Tíminn - 22.11.1987, Side 7
MUELLER
[europa b. V.|
Tíminn 7
að selja minjagripi á Althorp. Til hægri eru
Raine Spencer og móðir hennar, Barbara Cartland.
ERFIÐLEIKAR
DÍÖNU OG KARLS
Nýjustu sögusagnir um vandræði í
hinu konunglega hjónabandi valda
Spencer jarli áhyggjum. - Ég er
órólegur, en ég held að hún sigrist á
þessu, segir hann. - Hún er baráttu-
manneskja í eðli sínu. Þegar maður
sér hana með börnunum, er auðséð
að hún er hamingjusöm. Drengirnir
eru einkar heilbrigðir og kemur vel
saman, bætir hann við.
- Þeir eru heppnir að eiga Díönu
að móður, því hún vill að þeir lifi
sem eðlilegustu lífi. Díana á líka
margar vinkonur á sínum aldri, sem
allar eiga líka börn.
Auðvitað hefur verið erfitt fyrir
Díönu að venjast lífinu sem krón-
prinsessa. Díana er náttúrubarn,
hrein og bein og kann illa við
yfirborðsmennsku. Allt sem hún
gerir, gerir hún rækilega og hún
reynir vissulega að vinna starf sitt
vel. Ég er mjög hreykinn af henni.
Jarlinum finnst ekkert tiltökumál,
að dóttir hans verði Englandsdrottn-
ing í framtíðinni. - Sá dagur er langt
undan, fullyrðir hann. - Núna gleðst
ég bara yfir, að hún skuli vera
hamingjusamlega gift. Um daginn
sagði einhvervið mig:-Tværvinsæl-
ustu manneskjur í heimi eru páfinn
og dóttir þín. Slíkt yljar manni um
hjartarætur.
Nýlega kom ungur maður til mín
á götu og spurði: - Fyrirgefðu,
Spencer jarl, en áttu aðra dóttur? Ef
svo er, langar mig til að kvænast
henni. Ég svaraði: - Því miður, ég á
enga dóttur eftir. Svei mér þá, ég
held að okkur hafi báðum verið
alvara.
BÆNDUR
Vekjum athygli á
tilboði okkar
Á OC ALFA-LAVAL MJALTAKERFUM
Um 150 bændur hafa nú notið sérstakrar fyrirgreiðslu
með endurbætur á mjaltabúnaði undanfarna mánuði
Sunnudagur 22. nóvember 1987
Ekki leynir sér, að prinsessan
dáir föður sinn.
jarlinn. - Það er dásamlegt að hafa
einhvern, sem maður nýtur samvista
við, bætir kona hans við. - Hann er
besti vinur minn. Ég kann vel að
meta skopskyn hans og get aldrei
reiðst við hann, því þá kemur hann
mér alltaf til að hlæja. Mér leiðist,
þegar hann er ekki heima.
Jarlinn tekur undir og segist sakna
líflegs spjalls konu sinnar, ef hún
fari út. - Hún talar, ég hlusta, segir
hann. - Svo er hún afskaplega róm-
antísk sál, enda alin upp á bókum
móður sinnar (yfir 440 titlar).
Cartland-stefnan er augljóslega
sú, að konur eigi að vera heima og
hugsa um eiginmann, börn og bú, en
Raine Spencer er öllu frjálslegri í
skoðunum á því.
KONUR ÞURFA
FÉLAGSSKAP
- Ég held að konur, sem eiga þess
ekki kost að gera eitthvað utan
heimilis, fyllist vonbrigðum og lífs-
leiða, jafnvel þó þær eigi börn.
Bækur mömmu gerast flestar fyrir
óralöngu, en nú á dögum er auðveld-
ara fyrir konur að láta til sín taka í
opinberu lífi. Eina hættan er sú, að
þar sem karlar helga sig vinnu sinni,
er konan líffræðilega öðruvísi inn-
réttuð. Konur finna gjarnan til ófull-
nægju og tómleika, ef þær eru ekki
í nánu sambandi við aðra mannes-
kju. Ég geri mér vel ljóst, að ég þarf
að hafa karlmann mér við hlið og ég
tel mig afar heppna að hafa einmitt
þennan.
Móðir hennar heldur því fram, að
nútíma konan reyni að ráðskast með
karlinn. - Mömmu þína vantar
karlmann, það er vandamál hennar,
segir jarlinn stríðnislega og kærir sig
greinilega ekkert um að nú verði
talið að kona hans sé húsbóndinn á
heimilinu. - Hér er það ég sem ræð,
segir jarlinn af Spencer.
Kona hans brostir við. - Ef hann
segir nei. þá þýðir það nei og ekkert
annað, skýtur hún inn í.
KARLINN Á
AÐ RÁÐA
- Það er mikilvægt fyrir karlmann
að vera húsbóndinn, heldur jarlinn
áfram. - Auðvitað er líka heppilegra
að sá sem stjórnar, sé karlmaður.
Vera má að hann segi þetta, því
einhverntíma var haft eftir honum,
að fæstar konur hefðu nothæft
heilabú. Sagt er líka, að hann hafi
heillast af Raine fyrir skarpa hugsun
hennar og frábæra, almenna þekk-
ingu.
- Það er sjaldgæft að hitta konu
með hennar heilastarfsemi, segir
hann blátt áfram. - Við vorum bæði
gift áður, svo við kunnum að meta
það að lifa í góðu hjónabandi. Það
síðara er betra hjá okkur báðum.
Að ekki sé minnst á að seinna
hjónabandið bjargaði nánast lífi
hans og það er Raine ótvírætt að
þakka. Tveimur árum eftir að þau
giftu sig, fékk hann heilablæðingu
og var fárveikur. Hún sat við rúm-
stokk hans mánuðum saman og
barðist gegn því að læknar gæfu
honum lyf, sem þá voru á tilrauna-
stigi.
Nánast má telja kraftaverk, að
jarlinn skyldi komast svo til heilsu,
að hann gat leitt dóttur sína inn
gólfið í St. Páls-dómkirkjunni, er
hún giftist prinsinum af Wales um
árið.
- Mér hefði liðið skelfilega, hefði
ég ekki getað það. Annars hjálpaði
Díana mér, eiginlega var það hún
sem leiddi mig. Þegar við vorum
komin upp að altarinu og ég horfði
fram gólfið, hugsaði ég sem svo:
Hvernig í ósköpunum kemst ég
aftur til baka?
ALLT FRÁ SPENA OG ÚT í TANK
MJÓLKURKÆLITANKAR
Flestar stærðir fyrirliggjandi
á mjög hagstæðu verði.
VÉLBÚNAÐUR
í FÓÐRUN OG HIRÐINGU
BUNADARDEILD
ÁRMULA3 REYKJAVIK SIMI 38900
OG KAUPFÉLÖGIN
UM LAND ALLT
FLÓRSKÖFUKERFIN
hafa létt mörgum
bóndanum verkin.
Kjarnfóðurvagn
HJÓLKVÍSLAR
VOTHEYSVAGNAR