Tíminn - 29.11.1987, Qupperneq 5
Sunnudagur 29. nóvember 1987
Tíminn 5
- segir Haukur Clausen, sem í dag opnar adra stórsýningu sína að Kjarvaisstöðum
í dag, laugardag, kl. 14.00
opnar Haukur Clausen, tann-
læknir, aðra málverkasýningu
sína í vestursal Kjarvalsstaða.
Það eru 111 myndir sem Haukur
sýnir og eru þær allar orðnar til
á síðustu sex árum, en nú eru
nákvæmlega sex ár liðin frá því
er hann hélt fyrri sýningu sína á
sama stað. Við litum inn þegar
Haukur hafði rétt lokið við að
hengja myndirnar upp.
„Það eru vatnslita, akryl, pas-
tel og olíumyndir sem ég sýni
hérna,“ sagði Haukur „og þær
eru orðnar til á ferðum mínum
um landið, því ég er alltaf á ferð
og flugi þegar ég get. Hins vegar
tek ég oft myndir af mótífunum,
næ stemmningum, fer svo með
það heim og vinn úr þessu þar.
Ég á heldur ekki annars kost,
því ég verð að stunda tann-
lækningarnar, sem eru mitt starf
- þótt helst vildi ég geta iegið við
og málað á staðnum. En ég verð
að nota frístundirnar, kvöldin
og helgarnar. Já, ég nota öll mín
frí í þetta.
Þessar myndir eru helst úr
Skaftafellssýslunum, Þingvöll-
um, Borgarfirði, svolítið frá
Hornafirði og loks Landssveit-
inni - en það eru þessir staðir
sem heilla mig mest og ég fer
mest til.
Mest hef ég lært af sjálfum
mér, hef aldrei farið á málara-
skóla. Hins vegar málaði faðir
minn og ég lærði af honum.
Flest allar eru myndirnar til
sölu. Ég seldi all vel á fyrri
sýningu minni og sé til hvað
verður nú. En ég sel ekkert á
milli sýninga, því þá er ég
hræddur um að ég hefði ósköp
lítið til þess að sýna.
Dýrt „hoobý?" Ja, hvað á ég
að segja? Jú það er dálítið dýrt
að ramma inn, en ég legg miícla
áherslu á að fá rétta ramma -
sem venjulega eru dýrir, því ég
vil hafa þá fína og vanda til
þeirra. Hins vegar verður varla
sagt að þetta sé dýrt á við margt
annað, eins og t.d. hesta-
mennsku!
Jú, víst er dálítið á veggjum
heima hjá mér eftir mig, en ég
hef þó keypt mikið eftir aðra
málara og held að ég geti sagt að
ég vilji hafa sem mest uppi hjá
mér eftir aðra og minna eftir
sjálfan mig.
Já, hér er aðeins eitt portrett
- fyrsta portrettið sent ég geri -
og það er af utanríkisráðherra.
Við Steingrímur erum góðir
kunningjar, höfum þekkst frá
því við vorum sex ára og vorum
bekkjarbræður og það varð að
samkomulagi að ég málaði af
honum mynd. Portrettið hér er
þó bara undirbúningsvinna - ég
mun mála af honum stóra mynd,
virkiicga „statemans" mynd,
eins og vera ber, og hún er sem
sagt í undirbúningi.
„Þetta er bara undirbúningsmynd,“ segir Haukur Clausen, sem hér stendur við „portrett“ sitt af utanríkisráðherra.
(Tímamynd Gunnar)
Heyrnarlaus
leikkona
í leikför
Heyrnarlaus leikkona frá Banda-
ríkjunum er í heimsókn á íslandi.
Nafn hennar er Mary Beth Miller,
en hún erorðin þekkt víða um heim.
í sumar kom hún fram á Alþjóðaráð-
stefnu heyrnarlausra í Helsinki og
hlaut mjög góða dóma. Hún hefur
verið á leikför um Norðurlönd og er
ísland síðasta landið sem hún heims-
ækir að þessu sinni.
Mary Beth sýnir í Bíósal Hótels
Loftleiða laugard. 28. nóv. kl. 16:00.
Aðgöngumiðar eru seldir hjá Félagi
heyrnarlausra, Klapparstíg 28, 3.
hæð sími 13560 eða við innganginn.
Mary Beth veitir Leikhúsi heyrn-
arlausra í New York forstöðu og er
auk þess starfandi leikkona. Hún er
einnig þekktur rithöfundur og hefur
samið leikrit og barnabækur.
Við gerð kvikmyndarinnar „Guð
gaf mér eyra“ kenndi hún leikaran-
um William Hurt táknmál.
í ferð með Mary Beth er Deborah
Matthews túlkur, sem túlkar allt
sem fram fer á ensku.
Mary Beth Miller.