Tíminn - 22.11.1987, Síða 15
Sunnudagur 22. nóvember 1987
TÍMANS RÁS
Agnar
Birgir
Óskarsson
Tíminn 15
FEGURÐ
Gettu nú
Það voru eflaust fleiri en ég
sem settust fyrir framan sjón-
varpið á miðvikudaginn, eða var
það á fimmtudaginn sem heims-
ins fegursta konan var valin,
dagurinn skiptir í raun ekki
máli, heldur hver hlaut titilinn
„Ungfrú heimur“.
Félagi minn tilkynnti komu
sína þetta umrædda kvöld og
var því tekið til við að „poppa“
og draga kókið út úr ísskápnum.
Að því loknu kom maður sér
þægilega fyrir í stólnum fyrir
framan þennan ferkantaða kassa
sem í daglegu tali er kallað
sjónvarp með poppið í vinstri
hendi og kókið í þeirri hægri eða
var það öfugt.
Það er dálítið skrítið hvað popp-
korn hefur róandi áhrif á fólk.
Hafið þið ekki tekið eftir því til
dæmis þegar farið er í bíó hvað
fólk ber mikið með sér af poppi
og ýmiskonar sælgæti inn í kvik-
myndasalinn. Er þetta gert í
þeim tilgangi að róa taugarnar
eða er það óstjórnleg árátta að
hafa eitthvað að maula á meðan
sýningu stendur? Hafið þið ekki
heyrt einhvern segja; „ja, þetta
var svona þriggja poppa mynd“
sem mundi þýða í daglegu tali
svona ágætis mynd.
Jæja, keppnin var hafin í allri
sinni dýrð, þarna komu þær
fram í samkvæmisklæðnaði sem
klæddi þær misjafnlega vel og
misjafnlega illa síðan voru það
baðfötin í öllum regnbogans
litum. Þegar hér var komið sögu
var poppkornið á þrotum, það
var því ekkert annað að gera en
að hefja leit að einhverju sem
mætti narta í en ekkert slíkt
fannst svo að maður varð að láta
sér nægja það kók sem eftir var.
Nú var „spennan" í hámarki
bæði hjá okkur félögunum og
eflaust fleiri sjónvarpsáhorfend- |
um þetta tiltekna kvöld. Það var !
ekki laust við að maður væri !
svona aðeins farinn að seilast í !
nöglina á litla putta þar sem allt
annað „meðlæti" var á þrotum.
Ég segi ykkur alveg eins og er að
ég er alveg hættur að naga hinar
neglurnar sama hversu spenntur
ég er.
Nú var komið að úrslitastund-
inni í hvaða sæti ætli okkar
manneskja lendi, vonandi í ein-
hverju af efstu sætunum hafa
eflaust margir sagt við sjálfan sig
og aðra.
Raunin varð þriðja sætið og
má hún eflaust vel við una.
Anna Margrét hafnaði í þriðja
sæti í keppninni Ungfrú heimur
1987• (Tímamynd Brein)
Það var Þorgeirsfjörður,
lítill fjörður á skaganum milli
Eyjafjarðar og Skjálfanda,
sem var í getrauninni hjá
okkur síðast. Hann er einn
þeirra smáfjarða á skaga-
tánni, sem sameigininlega
nefnast „Fjörður" á máli
norðanmanna.
En nú spyrjum við - hver
er sá hinn tígulegi fjalla-
drangur sem gnæfir yfir
bænum hér á myndinni?
Ekki gerir til þótt menn
spreyti sig á bæjarnafninu
einnig.
KROSSGÁTA
H" rr 4 <5CS £jnN pVpt- mmmmrnmm SPÍK- £RF - 2 5A r/A. CifíT/ Mnr’N ^ á se//v- flSTUR fefifiUR Trýv' VtOBiT KoÐ ■ ro&E ► <r~ 'T/'Mfl. E/V/V- rrtEM- op KKöta J—7
STftF- n
(. hy
| XPRft 5 VtT MíNiU BUÍO- *ítur TRCÐ'J 1
// r \ | HfiR 3 TóHN KÉyifA J H
'J b C3 l ÁKAFA -n MV/5T
1 (rJ 2 KIHD áoso - h jl 5
m 1 Z S TÆ<- ASTAK ÓGUfi Kflau WMUC/J
í 1 fisSi
rr V££- K'/ÆPi K®55 “71
( ( Aci-3 S 'ÓHH
M. 0 §§ *tr Wn - 1(CRK/ 615 4 7T i * . ] .......
/ElVi — "L —'7 / K/t Al/\ H w? 1 n ► •
HV/K TuMt Kiudut VipBit
miNH Ytl>J
SffiM loO Sfl F—, fBflN ÓGN(\. n SÉPfl NfiRi/V TUSKR fLfirfrf, ► 1 q
SfiUP 2 PÍ?EJF KRÍT RDRP- j| ..... iS GYLT U SLÍTJP FoP S. KyRt?D V /£ Ef /0
VÝR. í»i?yK-k- UP HÍÐ - 7 yi atur yjNP M «
fiERsr DfíLU
« —* • .HLAWPA }ÓFl myrig, ÆWD/M SDMH/.J. - > ££FA /1 !
KfiRp KfilLl
0 e.'Ms ■ N. <? ELDf) - 4“ E\US /3
LEIT
SUÍ- UR. n á J» 4 /V
jBReíPA ftÁTT- fiðl £FÉj StsyLT tuSLíG - ► 7V /5 í