Tíminn - 26.08.1987, Blaðsíða 19

Tíminn - 26.08.1987, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 26. ágúst 1987 Tíminn 19 Ófrísk í ETTA er lata karlinum mínum að kcnna. sagði Elisa Spinelli, þegar hún var handtekin fvrir að stcla ÁR tveimur hænum frá bónda, þegar ekki var 4il matarbiti í kotinu. Elisa var dæmd í 10 mánaða tangelsi, en iátin vita af því um leið, að samkvæmt ítölskum lögum má ekki setja ófrískar konur í fangelsi. Það hæfir mér vel, ég hef alltaf verið hrifin af börnum, sagði Elisa og fór heim. Lati karlinn tók svo yel í áætlanir hennar að hann hætti að vera latur, að minnsta kosti svo, að upp frá því var Elísa svo að segja stöðugt ófrísk. Þegar 14 börn voru fædd, galst hún þó upp og tilkynnti. að í fangelsinu fengi hún allténd að hvíla sig. Á þessum árum fylgdust fjölmiðlar samsviskusamlega mcð því. hvernig Elísa fór á bak við kerfið og höfðu flestir gaman af. Meðal þeirra sem lásu unt hetjulega baráttu hennar. var Cossiga forseti. Saga Elísu Spinelli hafði svo djúp áhrif á ntig, sagði forsetinn, að ég ákvað að náða hana. Það virtist eina eðlilega lausnin á vanda hennar. Ekki fylgir sögunni, hvort Elísa varð jafn ánægð, en hún sagðist skömmu áður vera orðin svo uppgefin á baslinu, að hún hlakkaði næstum til að fá að leggjast niður, sofa, sofa og sofa og þurfa ekki að gera neitt fyrir aðra. Á þessari mynd eru þau Elísa og lati karlinn hennar með eitt barnanna. Nýjasta viðhald JR í DALLAS er „alvöruprestur" Don Johnson og Melanie fyrir 15 árum. Þekkið þið náungann aftur? v ■fera má að einhver aðdáandi þekki brosið. cn þessi mynd al' Don Johnson var tekin fyrir 15 árum. þegar liann var 22 ára og raunar byrjaður að leika í Hollywood. En stúlkan nteð honum, hver er hún svo? Jú, hún hét þá Melanie Griffith og var 15 ára. Nú heitir hún hins vcgar Melanic Johnson og sagan segir að hún ætli bráðlega að innsigla það enn frekar með því að gerast frú Don Johnson í annað sinn. Þau hjuggu'saman í sex ár, giftu sig þá og skildu skömmu scinna. Bæði hafa verið gilt síðan, en cru á lausu núna og ef ckki er logið aö vcstan, sjást þau nú hvarvetna saman á ný. Melanie þessi cr annars dóttir Hitchcock-lcikkonunnar Tippi Hedren og er sjálf leikkona nteð rúmlega 30 myndir að baki. l lún fullyrðir að Don sé indælis náungi og að auki heimsins bcsti elskhugi. Um galla hans vill hún ekkert segja, nema vist sé að ekki sé vond lykt af sokkunum hans, hann gengur nefnilega ekki í sokkum. LiEIGH Taylor-Young er 42 ára og hún hafði þegar á tvítugsaldri verið orðin kvik- myndaleikkona. Frægasta mynd hennar var Peyton Placc, en þar lék hún Rachael Wells. Einnig var Leigh þekkt fyrir hið stormasama hjónaband hennar og Ryan O'Neal, en þau voru gift í fjögur ár. Svo var það um 1970 að Leigh sneri baki við Hollyw- ood. Hún flutti fyrst til Santa Fe í Nýju Mexíkó, og fór að sinna andlegum málum. „Ég var á þessum tíma algjör hippi," segir Leigh, en hún bætir því við, að nteð hug- leiðslu og trúarlegum hug- leiðingum hafi hún öðlast þroska. Hún gekk í sértrúar- flokk í Los Angeles og var að síðustu orðin prestur þar. Shirley MacLaine og Leigh Taylor-Young eru miklar vin- konur. Þær stúdera saman austurlenska heimspeki og andatrú. Shirley hefur skrifað bækur um endurholdgun og fyrri æviskeið sín. Lcigh talar mjög vel um fyrrverandi eiginmann sinn Ryan O'Neal og segir hann góðan föður syni sínum, sent þau cignuðust í hjónabandinu. Ryan hefur liaft orð á sér fyrir ýmislegt annað en föðurást og elskulegheit á heimili. Lcigh hefur ekki gifst aftur og segist ekki hafa hug á að ganga aftur í hjónaband. Hún eigi góða vini, góðan son, hafi sitt starf og áhugamál og nú síðast nýja hlutverkið í Dallas, og hún sé ánægð með það. „Ja, hjálpi mér aliir heilagir!“ sagöi Larry Hagman þegar hann heyrði aö nýjasta viöhald- ið hans sem JR í Dallas-þáttunum væri í raun og veru prestur. Þetta er mjög falleg leikkona, Leigh Taylor-Young, sem leikur Kimberly Cry- der í næstkomandi Dallasþáttum. Kimberly er rík kona sem stundar samkvæmislífiö í Dallas og kynnist þá JR og fer vel á meö þeim. JR með nýjustu „vinkon- unni“ í DALLAS- þáttunuin, sem er leik- in af Leigh Taylor-Yo- ung, fyrrv. hippa, en núverandi presti, dul- spekingi og kvikmyndaleikkonu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.