Tíminn - 16.12.1987, Síða 1

Tíminn - 16.12.1987, Síða 1
Gerður í Flónní hættir hér heima og flytur úr landi # Baksíða Flísagerð orðin aukabúgrein í Fnjóskadalnum # Blaðsíða 7 ur boðað frjálslyndi og framfarir í sjötíu ár MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987-281. TBL. 71. ARG. Seðlabankastjóri og viðskiptaráðherra sammála Hávaxta bremsan haldlaus Gífurlegur fjármagnskostnaður á íslandi er að sliga fjölmörg fyrirtæki og einstaklinga. Allir virðast sammála um að vextir séu óeðlilega háir og að atvinnustarfsemi geti ekki staðið undir þeim til lengdar. Tíminn ræddi við Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra og Jóhannes Nordal seðlabankastjóra í gær og kom fram hjá þeim báðum að samkvæmt öllum venjulegum hagfræðilögmálum ættu háir vextir að draga verulega úr lánsfjáreftirspurn sem síðan leiddi til þess að vextir lækkuðu aftur. Báðir viðurkenndu þó að slík hávaxtabremsa hefði ekki virkað ennþá, hvað sem síðar yrði. Spurningin er hins vegar sú hvort réttlætanlegt sé gagnvart skuldurum að bíða enn með aðgerðir til þess að sjá hvort hagfræðin virkar á (slandi- •B/aðs/ða 5 Jón Sigurðsson Jóhannes Nordal | Frá atkvæðagreiðslu á Alþingi í gær. Eggert Haukdal á Alþingi í gær Vill afnema lánskjara- vísitöluna! í miklum önnum Alþingis í gær þar sem verið var að afgreiða fjárlög veittu fáir því athygli að iagt var fram frumvarp sem felur í sér möguleika á að afnema vaxtafrelsi eins og nú tíðkast. Þá er það ekki síður athyglisvert að frumvarpið kemur frá Eggert Haukdal þingmanni Sjálfstæðisflokksins sem stendur einn að því. Eggert sagði Tímanum í gær að lánskjaravístöluna yrði að taka úr sambandi. „Ég vil gera allt til að þessi bikar lánskjara- vísitölunnar verði tekinn frá þjóðinni,“ sagði þingmaðurinn. • Blaðsíóa 5

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.