Tíminn - 15.08.1987, Blaðsíða 20
20 Tíminn
Laugardagur 15. ágúst 1987
iA'PA;"o
4 iii%
'W'
Heilsugæslustöð í Þorlákshöfn
Tilboö óskast í að reisa og gera fokhelda heilsu-
gæslustöð í Þorlákshöfn. Verkinu skal vera lokið
1. júlí 1988.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borgar-
túni 7, Reykjavíkgegn 10.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 1.
sept. 1987 kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
REYKJMJÍKURBORG
Acuuax Sfödcci MT
Unglingaathvarfið
Tryggvagötu 12, óskar eftir starfsmanni í 46%
kvöldstarf. Æskilegt að umsækjendur hafi
kennaramenntun eða háskólamenntun í uppeldis-
félags, og/eða sálarfræði.
Umsóknarfrestur er til 24. ágúst 1987. Nánari
upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 20606
eftir hádegi virka daga.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Kennarar kennarar
Kennara vantar að Gagnfræðaskóla Selfoss.
Kennara í samfélagsfræði, heil staða og kennara
í erlendum málum, heil staða.
Upplýsingar gefa:
Óli Þ. Guðbjörnsson í síma 99-1178,
Jón Ingi Sigurmundsson í síma 99-1273
og Sigríður Matthíasdóttir í síma 99-2409.
Skólanefnd.
Frá Kennaraháskóla
íslands
Óskum eftir að ráða bókasafnsfræðing í 75% starf
í bókasafni Kennaraháskólans. Um er að ræða
starf samkvæmt ráðningarsamningi til óákveðins
tíma.
Umsókn ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf skal skila í bókasafnið fyrir 28. ágúst.
Nánari upplýsingar í bókasafninu í síma 688700.
t
Móðir okkar
Steinunn Gróa Bjarnadóttir
Háaleitisbraut 117
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 17. ágúst kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er vinsamlegast bent á
líknarstofnanir.
Fyrir hönd aðstandenda
Inger Traustadóttir Bjarni Traustason
t
Útför
Sigurðar Kr. Eyvindssonar
fyrrum bónda Austurhlíð, Gnupverjahreppi
fer fram frá Stóranúpskirkju í dag 15. ágúst kl. 2.
Kristín Sigurðardóttir
Eyvindur Sigurðarson
Hilmar Ingólfsson
Rúnar Steindórsson
og fjölskyldur
lllllllllllllllllllllllll DAGBÓK lllllllllllllllll
Ámað heilla
Hákon Sigurgrímsson framkvæmda-
stjóri Stéttarsambands bænda er fimm-
tugur í dag,laugardag.
Sunnudagsferðir Útivistar
Sunnudagur 16. ágúst:
Þjóðleið mánaðarins - Gamla Þingvalla-
leiðin til Reykjavíkur.
Kl. 10:30 - Þjóðlciöin yfir Mosfellsliciöi.
Gengið frá Vilborgarkeldu um Sæluhúss-
brekkur og norðanverða Mosfcllsheiði
um Seljadal að bænum Miðdal. Göngu
lýkur um kl. 17:00. (Farm. 600 kr.)
Ki. 13:00 Miðdalur - Reykjavík. Létt
ganga. Gengið hjá Langavatni og Reyn-
isvatni og endað við Selás. Brottför frá
BSÍ, bensínsölu. Farmiðar við bíl (500
kr.). Frítt er fyrir börn með fullorðnum.
Ársrit Útivistar 1987 er komið út. Það
geta allir eignast sem gerast Útivistaifé-
lagar og greiða árgjald kr. 1.200. Meðal
efnis er leiðsögn um Dali, Viðey og
Þjórsárver. Fjöldi litmynda er í ritinu.
Utivistarfélagar greiðið heimsenda gíró-
seðla fyrir árgjaldinu og fáið ritið sent
strax.
Útivist
Guðsþjónustur í Reykjavíkur-
prófastsdæmi sunnudaginn 16.
ágúst 1987.
Áskirkja
Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
Breiðholtsprestakall
Guðsþjónusta í Breiðholtsskóla kl. 11.
Organisti Daníel Jónasson. Sr. Gísli Jón-
asson.
Bústaðakirkja
Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Jónas
Þórir. Sr. Ólafur Skúlason.
Dómkirkja
Mcssa kl. 11. Dómkórinn syngur. Leikið
verður á orgelið í 20 mín. fyrir messuna.
Organisti Marteinn Hunger Friðriksson.
Sr. Þórir Stephensen.
Elliheimilið Grund
Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr. Árelíus
Níelsson. Félagfyrrverandi sóknarpresta.
Fella- og Hólakirkja
Guðsþjónusta kl. .11. Organisti Snorri
Bjarnason. Sr. Hreinn Hjartarson.
Grensáskirkja
Messa kl. 11. Organisti Árni Arinbjarnar-
son. Almennar samkomur vcrða mánu-
dag og fimmtudag kl. 20.30. U.F.M.H.
Allir velkomnir. Kaffisopi á eftir. Sr.
Halldór S. Gröndal.
Hallgrímskirkja
Messa kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
Þriðjudag: Fyrirbænamessa ki. 10.30.
Beðið fyrir sjúkum.
Landspítalinn
Messakl. 10. Sr. RagnarFjalarLárusson.
Háteigskirkja
Messa kl. 11. Sr. Bragi Skúlason prédik-
ar. Organisti Orthulf Prunner. Sr. Arn-
grímur Jónsson.
Kópavogskirkja
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11
árdegis. Sr. Árni Pálsson.
Langholtskirkja
Kirkja Guðbrands biskups. Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Pjétur Maack.
Organisti Jón Stefánsson. Sumarferð
aldraðra í Langholtssókn verður farin
miðvikudaginn 19. ágúst kl. 13.00 frá
safnaðarheimililnu. Bifreiðastjórar
Bæjarleiða og fjölskyldur þeirra bjóða
öldruðum velunnurum Langholtskirkju í
ferð um Borgarfjörð. Leiðsögumaður
ferðarinnar er Jón Árnason skólastjóri.
Félagar úr Kven- og Bræðrafélagi safnað-
arins aðstoða eftir föngum og bjóða til
kaffidrykkju á Hótel Borgarnesi. Sóknar-
nefndin.
I.augarneskirkja
Laugardag 15. ágúst: Guðsþjónusta í
Hátúni 10 B 9. hæð kl. 11. Sunnudag:
Messa kl. 11. Altarisganga. Sóknarprest-
ur.
Neskirkja
Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Ólafur Ólafsson
sjúkrahúsprestur í Bahrain við Pcrsaflóa
prédikar. Sr. Frank M. Halldórsson.
Miðvikudag: Fyrirbænamessa ki. 18.20.
Sr. Frank M. Halldórsson.
Seltjarnarneskirkja
Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Sighvatur
Jónasson. Prestur Sr. Solveig Lára
Guðmundsdóttir.
FALLEGUR FJÖLSKYLDUBÍLL
BIFREIÐAR & LANDBÚ N AÐ ARVÉLAR
Suðurlandsbraut 14 107 Reykjavík, sími 38600 10 línur
m
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hafnar-
stjórans í Reykjavík, óskar eftir tilboöum í hol-
ræsalagnir og gatnagerð við Fiskislóð, Örfirisey.
Helstu magntölur:
1. Holræsa- og regnvatnslagnir um 460 metrar.
2. Undirbúningsvinna um 3.300 fermetrar, götu-
stæði.
3. 13 holræsabrunnar.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, að
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,-
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, fimmtudaginn
27. ágúst kl. 11.00,________
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Bókarastarf
Bókari óskast til starfa hjá einu af samstarfsfyrir-
tækjum okkar.
Um er að ræða sjálfstætt starf sem unnið er á P.C.
tölvu.
Við leitum að starfsmanni með þekkingu eða
reynslu á bókhaldi og tölvuvinnslu. Æskileg mennt-
un próf frá Samvinnu- eða Verslunarskóla.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannastjóra er
veitir upplýsingar um starfið.
Umsóknarfrestur er til 25. þessa mánaðar.
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA
STARFSNIANNAHALO
Rekstrarstjóri
Staða forstöðumanns stjórnunarsviðs (rekstrar-
stjóra) við embætti ríkisskattstjóra er hér með
auglýst laus til umsóknar. Meðal verkefna eru
fjármál, starfsmannamál og almenn skipulagsmál.
Háskólamenntun er áskilin og æskilegt er að
umsækjandi hafi nokkra reynslu í stjórnunarstörf-
um. Umsóknir, þar sem fram koma upplýsingar um
aldur, menntun og fyrri störf, sendist ríkisskatt-
stjóra, Skúlagötu 57, 150 Reykjavík.
Ríkisskattstjóri
III
■*> y
’i' Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hitaveitu Reykja-
víkur, óskar eftir tilboöum í stálklæöningu og fylgihluti í
stöövarhús Nesjavallakirkju.
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, aö Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, gegn kl. 5.000,- skilatryggingu.
Tilboöin veröa opnuð á sama staö, miðvikudaginn 2.
september kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
__________Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800