Tíminn - 23.06.1987, Blaðsíða 6

Tíminn - 23.06.1987, Blaðsíða 6
6 Tíminn Þriðjudagur 23. júní 1987. Aðalfundur Búnaðarsambands Suðurlands: GAGNRÝNISRADDIRNAR HLJÓDAR OG ÓVIRKAR Aðalfundur Búnaðarsambands Suðurlands var haldinn sl. föstudag 19. júní að Gunnarshólma í A- Landeyjum. Þrátt fyrir sterkan orðróm um að þetta yrði átaka- fundur, eins og Tíminn greindi frá í síðustu viku, reyndist samstaða mikil á fundinum. Svo virðist sem þær óánægjuraddir sem gagnrýnt höfðu stjórn Búnaðarsambandsins m.a. fyrir ráðningu á framkvæmda- stjóra eða framkvæmdastjórum, hafi ekki haft almennan hljóm- grunn meðal sunnlenskra bænda. Þetta kemur m.a. fram í því að engin umræða varð um þágagnrýni sem sett hefur verið fram, þrátt fyrir að á fundinum hafi verið auglýst eftir henni. Einnig bendir kosning stjórnarmanna til þess að hér hafi verið um „storm í vatns- glasi“ að ræða, en á þessum aðal- fundi átti samkvæmt lögum Búnað- arsambandsins að kjósa um tvo fulltrúa Árnesinga í stjórninni. Því er skemmst frá að segja að Sveinn Skúlason var endurkosinn í stjórn- ina og hlaut hann 53 atkvæði af milli 60-65 mögulegum og vara- maður Stefáns Jasonarsonar frá Vorsabæ sem gekk nú úr stjórn sökum aldurs, Ágúst Sigurðsson í Birtingaholti hlaut einnig góða kosningu í stjórnina eða 57 at- kvæði. Athygli vekur að Guð- mundur Lárusson í Stekkum, sem einnig var í framboði til stjórnar hlaut ekki kosningu (22 atkvæði), en Guðmundur er einn þeirra sem hefur gagnrýnt stjórnina. Stefán Jasonarson hefur nú látið af störfum sem formaður Búnaðar- sambandsins eftir 18 ára þjónustu. Búnaðarsamband Suðurlands er stærsta Búnaðarsambandið á land- inu og því rekið í mörgum deildum. Reikningar eru því flóknari en víðast. Búnaðarsambandið sjálf var árið 1986 rekið með um hálfrar milljónar króna halla samkvæmt endurskoðuðum ársreikningi en hagnaður varð á rekstrinum fyrir fjármagnsliði. Eigið fé Sambands- ins þ.e. eignir umfram skuldir nem- ur hins vegar rúmum 7 milljónum. í samandregnum rekstrarreikn- ingi allra deilda Búnaðarsam- bandsins kemur fram að halli fyrir fjármagnsliði var u.þ.b. 1,8 milljón en halli af reglulegri starfsemi að meðtöldum fjármagnsliðum varð tæpar 5 milljónir. Eigið fé sam- kvæmt samandregnum efnahags- reikningi allra deilda nam tæpum 50 þúsund krónum. Á aðalfundinum að Gunnars- hólma lét Stefán Jasonarson úr Vorsabæ af embætti sem formaður Búnaðarsambandsins en því starfi hefur hann gegnt frá 1969, en hann hefur setið í stjórn Búnaðarsam- bandsins frá 1959. Voru honum þökkuð vel unnin störf á liðnum árum og áratugum og féllu þar mörg hlý orð í garð Stefáns. Samkvæmt lögum Búnaðar- sambandsins skiptir stjórn með sér verkum sjálf og er því enn óljóst hver tekur við formennsku af Stef- áni. -BG Ertu að byggja upp líkamann? Viö leitum aö blaðberum til starfa víösveg um borgina. Melabraut Skólabraut Unnarbraut Afleysingar Máshólar Starrahólar Valshólar Eskihlíð Mjóahlíð Sóleyjargata Laufásvegur frá 48 Bergstaðastræti 54 Fjólugata Selbraut Sólbraut Lambastaðabraut Teigasel Vatnasel Þingasel Þverársel Kársnesbraut 53 og út Norðurvör Hafnarbraut Langahlíð 13-25 Bólstaðarhlíð Skaftahlíð mánuð Skerjafjörður Afleysing í Álftamýri Safamýri Baldursgata Fjölnisvegur Freyjugata Sjafnargata Urðarstígur Auðarstræti Baldursgata Flókagata Guðrúnargata Kjartansgata Haföu samband. Tíniirin •SIDUMULA Iíj S686300 Orrustuvélin aldna hefur sig til flugs á leið til Bretlands frá Bandaríkjunum eftir skamma viðdvöl bæði á Grænlandi og íslandi. (Tímamynd: Eggert) Safnvél frá Bandaríkjum til Bretlands: Heimsókn aldinnar orrustuflugvélar Gömul orrustuflugvél lenti á Reykjavíkurflugvclli á sunnudags- kvöld klukkan 22.00 eftir réttra sex klukkustunda flug frá Grænlandi. Vélin er af gerðinni North American P-51 Mustang og smíðuð 1945. Þessi stríðsflugvél hefur verið keypt í Bandaríkjunum af Spencer Flack, safnara í Bretlandi, fyrir u.þ.b. 14 til 18 milljónir íslenskra króna. Orrustuvélar af þessari gerð hafa verið mjög eftirsóttar í Banda- ríkjunum og verslun með þær af- skaplega fjörug. Nokkrar slíkar vél- ar voru staðsettar á velli herliðsins í Keflavík á árunum 1951 til 1952. Þá voru þetta einmenningsvélar, en nú hefur verið bætt við farþegasæti aftan við flugmann. Þetta er í annað sinn sem flugmað- urinn flýgur slíkri vél yfir hafið. Hann fórsömu leið í júní í fyrrasum- ar. þj Hér má sjá veiðimanninn halda á laxinum væna, 29 punda, sem veiddist í Vatnsdalsá. 29 punda lax í Vatnsdalsá Stærsti lax sumarsins, sem Tíminn hefur haft spurnir af, veiddist í Vatnsdalsá í Húnavatnssýslu eftir hádegi á laugardag. Um er að ræða 29 punda fisk og fékkst hann á maðk. Veiðimaðurinn heitir Sigurð- ur Einarsson og er hann Borgfirðing- ur frá Hellubæ í Hálsasveit.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.