Tíminn - 15.08.1987, Qupperneq 16
16 Tíminn
Laugardagur 15. ágúst 1987
FRÉTTAYFIRLIT
JÓHANNESARBORG
- Lögreglan í Suöur-Afríku
skaut gúmmíkúlum aö hópi
svartra námuverkamanna er
vopnaðir voru kylfum og særö-
ust um sextíu þeirra. Þetta
voru verstu átökin milli lögreglu
og námuverkamanna síöan
verkfall þeirra síöarnefndu
hófst um síðustu helgi. Hér er
um aö ræöa mestu vinnudeilur
í sögu landsins og hörö átök
viröast fyrirsjáanleg.
KÚVAIT — Bandarísk sigi-
ingalest var aö gera sig reiðu-
búna aö sigla niöur Persafló-
ann frá Kúvait í gær. Á sama
tíma hóf íranski herinn æfingar
á flóanum sem snérust um aö
leita uppi tundurdufl.
ÚTLÖND
llllllllll
Hver tekur við af Carrington lávarði á næsta ári:
WILLOCK VILL
NATO STARFIÐ
Krussel - Keuter
Norska ríkisstjórnin hefur form-
lega lagt til að Kári Willoch, fyrrum
forsætisráðherra landsins, vcrði
skipaður næsti framkvæmdastjóri
Norður-Atlantshafsbandalagsins
(NATO). Pað var talsmaður banda-
lagsins sem skýrði frá þessu í gær.
Willoch er 58 ára gamall íhalds-
maður sem var forsætisráðherra
Noregs frá 1981 til 1986. Hann er
fyrstur til að bjóða sig formlega fram
í embættið mikilsvirta sem losnar í
júní á næsta ári en þá hyggst Bretinn
Carington lávarður taka sér hvíld frá
störfum.
„Hann er mikill Atlantshafs-
bandalagssinni. Hann hefur verið í
forsæti ríkisstjórnar og vitað er að
hann hefur mikinn áhuga á varnar-
málum,“ sagði einn ráðamaður
NATO í gær.
Annað atriði sem kemur Willoch
sjálfsagt til góða er að hann reyndist
mikill og traustur vinur Bandaríkja-
stjórnar er hann þjónaöi sem forsæt-
isráðherra í Noregi.
Ráðamenn í NATO bentu þó á í
gær að baráttan um framkvænrda-
stjórastöðuna væri rétt hafin og
Willoch raunar sá fyrsti sem tilkynnti
formlega að hann hefði hug á starf-
inu. Aðrir sem vitað er að hafi áhuga
eru til dæmis Manfred Woerner
varnarmálaráðherra Vestur-Þýska-
lands og Leo Tindemans utanríkis-
ráðherra Bclgíu.
Báðir þessir ráðherrar þykja eiga
ágæta möguleika á að hrcppa starfið
en þeir verða þó bráðlega að gera
upp hug sinn hvort þeir vilji berjast
formlega um útnefninguna við Will-
och og kannski fleiri.
Sá sem kemur til með að hljóta
starfið mun fá það erfiða verkefni að
stýra bandalaginu í gegnum ný við-
horf og nýja tíma. Fari svo að
stórveldin semji um eyðingu meðal-
Kári Willoch fyrrum forsætisráð-
herra Noregs: Næsti framkvæmda-
stjóri NATO?
og skammdrægra kjarnorkuflauga á
þessu ári þarf bandalagið að korna
sér saman um algjörlega nýja stefnu
í þessum málum þar sem stangast á
mörg viðkvæm viðhorf.
Grænfriðungar berjast fyrir hreinni Norðursjó:
„Bretar í efnahernaði
gegn öðrum Evrópuþjóðum“
Middelhur}*, Holland - Kcutcr
KÚVAIT — Olíuflutninga-
skipin þrjú sem komu til Kúvait
í fylgd bandarískra herskipa
fyrr í þessari viku lágu viö
akkeri þar sem þau voru fyllt af
gasi og olíuafuröum. Skipin
veröa reiöubúin til siglingar í
dag.
BAGHDAD — Talsmaöur
írakska hersins sagöi herflug-
vélar íraka hafa sprengt í loft
upp loftvarnarbúnað af banda-
rískri gerö í íranska bænum
Tabriz I norðausturhluta
landsins.
LUNDÚNIR - Bandaríkja-
dalur lækkaöi mjög í verði á
mörkuðum í Evrópu í gær eftir
að tilkynnt var aö óhagstæður
vöruskiptajöfnuöur Banda-
ríkjamanna heföi aukist veru-
lega í júnímánuði.
Umhverfisverndunarsamtökin
Greenpeace hófu í gær baráttu gegn
losun efna og brennslu þeirra í
Norðursjónum og sökuðu bresk
stjórnvöld um að hafa að engu
tilraunir til að draga úr mengun á
þessu svæði. „Bretar cru í efnahern-
aði gegn öðrum þjóðum Evrópu",
sögðu Grænfriðungar í upphafi her-
ferðar sinnar.
„Bretland er gamli skítugi maður-
inn í Evrópu," sagði talsmaður sam-
takanna og bætti við að á meðan
önnur Evrópulönd hefðu dregið úr
losun efna í Norðursjóinn hefðu
Bretar aukið hana um helming á
síðustu fimm árum.
Grænfriðungar ætla að beina þess-
ari baráttuherferð sinni sérstaklega
gegn skipum er losa og brenna
úrgangsefni á stað sem er tæplega
hundrað kílómetra frá strönd Norð-
ur-Hollands og rúmlega hundrað og
fimmtíu kílómetra austur af bænum
Scarborough í Norður-Englandi.
Scarborough er frægur sumarleyfis-
dvalarstaður, sérstaklcga meðal
aldraða.
Talsmaður Grænfriðunga sagði að
mengun á þessu svæði, og raunar í
Norðursjónum öllum, væri gífurleg
og hefði valdið miklum breytingum
til hins verra á sjávarlífinu síðustu
fimm árin. A sumum svæðum væru
selir og höfrungar í hættu og flest
allar fisktegundir væru með opin
hreisturssár.
Holland:
Albrjáluð kýr
óð um allt
í Amsterdam
Amslcrdam • Kcutcr
Kýr brjálaðist og óð berserks-
gang eftir að hafa brotist út úr
sláturhúsi í Amsterdam í gær.
Kýrin flúði til miðborgarinnar og
slasaði fjóra einstaklinga, þar af
tvo alvarlega, á leið sinni.
Mikil mildi var að ekki urðu
fleiri slys á fólki. Móðir einni
tókst til dæmis að bjarga barni
sínu rétt áður en kýrin æddi á
það.
Lögreglan í Amsterdam elti
kúna og hafði sér til fulltingis
menn frá dýragarði borgarinnar.
Þeim tókst eftir tuttugu mínútna
eltingarleik að skjóta róandi lyfi
í kúna.
Persaflóinn:
Stríð eykur mengun
Bahrcin - Kcutcr
Eldur laus í olíuskipi á Persaflóa eftir árás trana: Mengunin í hinum grunna
flóa er komin langt yfir hæfíleg mörk
SEOUL — Aö minnsta kosti
fimm manns létu lífiö og sextíu
slösuöust í röö sprenginga er
uröu i vöruhúsi í. grennd viö
alþjóðlega flugvöllinn í Seoul-
borg í Suöur-Kóreu. Hættuleg
efni voru geymd í þessari vöru-
skemmu.
VÍNARBORG — Ftíkis-
stjórnin í Austurríki hefur látið
sendiherra sína um allan heim
fá bók en í henni er reynt aö
hrekja ásakanir á hendur Kurt
Waldheim forseta landsins
þess efnis að hann hafi tekið
þátt í stríðsglæpum nasista í
síöari heimsstyrjöldinni.
LAGOS — Stjórnvöld í Ní-
geríu hafa rekiö framkvæmda-
stjóra tolleftirlitsins í landinu
og 27 aðstoðarmenn hans.
Innanríkisráöuneytiösagöi í til-
kynningu að þessar ráöstafanir
væru nauðsynlegar þar sem
tollurinn hefði ekkert gert til
koma í veg fyrir aö vörum væri
smyglaðtil landsins. Lengi hef-
ur verið vitaö aö mikil spilling
ríkti meðal tollyfirvalda.
Krókódíl-
arnir í
hungur-
verkfalli
Moskva - Kcutcr
Krókódílar í dýragarðinum í
Moskvu hafa vcrið í „hungur-
verkfalli" eftir að þeir voru færðir
á nýjan stað í garðinum. Það var
dagblað kommúnistaflokksins í
Moskvu sem frá þessu skýröi í
gær.
Moskoskaya Pravda sagði að
krókódílarnir, þar á meðal einn
frá Mississippi 250 kíló á þyngd,
hefðu byrjað að hafna mat eftir
óþægilega flutninga til nýrra
heimkynna í dýragarðinum.
Flutningar þessir áttu sér stað í
köldu veðri í vetur sem leið.
„Þeir hafa þegar verið í hung-
urverkfalli í nokkra mánuði",
sagði Moskoskaya Pravda.
Blaðið notaði tækifærið til að
gagnrýna stjórnina á dýragarðin-
um og sagði að hönnun dýra-
garðsins væri vandamál sem
skriffinnar borgarinnar réðu ekki
við. Hvatti blaðið til að erlent
fyrirtæki með sérþekkingu á
þessu sviði yrði fengið til að
hanna nýjan garð hvað sem það
kostaði.
„Örlög dýragarðsins í höfuð-
borginni verður að ákveða strax í
dag,“ sagði í hinni hörðu grein
Moskoskaya Pravda er greinilega
var í anda þeirrar stefnu Gorbat-
sjovs Sovétleiðtoga sem kennd er
við Glasnost eða opnun.
Olíuflutningaskip þau sem siglt
hafa á tundurdufl í Persaflóanum að
undanförnu hafa ógnað enn meira
sjávarlífinu í flóanum þar sem oíu-
mengun er þegar vel yfir meðaltali,
47 sinnum meiri en venjulegt er.
Hinn grunni flói er heimkynni
nokkurra tcgunda sundskjaldbaka
og sækúa, óvenjulegra sjávarspen-
dýra sent eru í útrýmingarhættu.
„Mengunin í Persaflóanum hefur
verið reiknuð út sem 3,1% af heild-
armengun sjávarsins," segir doktor
Saleh Mohammed Osnian fram-
kvæmdastjóri Umhverfisverndunar-
stofnunar SÞ í Bahrein. Saleh bætir
við að þessi tala samsvari því að
mengun í flóanum sé 47 sinnum
meiri en á venjulegu hafsvæði af
sömu stærðargráðu.
Flóinn er þúsund kílómetrar að
lengd og nær frá óvinalöndununt
íran og írak í norðri til odda arabíska
skagans í suðri. Sjávarlífið þar hefur
lengi fengið að kenna á því að þaðan
er fluttur einn sjötti af þeirri olíu
sem vestræn iðnaðarríki nota. Stríð
írana og íraka hefur svo enn bætt á
mengunina.
Olía frá iðnaðarmiðstöðvum, ol-
íuflutningaskip, olíuborpallar og
neðansjávarleiðslur, allt þetta eykur
á mengunarhættuna og ekki er svo
von á góðu þegar tundurduflin bæt-
ast við.
Tankskipið Texaco Caribbean
sem er í eigu Bandaríkjamanna var
síðasta skipið sem sigldi á tundur-
dufl. Texaco keyrði á tundurdufl
fyrir utan hafnarborgina Fujairah í
Sameinuðu arabísku furstadæmun-
um síðasta mánudag.
Ein fjörtíu olíuflutningaskip fara
um flóann á degi hverjum og þau
valda mestu menguninni, sjávarlíf-
fræðingar telja að þau missi með
einum eða öðrum hætti um milljón
tonn af olíu í sjóinn ár hvert.
Lítil samvinna á sér stað milli
ríkjanna við Persaflóann um meng-
unarvarnir og er ástæðan einföld;
tvö helstu ríkin íran og Irak eiga í
stríði og einhvers konar samvinna
milli þeirra er óhugsandi.
írakar gerðu árás á Nowruz
olíuborpall írana árið 1983 sem varð
til þess að geysilega mikið magn af
olíu rann út í sjóinn, talið er að
magnið hafi samsvarað 1,5 milljón-
um tunna. Margir sérfræðingar ótt-
uðust að engar aðgerðir gætu dugað
til að bjarga sjávarlífinu í flóanum
eftir þetta óhapp en menn urðu þó
furðulega lítið varir við allt
olíumagnið sem fór út á sjóinn á
þessum tíma.
„Við erum ekki vissir um hvert
olían frá Nowruz fór,“ segir David
Vousden sjávarlíffræðingur í Bahre-
in og bætti við: „Mín ágiskun er sú
að olían liggi á sjávarbotninum og
mig hryllir við að segja hvað hún er
að gera þar.“