 20. maí.
Allar stæröir og geröir
I L»l.r-).l»l I
SöiLaolla
oJ)fe(n)©*®iro <St
Vesturgötu 16, sími 13280
STUTTG ART sigraði Blau-Weiss
Berlin með tveimur mörkum gegn
engu í leik liðanna í Berlín í úrvals-
deild v-þýsku knattspyrnunnar í
fyrrakvöld.
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
Aarhus:
Alla þriðjudaga
Svendborg:
Alla miðvikudaga
Kaupmannahöfn:
Alla fimmtudaga
Gautaborg:
Alla föstudaga
Moss:
Alla laugardaga
Larvik:
Alla laugardaga
Hull:
Alla mánudaga
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Helsinki/Turku:
„Tim S“............ 8/5
Hvassafell......... 10/5
Gloucester:
Jökulfell.......... 12/5
Jökulfell.......... 12/6
New York:
Jökulfell........
Jökulfell........
Portsmouth:
Jökulfell........
Jökulfell........
11/5
11/6
11/5
11/6
SK/PADEILD
^&kSAMBANDS/HS
LINDARGATA 9A
PÓ^TH.1480 • 121 REYKJAVlK
SlMI 28200 TELEX 2101
TÁKN TRAUSTRA fujtninga