Tíminn - 29.11.1987, Page 7
Sunnudagur 29. nóvember 1987
Tíminn 7
þennan góða árangur. Segir svo
frá að bardagahetjurnar hafi
borið sig vasklega að lengi vel,
eins og vænta mátti, en þegar
dýpka tók og undiraldan þyngd-
ist fölnuðu margir og gerðust
valtir á fótum. Þjóðviljinn
segir frá því 23. september að
„... enda þótt hetjum þessum
hafi ekki orðið flökurt af að sjá
blóð í Kóreu, gerðist þeim nú
óglatt, jafnvel áður en háhyrn-
ingsblóð litaði sjóipn.“
Sjómennirnir létu ekki þar
við sitja, tóku við hlutverki
hermannanna og stökktu
skepnunum á flótta.
F>ann 29. september var aftur
látið til skarar skríða allt frá
Sandgerði til Snæfellsness og
voru varnarliðsmenn með í för-
inni sem fyrri daginn. Tókst
þessi aðför ekki síður en hin
fyrri og voru háhyrningarnir ým-
ist drepnir eða hraktir á flótta.
Næstu daga á eftir sást ekki til
ferða háhyrninga á þessum slóð-
um að degi til en eitthvað var um
að net væru rifin eftir háhyrn-
inga þegar þau voru tekin upp
að morgni.
Hæðnin lætur ekki
á sér standa
Ekki var laust við að hæðni
fylgdi í skrifum sumra blaða af
þessum atburðum. í Speglinum,
október 1954 segir „Faraldur" á
eftirfarandi hátt frá þessari
herför; „... ég rambaði upp á
þiljur. Þarna var eitthvað af
skipshöfninni og auk þess tveir
soldátar af vellinum, auðvitað
hélugráir fyrir járnum, skips-
tjórinn stóð með kíki sinn og
horfði yfir hafið, eins og segir í
sálminum. Allt í einu tekur
hann viðbragð.
-Fýr! öskrar hann.
Soídátarnir létu ekki á sér
standa og gerðu einhverja kippi
við fallstykkin, en ekkert skeði
frekar. Ég leit út á sjóinn og sá
eitthvað bera við sjóndeildar-
hringinn.
-Hvað er þetta? spurði ég
skipstjórann.
Eggert Gíslason skipstjóri.
-Sérðu það ekki, manns-
kratti? Þetta er horn á háhyrn-
ingi, argasta erkifjanda ís-
lenskra sjómanna, þegar frá er
talinn Bretinn og SÍS...
-Ætli þeir noti hvellfrítt púð-
ur í stríðinu? spurði ég.
-Nei, mér sýnist flest benda
til þess, að þeir hafi gleymt
skotfærunum heima hjá sér.“
„Farandi“ heldur síðan
áfram;
„... það var ógleymanleg sjón
að sjá háhyrningsvöðuna allt í
kringum sig og gnæfðu hornin
við himin, eins og Alaska-aspar-
skógur á Tumastöðum. Hinir
týhraustu varnarliðsmenn létu
ekki sitt eftir liggja gegn erki-
fjandanum en skutu og skutu
þar til þeir voru skotfæralausir.
Sjórinn var blóði drifinn svo
langt sem augað eygði.“
ABÓ.
Rætt við Eggert Gíslason skipstjóra á
einum þeirra báta sem varnarliðsmenn fóru
með í víking á Miðnessjó.
„Sumir þeirra hittu
aldrei og aðrir lágu
alveg bakk
vegna sjóveiki
Eggert Gíslason var skipstjóri
á Víði II á þessum árum. Að-
spurður um hvernig þessar veið-
ar hefðu gengið fyrir sig, hló
hann við; „Já, þetta var aðallega
um 1953 og ’54, þá var háhyrn-
ingurinn að eyðileggja fyrir okk-
ur netin svo tugum skipti, þetta
var gífurlegt veiðarfæratjór. sem
við urðum fyrir.
Hópur af könum var fenginn
til að fara út með bátunum,
svona tveir menn á bát. Þetta
voru fleiri tugir báta sem voru á
reknetaveiðum á Miðnessjó á
þessum tíma. Kananum var ætl-
að að skjóta niður háhyrningana
en það gekk nú misjafnlega hjá
þeim, sumir þeirra hittu aldrei
og aðrir lágu alveg bakk vegna
sjóveiki.
Flestir þessara báta voru
komnir með byssu um borð,
sterka riffla .222 með klofnum
kúlum, við vorum með slíka
byssu um borð hjá okkur, ég var
þá skipstjóri á Víði II, sem var
56 tonna bátur.
Það voru sendir líklega á ann-
að hundrað dátar nokkrum sinn-
um með bátunum, en greyin
voru svo misjafnlega á sig komn-
ir þegar út á sjó var komið. Um
borð hjá okkur voru Amcríkan-
ar, það var nú eitthvað sem þeir
hittu, það svona blóðlitaði sjó-
inn og kvikindin hurfu. En það
var eins og það hefði ekkert að
segja þó að þeir væru að skjóta
á háhyrningana því þeir komu
alltaf aftur, það var svo mikið af
þeim. Það eina sem fældi þá frá
í einhvern tíma var þegar flug-
vélarnar frá kananum komu og
köstuðu sprengjum á háhyrning-
svöðurnar, þá sá maður eitt og
eitt dýr fljóta upp. Slíkar her-
ferðir voru farnar nokkrum
sinnum.
Einu sinni hljóp skot í löppina
á mér og hún tættist, ég var frá
í þrjá mánuði.
Það var svo seinna sem þessi
kvikindi átu grálúðuna af lín-
unni hjá línubátunum. Á einu
svæði gátu þeir varla dregið
línuna, því háhyrningurinn át
allan fiskinn af línunni á meðan
verið var að draga.
Það var mikið um að vera þarna,
en ég held að árangurinn hafi nú
verið misjafn, þetta var algjör
plága um tíma, þegar við vorum
að fást við þessi kvikindi.“
ABÓ
Húsgögn á hagkvæmu verði
FINNSK
LEÐURSÓFASETT
Ný sending eftir helgina.
4 litir.
Hagstætt verð.
Vönduð framleiðsla úr
1. flokks leðri.
Forstofusett
og
símabekkir
nýkomið.
Gott verð
WJ>^ HÚSGÖGN OG *
bN. INNRÉTTINGAR co cq flA
^■^i^^.SUÐURLANDSBPAUT 18 OO Dí7 vV/