Tíminn - 22.11.1987, Blaðsíða 6

Tíminn - 22.11.1987, Blaðsíða 6
6 Tíminn Sunnudagur 22. nóvember 1987 erfið'eikunum > M0 _ Diana spjallar viö stjúpmóöur EGAR þess var farið á leit við Spencer-hjónin að þau veittu tíma- riti viðtal, setti frúin það sem skil- yrði, að ekki yrði tekin mynd af sér, nema með jarlinum og ekki kæmi til greina, að hún léti mynda sig við skrifborð sitt. - Ég læt ekki sjá mig með Cumb- erland slátrara, bætti hún við í tóntegund sem leyfði ekki spurning- ar um við hvern hún ætti eiginlega. Seinna kom þó í Ijós að hún átti við málverk ofan við skrifborðið, af hertoga, sem fékk viðurnefnið fyrir grimmd sína við að bæla niður uppreisn Skota á 18. öld. Jarlsfrúin er ákveðin kona og tilfinningarík, enda láta fáir sér á sama standa í afstöðu sinni til hennar. í augum sumra er hún vonda stjúpan, sem sá gróðalind í konunglegu brúðkaupi dóttur sinnar og seldi ættarsilfrið. Aðrir líta á hana sem rómantíska kvenhetju á borð við þær sem móðir hennar, rithöfundurinn Barbara Cartland finnur upp. Eftir 28 ár í hjónabandi með aðalsmanni, varð hún ástfangin af öðrum slíkum og annaðist hann af stakri natni, þar til hann fékk heilsu til að leiða dóttur sína inn kirkjugólf- ið, þegar hún giftist verðandi kon- ungi Bretlands. Enginn efast þó um að þessi kona gefur sig alla, þegar um er að ræða hjartans mál hennar, svo sem Althorp, glæsilega heimilið, eða áhugamál á borð við japönskunám og móttöku austurlenskra gesta. Umfram allt er henni þó annt um eiginmann sinn, hinn 63 ára jarl af Spencer. Hún drífur myndatökurnar af, enda leiðist jarlinum slíkt tilstand ákaflega. Á meðan ganga gestir fram og aftur um húsið. Þó Althorp sé heimili, er það einnig lifibrauð fjölskyldunnar og hefur verið opnað almenningi til sýnis. Jarlshjónin selja aðgöngumiða, bera fram veitingar í vínkjallaranum og skammta tertur í testofunni. Um 40 þúsund gestir koma árlega. m ■ EG ER HUSBONDI Á MÍNU HEIMILI - SEGIR JARLINN AF SPENCER, FAÐIR DÍÖNU PRINSESSU FÓLK VILL SJÁ PABBA DÍÖNU Ekki er óalgengt að forvitnir ferðamenn komi að jarlinum sitjandi við sjónvarpið, umkringdan ljós- myndum af Díönu dóttur sinni og fjölskyldu hennar. Tengslin við kon- ungsfjölskylduna eru vissulega ekki óhagkvæm. Þó Spencer-hjónin neiti harðlega að nota sér þau, voru þau ásökuð fyrir að græða á þeim, með því að seija minjagripi um Díönu og Charles. Jarlinn segir þau vissulega meira í sviðsljósinu, eftir að Díana giftist Karli prinsi og telur að flestir gestirn- ir komi til að sjá, hvernig faðir prinsessunnar líti út. - En gestir lífga líka upp á húsið, bætir hann við. - Það er skelfing tómlegt hérna, þegar við erum ein og mér finnst gott um að hafa fólk í kringum mig. Svo mikið er víst, að tekjurnar af gest- komum til Althorp hafa margfaldast á seinni árum. Raunar voru þær ekki miklar í tíð fyrri jarls. Honum var svo illa við fólk, að hann stóð stundum vopnað- ur við dymar, að sögn sonar hans. Hvað sem því líður, kostar rekstur Altorp hálfa milljón punda árlega, svo áríðandi er að gestir séu vel- komnir. Raine Spencer hefur verið gagn- rýnd síðan hún gerðist húsfreyja á Althorp fyrir 11 árum. Talið er að hún hafi selt ein 300 listaverk, þar á meðal dýrindis málverk og ísfötur úr gulli, sem metnar voru á milljón pund. Málverkin fóru upp í kostnað við viðgerðir á húsinu, sem hljóp á milljónum. Harðast var hún sökuð um eyðslu í „óþarfa" eins og tvöfalt gler í nokkra stofuglugga og teppi horna á milli í málverkasalina. Sagt var í blaði að síðan líktist húsið sveitahóteli. En andstætt við það sem fyrrum var, þarf fjölskyldan að minnsta kosti ekki að sitja við útsaum til að koma í veg fyrir kal á fingrum. GAGNRÝNIN SPROTTIN AF ÖFUND - Húsið var illa á sig komið, þegar ég erfði það eftir föður minn árið 1975, segir jarlinn. - Hann lét gera við undirstöðurnar, en eftir var að mála og laga innviði. Nú er ástandið mjög gott. Við eigum 600 málverk eftir og ekkert af eigum fjölskyld- unnar hefur verið selt. Auðvitað var leitt að þurfa að selja listaverk, en við áttum ekki annars úrkosti til að geta búið hér áfram. Jarlinn telur gagnrýni á þau hjón ekki byggða á rökum, en þau vita hvar þau eiga að fá tekjur. Þeir sem vitið þykjast hafa, telja Althorp ekki sögulega merkilegt, en samt stendur fólk í löngum röðum til að fá að líta inn. - Okkur er sama, hvað sagt er, bætir Raine Spencer við. - Við veltum okkur ekki upp úr því neikvæða. Því miður verður alltaf til fólk, sem öfundar okkur af velgengninni, en það erum við sem hlæjum síðast. Vissulega hefðum við getað beðið ríkið um styrk, eða afhent húsfriðunarsjóðnum húsið. Það hefði bara kostað ríkið helmingi meira fé og þrefalt fleira starfslið. Gagnrýnisraddirnar hafa orðið hvað háværastar einmitt vegna þess að Spencer-hjónin opnuðu heimili sitt almenningi. Slíkt eigi hreinlega ekki við, þegar um sé að ræða æskuheimili tilvonandi drottnignar landsins. Þannig líta Spencer-hjónin ekki á málið, þau telja að þetta geti vel farið saman. - Það gagnlegasta sem ég hef gert, var að fara á bókhaldsnámskeið, segir jarlsfrúin. - Helst þyrfti ég að vera endurskoð- andi með full réttindi. Bæði vita þau nákvæmlega hvað til er í bankanum hvenær sem er, enda telur jarlinn peningana og fer sjálfur með þá í bankann. - Þegar við byrjuðum á þessu fyrir 10 árum, var illa spáð, segir hann. Ástæðan var að sumu leyti ákafi frúarinnar og gífurleg framtakssemi, sem fólki þótti nóg um. - Hún hefur verið stórkostleg, segir jarlinn. - Smekkur hennar er óbrigðull, hún er rökrétt í hugsun og ekki væri hægt að hugsa sér betri félaga við svona verkefni. TVÆR EINMANA MANNESKJUR Þau hjón hafa þekkst í 35 ár, en neistinn kviknaði ekki fyrr en í samkvæmi fyrir 16 árum. Þá var Raine 45 ára og á þeim aldri snúa aðalskonur sér fremur að góð- gerðastarfsemi, en ástarævintýrum. Raine hafði þegar unnið sín góðverk á 18 ára ferli í sveitarstjórn, en varð nú ástfanginn af Spencer jarli og yfirgaf mann sinn, jarlinn af Dart- mouth eftir 28 ára hjónaband. Þau áttu fjögur börn. Þetta var ekki ósvipað ævintýrun- um í ástarsögum móður hennar, Barböru Cartland, en Raine tjáði henni einfaldlega, að hún væri yfir sig ástfangin og enginn gæti neitt við því gert. Tveim mánuðum eftir skilnað- inn giftust Raine og Spencer jarl hjá borgardómara án allrar viðhafnar. í fyrra sinnið höfðu verið 16 brúðar- meyjar til staðar. - Við vorum tvær einmana mann- eskjur, sem fundum hvor aðra, segir

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.