Tíminn - 15.08.1987, Blaðsíða 18
18 Tíminn
Laugardagur 15. ágúst 1987
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ÁRMÚLA 3 108 REYKJAVÍK SÍMI (91)681411
TELEX 2103 SAMVIN IS
Útboð
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir sem skemmst
hafa í umferðaróhöppum.
Opel Omega GL
MMC Colt 1200 EXE
Citroen Ax
Mazda E 2200 Glass Van De
Renault 9
Ford Escort 1600 LX
MMC Galant 2000 Turbo
Skoda Rapid
árgerð 1987
árgerð 1987
árgerð 1987
árgerð 1986
árgerð 1985
árgerð 1984
árgerð 1983
árgerð 1983
Volvo 245 GL árgerð 1982
Fiat 138 Ritmo CL 1300 árgerð 1982
Toyota Carina DL árgerð 1981
Mazda 626 1600 árgerð 1981
Honda Accord árgerð 1980
MMC Lancer 1400 GL árgerð 1980
Toyota Cressida árgerð 1978
Porsche 911 árgerð 1977
Ford Mustang árgerð1975
Bifreiðirnar verða sýndar að Höfðabakka 9,
Reykjavík, mánudaginn 17. ágúst 1987, kl. 12-16.
Á sama tíma:
Á Patreksfirði:
Toyota Tercel 4x4 árgerð 1986
í Borgarnesi:
M. Benz 250 árgerð 1979
Á Hvolsvelli:
Mazda 323 árgerð 1987
Á Rauðalæk:
Subaru 1800 st. árgerð 1982
í Keflavík:
Volvo 144 árgerð1973
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga g.t.
Ármúla 3, Reykjavík eða umboðsmanna fyrir kl.
12, þriðjudaginn 18. ágúst 1987.
Samvinnutryggingar g.t.
Bifreiðadeild
Kennarar - kennarar
Enn vantar nokkra kennara á Akranes við grunn-
skóla, kennara yngri barna, sérkennara og
kennara á bókasöfn.
Upplýsingar veita Guðbjartur Hannesson skóla-
stjóri í síma 93-12811 og 93-12723 og formaður
skólanefndar Elísabet Jóhannesdóttir í síma 93-
12304.
Við Brekkubæjarskóla sérkennara
við deild fjölfatlaðra
Upplýsingar veita Ingi Steinar Gunnlaugsson,
skólastjóri í síma 93-11193 og 93-11388 og Ingvar
Ingvarsson yfirkennari í síma 93-13090 og 93-
12012.
Við aðstoðum við útvegum húsnæðis og flutning.
Skólanefnd
Aðstoðarfólk í
bókband/bókbindari
Óskum eftir að ráða til starfa sem fyrst aðstoðarfólk
í bókband og bókbindara.
Upplýsingar hjá verkstjóra.
Prentsmiðjan Edda
Smiðjuvegi 3, Kópavogi, - sími 45000
Ég held að ég þurfí að slaka á, ég var að skamma morgunkornið fyrir of háværa smelli.
Ofurkonur
eiga bágt, ert þú
ein af þeim?
Þreyta er aðaleinkennið, bæði
andleg og líkamleg og sektar-
kenndin er alltaf skammt undan,
en hvorutveggja er miskunnarlaust
bælt niður. Því miður.
Sektarkennd hvers konar, eink-
um sú að finnast maður ekki af-
kasta nógu miklu, erótvírætt merki
um að viðkomandi beinlínis verði
að taka sér hvíld og endurskða líf
sitt og háttu.
Bandarískir sérfræðingar hafa
um árabil kannað fyrirbærið „ofur-
konuna" og komist að raun um að
slíkar konur eru allt of margar. þó
lítið beri á þeim. Karlmenn, sem
telja má ofurmenni finnast hins
vegar varla nema í ævintýrakvik-
myndum.
Hvað er þá ofurkona? Það er
kona, sem eins og þær flestar þarf
að gegna ótal hlutvcrkum og vill
standa sig af mestu prýði í þeim
öllum. Hún tekur á sig ábyrgðina
af hlutunum fyrir fjölda fólks og
veit að ef eitthvað fer úrskeiðis
einhvers staðar, er skuldinni skellt
á hana og hún er sífellt að biðja
afsökunar.
Ofurkonan er fullkomin móðir,
fyrirmyndar eiginkona, stórkostleg
húsmóðir, framúrskarandi kokkur,
einstök dóttir, hörkutól við hvers
konar vinnu og afar hjálpsamur og
greiðvikinn vinur. Henni tekst að
sameina þetta allt á óútskýranlegan
hátt með bros á vör og er alltaf til
reiðu, þegar einhver þarfnast
hennar.
Ofurkonunni finnst hún einangr-
uð og varla að undra, því hún hefur
ekki tíma til að vera mannleg, ekki
tíma til að hugsa um sínar eigin
tilfinningar og langanir og ýtir
sjálfri sér því til hliðar. Eina leiðin
fyrir hana til að fá umhyggju frá
öðrum, er að verða talsvert mikið
veik, því minni háttar krankleika
lætur hún ekki á sig fá, það er ekki
tími til slíks.
Þó er ofurkonan haldin alls kyns
meinum, sem umsvifalaust rækju
karlmenn og venjulegar konur til
læknis. Stöðug streita leiðir til
minna mótstöðuafls og þess vegna
fá ofurkonur oft kvef, eymsli í
hálsinn og eru yfirleitt haldnar
slæmri vöðvabólgu með tilheyrandi
bakverkjum. Oft á tíðum eiga þær
erfitt um svefn og fá mun oftar
martröð en annað fólk.
En það tekur tíma og kostar
peninga að ráða bót á svona löguðu
og það versta sem ofurkonur vita,
er að sóa tíma, þær eiga alltaf eftir
að gera svo mikið af ýmsu tagi -
ofiast tyrir aðra. Hvað myndi það
fólk halda um hana, ef hún legðist
bara endilöng og gerði ekki neitt,
meðan hún léti nudda sig fyrir
slórfé?
Nýlega birtust í bandarísku blaði
viðtöl við nokkrar konur, sent fóru
eftir ráðleggingunni hér í upphafi:
settust niður og endurskoðuðu til-
veru sína. Afleiðingin varð sú, að
þær eru nú fyrrverandi ofurkonur
og líður mun betur.
Peggy og Candy eru báðar 38 ára
og við skulum tína til sitthvað, sem
þær hafa að segja: Candy leggur
áherslu á, að ofurkonan þarf ekki
endilega að vera gift og eiga börn.
Sjálf er hún einhleyp. Fyrir fáein-
um árum stofnaði hún ásamt vin-
konu sinni miðstöð, sem útbjó
námsefni til heimanáms fyrir fötl-
uð börn. Brátt var daglegur vinnu-
tími kominn um og yfir 12 tíma,
auk þess sem hún stundaði nokkur
áhugamál, var í stjórnum samtaka
og klúbba og ofan á bættust skyldur
við aldraða foreldra og gamla vini.
Ég einfaldlega brann upp, segir
Candy. Loks tók ég mér rækilegt
tak, settist niður og endurmat líf
mitt. Nú orðið tek ég aðeins þátt í
því, sem mér finnst mikilvægast og
gæti þess að hafa ákveðinn tíma
fyrir sjálfa mig. Mér finnst ég full
orku.
Peggy er einstæð, tveggja barna
móðir og lagði einnig allt of hart að
sér. Þegar móðir hennar lést og
eiginmaðurinn yfirgaf hana, fékk
hún mikinn áhuga á mannlegum
samskiptum, einkum varðandi
fólk, sem átti á einhvern hátt um
sárt að binda. Bráðlega var hún
orðin forseti samtaka um slíkt og
ofhlaðin verkefnum. Ég fór að
finna æ betur til þess að ég var ekki
nógu góð móðir, segir hún. Þá kom
sektarkenndin og hafði áhrif á allt
hitt sem ég var að gera. Síðan
uppgötvaði ég, að lífið hafði engan
tilgang, það var ekkert líf, að vera
alltaf vinnandi fyrir aðra. Ég þarfn-
aðist þess að eiga stundir fyrir mig
eina.
Þar að kom, að Peggy gafst upp
og tók athafnir sínar til rækilegrar
endurskoðunar. - Það fyrsta sem
ég gerði, var að ráða konu til að sjá
um tímafrekustu húsverkin. síðan
sagði ég af mér nefnda- og stjórn-
unarstörfum. Loks innritaði ég mig
í jazzballett og nú orðið brosti ég
margfalt meira en áður.
Það er skoðun Candy, að ofur-
konur virðist á yfirborðinu fara
létt með alla skapaða hluti, en
innra með sér séu þær í þúsund
molum og alltaf að velta fyrir sér,
hvað sé hagkvæmast að gera næst.
Peggy bendir á annað sameigin-
legt einkenni: að ofurkonur eigi
afar erfitt með að hætta við eitt-
hvað, sem þær hafi einu sinni tekið
á sig. Þær meta gildi sitt eftir því,
hversu vel þær standi sig í hverju
verki og telja að aðrir meti þær
bæði eftir því og hversu elskulegar
þær séu út á við.
Það sem þessar konur eiga erfið-
ast með að skilja, er að þær verða
að dekra við sjálfar sig til að
endurnýja orkuna og þó það taki
ef til vill eitthvað frá öðrum um
tíma, munu allir njóta góðs af því,
þcgar fram f sækir.
Að lokum eru svo nokkur góð
ráð frá fyrrverandi ofurkonum til
þeirra sem vilja hætta að vera
slíkar og gerast venjulegar konur:
* Farðu í bt'ó, helst ein. * Farðu
á bókasafn og lestu eitthvað þar í
hinni notalegu þögn. * Hlustaðu á
þægilega tónlist í heyrnartækjum,
sem loka heiminn úti * Syngdu,
það er ekki hægt að hafa áhyggjur
á meðan. * Farðu í göguferð í góða
veðrinu, ein. * Eyddu góðri stund
með því að skoða varninginn í
verslunarmiðstöð. Það er ekki sím-
inn til þín á meðan. * Andaðu
djúpt tíu sinnum. * ímyndaðu þér
sjálfa þig liggjandi í hengirúmi í
sólskini. * Lestu spennandi met-
sölubók. * Gerðu alls ekkert í
stundarfjórðung og hugsaðu um
allt annað en það sem þarf að gera.
Það hleypur ekki burt á meðan. *
Síðasta úrræði: öskraðu í koddann
þinn.