Tíminn - 15.08.1987, Síða 5
Laugardagur 15. ágúst 1987
Tíminn 5
Mismunandi tölur Fasteignamats og félagsmálaráöuneytis:
Hækkaði 4ra herbergja
íbúð um 25% eða 40%?
Meðalhækkun á verði 4ra her-
bergja íbúða í fjölbýlishúsum í
Reykjavík varð um 26% milli ágúst
1986 og mars 1987, samkvæmt
útreikningum Fasteignamats ríkis-
ins í nýlegri fréttatilkynningu frá
félagsmálaráðherra segir hins veg-
ar að söluverð 4ra herbergja íbúðar
í Reykjavík hafi hækkað um tæp-
lega 38%. Munurinn er um tíundi
hluti íbúðaverðs, eða í kringum
330 þúsund krónur. Hverju eiga
þeir sem fylgjast með fréttum að
taka mark á - og hvernig getur svo
mikill munur komið fram á niður-
stöðum úr einu og sama reiknings-
dæminu?
„Þetta er reiknað eftir nákvæm-
lega sömu aðferðum og hafa verið
notaðar hér á Fasteignamatinu
meðan Stefán Ingólfsson var hér.
Ég lærði þessa aðferð af honum og
nota hana nákvæmlega eins," sagði
Guðmundur Gylfi Guðmundsson
starfsmaður Fasteignamatsins,
spurður hvernig hann vildi skýra
sína niðurstöðu. Meðaltalshækkun
á verði allra stærða fjölbýlishúsaí-
búða sagði Guðmundur Gylfi
23,7% á þessu tímabili, samkvæmt
framreiknistuðli eins og hann hafi
jafnan verið reiknaður. Meðalsölu-
verð á fermetra 4ra herbergja
íbúða (eins og það jafnaðarlega sé
birt í fréttabréfi FMR) hafi hins
vegar hækkað úr 26.618 kr. upp í
33.442 kr., eða um 25,6%. Meðal-
fermetraverð annarra íbúða hafi
hækkað frá 14% á minnstu íbúðun-
um og upp í 27% á þeim stærstu.
Stefán Ingólfsson, verkfræðing-
ur sá um verðútreikninga fyrir
félagsmálaráðherra og var hann
einnig spurður. „Verðhækkunin
sem ég reikna út frá ágúst 1986 til
mars 1987, er hækkun á stað-
greiðsluverði 4ra herbergja 100
ferm. íbúðar í Reykjavík - reiknað
í samræmi við góðar og gildar
viðurkenndar reglur um slíkan út-
reikning. Sé eingöngu miðað við
nafnverð kemur út lægsta hugsan-
leg tala og aðrar aðferðir geta gefið
tölur þarna á milli," sagði Stefán.
Miðað við mismunandi reikni-
reglur sagði hann niðurstöðurnar
verða sem hér segir: Sé eingöngu
miðað við nafnverð hafi verð 4ra
herbergja íbúða hækkað um 25%
á þessu tímabili. Sé auk þess tekið
tillit til greiðslukjara, þ.e. að út-
borgunin hafi hækkað meira en
áður hafi sést á sama tíma þá bætist
við í kringum 5% hækkun. Ef að
auki sé tekið tillit til þess að
meðalíbúðin í mars hafi verið ívið
minni og ívið óvandaðri en í ágúst
þá bætiist enn við 2-3%. Og ef að
auki sé tekið tillit til minni verð-
bólgu í mars s.l. en í ágúst í fyrra
og jafnframt þess að eftirstöðva-
skuldabréf hafi verið óhagkvæmari
(með hærri raunvöxtum) í mars en
ágúst þá bætist ennþá við muninn.
Ef öll þessi dæmi eru séu reiknuð í
topp verði hæsta túlkun dæmisins
nálægt 40% verðhækkun þessara
íbúða á tímabilinu.
Hefðbundnar reikningsaðferðir
Fasteignamatsins síðasta áratuginn
sagði Stefán hins vegar gefa 33%
hækkun á markaðsverði 4ra her-
bergja íbúða á þessum tíma. „En
þegar ég er búinn að setja undir
vankanta í þessum gömlu aðferð-
um FMR, þ.e. að taka tillit til
þessara þátta, þá fæ ég út 37,8%
hækkun eins og fram kom í frétta-
tilkynningu félagsmálaráðherra,“
sagði Stefán.
Samkvæmt niðurstöðum þessara
tveggja reiknimeistara getur verð-
hækkun 4ra herbergja íbúðar á
þessu 7 mánaða tímabili því verið;
25%, 31%, 33%, 38% eða 40%,
eftir því hvaða reikniaðferð cr
notuð. Lánskjaravísitalan hækkaði
umtæp 10% á samatímabili.
- HEI
Frá upptöku á myndinni „Skytturnar" eftir þá félaga Einar Kárason og Friðrik Þór Friðriksson. Friðrik Þór, sem
sést hér á myndinni, annar frá vinstri, dvelur nú í Locarno á alþjóðlegri kvikmyndahátíð þar sem „Skytturnar“ var
valin sem ein 18 bestu myndanna. Tímamynd: Sverrir
Um 420 atvinnulausir í júlí:
Þrefalt fleiri
konur en karlar
Skráð atvinnuleysi í júlí samsvarar
því að um 420 manns hafi verið
atvinnulausir allan mánuðinn.
Vinnumálaskrifstofa félagsmála-
ráðuneytisins telur það vott um að
veruleg eftirspurnarþensla ríki á
vinnumarkaðnum þó manneklu gæti
fyrst og fremst í ákveðnum greinum,
þ.e. í þjónustu, við mannvirkjagerð,
sumar greinar verksmiðjuiðnaðar.
Líkur eru taldar á að mannekla
aukist enn að mun þegar skólafólkið
hverfur af vinnumarkaðnum í þús-
undatali á næstunni. Líkur eru taldar
á að óvenju lítill samdráttur verði
t.d. í mannvirkjagerð og verktaka-
starfsemi með haustinu að þessu
sinni.
Konur eru í miklum meirihluta
meðal atvinnulausra að þessu sinni,
eða um 300 af rúmlega 400. Einu
staðirnir utan höfuðborgarsvæðisins
með yfir tug atvinnulausra eru:
Borgarnes 17 (þ.a. 13 konur), Akur-
eyri 68 (50 ko.), Selfoss 14 (8 ko.)
og Hvolsvöllur 22 þar af 20 konur.
Þarna virðist því lægð í ullarvöru-
framleiðslunni eiga stærsta þáttinn.
Konur eru sömuleiðis 77 af alls 87
atvinnulausum í Kópavogi, Garða-
bæ og Hafnarfirði samtals, en aðeins
helmingur 95 atvinnulausra í
Reykjavík. -HEI
Framkvæmdirnar á lóö Fjalakattarins:
Kvikmyndahátíöin í Locarno í Sviss:
Skytturnar meðal 18
bestu kvikmyndanna
í Locarno í Sviss stendur nú yfir
alþjóðleg kvikmyndasýning og er
hún nú haldin í 40. sinn. í keppninni
eru 18 kvikmyndir frá ýmsum þjóð-
Jöndum, þar á meðal íslenska kvik-
myndin „Skytturnar“ eftir Friðrik
Þór Friðriksson, sem valin var til
keppni af fjölmörgum myndum.
Er þetta í fyrsta sinn sem íslensk
kvikmynd nær svo langt að komast í
keppni á svo virtri hátíð sem Loc-
arno er.
Kvikmynd frá hinum Norður-
löndunum hefur ekki komist í
keppni í Locarno í mörg herrans ár.
Þó fær sænski fáninn að blakta við
hún við hlið þess íslenska, vegna
þess að gömul Bergman mynd er
sýnd í tilefni 40 ára afmælisins.
Úrslit í keppninni verða ljós þann
16. ágúst og verður þá vinnings-
myndin sýnd í stærsta bíói Evrópu,
sem er útibíó á torginu í Locarno og
rúmar 7.000 manns.
Meðal gesta á hátíðinni eru snill-
ingar eins og Godard, Szabo, Zían-
ussi og Wim Wenders, en meðal
þeirra sem hlotið hafa verðlaun á
hátíðinni má nefna Antonioni, Tar-
kowsky, Kubrick og Pasolini.
-SÓL
Glæsilegur árangur
íslenskra bridsara
íslenska karlalandsliðið í brids
tapaði í gær fyrir Bretum í síðustu
umferð Evrópumeistaramótsins
sem fram fór í Brighton í Englandi.
12.-18. íslendingar urðu í 4.-5. sæti
ásamt Pólverjum með 398 stig, en
Svíar unnu mótið örugglega. í
öðru sæti urðu Bretar en Norð-
menn í því þriðja.
Þessi árangur íslensku sveitar-
innar er sá lang besti um áratuga
skeið, en fyrirliði sveitarinnar var
Hjalti Elíasson.
Kvennasveitinni gekk hins vegar
ekki eins vel og höfnuðu konurnar
í næst neðsta sæti. Þær töpuðu fyrir
Frökkum í gær 26-6, en þessi sigur
frönsku kvennanna tryggði þeim
Evrópumeistaratitilinn í kvenna-
flokki.
Ný girðing og
göngubrú rifin
Girðing og göngubrú sem byggð
hefur verið í kringum grunninn á
gamla Fjalakettinum vegna fyrirhug-
aðra framkvæmda við nýtt hús Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna og
Tryggingamiðstöðvarinnar mun
verða rifin við fyrsta tækifæri. íbúar
í Grjótaþorpi gerðu athugasemdir
við girðinguna og göngubrú sem
byggð hafði verið. Byggingarfulltrúi
fór fram á að girðingin yrði rifin
vegna þess að göngubrúin hamlaði
allri umferð um Bröttugötu.
Að sögn Birgis Ómars hjá Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna þá voru
eiginlegar byggingaframkvæmdir við
húsið ekki hafnar enda hefur bygg-
ingarnefnd ekki samþykkt teikning-
arnar. Birgir sagði það ekki rétt sem
komið hefur fram hjá einu dagblað-
anna að nýtingarhlutfall byggingar-
innar sé fyrirhugað 4,5 í stað 3,02
eins og ráðgert er samkvæmt kvosar-
skipulaginu, heldur sé það á milli 2,9
og 3,01. Birgir sagðist vænta þess að
teikningarnar af húsinu yrðu teknar
fyrir í byggingarnefnd innan mánað-
ar og að framkvæmdir myndu hefjast
um leið og samþykki fengist.
-HM
Kirkjan síöustu 10 ár:
Altarisgestum
fjölgað um 64%
Skýrsla biskups, sem hann
lagði fram á Prestastefnu,
hnekkir. fullyrðingum um að
kirkjusókn fari sífellt minnkandi
og kirkjustarf verði minna með
hverju ári. í blaðinu Víðförla er
vitnað í skýrslu biskups, þar sem
ýmsar tölfræðilegar upplýsingar
um kirkjulegt starf eru skráðar.
Séu t.d. bornar saman tölur frá
árinu 1986 og 1976 kemur í ljós
að aukning altarisgesta er 64% á
þessum tíu árum. Guðsþjónust-
um hefur fjölgað um nær 2000
eða 30,8%, en í fyrra voru þær
alls 7970.
Fermingarbörnum hefur þó
aðeins fækkað, eða um 142 á
þessu tímabili, sem óneitanlega
stingur í s'túf við fyrrgreindar
tölur. Fermingarbörn á síðasta
árivoru4311. þj