Tíminn - 15.08.1987, Síða 3

Tíminn - 15.08.1987, Síða 3
Laugardagur 15. ágúst 1987 Tíminn 3 í.kauptilboð: « % Utvegsbankans að hlutur sjávarútvegs myndi minnka sem hlutfall af heildarvið- skiptum nýs banka af þeirri ein- földu ástæðu að nýir aðilar sem ekki hafa haft eins mikil viðskipti við sjávarútveginn og Útvegsbank- inn gerir kæmu inn í dæmið. Hann tók jafnframt fram að Sambandið, sem verið hefur einn stærsti við- skiptavinur Landsbankans myndi áfram hafa við hann mikil og góð viðskipti og að hann byggist ekki við að um stórkostlegar fjármagns- tilfærslur í íslensku bankakerfi myndu koma í kjölfar þessara aðgerða. Sjávarútvegsblokkin varð strandaglópur Hlutafé Útvegsbankans hf. er einn milijarður að nafnvirði og þar af keypti Fiskveiðasjóður hlutafé fyrir 200 milljónir og á áttunda hundrað aðilar keyptu hlutabréf fyrir samtals tæplega 40 milljónir. Ríkissjóður er því eigandi að mest- um hluta hlutafjárins eða um 760 milijóna. Á stofnfundi Útvegs- bankans hf. í apríl sl. lýsti Matthías Bjarnason þáverandi viðskiptaráð- herra því yfir að hlutafé ríkissjóðs í Útvegsbankanum væri falt öllum þeim sem áhuga og efni hefðu og að hann ætti „von á að ekki verði hörgull á áhugasömum kaupend- um og það stóruin," eins og haft var eftir honum í Tímafrétt á sínum tíma. Hlutafé þetta hefur legið óhreyft í ríkissjóði síðan þá og er Sambandið og samstarfsfyrir- tæki þess fyrstu aðilarnir sem gera í það tilboð. Viðskiptaráðherra tók sér í gærmorgun frest til að íhuga tilboð- ið og verður það rætt á ríkisstjórn- arfundi nk. þriðjudag. Enn á eftir að ræða um fjölmörg atriði varð- andi útfærslu kauptilboðsins, t.d. vilja samvinnumenn fá lengri greiðslutíma en þau 5 ár sem kveðið er á um í útboðslýsingunni. Samtök f sjávarútvegi, þ.e. LÍÚ, SH, og SÍF sem áhuga höfðu á að bindast samtökum og kaupa meiri- hluta í Útvegsbankanum hafa bví í raun misst af þessu tækifæri, ú ríkið að tilboðinu. 20%+20%+20%+7% = % hlutafjár Sem fyrr segir hljóðar tilboð samvinnumanna upp á að kaupa 67% af öllu hlutafé Útvegsbank- ans, eða fyrir 670 milljónir króna, þannig að enn á ríkissjóður eftir hlut upp á 90 milljónir óseldan. Sá hlutur er öllum falur. Þegar Tíminn innti Val Arnþórsson eftir því hvers vegna samvinnumenn hefðu keypt nákvæmlega þetta stóran hlut benti hann á að það væri % hlutar heildarhlutafjár. Til þess að geta hrint sameiningu við Sam- vinnubanka í framkvæmd er nauð- synlegt að hafa þetta mikinn eign- arhluta. Valur og Guðjón sögðu það ekkert launungarmál að sam- vinnuhreyfingin hefði áhuga á að halda meirihluta í Útvegsbankan- um, en þegar endurskipulagning bankakerfisins væri afstaðin hefðu þeir áhuga á að selja aftur hluta af hlutafé sínu. Töldu þeir koma sterklega til greina að selja erlend- um aðilum hlut í nýjum banka. enda yrði slíkt gert innan ákveð- inna marka (heimilt er að selja 20% hlutafjár Útvegsbankans er- lendum aðilum). Megin markmið- ið með því að fá erlenda aðila inn í slíkan banka væri að ná inn í landið erlendri sérþekkingu sem gæti reynst dýrmæt. í tilboði sam- vinnumannanna skiptast hlutafjár- kaupin þannig milli aðila að Sam- bandið sjálft kaupir 20% heildar- hlutafjár eða fyrir 200 milljónir að nafnvirði, Samvinnusjóður 20%, Jötunn hf. 20%, og Dráttarvélar 7%. í lögum um Útvegsbankann má sami lögaðilinn ekki eiga meira en 20% hlutafjár. Sambandið, Samvinnusjóður, og Dráttarvélar munu þá samkvæmt því fá einn bankaráðsmann hvert í 5 manna bankaráði Útvegsbankans. Rétt er í þessu sambandi að rifja upp frétt Tímans unr að „Bankaráðsmaður kostar 200 milljónir", frá því í apríl sl. en þar er vitnað í ræðu Matthí- asar Bjarnasonar þáverandi viðskiptaráðherra sem hann hélt á stofnfundi Útvegsbankans hf. og segir að hann telji eðlilegt að boðað verði til aukahluthafafundar þegar nýir og stórir hluthafar væru komnir inn, svo kjósa mætti upp á nýtt í bankaráðið. Matsnefnd enn að störfum Þriggja manna matsncfnd vinnur nú enn að því að gera upp skuldir Útvegsbankans frá því áður en bankinn varð hlutafélag. Ekki er Ijóst hversu mikil upphæð mun á cndanum falla á ríkissjóð en sam- kvæmt lögunum á eigið fé hins nýja banka að vera einn milljarður og gamlar skuldir sem ekki næst á innheimta mun ríkissjóður yfir- taka. f samtali við Tímann sagði Jón Baldvin Hannibalsson fjár- ntálaráðherra um þetta lögbundna uppgjör: „Samkvæmt orðanna hljóðan þá á hinn nýi banki að taka við nánast hreinu borði. Þarna er mikið af úrskurðum, mörg álitamál varðandi uppgjör skulda, stöðu fyrirtækja og trygginga. Þessir menn (matsnefndin) eru komnir til starfa og það er Ijóst að þetta er gífurlegt mál, mikið verk og háar upphæðir. Að vísu vita menn ekk- ert um innheimtu að svo stöddu, cn yfirtaka á skuldum Seðlabanka var upp á 764 milljónir og því fer víðs fjarri að það sé lokatala.“ Á blaðamannafundinum í gær sögðu þeir Valur og Guðjón að það brcytti í raun engu þó þessu uppgjöri væri ekki lokið, þar sem stjórnvöld myndu standa við sinn þátt og skila Útvegsbankanum hf. með „hreinu borði“, einsogákveð- ið hafi verið. Viöskiptaráðherra um Útvegsbankakaupin: Athyglisvert tilboð og léttir af skattþegnum „Þetta er athyglisvcrt tilboð sem Sambandið og samstarfsaðil- ar þess hafa gert. Það barst nú fyrst í morgun og gert á grundvelli hlutafjárútboðs ríkisins frá því í vor og miðast við þau kjör scm þá voru boðin. Þetta tilboð hcfur í sér fólgna vissa möguleika á samruna banka, þ.e.a.s. með samruna Útvegs- og Samvinnu- banka, og ef til vill með samstarfi við aðra. Það gæti leitt af sér aukna hagkvæntni og rekstrarör- yggi í bankakerfinu. En það er 1 einmitt stefna ríkisstjórnarinnar að stuðla að þessu og reyndar að draga úr ábyrgð og afskiptum ríkisins af bönkunum. Þettamæl- ir frekar með þessu og gæti verið byrjun á uppstokkun á bönkum. Svo er það mjög mikilvægt að létta af skattþegnunum þeim skuldbindingum sem ríkið tók á sig vcgna Útvegsbankans í vetur. Tilboðið getur létt þær byrðar, en svo finnst nú ýmsum að þetta muni fela í sér samþjöppun fjár- hagsvalds hjá tengdum fyrirtækj- um. Þetta þarf að vega og meta, cn fyrst og fremst lít ég á þetta frá fjárhags- og viðskiptalegu sjónar- miði, að í senn bæta fjárhag ríkissjóðs og skipulag bank- anna,“ sagði Jön Sigurðsson, við- skiptaráðherra í samtali við Tím- ann er hann var spurður hvernig honum litist á tilboð Sambandsins og samstarfsaðila þess urn kaup á 67% af heildarhlutafé Útvegs- bankans. En mun þetta tilboð mæta andstöðu innan ríkisstjórnarinn- ar? „Um það vil ég engu spá. Ég hef kynnt málið samstarfsaðilum í stjórninni. Ákvörðun um fram- hald málsins verður tekin í næstu viku. Viðhorf Alþýðuflokksins í málinu er hlutlaust. Ef niðurstað- an af hinu fjárhagslega og við- skiptalegu mati styður það, þá mun ég fylgja tilboðinu eftir. Það er viðleitni mín og vonandi allra í ríkisstjórninni að líta á banka sem atvinnufyrirtæki en ekki sem pólitískar fyrirgreiðslustofnan- ir,“ sagði Jón að lokum. -SÓL Nýju gerðirnar eru óneitanlega rennilegar á að líta. Alþýðubandalagiö ályktar: Málefni fjölskyldunnar og húsnæðislagabálkur BMW 750i og BMW 750 il: Ný gerð glæsikerra á göturnar í haust Ný gerð BMW bifreiða er væntan- leg á markaðinn á hausti komanda, BMW 750i og BMW 750 il. BMW 750 il er 11,4 cm lengri en 750 i bíllinn, að öðru leyti er hins vegar enginn teljandi munur í bílunum. Glæsikerrurnar hafa að geyma tólf strokka vélar, ABS bremsukerfi og tölvustýrða sjálfskiptingu, þannig að þrír valkostir eru á skiptingunni. Hægt er að hafa bílinn hálf-bein- skiptan og sjálfskiptan auk þess sem hægt er að velja sérstaka sport skiptingu. Bílarnir eru einstaklega hljóðlátir, þriggja þrepa minni er á sætunum auk þess sem innispegillinn og báðir útispeglarnir breytast þegar stutt er á takkana. Höfuðpúðar hækka eða lækka eftir þyngd far- þega, útispegill lækkar þegar sett er í bakkgír. Bílarnir eru með fjar- stýrða hurðaopnun, sjálfshraðastill- ingu, tölvu með innibyggðu þjófa- varnarkerfi, ísingarviðvörunarkerfi og leður á sætum. BMW 750 i og BMW 750 il eru óneitanlega glæsi- kerrur eins og þær gerast bestar. IDS Þingflokkur Alþýðubandalagsins hélt fund í gær og sendi frá sér ályktanir að honum loknum. Voru þær um málefni fjölskyldunnar og nýjan húsnæðislagabálk. Um málefni fjölskyldunnar álykt- aði þingflokkurinn að hann skorar á ríkisstjórnina að fela nýskipaðri nefnd um málefni fjölskyldunnar að kanna þegar í upphafi starfs síns áhrif stóraukinna skatta á matvæli á afkomu fjölskyldna í landinu. Ályktun þingflokks Alþýðu- bandalagsins var öllu lengri um húsnæðismál. Bendir þingflokkurinn á að við samþykkt nýrra húsnæðislaga hafi verið gengið út frá þeirri forsendu að þeir sem væru að fjárfesta í húsnæði í fyrsta sinn hefðu forgang að því fjármagni sem Byggingarsjóður ríkisins hefði til ráðstöfunar. Nú er hins vegar ljóst að niðurgreitt láns- fjármagn hefur í nokkrum mæli runnið til cfnafólks og braskara meðan lágtekjufjölskyldur búa við alvarlega óvissu í húsnæðismálum. Fyrirheit um endurskoðun félags- lega húsnæðiskerfisins og að mæta þörfinni fyrir leiguíbúðir hafa verið að engu höfð. Því leggur þingflokkurinn áherslu á eftirfarandi: 1. Hagsmunir lágtekjufólks og fólks með ótrygg búsetuskilyrði verða ekki tryggðir nema með því að efla félagslegar íbúðabyggingar, leigu- íbúðir og með búseturéttaríbúðum. Því er nauðsynlegt að auka félagsleg- ar íbúðabyggingar með nýrri löggjöf og auknu fjármagni. 2. Almenn hækkun vaxta af húsnæð- islánum yrði óbærilegt reiðarslag þeim fjölskyldunt sem hafa nýlega fjárfest í sínu fyrsta húsnæði. Þing- flokkurinn telur hins vegar brýnt réttlætismál að niðurgreiðslum vaxta til þeirra sem augljóslega tóku lánin til annarra þarfa en kaupa á hóflegu húsnæði til eigin nota verði þegar hætt. Þingflokkurinn bendir á ítrek- aðar tillögur Abl. um að takmarka lánsfé til efnamanna en þessar tillög- ur flokksins hafa verið felldar. 3. Komið verði til móts við mis- gengisfólkið eins og flokkur félags- og fjármálaráðherra gaf ítrekuð fyrirheit um fyrir kosningar. 4. Ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar lækkaði framlög til Byggingarsjóðs ríkisins um 500 millj. króna og er það ein megin- ástæða þess hve illa Byggingarsjóður stendur nú. Þingflokkur Abl. skorar á ríkis- stjórnina að grípa þegar til óhjá- kvæmilegra ráðstafana vegna hús- næðiskerfisins og lýsir sig tilbúinn til samstarfs í þeim efnum. -SÓL

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.