Tíminn - 29.11.1987, Side 3
Sunnudagur 29. nóvember 1987
Tíminn 3
örugglega, meðal annarra þeir
Flóki og Guðbergur Bergsson,
ég segði þannig frá og svo sýndu
leikritin mín það.
Og svo gerðist það að ég hitti
strákana á Forlaginu, þessa sætu
og góðu drengi þar, og þeir vildu
að ég skrifaði skáldsögu fyrir þá.
Kannske varð kveikjan að þessu
til hálfvegis í gamni eftir að
sjónvarpsleikritið var sýnt og öll
lætin urðu. Maðurinn minn og
margir aðrir hvöttu mig og Flóki
hótaði mér illu, ef ég ekki héldi
þessu áfram! En ég hef ekki
neinn sérstakan metnað til þess
að vera skáldsagnahöfundur,
þótt ég muni örugglega halda
þessu áfram, því ég hef þegar
hugmynd að nýrri sögu. En ég
mun halda áfram að skrifa leikrit
og ljóð eftir sem áður.“
Nú gerist sagan á árinu 1958.
Hví er sögunni valinn þessi tími?
.,Það er einfaldlega af því að
þessi stúlka sem kom til mín er
að segja hér frá árinu þegar hún
var sextán ára. Sjálfsagt á það
líka rætur í því að ég var þá
unglingur sjálf og á mótunar-
skeiði. Ég var að eignast nýja
vini og var svo heppin að kynn-
ast miklum andstæðum, bæði
heldra fólki og svo sárustu
örbirgð. Þetta voru tveir heimar
og mér fannst ég skilja þá mjög
vel. Til dæmis var það svo að
þetta hástéttarfólk sem ég
kynntist datt mér aldrei í hug að
fyrirlíta.
Jú, það er satt að á þeim tíma
sem sagan gerist voru kynferð-
ismál miklu meira feimnismál
en núna, en stúlkan í sögunni er
svo mikið erotiskt afl að ég hlaut
að segja frá þessum hlutum - og
ég held að mér hafi tekist að
gera það þannig að það sé ekki
gróft. Erotikin og kynlífið eru
svo mikið afl í lífi okkar að mér
fannst þetta verða að vera með.
Það eru svo margir á villugötum
með þetta, vegna allrar þeirrar
bælingar sem verið hefur."
Hvað er í deiglunni, Nína?
Ertu með fleiri leikrit í smíðum?
„Ég á tvö leikrit niðri í skúffu,
sem hafnað hefur verið hjá leik-
húsunum. Auðvitað yrði ég glöð
ef þau yrðu tekin einhvers
staðar.
Ég var svo heppin þegar ég
var að byrja að skrifa leikrit, en
þá var ég nýbúin í leiklistarkól-
anum, að Sveinn Einarsson,
skólastjóri, bæði hvatti mig og
hjálpaði mér. Hann hafði lesið
yfir ljóðin mín og var strax
ánægður með mig sem skáld.
Hann hlúði að mér sem leikrita-
höfundi á sinni tíð sem þjóð-
leikhússtjóri. Hann gaf mér allt-
af tækifæri til þess að vinna með
leikstjóra, eins og mér finnst
vera eðlilegt, og leyfði manni að
hafa dramaturgiska vinnu í allt
að mánuð. Hins vegar var mér
sagt það þegar þessum leikritum
mínum var hafnað að nú væri
slíkt ekki til siðs lengur hjá
leikhúsunum og ég hef spurt mig
þeirrar spurningar hvort það sé
liðin tíð að höfundur og leik-
stjóri vinni saman. Svo getur
verið að þegar Sveins nýtur ekki
lengur við hafi ég verið sett út í
kuldann. Að minnsta kosti er ég
það „paranoid“ að ég get alveg
látið mér detta það í hug.“
Er ekki öðruvísi umhorfs nú á
vettvangi listsköpunar, en þegar
þú og þínir félagar í listamanna-
hópi voruð að byrja?
„Jú, þegar ég var að byrja var
langt um liðið frá því er ljóðabók
hafði komið út eftir konu - að
Vilborgu undanskilinni. Þá gaf
einhver mann út eða ekki - því
þá þýddi ekki að vera að þessu
sjálfur. Það var því nokkur
gæðastimpill þegar Ragnar í
Smára tók fyrstu bókina mína.
Auðvitað var það mjög gott.
Það studdi mig líka að hafa
kynnst þeim Degi, Jóhanni
Hjálmarssyni, Matthíasi Jo-
hannesen, Þorsteini frá Hamri
og Vilborgu Dagbjartsdóttur.
Þessa vini mína umgengst ég
enn og er þeim þakklát, því þau
tóku mig strax inn í sinn hóp. Ég
var strax beðin að lesa upp með
þeim, hitti þau á Mokka og svo
framvegis.
Nú er svo mikið að gerast í
skáldskap að ég kemst ekki yfir
að fylgjast með því öllu. En mér
finnst margt vera mjög gott - til
dæmis hef ég verið að lesa
heildarsafn af ljóðum Gyrðis
Elíassonar, þar sem margt mjög
gott er að finna. Og svo var að
koma út ljóðasafn eftir unga
konu, sem heitir Ragnhildur
Pála Ófeigsdóttir. Bókin heitir
„Andlit í bláum vötnum“ og
mér finnst hún sérstaklega góð.
En svo ég snúi mér á ný að
sögunni minni nýju, þá er ég
alveg afar ánægð með þær við-
tökur sem hún hefur fengið. Til
dæmis kom fyrsta gagnrýnin frá
Guðbergi Bergssyni á Stöð 2 og
það var yndislegt allt sem hann
sagði. Það sem skrifað hefur
verið um bókina hefur líka verið
jákvætt og ánægjulegt og sumt
sérkennilega fyndið. Mér finnst
fólk hafa tekið henni vel.“
Nína Björk: „Ég er mjög glöð
og þakklát með þær viðtökur
sem bókin hefur fengið."
„Ég hef samt engan sérstakan
metnað til þess að vera skáld-
sagnahöfundur."
(Tímamynd Pjctur).
ÞAÐ TÓKST!
13.900
KRÓNUR.
Okkur tókst það ótrúlega, að útvega
100 Samsung örbylgjuofna ó þessu
fróbœra verði.
Matreiðslunómskeið fylgir að sjólfsögðu
með í kaupunum.
Spariðtíma og peninga-VeljiðSamsung,
JAPISS
BRAUTARHOLT2 • KRINGLAN • SiMI 27133