Tíminn - 29.11.1987, Side 10
if'Jr 29. nóvember 1987
10 Tíminn
Var hann sekur? Sjálfur neitaði
hann til þeirrar stundar er fallhlerinn
opnaðist undir fótum hans. Enn
þann dag í dag, 84 árum eftir
aftökuna, eru menn í vafa.
Sannanir gegn Dougal eru þung-
vægar. Margir, svartir kaflar í fortíð
hans bera vott um eiginleika morð-
ingja, þó aldrei tækist að leggja fram
fullkomnar sannanir fyrir sekt hans.
Þessi hávaxni, glæsilegi atvinnu-
hermaður hafði alla ævi haft áber-
andi löngun til kvenna, sem gátu lagt
með sér gilda sjóði í búið. Hann
hafði líka verið einstaklega óhepp-
inn varðandi þær konur. Svo vildi
nefnilega til, að þær létust allar
undir sérkennilegum kringumstæð-
um. Ein datt niður stiga, önnur
borðaði eitraðar ostrur...
Kona að nafni Camille Cecile
Holland hvarf eins og jörðin hefði
gleypt hana. Þegar jarðneskar leifar
hennar fundust um síðir, var Dougal
ákærður og dæmdur fyrir að myrða
hana.
Þá var hann orðinn 56 ára og átti
að baki með eindæmum viðburða-
ríkt líf. Ævintýramennskan var hon-
um í blóð borin og ennfremur hafði
honum farnast vel í hermennskunni.
Það var merkilegra til afspurnar en
hin 55 ára ungfrú Holland fékk
staðist.
Hún var einhleyp - og auðug.
Sagt var að á yngri árum hefði hún
átt ástarævintýri með herforingja af
tignum ættum. Hann féll hins vegar
í orrustu og þar til ungfrúin hitti
Dougal, hafði hún lifað í sorg yfir
hörmulegu hlutskipti sínu.
Dougal og Camille Holland hitt-
ust í Hyde Park einn fagran sumar-
dag og reyndust eiga einkar vel
saman, við fyrstu kynni. Hann var
vanur því að vinkonurnar ættu vel til
hnífs og skeiðar og tíu þúsund
punda arfur Camille var meira en
smáræði um aldamótin. Auk arfsins
hafði hún fjárfest vel í verðbréfum
og gat hæglega lifað af eignum
sínum. Auk þess fannst Dougal
mjög athyglisvert, að hún átti enga
fjölskyldu. Aðeins var um að ræða
tvo fjarskylda unglinga.
Ungfrú Holland átti ekkert fast
heimili, en flutti sig milli hótela og
gistihúsa í London, þegar henni datt
f hug. Stundum dvaldi hún langtím-
um saman í Frakklandi og á ftalíu.
Hún var einmana og rómantísk og
vonaði enn, að hún ynni í happdrætti
ástarinnar. Meðan hún beið riddar-
ans á hvíta hestinum, orti hún ljóð,
samdi lög og málaði h'ka smávegis.
Um þær mundir sem hún rakst á
Dougal í Hyde Park, bjó hún á
hóteli í Bayswater í London. Hinir
langdvalargestirnir glöddust hennar
vegna yfir þessum álitlega manni,
sem hún bauð nú heim. Ekki var
annað að sjá, en Samuel Dougal
þætti verulega vænt urn Camille.
Raunar var hún aðlaðandi kona og
hefði þess vegna ekki átt að vera í
neinum vandræðum með að verða
sér úti um lífsförunaut.
Einn galli var á þessu fyrirkomu-
lagi öllu saman og Camille minntist
ekkert á hann við sambýlisfólk sitt á
Verkjum sérstaka athygli á þvíað við erum 'komnir ísamband
við kanadískt t'yrirtæki sem heitir KIMPEX, en þeir sérhæfa sig
í varahlutum og aukahlutum fyrir vélsleða.
KIMPEX er mjög stórt á þessu sviði og getum við framvegis
útvegað ýmsa varahluti í allargerðir vélsleða.
Við hvetjum alla vélsleðaeigendur til að leita upplýsinga hjá
okkur.
MUNIÐ 10% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTINN
TIL FÉLAGSMANNA L.í. V.
ÚRVAL VARAHLUTA FYRIRLIGGJANDI
AUKAHLUTIR í MIKLU ÚRVALI
Hjálmar. Húfur. Vélsleðagallar. Hlífðargleraugu. Töskur.
Yfirbreiðslur. Aftanísleðar. Hitahandföng. Grímur. Jakkar
Nýrnabelti. Peysur. Hanskar. Framrúður á fjórhjól.
YAMAHA rifflahulstur. Aftaníkerrur fyrir fjórhjól.
BUNADARDEILD
ARMULA3 REYKJAVIK SIMI 38900
SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL
Líf og dauði
kvennamanns
Hann var virðulegur, átti að baki
frama í hernum og kunni einkar
vel að meta konur - ef þær áttu
peninga: Ungfrú Holland var vel
stæð og hún var myrt. En var
Samuel Dougal sekur?
Samuel Herbert Dougal var
flagari af lífi og sál. Það hafði
áhrif á alla ævi hans og batt að lokum
enda á líf hans. Hann lauk lífdögum
sínum í gálganum við Chelmsford-
fangelsið í Essex í Englandi, dæmd-
ur fyrir morð á konu.
Samuel Dougal var glæsi-J
legur náungi og átti margal
vinkonur. Seinasta stefnu-
mót hans var þó við
böðulinn.