Tíminn - 15.08.1987, Side 12
12 Tíminn
Laugardagur 15. ágúst 1987
Joy Swift segir að starfsfólk hótelanna verði að venjast ópum og
hávaða að næturþeli og blóðugum líkum hér og hvar.
Joy Swift heitir stúlka, sem
lætur sér ekki allt fyrir brjósti
brenna. Hún hefur komið á fót
fyrirtæki, sem mun vera einstakt
í sögunni. Hún skipuleggur
morð um hverja helgi og ætlar
sér að verða svo efnuð á því, að
hún hefur sama lögfræðing og
Yoko Öno til að gæta hagsmuna
sinna.
Starfsemin fer þannig fram,
að gestir skrá sig inn á íburðar-
mikið hótel yfir helgi, til að
upplýsa morðið. Joy býr til
leyndardómsfullt morð og fær
leikara til að fara með hlutverk
söguhetjanna, en gestirnir eiga
síðan að upplýsa leyndardóminn
og finna morðingjann.
Auðvitað heitir fyrirtæki Joy
„Helgarmorð hf.“ og hefur þegar
gefið svo vel af sér, að eigandinn
getur leyft sér ýmislegt, sem
hingað til hefur verið einkarétt-
ur auðkýfinga og stórstjarna.
Joy er ensk, en það eru ekki
síður Bandaríkjamenn, sém
óska þjónustu hennar og hún er
stöðugt á ferðinni yfir Atlants-
hafið.
Hótel á Bretlandseyjum hafa
pantað hana til að fremja hélg-
armorð hjá sér langt fram í
tímann og sagt starfsfólki sínu
að það verði bara að venjast
hálfkæfðum ópum, blóðugum
líkum í lyftunni og þungum
dynkjum að næturþeli.
Ekki er hægt að segja að Joy
Swift líti beinlínis út eins og
atvinnumorðingi. Húner27ára,
glaðlynd og opinská og situr
frarn á rauðar nætur við að setja
saman leyndardóminn, heima í
íbúð sinni, sem er líka skrifstofa.
- Svo virðist sem ég hafi
sérstaka hæfileika í þessa átt,
segir hún.
- Veikleiki minn er hins vegar
sá, að ég get aldrei stillt mig um
ORÐSENDING FRÁ
IÐNLÁNASJÓÐI
JUM BREYTT
UTIANAKJÖR
Frá og með 15. ágúst kemur til framkvæmda breyting á útlánakjörum Iðnlána-
sjóðs og eru þau sem hér segir:
Vélalán háð lánskjaravísitölu 7,5% vextir
Byggingarlán háð lánskjaravísitölu 8,5% vextir
Útlán bundin gengi SDR 8,5% vextir
Lán vöruþróunar- og markaðsdeildar háð
lánskjaravísitölu 5,0% vextir
Byggingarlán undir kr. 5.000.000,00 eru háð lánskjaravísitölu en yfir
kr. 5.000.000,00 bundin gengi SDR.
Vélalán undir kr. 250.000,00 eru háð lánskjaravísitölu, en vélalán yfir
kr. 1.000.000,00 bundin gengi SDR. Við töku vélalána þar á milli getur lántaki
valið hvor útlánakjörin hann tekur. «
is>
Samsvarandi breyting verður á útistandandi lánum, þar sem ákvæði skuldabréfa 3
heimila slíkt.
IÐN LÁWASJÓÐUR
IÐNAOARSANKINN 1ÆKJARGÖTU 'REÝK.JAVIK.
SÍM! 691800
að hafa sjálfa mig með í handrit-
inu. Að vísu getur hún aldrei
orðið fórnarlambið, því hún er
önnum kafin við að sjá fyrir
vísbendingum, bæði réttum og
röngum.
Vissulega er þetta skemmtun,
en hótelgestir taka allt mjög
alvarlega. - Sumir þeirra vaka
hálfu næturnar við að brjóta
heilann yfir sönnunargögnum og
koma syfjaðir til morgunverðar,
segir hún. - Ég er orðin sér-
fræðingur í að falsa ávísanir og
skrifa hótunar- og fjárkúgunar-
bréf.
Gestum er gert viðvart um, að
MORD
að jafnskjótt og þeir gangi inn á
hótelið, séu þeir orðnir þátttak-
endur í morðmáli. Þaðan í frá
geti allt gerst, þó enginn þeirra
taki þá áhættu að verða fórnar-
lambið eða morðinginn. í þeim
hlutverkum eru leikarar, sem
aldrei misstíga sig, ekki einu
sinni við ákafar yfirheyrslur.
Allt er látið vera eins eðlilegt
og unnt er. Leikarar ganga æstir
um gólf og drekka svart kaffi,
þegar spennan er sem mest. -
Það eru margar aðferðirnar til
að fremja morð, segir Joy, - en
vinsælast hjá okkur er að skjóta v
fórnarlambið, stinga það, kyrkja
Landbúnaðarsýning
íReiðhöIlinni,
Víðidal,
14.-23. ágúst 1987
BÚ’87stærsta *_
landbúnaðarsýningin til
þessa á erindi til allra.
Stórkostleg sýning, sem er
allt í senn:
Yfirlit, kynning,
sölumarkaður og
skemmtun.
Þar er tamdi platínu-
refurinn Kalli og Stakkur
og Spori - feiknatuddar,
frá Hvanneyri, úrvalskýr
af Suðurlandi, ásamt hvers
konar búfé af gamla og
nýja skólanum.
Fjárhundamir Roy, Lars
og Ríngó sýna listir sínar.
Mjaltir í nútíma
mjaltafjósi (hefurðu séð
slíkt?) alla daga kl. 18:00.
Fjöldamörg fyrirtæki
kynna nýjungar í þjónustu
við landbúnaðinn.
Góð kaup á vörum á
tækifærisverði.
.-Ý. ' %v. ‘ ■ ' . ’ : \
Vörukynningar.
Spumingakeppni.
Lukkupottur.
Tískusýningar, þar á
meðal stór pelsasýning.
Héraðsvökur
landshlutanna.
Grillveislur bændanna.
Matreiðslukynningar.
Nýjasta tæknin ásamt
yfirliti yfir þróunina.
DAGSKRÁ
Laugardagur15. ágúst
Fjárhundasýning. Kl. 14:30
og 17:30
Reiðsýning. Kl. 15:00
Héraðsvaka Kl. 16:00
A.-Húnvetninga. og 20:30
Matreiðslumeistarar. Kl. 16:40
Sunnudagur16. ágúst
Reiðsýning. Kl. 15:00
Matreiðslumeistarar. Kl. 15:30
Héraðsvaka Kl. 16:00
Skagfirðinga. og 20:30
Grillveisla KI. 18:00
aldarinnar. -20:00