Tíminn - 23.06.1987, Page 5
Þriðjudagur 23. júní 1987.
Tíminn 5
Sláttur
hafinn í
Skagafirði
Ársfundur Alþjóöa hvalveiðiráðsins:
Útlitið er dökkt
fyrir íslendinga
„Þetta gengur illa. Að vísu telj-
um við niðurstöður vísindanefnd-
arinnar eðlilegar. Sumir í nefnd-
inni telja okkar rannsóknir ekki
mikilvægar. Aðrir eru annarrar
skoðunar. Útlitið er ekki bjart
fyrir okkur að mínu mati, en við
teljum málið ntjög alvarlegt" sagði
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegs-
ráðherra, í samtali við Tímann, en
Halldór er nú staddur í Bourne-
mouth í Englandi á ársfundi Al-
þjóða hvalveiðiráðsins.
Vísindanefnd Alþjóða hvalveið-
iráðsins hefur haft niðurstöður ís-
lensku rannsóknanna tíl meðferðar
í síöustu viku og eins og kemur
fram í máli Halldórs cru neíndar-
menn ekki á einu máli um gildi
þeirra.
Hvalveiðar í vísindaskyni voru
ræddar á fundinum í gær og kom
þá í Ijós að málstaður íslendinga
mætir taisverðri andstöðu meðal
annarra þátttökuþjóða, en ntálin
verða nánar rædd á rnorgun, mið-
vikudag.
„Það var nú greinilcgt að mál-
flutningur okkar vakti athygli og
marga til umhugsunar, en hvcrnig
málið endar veit enginn" sagði
Halldór ennfremur.
Bandart'sk tillaga liggur fyrir
fundinum, þar scm gert er ráð fyrir
að hvalveiðar í vísindaskyni verði
miklu meiri takmörkunum háðar
en þær nú eru. Samkvæmt þeirri
tillögu myndi vfsindanefndin fjalla
um ailar áætlanir sem ríki scttu
fram um vísindaveiðar og dæma
um hvort og hversu marga hvali
þurfi að veiða. Það kæmi síðan í
lilut ársfundar Alþjóða hvalveiði-
ráðsins að taka í raun pólitíska
ákvörðun um viðkomandi vísinda-
áætlun. Halldór Ásgrímsson og
íslenska . sendinefndin hafa mót-
mælt þessari tillögu vegna þess að
hún brýtur gegn stofnsamningi Al-
þjóða hvalveiðiráðsins og það er á
þeim grundvclli sem málflutningur
íslendinga á ársfundinum byggist.
Þess má geta að skoðanir vísinda-
rnanna í Vísindanefnd Alþjóða
hvalveiðiráðsins eru yfirleitt mjög
skiptar og sjaldnast hefur nefndin
komist að ákveðinni niðurstöðu
þar sem allir eru á sama máli. Þctta
sést m.a. á viðbrögðum við niður-
stöðum úr íslensku rannsóknun-
um. Halldór Ásgrímsson hcfur
hins vegar marg lýst því yfir, m.a.
eftir fundinn nteð Shultz utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna á dögun-
um að íslendingar væru tilbúnir að
sctja þrengri reglur um fram-
kvæmd veiðanna vegna þess að
hugsanlegt sc að ákvæðið um vís-
indavciðar sé misnotað.
Halldór er aftur væntanlegur til
landsins í kvöld. en aðrir í fslensku
sendinefndinni eru þeir Árni Kol-
beinsson. ráðuneytisstjöri, Kjartan
Júlíusson, deildarstjóri í Sjávarút-
vegsráöuncytinu, Kristján
Loftsson, forstjóri Hvals hf., Helgi
Ágústsson, sendihcrra, Guðmund-
ur Eiríksson, þjóðréttarfræðingur,
Agnar lngólfsson, prófessor og
Jóhann Sigurjónsson, sjávarlíf-
fræðingur. Þeir munu vcra áfrarn
út ráðstefnuna, en gert er ráö fyrir
aðhenni Ijúki á föstudaginn. -SÓL
Frá Frni Fórarinssyni frcttaritara l'ímans i
Fljótum.
Sláttur er hafinn á nokkrum bæj-
um í Skagafirði, einkum í Blöndu-
hlíð. Enda er nú góður þurrkur á
hverjum degi og má segja að tíðarfar
í maí og júní hafi leikið við fólk bæði
til sjávar og sveita að því undan-
skildu að þurrkar hafa tafið sprettu
verulega upp á síðkastið.
í samtali við Gunnar Sigurðsson
bónda á Stóru-Ökrum f Blönduhlíð
kom fram að hann væri með flatt á
10 hekturum sem hann reiknaði með
að hirða af í dag og á morgun.
Spretta væri orðin sæmileg ob því
ekki eftir neinu að bíða heldur hefja
heyskap. Gunnar bjóst við að halda
áfram slætti næstu daga ef þurrkur
héldist.
Ekki er að búast við að heyskapur
hefjist almennt í Skagafirði fyrr en
um eða upp úr mánaðarmótum, en
fjögurra vikna tímabil frá 19. maí til
14. júní þegar aldrei kom dropi úr
lofti tafði sprettu mikið eins og áður
sagði.
Bifreiðaeftirlit ríkisins:
Deilan óleyst
í gær var fundur Starfsmannafé-
lags Bifreiðaeftirlitsins og var eftir-
litið lokað víða um land á meðan.
Ekki rættist úr málum, heldur var
felld tillaga um breytingar á starfs-
skipulagi í eftirlitinu. Bifreiðaeftir-
litið verður því áfram lokað í dag,
segir Gunnar Jónasson, formaður
Prestar um
hjónabandið
Hjónabandið í kirkju og samfélagi
verður megin efni prestastefnu sem
hefst í dag í Borgarnesi. Á mið-
vikudag verða starfandi 10 umræðu-
hópar sem hver um sig mun fjalla um
sérstakar hliðar á hjúskap og hjú-
skaparvanda. Þar verða rædd mál
eins og eyðni, skattamál hjóna, varð-
veisla hjónabandsins og framtíð,
sáttaumleitanir í sambandi við skiln-
að og hitt og annað er varðar hag
hjóna. Hver hópur um sig mun síðan
hafa innlegg og skýra frá umræðum
sínum á fimmtudag. Þá verða al-
mennar umræður um efnið í heild og
væntanlegar ályktanir bornar upp.
KB
Bílvelta nálægt Veiöi-
„ vötnum
Okumaður
grunaður
um ölvun
Bílvelta varð nálægt Veiði-
vötnum aðfaranótt laugardags.
Ökumaður er grunaður um
ölvun. Farþegi var með honum
og sakaði báða lítillega, en ekki
alvarlega, að sögn lögreglunnar á
Hvolsvelli. Þeir voru færðir á
sjúkrahús í Reykjavík. Bifreiðin
er talsvert skemmd, jafnvel ónýt.
Á Hellu var mikið hesta-
mannamót og samkoma í Þórs-
mörk og fór hvort tveggja stórá-
fallalaust fram. þj
Starfsmannafélagsins. Haukur Ingi-
bergsson, forstjóri eftirlitsins, segir
aðgerðirnar ólöglegar og beri að
mæta þeim samkvæmt því.
Þótt málið sýnist torsótt og lausn
ekki í sjónmáli skortir ekki að menn
ræðist við, því að fundarhöldum
linnti varla í allan gærdag. Á fundi
samstarfsnefndar öryggis og lög-
gæslustétta á föstudaginn var undrun
lýst á framkvæmd þeirri sem for-
svarsmenn Bifreiðaeftirlits ríkisins
boðuðu. Samstarfsnefndin sagði það
undarlegt að fara að reka stofnun
hálft fjárhagsár með starfsemina alla
í þenslu og bæta á lausráðnu liði.
Skera svo niður vinnu á miðju ári og
raska þannig meginforsendu fyrir
veru starfsliðsins. Skoraði fundurinn
á stjórnvöld að skerast í leikinn og
skakka hann, svo koma megi í veg
fyrir „að verra slys hljótist af en nú
er þegar orðið.“ þj
Veiðidagur fjölskyldunnar
Veiðidagur fjölskyldunnar fór fram í blíðskaparveðri og ekki hægt að fara fram á betra ferða- og útivistarveður.
Fjöldamargir nýttu sér einstætt boð um að renna fyrir silung útgjaldalaust og víst að margir veiddu sinn fyrsta fisk.
Myndin er táknræn fyrir daginn en svo þétt stóðu veiðimenn við Þingvallavatn á sunnudag. (Timamynd Pjetur)
Halldór Antonsson Steiniöjunni ísafirði:
Brot á samkomulagi
við varnarmálanefnd
„Ef B.M. Vallá getur selt 2.000
rúmmetra af steypu hér á sama verði
og í Reykjavík, með því að flytja
hingað alla mölina með skipum að
sunnan auk flutningskostnaðar á
verksmiðjunnni til að búa hana til,
þá tel ég að fyrirtækið hljóti að vera
að okra á steypunni í Reykjavík“,
sagði Halldór Antonsson, fram-
kvæmdastjóri steypustöðvar Stein-
iðjunnar á Isafirði. Nema það væri
kannski nýja landsbyggðastefnan að
láta Reykvíkinga borga niður
steypuna úti á landi, bætti hann við.
Áð kröfu hafnaryfirvalda á ísa-
firði fjarlægði Steiniðjan í gær af
hafnarbakkanum steypubílana sem
þeir höfðu lagt þar til að koma í veg
fyrir flutning steypustöðvar B.M.
Vallár til Bolungarvíkur. I Bolung-
arvík standa fyrir dyrum nokkur
stórverkefni sem reiknað er með að
í þurfi um 2.000-2.500 rúmmetra af
steypu, sem kosta mundi um 15
milljónirsamkvæmt taxtaverði B.M.
Vallár, þ.e. án afsláttar. Til saman-
burðar má nefna að Steiniðjan hafði
reiknað með um 6.000 tonna steypu-
sölu í ár, að þessum 2.500 tonnum
meðtöldum. Málið snýst því um
stóran hluta af ársverkefnum Stein-
iðjunnar.
Af þessari steypu er reiknað með
að um 1.000 tonn fari til byggingar
radarstöðvar á vegum varnarliðsins.
Verði sú steypa keypt af B.M. Vallá
sagði Halldór þar um að ræða brot á
samkomulagi milli varnarmála-
nefndar og bæjarstjórnar Bolungar-
víkur um að heimamenn sitji fyrir
öllum verkefnum. Halldór segir
Steiniðjuna falla undir ákvæðið um
heimamenn þar sem hún hafi hingað
til séð um alla steypusölu til Bolung-
arvíkur. Hin stórverkefnin eru veg-
skáli, grunnskólabygging og hafnarf-
ramkvæmdir.
Halldór sagði taxtaverð á steypu
hjá Steiniðjunni um 6% hærra en
hjá B.M. Vallá. Verktakar við fyrr-
greindar framkvæmdir hafi aðeins
spurst fyrir um verð hjá Steiniðjunni
en ekki leitað tilboða þar. Eina
ástæða þess að verðið er hærra hjá
Steiniðjunni sagði Halldór þá að
hún liggi með 10 millj. króna kostn-
að í sementssílói á ísafirði, en víðast
annarsstaðar sé það Sementsverk-
smiðjan sem eigi sílóin. Ef Steiniðj-
an gæti notað þessar 10 millj. til að
greiða niður annan fjármagnskostn-
að gæti steypan verið ódýrari.
Halldór kvaðst enn trúa því að
Steiniðjan fengi þessi Bolungarvík-
urviðskipti. í samtölum hans við
framkvæmdaaðilana í gær hafi þeir
fullyrt að engir samningar hafi verið
umdirritaðir við B.M. Vallá. Stein-
iðjan hljóti því að eiga möguleika á
að fá þessi viðskipti ekki síður en
aðrir. Missi þeir hins vegar allt að
helminginn af árssölunni sé best að
látaB.M. Vallátakaviðsteypufram-
leiðslunni þar vestra, því enginn
grundvöllur sé þar fyrir rekstri nema
einnar steypustöðvar. - HEI