Tíminn - 13.06.1987, Blaðsíða 16
16 Tíminn
Laugardagur 13. júní 1987
Norðurlandaráð
auglýsir eftir ritara fjár-
laga- og eftirlitsnefndar
Forsætisnefnd Norðurlandaráðs auglýsir lausa til
umsóknar stöðu ritara fjárlaga- og eftirlitsnefndar
Norðurlandaráðs.
Norðurlandaráð er samstarfsvettvangur þjóðþinga
og ríkisstjórna á Norðurlöndum. Á vegum Norður-
landaráðs starfa sex fastanefndir, sem í eiga sæti
norrænir þingmenn. í fjárlaga- og eftirlitsnefnd fer
fram þingleg umfjöllun um fjárlagatillögur og
fjárlög Norrænu ráðherranefndarinnar og nor-
rænna stofnana. Nefndin hefur og með höndum
eftirlit með þeirri starfsemi, sem fer fram á vegum
Norrænu ráðherranefndarinnar.
Umsækjendur skulu hafa hagfræði- eða viðskipta-
menntun ellegar aðra samsvarandi menntun.
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af
endurskoðunar- og stjórnunarstörfum og norrænu
samstarfi. í upphafi ráðningartímans mun annar
tveggja aðstoðarframkvæmdastjóra skrifstofu
forsætisnefndar Norðurlandaráðs vera aðalritari
nefndarinnar, en hinn nýráðni ritari taka við
starfinu að fullu að nokkrum mánuðum liðnum.
Forsætisnefnd leitast við að fá konur jafnt sem
karla til ábyrgðarstarfa á skrifstofu Norðurlanda-
ráðs.
Ritari nefndarinnar mun starfa á skrifstofu for-
sætisnefndar Norðurlandaráðs í Stokkhólmi.
Ráðningartíminn er fjögur ár og hefst 1. nóvember
1987. Ríkisstarfsmenn eiga rétt á leyfi frá störfum
vegna starfa hjá Norðurlandaráði. Skrifstofa for-
sætisnefndar Norðurlandaráðs hefurstöðu alþjóð-
legrar stofnunar.
Eftirtaldir aðilar veita nánari upplýsingar um laun,
kjör og annað varðandi starfið.
Gerhard af Schultén, framkvæmdastjóri skrifstofu
forsætisnefndar Norðurlandaráðs í siríia 9046-8-
143420.
Kjell Myhre-Jensen, aðstoðarframkvæmdastjóri
skrifstofunnar einnig í síma 9046-8-143420.
Snjólaug Ólafsdóttir, skrifstofustjóri íslandsdeild
Norðurlandaráðs í síma 11560.
Umsóknum skal beina til forsætisnefndar Norður-
landaráðs (Nordiska rádets presidium) og skulu
þær hafa borist til skrifstofu forsætisnefndar (Nor-
diska rádets presidiesekretariat, Box 19506, S-
10432 Stockholm) eigi síðar en 10. júlí n.k.
Kennarar
Að grunnskóla Patreksfjarðar vantar kennara.
Kennsla: Enska, almenn barnaskólakennsla,
handavinnukennsla, íþróttakennsla o.fl.
Góðar stöður - Gott húsnæði.
Athugið launin o.fl.
Hikið ekki. Hafið samband við skólastjóra í síma
94-7605 eða formann skólanefndar í síma 94-
1122 eða 1222.
Skólanefndin.
Varnarliðið á
Keflavíkurflugvelli
óskar að ráða fulltrúa til að annast fjárhagsáætlun-
argerð fyrir flugher varnarliðsins.
Æskileg menntun og reynsla:
Viðskiptafræði og starfsreynsla á viðskiptasviði,
mjög góð enskukunnátta nauðsynleg.
Umsóknir berist Varnarmálaskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins, ráðningadeild, Keflavíkurflugvelli,
eigi síðar en 21. júní n.k.
Nánari upplýsingar veittar í sima 92-1973.
ÖLL VINNSLA
PRENTVERKEFNA
Við í Prentsmiðjunni Eddu
tökpm að okkur Hönnun og
vinnslu á stórum og smáum
prentverkefnum.
Höfum yfir 50 ára reynslu í
prentver,ki.
Reynið viðskiptin.
Smiðjuvegi 3,
200 Kópavogur.
BÍLALEIGA
Útibú i kringum landið
REYKJAVIK:. 91-31815/686915
AKUREYRI:........ 96-21715 23515
BORGARNES: .......... 93-7618
BLÖNDUOS:....... 95-4350/4568
SAUÐARKROKUR: .. 95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR: ...... 96-71489
RUSAVIK: ..... 96-41940/41594
EGILSSTAÐIR: ........ 97-1550
VOPNAFJÖRÐUR: .. 97-3145/3121
FASKRUÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: .... 97-8303
irrterRent
¥ÍSJ\Ri&
i¥»A¥ysmHF
Járnhálsi 2 Sími 83266 110 Rvk.
Pósthólf 10180
Massey Ferguson
iPOWERPART:
Ljós fyrir
vinnuvélar
DEILO
IBINB
ARMÚLA3 REYKJAVtK SiMI 38800
19Liúní
vr.no 28Ó ARSDlJ KVENReTTWDAFELAGS ISLANOS 1887
Ef Bjarni Fel væri kona.».
I Er V íi>að sem við wilium?
Kartrembon er þwerpólltísk
Ársrit Kvenréttindafélags
íslands er komið út.
Fæst í bókaverslunum, á blaðsölustöðum og
hjá kvenfélögum um allt land.
Kvenréttindafélag íslands.
Grasfræ — Grasfræ
Höfum til afgreiðslu strax:
ADDA-valiarfoxgras
í 50 kg. sk., kr. 83.- pr. kg
LEIK-túnvingull
í 25 kg. sk., kr. 130.- pr. kg
PIMO-vallarsveifgras
í 50 kg. sk., kr. 288.- pr. kg.
Gerið verðsamanburð.
Hafið samband við sölumenn
til að tryggja tímanlega
_____ afgreiðslu.
G/obusf
LÁGMÚLA 5 - PÓSTHÓLF 8160 128 REYKJAVÍK - S 91 - 68 15 55
Utboð
Flugvallarvegur Siglufirði,
Siglufj.-Fjarðará, 1987
Vegagerð ríkisins óskar eftirtilboöum í ofangreint
verk. Lengd vegarkafla 1,0 km, fylling og burðarlag
7,500 m3.
Verki skal lokið 1. október 1987.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð Ríkisins
á Sauðárkróki og í Reykjavík (aöalgjaldkera) frá
og með 15. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu
stöðum fyrir kl. 14.00 þann 29. júni 1987.
Vegamálastjóri.