Tíminn - 17.07.1987, Side 12

Tíminn - 17.07.1987, Side 12
12 Tíminn Föstudagur 17. júlí 1987 FRETTAYFIRLIT BEIRÚT — Rannsóknaraöil- ar er kanna morðið á líbanska. forsætisráðherranum Rashid Karami létu handtaka kristinn liðsforingja í hernum og var hann fyrsti einstaklingurinn sem settur hefur verið í hlekki vegna morðsins. ÚTLÖND Frakkland/lran: LHASA, Kína — Helmut Kohl kanslari Vestur-Þýska- lands kom í opinbera heim- sókn til Tíbet og var það fyrsta heimsókn vestræns stjórn- málaleiðtoga til landsins síðan hersveitir kínverskra kommún- ista tóku völd þar árið 1950. STOKKHÓLMUR Sænskar herþyrlur vörpuðu sprengjum í sjóinn utan við Norður-Svíþjóð í fyrrinótt þar sem talið var að óþekktur kaf- bátur hefðist við. Kafarar leit- uðu einnig að ummerkjum en enginn kafbátur fannst. SINGAPUR — Fram- kvæmdastjóri í vopnaiðnaði Singapúrstjórnar var sakaður um að hafa þegið 1,2 milljónir bandarískra dala í mútur frá sænska vopnafyrirtækinu Bofors. LUNDÚNIR — Talsmenn British Airways sögðu fyrirtæk- ið ætla að kaupa British Cal- edonian flugfélagið á 380 mill- jónir dollara til að vera sam- keppnishæfari við helstu flugfélögin í Bandaríkjunum. LUNDÚNIR — Atvinnuleysi í Bretlandi minnkaði enn í júnímánuði og var það tólfti mánuðurinn í röð sem tala • atvinnuleysingja lækkaði. Samkvæmt opinberum tölum er nú alls 2,91 milljónir vinnu- færra Breta án vinnu eða 10,5% vinnuaflsins. Tölur þessar voru birtar í gær og þóttu góðar fréttir fyrir Margréti Thatcher forsætisráðherra og Ihaldsflokk hennar. Wb | « I MANILA — Ríkisstjórnin á Filippseyjum lagði fram ákæru á hendur Ferdinand Marcosi fyrrum forseta og vill endur- heimta 10 milljarða dollara sem stjórnin sakar Marcos um að hafa dregið sér með ýmisk- onar svindli þau tuttugu ár sem. I hann fór með völd. Samskipti í molum Reuter- Stjórnvöld í íran hótuðu í gær að slíta stjórnmálasambandi við Frakka ef þeir afléttu ekki umsátri sínu um íranska sendiráðið í París innan þriggja sólarhringa. Það var hin opinbera fréttastofa landsins IRNA sem frá þessu skýrði. íranir kröfðust þess einnig að franska ríkisstjórnin refsaði toll- vörðum sem þeir sögðu hafa barið íranskan sendiráðsmann. Sá kom til Teheran í gær og var fluttur á sjúkrahús. Hótanir írana fylgja í kjölfar versnandi samskipta þessara tveggja ríkja. Samskiptaörðugleikarnir hóf- ust fyrir alvöru þegar frönsk stjórn- völd kröfðust þess að fá að yfirheyra íranskan mann sem hafðist við í sendiráði írana í París og neitaði að koma út. Franska lögreglan grunar Vahid Gordji um að vera yfirmann írönsku leyniþjónustunnar í Frakklandi og vill spyrja hann spurninga í sam- bandi við sprengjuárásirnar í París á síðasta ári er urðu þrettán mönnum að bana. Gordji hefur neitað að yfirgefa sendiráðið og franska lögreglan hef- ur sett vörð um húsið og kannar skilríki allra þeirra sem fara inn eða út úr byggingunni. Franskir embættismenn sögðu í Parísarborg í september 1986: Frönsk stjórnvöld vilja yfirheyra íranskan mann vegna sprengjutilræðanna í París á síðasta ári. Maðurinn neitar hins vegar að gefa sig fram, heldur til í íranska sendiráðinu og svo gæti farið að málið leiddi til stjórnmálaslita milli ríkjanna tveggja. gær að engar áætlanir væru uppi um að aflétta vörslunni en í gærkvöldi fundaði ríkisstjórnin franska um málið. Bæði Jacques Chirac forsætisráð- herra og Francois Mitterrand forseti hafa lagt á það áherslu á síðustu dögum að vörslunni verði ekki aflétt fyrr en Gordji gefst upp og samþykk- ir að svara spurningum lögreglunn- ar. Mitterrand sagði í vikunni að Frakkar myndu ekki láta undan „óþolandi ógnunum“ í þessu máli. Japan: Risasjónvörp farin að setja svip á markaðinn Tokyo - Reuter Keppnin um að framleiða stærri og stærri sjónvarpstæki er nú komin í fullan gang í Japan og eitt fyrirtæki setti á markaðinn risatæki í gær sem það kallaði heimsins stærsta sjónvarp. Það er Matsushita samsteypan sem framleiðir tækið og sögðu tals- menn þess það ekki einungis vera stærsta heldur líka dýrasta sjónvarp- ið. Tækið kostar sem samsvarar rúmlega hálfri milljón íslenskra króna. Sérfræðingar segja að markaðs- setning þessa 43 tommu sjónvarps- tækis sé í samræmi við þá tilhneig- ingu í Japan að troða stórum skerm- um inn í stofu hjá sér. „Það eina sem þig vantar er poppkorn“, sagði markaðssérfræð- ingurinn Darrel Whitten í samtali við Reuters fréttastofuna og hélt því fram að fólk kæmist í nánari snert-' ingu við kvikmyndirnar sem sýndar væru er það horfði á stóru sjónvörpin heima í stofunum hjá sér. Talsmenn Matsushita fyrirtækis- ins sögðu að sala á sjónvörpum, 22 tommum og stærri, hefði verið 13% af heildarsölu sjónvarpa í Japan á síðasta ári. Talsmennirnir gerðu ráð fyrir að þessi hlutur stóru sjónvarp- anna myndi fara upp í 22% af heildarsölunni á þessu ári. Hið 43 tommu Mammothtæki frá Matsushita, sem vegur 140 kíló, verður ekki fjöldaframleitt til að byrja með heldur aðeins selt eftir pöntunum. Flestir sjónvarpsframleiðendur sem eitthvað kveður að eru komnir með 30 tommu tæki á markaðinn í Japan og Bandaríkjunum og bjóða raunar upp á enn stærri tæki sem seljast á sem svarar rúmlega fimmtíu þúsundum íslenskra króna þau ódýr- ustu. „Spurningin er hvar þú ætlar að koma þessum risum fyrir, en í lokin mun fólk finna sér stað fyrir þau,“ sagði Whitten. Landinn einnig stórhuga Þeir í Sjónvarpsbúðinni könnuðust við aukinn áhuga neytenda hér á landi á stórum sjónvarpstækjum er Tíminn bar frétt Reuters undir þá, og sögðu að hlutur 25 og 27 tommu sjón- varpstækja í sölunni væri greini- lega að verða meiri. Þótt salan á sjónvörpum sé ekki mikil unt þessar mundir virðist sem unga fólkið, sem er að koma sér upp búslóð, hafi mestan áhuga á stórum tækjum er hljóma í steríó og hafa önnur hágæði. Risasjónvörp eru hins vegar að mestu óþekkt á íslenskum heimil- um en hver vcit nema þau taki hálfan vegginn í stofum hér á landi innan tt'ðar. Neysluþjóðfé- lagið er, jú, til alls líklegt. Munu sjónvörpin enn halda áfram að stækka? Japanskir framleiðendur eru á því. „Stærðin sem neytendur í Japan, Bandaríkjunum og annars staðar kjósa fer sífellt stækkandi," sagði Harry Machida talsmaður Sony fyrirtækisins og bætti við að nú væri málið fyrir framleiðendur að auka gæði þessara tækja og Iækka verðið, þá væri búið að klófesta blessaðan neytandann. Indland: Venkatara* man næsti forseti Nýja Delhi - Reuter Ramaswamy Venkataraman varaforseti var í gær kjörinn for- seti Indlands og er hann áttundi forseti þessa næst fjölmennasta ríkis jarðar. Venkataraman hlaut örugga kosningu enda studdur af Rajiv Gandhi forsætisráðherra og Kongressflokki hans. Hinn 76 ára gamli forseti mun koma fram fyrir hönd 800 milljón Indverja þótt völd hans séu í raun engin. „Þú ert hinn eiginlegi sigurveg- ari,“ sagði Venkataraman við forsætisráðherrann Gandhi þegar úrslitunum var fagnað á heimili hans: „Það eina sem ég gerði var að skrifa undir tilnefningarpapp- írana," bætti hann við. Venkataraman er mjög virt persóna í Indlandi og hafa litlar deilur verið um kjör hans. Talið er að hann setjist í forsetastólinn strax þann 25 júlí þegar fimm ára kjörtímabili Zail Singhs lýkur. Samskipti Singhs og Gandhis hafa verið mjög brösótt að undanförnu en víst er að forsætis- ráðherranum mun ganga betur að eiga við Venkataraman. Venkataraman er tamili og kemur frá Suður-Indlandi. Hann var einu sinni fangelsaður af Bret- um fyrir andófsstarfsemi er þeir réðu landinu. Það er sérstakt kosningaráð sem kýs forseta landsins og samanstendur það af 776 þing- mönnum á þinginu í Delhi og 3.919 meðlimum héraðsþinga í hinum 25 héruðum landsins. Venkataraman vann, eins og búast mátti við, öruggan sigur á tveimur mótframbjóðendum, þeim V.R. Krishan Iyer fyrrum hæstaréttardómara sem var fram- bjóðandi þeirra fjórtán flokka sem mynda stjórnarandstöðuna í landinu og hinum óháða Mithi- lesh Kumar Sinha. Gandhi skipaði þingmönnum Kongressflokksins að kjósa Venkataraman og svo virðist sem þeir hafi allir farið að þeirri skipan. Nokkur sundrung hefur annars sett svip sinn á flokkinn að undanförnu og Gandhi hefur ver- ið gagnrýndur óspart. Hin örugga kosning Venkataramans var því sigur fyrir forsætisráðherrann unga. Kosningar veröa í Portúgal á sunnudag: Jafnaðarmenn lík- legir til stórafreka Anibal Cavaco Silva forsætisráð- herra Portúgals: Fagnar hann sigri eftir kosningarnar á sunnudaginn? Lissabun-Rcutcr Skoðanakannanir í gær bentu ein- dregið til að hinn ráðandi Jafnaðar- mannaflokkur myndi vinna öruggan sigur í þingkosningunum í Portúgal sem haldnar verða á sunnudaginn. Niðurstöður þessara kannana voru birtar á sama tíma og leiðtogar flokkanna héldu fundi í stórborgum landsins í lok kosningabaráttunnar sem staðið hefur yfir síðustu þrjár vikurnar. Svo gæti jafnvel farið að Jafnað- armannaflokkurinn undir forystu Anibal Cavaco Silva næði hreinum meirihluta á þingi í fyrsta skipti og benti raunar skoðanakönnun Gallup stofnunarinnar og önnur, er birtist í vikublaðinu Tempo, til þess. Þessar kannanir gáfu jafnaðar- mönnum 43% atkvæða sem myndu, samkvæmt hinum flóknu hlutfalls- reglum í kosningum þar í landi, rétt nægja þeim til að tryggja sér meiri- hluta í þinginu þar sem 250 menn sitja. Sósíalistaflokki Vitor Constancios var spáð 23% fylgi sem yrði heldur döpur kosninganiðurstaða fyrir sós- íalista. Að vísu fengu þeir aðeins 20% atkvæða í kosningunum í októ- ber árið 1985 en það var líka minnsta fylgið sem flokkurinn hafði fengið á ferli sínum. „Það sem þjóðin þarfnast er ríkis- stjórn sem fær að framfylgja áætlun- um sínum,“ sagði Cavaco Silva í sjónvarpi í fyrradag og var greinilega umhugað um að tryggja flokki sínum meirihlutavald á þingi. Cavaco Silva hefur stýrt minni- hlutastjórn mið- og hægriflokka er var studd af 88 þingmönnum á síðasta þingi. Þetta var sextánda stjórnin í landinu til að fara með völd síðan öfl innan hersins gerðu uppreisn árið 1974 og bundu enda á hægrisinnað einveldi. Enginn flokk- ur hefur hingað til fengið hreinan meirihluta á þingi. Sósíalistaflokkurinn hafði fram að kosningunum árið 1985 verið stærsti flokkurinn í Portúgal en fylgi hans hrundi þegar Antonio Ramalho Eanes stofnaði nýjan flokk sem dró að sér fylgi hófsamari sósíalista. Cavaco hefur lagt áherslu á það í kosningaslagnum að vinstri öflin séu sundruð og geti ekki myndað starf- hæfa ríkisstjóm.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.