Tíminn - 17.07.1987, Page 1
FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1987-153. TBL. 71. ÁRG.
Hefur boðað frjálslyndi og framfarir í sjötíu ár
BREYTA OLLU SEM
AD KJAFTIKEMUR
í FÍNASTA ÁBURD
Yfirdýralæknir hefur heimilað innflutning á ána-
möðkum af sérstakri gerð sem fyrirhugað er að
nota til þess að framleiða lífrænan áburð á Stórólfs-
völlum á Rangárvöllum en þar hefur verið hætt
framleiðslu á graskögglum.
Ánamaðkar þessir eru mun afkastameiri í áburð-
arframleiðslu heldur en bræður þeirra íslenskir og
er það ástæðan fyrir því að flytja á þá inn. Þeir éta
alls konar úrgang, allt frá grasi og upp í sorp af
sorphaugum ef fóðrið er blandað í réttum hlutföll-
um. Það er meira að segja hægt að nota þá sjáifa í
fóður handa fiskum og í lyf handa magaveiku fólki
en fyrst um sinn verða þeir einungis notaðir í
áburðarframleiðslu á Stórólfsvöllum.
Sjá bls. 3
TF-TUN
hrapaði
í Fljóts-
hlíð
Landgræösluvélinni TF-
TUN hlekktist á í gær við
flugtak undir Þórólfsfelli í
Fljótshlíð, þar sem hún
sótti áburð til dreifingar.
Flugmaðurinn slasaðist, en
ekki lífshættulega. Hann
var fluttur til Reykjavíkur
með þyrlu Landhelgis-
gæslunnar, en komst strax
undir hendur héraðslækn-
isins á Hvolsvelli.
Menn flugslysanefndar
komu á vettvang í gær til
að rannsaka slysið, en ekki
er enn Ijóst hvað olli brot-
lendingunni. Vélin er sögð
ónýt, enda rifnaði nefið af
og geymar þeir sem áburð-
urinn er geymdur í.
Sjá bls. 5
Helgar-
blaðið
I Helgarblaðinu kennir
margra grasa að venju.
Grímsey, eyjan á heim-
skautsbaug, er sótt heim
og mannlífið kannað.
Mannlífið er ekki eins fjöl-
skrúðugt á fjallinu Skjald-
breið. Þar ríkir villt náttúran
og kyrrðin sem Tíminn rauf
í leit að andagift.
Kyrrðin
ríkir ekki í
kringum
Sverri Her-
mannsson.
Hann lætur
gamminn
geisa í þing-
mannavið-
talinu eins
og honum er einum lagið.
Fróðleik fá lesendur frá
Dr. Jóni Torfa Jónassyni.
Nefið á flugvélinni rifnaði af þegar hún brotlenti í flugtaki í gær, drekkhlaðin áburði, sem sáldraðist um
slysstað. (Tíminn: Pjetur)
31000 íslendingar eiga nú 6 milljarða króna á
GULLBÓK
°g
METBÓK
BUNAÐARBANKIISLANDS
TRAUSTUR BANKI