Tíminn - 17.07.1987, Síða 8

Tíminn - 17.07.1987, Síða 8
8 Tíminn Föstudagur 17. júlí 1987 Títninn MÁLSVARIFRJÁISLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinnog Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri Ritstjórar: Aöstoöarritstjóri: Fréttastjórar: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason Indriöi G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason NíelsÁrniLund OddurÓlafsson Birgir Guðmundsson Eggert Skúlason SteingrímurGíslason Skrifstofur: Síöumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 (tæknideild) og 686306 (ritstjórn). Verð í lausasölu 55.- kr. og 65.- kr. um helgar. Áskrift 550.- Gagnkvæmur skilningur er nauðsynlegur Ákveðið hefur verið að frá og með næstu helgi verði gert hlé á vísindaveiðum íslendinga á hval um óákveðinn tíma. Það er gert að ósk Bandaríkja- manna meðan fyrirhugaðar viðræður þeirra við íslendinga standa yfir. Þessi ákvörðun þýðir þó ekki að vísindaveiðunum sé lokið og má benda á að sami háttur var hafður á í fyrra þegar íslensk sendinefnd fór utan til viðræðna við sömu aðila. Sjávarútvegsráðherra, Halldór Ásgrímsson, hefur marg ítrekað að íslendingar séu tilbúnir til að endurskoða sína rannsóknaráætlun ef bent verður á betri leiðir til rannsókna á hvalastofninun, en hann hefur einnig ítrekað sagt að markmið okkar sé að fá niðurstöðu úr þessum rannsóknum, sem Alþingi fól sjávarútvegsráðuneytinu að gera og voru í fullu samræmi við samþykktir Alþjóðahvalveiðiráðsins. í 8. grein stofnsamnings Alþjóðahvalveiðiráðsins er skýrt kveðið á um að „Ríkisstjórn sérhvers aðildarríkis geti veitt einhverjum þegnum sínum sérstaka heimild til þess að taka, drepa eða með- höndla hvali til vísindalegra rannsókna, með skilyrð- um sem viðkomandi ríkisstjórn aðildarríkis telur nauðsynleg um fjölda hvala og önnur atriði“. Með þeim kúgunaraðgerðum sem íslendingum er nú hótað er því verið að brjóta þennan sáttmála og skerða þar með sjálfsákvörðunarrétt okkar íslend- inga til rannsókna á hvölum og þar með lífríki hafsins umhverfis landið sem er dýrmætasta auðlind okkar. Við getum því ekki annað en litið þessa íhlutun mjög alvarlegum augum og hljótum að velta fyrir okkur hvernig henni skuli mætt. Það vita allir að íslendingar eiga gífurlega mikið undir því komið að geta selt vörur sínar og haft eðlileg viðskipti á öðrum sviðum við Bandaríkin. Þeim hagsmunum má ekki fórna. Um það eru allir sammmála. Hitt er aftur á móti engu að síður mikilsvert að íslendingar, sem sjálfstæð þjóð, fái að ráða sínum málefnum, án þess að erlendir drottnarar hvar í heiminum sem þeir eru, taki fram fyrir hendurnar á þeim. Hér skal enn á það minnt að hafið er okkar stærsta auðlind og verndun lífríkis þess og viðhald þess jafnvægis er ekki síður nauðsynlegt þegar til lengdar lætur en viðskiptahagsmunir líðandi stundar. Því er mikilsvert að ábyrgir stjórnmálamenn ræði þessi mál og leiti leiða til að koma í veg fyrir árekstra. Með öllu er ófært að öfgahópar og sérvitrir einstaklingar sem engra hagsmuna hafa að gæta ráði ferðinni. Það hafa þeir gert allt of lengi, ekki einungis í hvalamál- inu heldur á mörgum öðrum sviðum með vafasömum árangri. Þar má minna á herferðir gegn selaveiðum sem m.a. hefur stofnað afkomu heillar þjóðar, Grænlendinga í, hættu. íslendingar hljóta að vænta þess að Bandaríkja- menn skilji málstað okkar og leggi sitt að mörkum til að deila þessi leysist á friðsaman máta. Samskipti þessara þjóða eru mikil og hafa alla tíð verið góð. Vonandi verður svo í framtíðinni. ‘GARRI Morgunblaðsþykkildið Garri þurfti af sérstökum ástæð- um í gær að fletta upp á grein sem hann mundi að hafði birst í Morg- unblaðinu einhvem undangeng- inna daga. Þetta kostaði að hann þurfti að fletta í gegn öllum blöðun- um frá því á föstudag, og það vakti með honum ýmsar hugleiðingar. Það fer víst ekki á milli mála að Morgunblaðið er að verða að alveg sérstöku fyrirbæri í blaðaheimin- um, ekki bara hér á landi heldur einnig þótt víðar væri leitað. I viku hverri sendir útgáfufélag blaðsins þvílík gífurleg kynstur af pappír inn á þau heimili landsins, sem kaupa blaðið, að engu tali tekur. Lesmálsflöturinn, sem viku- skammturinn tekur yfir, er orðinn svo risavaxinn, að erfitt er að skilja hverjir gefi sér tíma til að fara yfir þetta allt, hvað þá að lesa það. Nú væri þetta kannski út af fyrir sig í lagi ef Morgunblaðið væri gott og vandað blað, en um það geta víst verið skiptar skoðanir. Auglýs- ingar taka yfir stærsta hlutann af þessu flæmi, en síður með fréttum og raunverulega áhugaverðu les- efni em hlutfallslega mjög fáar. Afgangurinn er svo fylltur upp með hinu og þessu efni sem venju- lega er meiri eða minni útþynning- ur úr erlendum blöðum, að því ógleymdu að á Morgunblaðinu virðast menn fylgja þeirri stefnu að birta hverja einustu aðsenda grein, og skiptir þá engu hversu heimsku- leg hún er. Vítahringur Morgunblaðið er þannig komið inn í vítahring sem vant er að sjá hvernig það getur losnað út úr. Á liðnum áratugum hefur blaðið náð að verða útbreiddast íslenskra blaða, og því sækja auglýsendur eftir að koma sjálfum sér og vörum sínum á framfæri þar. Líka sækjast greinahöfundar eftir að fá ritsmíð- ar sínar birtar þar, í þeirri sælu vantrú að þar með sé ömggt að meirihluti þjóðarinnar lesi þetta allt saman. Það er hins vegar hinn argasti misskilningur. íslenskir blaðales- endur eru upp til hópa duglegt og vinnusamt fólk, sem lætur ekki að sér hvarfla að eyða heilum vinnu- dögum í það verkefni að sitja og lesa misjafnlega áhugavert Morg- unblað. Tímarnir era breyttir, og þessu hafa hinir fjölmiðlamir svar- að með þvi að leitast við að vera með samanþjöppuð skrif um fréttir og önnur áhugaverð daglcg mál- efni, þannig frá gengin að önnum kafið nútímafólk geti gefið sér tíma til að lesa þau. Af því leiðir að í dag fletta flestir kaupendur Morgun- blaðsins í gegnum það en lesa það ekki. Áhrifamáttur þess fer sí- þverrandi. Garri segir það eins og er að hann hefur áhyggjur af þessu fyrir hönd Morgunblaðsins síns. Það hefur vaxið upp í það að vera núna orðið að þykkildi á líkama þjóðar- innar, sem aðeins er tímaspursmál hvenær hún sér ástæðu til að skera burt. Og Garri myndi sjá eftir Mogganum sínum ef hann einn daginn springi í loft upp rétt eins og hver önnur ofþanin sápukúla. Það má oft hafa drjúgt gaman af assvítans vitleysunum í Moggan- um, ekki síst því sem þeir kalia pólitík. „Vinsældir" frétta- stofunnar Hún var merkileg fréttin sem barst út á öldum Ijósvakans fyrir fáeinum dögum um það að skoðan- akönnun félagsfræðinga hér við Háskólann hefði leitt í Ijós að blaðamenn hér bæru mest traust til fréttastofu útvarpsins, af þeim fjöl- miðlum sem við fréttaflutning fást. Þeir félagsfræðingarnir gættu ber- sýnilega ekki að því að blaðamenn á dagblöðunum eru í harðri sam- keppni hver við annan, og vita- skuld gefur enginn blaðamaður það upp í skoðanakönnun að helstu keppinautar hans standi sig betur en hann sjálfur og félagar hans. Þess vegna var aðeins eðlilegt að margir nefndu fréttastofuna frem- ur en keppinautablöðin. Þetta er cinföld staðreynd sem félags- fræðingar á launum hjá sameigin- legum sjóði okkarskattborgaranna virðast þó ekki skilja. Fréttastofa ríkisútvarpsins er svo sem alls góðs makleg, en félagsfræðingarnir eiga enn eftir að læra að taka mannlega þáttinn inn í störf sín. Það er að segja að læra að beita því sem oftast er kallað heilbrigð skynsemi, en hefur kannski lítið með svo kallaðar fræðikenningar þeirra að gera. Garri. VÍTT OG BREITT Nútímamenn með framtíðarsýn Nýjar búgreinar eru svar við miklum samdrætti í hefðbundnum landbúnaði og er mikið um þær rætt og ritað og jafnvel þónokkuð framkvæmt. Ræktun loðdýra og fiskeldi eru efst á blaði svokallaðra nýrra búgreina og dæmi eru um að á ný séu að verða til útvegsbændur, en einhverra hluta vegna gufaði sú stétt upp einhvern tíma á þessari öld. Hér er ekki verið að taka upp neina nýja bugrein heldur endur- vekja hefðbundinn atvinnuveg, sem stundaður var síðan land byggðist. Garðyrkju- og gróðurhúsabænd- ur auka framleiðslu sína jafnt og þétt og sömuleiðis fjölbreytni afurðanna. En minna fer fyrir að þeir séu taldir meðal þeirra sem taka upp nýja búskaparhætti eða að þeir séu teknir í tölu lands- stólpa. Kartöflu- og gulrófnarækt er fyr- ir löngu hætt að vera aukabúgrein eða einhvers konar tómstund- avinna. Atorkusamir bændur sem margir hverjir þekkja sinn vitjun- artíma sjá fyrir þörfum lands- manna á þessu sviði. Framleiðsla og fjölbreytni vaxandi Ylræktin skilar meiri framleiðslu frá ári til árs. Langt er um liðið síðan farið var að nýta jarðhitann til ræktunar en lengi vel var það í smáum stíl og afurðirnar fábreytt- ar. Tómatar og gúrkur voru helstu afurðirnar. En tegundunum fjölgar og fjöl- breytnin á markaðinum eykst. Neytendur kunna vel að meta framtakið og ylræktarmenn þurfa ekki að kvarta yfir að framleiðsla þeirra seljist ekki. Áður fyrr þótti vinnufólki vond vist hjá þeim bændum sem iétu skammta kálslabb og væri það í hæsta lagi búpeningi bjóðandi. Nú er öldin önnur. Grænmeti er ekki aðeins holl fæða, heldur vilja þeir sem því venjast, helst borða það í öll mál og nýjar tegundir ganga út eins og heitar lummur. Matarvenjur breytast og sem betur fer að sumu leyti til hins betra. Grænmetisneysla er hverj- um manni nauðsynleg og sú krafa er uppi meðal neytenda að ávallt sé nóg af því á boðstólum. Ræktunartíminn lengdur Ylræktarbændur standa sig vel í stykkinu og þeim hefur tekist að lengja þann tíma verulega sem hægt er að setja nýja framleiðslu á markað. Stutt sumur hafa ávallt staðið í vegi fyrir að hægt sé að fullnægja markaði sem í raun er opinn allt árið. Samkeppni við innflutt grænmeti er mikil og takmörk eru fyrir hve hægt er að leggja í mikinn kostnað við gróðurhúsaræktun. En ný að- ferð hefur skotið upp kollinum, sem garðyrkjubændur notfæra sér. Það er að hita upp jarðveginn með heitu vatni. Með því er hægt að auka uppskeruna verulega og lengja þann tíma sem hægt er að hafa innlent grænmeti á boðstól- um. Vafalaust á eftir að auka ræktun í upphituðum jarðvegi til mikilla muna. Ylræktin á mikla framtíð fyrir sér og er ástæða til að hvetja neytendur til að kaupa fremur innlent grænmeti en erlent þann tíma sem völ er á hvorutveggja. fslenska grænmetið er síst verra en erlent og nokkur trygging er fyrir að hér þarf ekki að berjast við margar skordýrategundir með úðun, eins og algengt er erlendis. íslenskir ylræktarbændur hafa náð furðu góðum tökum á fram- leiðslu sinni. Þeim hefur tekist að lengja vaxtartímann verulega, auka framboð og fjölbreytni og á búgreinin, hvort sem hún er kölluð ný eða gömul, góða framtíð fyrir sér. Því hefur ekki verið haldið mikið á lofti hve ræktunartíminn hefur verið lengdur mikið. Ekki er t.d. langt síðan rósir voru ekki á mark- aði nema yfir hásumarið og eitt- hvað fram á haust. Nú er hægt að kaupa íslenskar rósir í hartnær tíu mánuði ársins og þykir öllum sjálfsagt að geta gengið að þeim í blómabúðum þótt maður verði að dúða sig fyrir hríðum og frosti til að skreppa eftir þeim. Ylræktin er vaxandi atvinnuveg- ur og á sú búgrein framtíðina fyrir sér sé vel á málum haldið. OÓ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.