Tíminn - 26.08.1987, Blaðsíða 11

Tíminn - 26.08.1987, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 26. ágúst 1987 Tíminn 11 BÆKUR IIIIIIII Ekki heimsborgin París Arni B. Helgason: Paris, sögubók, Fjöregg, Grenivík-Reykjavik 1987. Nafn þessarar nýju skáldsögu, ásamt kápumynd hennar sem er tekin upp úr málverki eftir franska málarann Degas, gæti bent til þess að hér væri á ferðinni skáldsaga um heimsborgina París. Svo er þó ekki. Pegar lesið er aftur í bókina kcmur í Ijós að nafn hennar á við barnaleikinn mcð þessu nafni og á væntanlega að skiljast táknrænum skilningi: persónur bókarinnar leiki saman og hver á móti annarri líkt og börn hoppa í parís. Annars verður það ckki af bókarhöfundi skafið að hann kann íslensku og gerir sér fulla grein fyrir þeim hörðu kröfum um agað- an stíl sem góður skáldsagna- höfundur þarf að gera til sjálfs sín. Ég veit ekki betur en þessi bók sé algjör frumraun hans í sagnagerð. En eigi að síður ber hún þess glöggan vott að hann er sér vel meðvitandi um þá sjálfsögun að því cr varðar vandvirkni í fram- setningu sem skáldsagnahöfundar þurfa að bcita. Og þó má jafnframt segja að þessi mikla ögun stílsins sé höfundi samtímis töluverður fjötur um fót. Ef reyna á að lýsa stíl hans liggur einna næst að benda á að hann er margorður og frekar tilbrigðalítill, sem fyrst og fremst stafar af því hve ögunin í framsetningu veitir stílnum mikinn alvöruþunga. Höf- undur hefur að því er helst er að sjá forðast það skipulega að hlaupa út undan sér með glensi eða að bregða á nokkurn hátt á leik í frásögn sinni. Þessi vinnuregla hans leiðir það af sér að bókin verður töluvert þyngri aflestrar en ella og að það kostar bæði átök og vinnu að komast til botns í hcnni. Af þcini sökum hentar bókin ekki beinlínis til afþreyingarlestrar í sumarfríi, og raunar má einnig telja að víða hefði það orðið til verulegra bóta að skera frásögnina töluvert niður og stytta hana. Það er vel þekkt meðal allra sem fást við ritstörf að það er síst minni vandi að strika út og þjapþa saman heldur en að semja. Höfundur virðist ekki enn hafa náð valdi á þeirri gullnu vinnureglu, og má vera að hefði hann fengið einhvern vanan bókmcnntamann til að lesa verkið yfir fyrir sig í handriti þá tietói slíkur ráðgjafi getaö gefið honum góðar ábendingar í þessu sambandi. En að öðru leyti verður ekki sagt annað en að töluvert hugmynda- flug ríki í myndun sögusviðs og samningu söguþráðar í þessari bók. Sagan gerist í ónafngreindri borg, sem helst er aðsjá að sé í litlu sem engu sambandi við umheim- inn, og hvort þessi borg er á íslandi eða í útlöndum skal hér ekki sagt til um. En þar veröui hörkuslagur um borgarstjóracmbættið. og gegnir sigurvegarinn miklu hlutverki í bókinni, sem og tveir fallnir fram- bjóðendur. annar aðeins atvinnu- laus fyrrverandi borgarstjóri en hinn forstjóri nýtískulegrar hellu- steypu. í borginni er einnig gefið út blað og rekin útvarpsstöð, og jafnréttisbarátta kynjanna er þar í fullum gangi. Keniur hið síðast talda m.a. fram í því er kona gröfustjóra leysir hann af hólmi í starfi sínu, en hann hefur fengið það verkefni að grafa skurð eftir endilangri aðalgötu borgarinnar, sem síðan á að helluleggja. Sögumaður í meginhluta verks- ins er svo útvarpsmaður einn, ekki hátt skrifaður í borginni, en tckst þó að lýsa þróun mála þar út frá hinum margvíslegustu sjónarhorn- um. í gegnum söguna alla gengur það svo sem rauður þráður að þangað er von á svo nefndum menningarfulltrúum. Þeir birtast svo í sögulok, og skal því ekki Ijóstrað upp hér liver er boðskapur þeirra. Hins vegar er að því gæt- andi að það er vandi að spinna söguþráð og koma svo með sögu- Iausn í lokin sem slaki hæfilega á spennunni sem byggð hcfur vcrið upp í fyrri hlutum sögunnar. Svo er skemmst frá að segja að þar hefði þurft að gera betur hérna. Hvorki lýsing mcnningarfulltrú- anna né það sem kalla mætti boð- skap þeirra er svo rismikið að samsvari því sem á undan er gengið, og leggur lesandi verkið því frá sér hálf ruglaður í því hvað höfundur sé í rauninni að fara með þessu. Nema þá að túlka eigi þessa menn sem einhvers konar tákn fyrir þá blekkingu alla sem haldið sé að fólki undir yfirskini falskra verðmæta í nútímaþjóðfélagi? Arni B. Helgason. Nægilega ákveðnar skírskotanir um slíkt eru þó eiginlega ekki gefnar í bókinni. Hins vegar er cinnig Ijóst að höfundur er vel heima í helstu hræringum og stcfnum í nýrri skáldskap. Það scm nefna mætti ioðinn og óraunsæjan söguþráð og víða er þekkt í bókmenntum okkar frá síðustu áratugum, cr þannig alls ekki út í hött að ncfna til að skilgreina þessa bók. Ýmislegt þarna minnir á sitthvað scm bók- menntalesendur þekkja vel úr ýms- um nýlegum verkum. Til dæmis minnir óvcðurslýsingin í París í ýmsu á rigningarlýsinguna í Eftir- mála regndropanna eftir Einar Má Guðmundsson, og menningárfull- trúarnir á mótorhjólununi mcga líka sem best lciða huga lesandans að sögunni Heilagur Andi og engl- ar vílis cftir Ólaf Gunnarsson, hvort tvcggja bækur scm komu út l'yrir síðustu jól. Á þetta er þó ekki bent hér til að bera ófrumleika upp á höfundinn; þvert á móti til að vekja á því athygli að liann cr í býsna mörgurn atriðum í takti við þær hræringar sem hæst ber nú um stundir í íslensku skáldsagnagerð- inni. Þar cr kannski fyrst og fremst um að ræða einhvers konar til- hneigingu til að leiða lesandann inn í eina eða aðra tegund af óraunverulegum draumaheimi, og bcita þá frásagnartækni sem helst er að segja að reki uppruna sinn aftur til ævintýranna gömlu og hins óraunverulega sögusviðs þeirra. Þetta er reyndar hið sama og oft hefur verið kennt hér við svo kallaðan antiróman eða andskáld- sögu, þar scm óbeisluðu ímynd- unaraflinu er sleppt lausu án þess að til þess séu gerðar nokkrar kröfur um að það haldi sér innan marka hins raunvcrulega og mögu- lega. Það er kannski lull djúpt í árinni tekið að segja að hér sé á ferðinni dæmigerð andskáldsaga, en sann- ast sagna mun þó að ýmislegt í henni er óneitanlega þeirrar ættar. Þar er kannski fyrst og fremst um að ræða það óbeislaða hugmynda- llug sem liggur að baki lýsingunni á borginni, og cins hitt hvað hö- fundur virðist leggja litla áhcrslu á að gæða persónur sínar holdi og blóði. Sannast sagna er að þar eru miklu fremur á ferðinni holdgcrðir fulltrúar einstakra manntegunda lieldur en Iifandi cinstaklingar sem lesanda má þykja að hann komist því sem næst í líkamlcga snertingu viö. Ymsar þeirra eru aukheldur bcinlínis vcrulega óaðlaðandi. svo sem borgarstjórinn, cn hið skefja- lausa málæði hans um allt og ckkert í tíma og ótíma cr vægast sagt reglulega þreytandi aflestrar. Er það eitt af því í bókinni sent til bóta liefði vcrið að beita niður- skurðarhnífnum miskunnarlaust á. Og raunar má einnig þykja að einmitt í þessu síðast nefnda atriði liggi helsti veikleiki þessarar sögu. Smíði skáldsagna er margslungin list, og þar þarf margt að fara saman. Höfundar þurfa jöfnum höndum að geta agað framsctningu sína, skapað áhugavcrðar pcrsón- ur. byggt upp spennu í söguþræði og lokið verkum sínum með rök- réttum sögulausnum. Þessi bók cr fyrsta verk höfundar síns og er því skiljanlega með ýmsurn byrjcnda- einkcnnum. En af bókinni er samt ckki annaö að ráða en að hann búi yfir þcirri tjáningarþörf og þeirri sjálfsögun í stíl sem hverjum góð- um rithöfundi er óhjákvæmilcgt að hafa góð tök á. -esig FRÍMERKI Hverju á að safna? Það hefir lengst af getað orðið deiluefni hverju á að safna, ekki síst meðal frímerkjasafnara. Hafa jóla- merki og Maximkort flotið með og söfnun þeirra verið harðlega átalin af ýmsum „páfum“ þess hvað má og ekki má. Það er þó ávallt svo að loks sigrar það sem áhugavert er og menn vilja safna. Nú er til dæmis svo komið að söfnun maximkorta er orðin alþjóðlega viðurkennd og eitt af keppnisatriðunum á alþjóðlegum ffimerkjasýningum. Enn halda hinsvegar jólamerkjasafnarar sínar eigin sýningar og við góðan orðst ír. Þá er eitt söfnunarsvið sem ekki hefir enn fengist viðurkennt, en það er kallað á erlendu fagmáli „Cinderella stamps". Svona einskonar ævintý- rafrímerki, stundum gefin út af lönd- um sem í raun eru ekki til. Karl Einarsson hefði getað gefið út frí- merki frá St. Kilda og hagnast vel af. En það eru líka félagasamtök sem gefa út slík merki, eins og hér skal greint frá. Solidarnosc-samstaða Hin pólsku verkalýðssamtök, Samstaða, sem raunar eru ólögleg nú orðið hafa gefið út ýmiss konar merki til að afla sér fjár og jaínvel notað þau á póst, auðvitað til að kynna að þau séu til og vekja þar með athygli á málstað sínum. Fyrstu merkin voru kannske að- eins gúmmístimplar sem voru settir á umslög eða álímd merki sem voru nokkuð hroðvirknislega unnin. Oft- ast voru þetta merki með myndum af hinuni þekkta foringja þeirra, Lech Walesa. En smám saman hafa merkin orðið betur unnin og boðskap þeirra stefnt markvisst að einhverjum ákveðnuni málefnum. Þar má ncfna mcrki með myndum Andrei Sachar- ov og konu hans Elena Bonner. Þá hafa verið gefin út merki með mynd- efni gegn kjarnorkuverum og hafa þá beinst gegn pólska orkuverinu Zarnowiec og Tsjernobyl, þar sem slysið varð. Áritanir á frímerkin eru svo ýmist Polska - Pólland eða þá aðeins Poczta Solidarnosc - Samstöðupóst- ur. Verðgildi merkjannaerennfrem- ur prentað á þau og þá í pólskuni Zloty. Þá er á merkjunum nafn þeirra persóna sem á þeim er að finna, eða staðarins/málefnisins, sem um ræðir. Svo cr nú komið að merkin eru gefin út og dreift af fjölda ólöglegra ww/ec I mJTk m H mmezi }SOZÍ POCZTA SOUDARNOSC I lOSClla BIAÍYSTOK*' 261*** KX>2t POCZTA SOLIDARNOSC eininga Samstöðu í hinum ýmsu horgum Póllands. Þá hafa hvers konar vinafélög Samstöðu á erlendri grund sýnt þessu máli áhuga og hafa jafnvel slík merki borist á pósti út úr Póllandi. Víða hefir verið komið upp stuðn- ingsskrifstofuni fyrir Samstöðu og t.d. í Frakklandi hefir mikið verið sagt frá þessum merkjum í Le Monde des Philatélistes og í blaðinu Timbroscopie. Þá gefur einnig skrif- stofa „Solidtary with Solidarnosc, 14 rue Nanteuil, 75015 Paris, France,“ upplýsingar um þessi merki. Meðfylgjandi myndir eru svo af nokkrum þcssara merkja. • Sigurður H. Þorsteinsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.