Tíminn - 16.12.1987, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 16. desember 1987
Tíminn 13
BÓKMENNTIR
Annar áfangi Nordals
Sisurtur Nordal:
List eg lífsakoðun i-Ht,
Almenna bókafélagið 1967.
Almenna bókafélagið heldur nú í
ár áfram heildarútgáfunni á verkum
Sigurðar Nordals. Hún hófst í fyrra
með útkomu þriggja þykkra binda
sem báru samheitið Mannlýsingar.
Nú er áfram haldið með þremur
gildum bindum til viðbótar, rúmar
fjögur hundruð síður hvert, og bera
þau samheitið List og lífsskoðun.
Þar eru fyrst og fremst á ferðinni
skáldverk Nordals og skrif hans um
heimspekileg efni, en ýmis önnur
meira eða minna skyld verk fylgja
þarna þó með. Bindin eru smekklega
skreytt með myndum af höfundi frá
ýmsum tímum og af ýmsum atvikum
í lífi hans. Líkt og við hin bindin þrjú
var það Jóhannes Nordal sem hafði
umsjón með útgáfunni, en í ritnefnd
með honum voru þeir Eiríkur
Hreinn Finnbogason, Kristján
Karlsson og Ólafur Pálmason.
Fyrsta bindinu er síðan gefið sér-
heitið Fornar ástir, eftir vel þekktu
riti Nordals með því heiti, og er þar
safnað saman sögum hans, ljóðum
og leikritum. Þar er líka aldarminn-
ing hans eftir Þórhall Vilmundarson
prófessor. Annað bindið heitir
Andstæður. og er það nafn sótt í
Hannesar Árnasonar fyrirlestra
Nordals um einlyndi og marglyndi.
Þeir eru þar prentaðir, ásamt grein-
um hans úr ritdeilu þeirra Einars H.
Kvaran, sem fræg varð á sinni tíð, og
nokkrum greinum um skyld efni.
Loks hefur þriðja bindið svo
undirheitið Afangar. eftir víðkunnu
greinasafni höfundar, og má því
með réttu segja að hér sé annar
áfangi Nordals kominn út. f því
bindi er Líf og dauði ásamt eftirmála
og greininni Díalektísk efnishyggja,
og greinar og fyrirlestrar um ýmis
efni, sem þarna eru sett fram undir
fyrirsögnunum Hugleiðingar, Há-
skóli og fræði, Listir, Heilbrigði og
útivist og Endurminningar, sem
segja til um efni þeirra.
Nú er það sannast sagna og hverj-
um manni kunnugt að Sigurður
Nordal var margskiptur í áhugamál-
um sínum og kom víða við. Hér er
skiljanlega aðeins sýndur hluti af
verkum hans, eða fyrst og fremst sá
sem segja má að liggi eftir skáldið og
heimspekinginn. Og er þar vissulega
komið víða við, þannig að þó ekki
væri til frá hendi hans annað en það
sem hér er innan spjalda þá mætti
það samt þykja ærið, jafnt að vöxt-
um sem gæðum.
Sjálfur veit ég lítið um heimspeki
og kann því ekki að setja þau verk
hans niður innan vísindalegs ramma.
En þó las ég á sínum tíma bæði
greinarnar úr ritdeilu hans og Einars
H. Kvaran, svo og Líf og dauða, mér
til ánægju og menntunarauka, og
svo hefur vissulega verið um fleiri.
Fyrirlestrunum um einlyndi og
marglyndi er ég miður kunnugur, en
veit þó að þeir vöktu gífurlega
athygli þegar hann flutti þá í Reykj-
avík veturinn 1918-19. Þeir komust
þó ekki á prent fyrr en á síðasta ári,
þegar Hið íslenska bókmenntafélag
lét prenta þá í vísindalegri útgáfu
þeirra Þorsteins Gylfasonar og
Gunnars Harðarsonar.
f þessari útgáfu eru fyrirlestrarnir,
að því er segir hér í formála, prent-
aðir í eins konar lestrarútgáfu fyrir
almenning, þ.e.a.s. aðeins birtur
einn texti þeirra þar sem fleiri eru til
og þeim köflum, sem eru ágrip-
skenndir eða ófullgerðir frá höfund-
ar hendi, er sleppt. Er þannig hér á
ferðinni önnur gerð þeirra, og vænt-
anlega aðgengilegri, heldur en sú
sem Bókmenntafélagið gaf út í fyrra,
og að því leyti hefur þessi nýja
útgáfa sjálfstætt gildi.
Að því er varðar þessi þrjú nýju
bindi þá hygg ég að bókmennta-
mönnum að minnsta kosti þyki einna
mestur fengur að fyrsta bindinu, því
sem geymir skáldskap Nordals. Það
er til marks um fjölhæfni hans að
hann var meðal margs annars í
fremstu röð nýrómantísku skáld-
anna hér í upphafi aldarinnar, og
margt í skáldskap hans stendur enn
fyllilega fyrir st'nu. Þetta á ekki síst
við um prósaljóðið Hel, sem bók-
menntasögulega skoðað verður að
telja til meginverka nýrómantíkur-
innar, og margt í öðrum ljóðum
hans og smásögum er einnig vel vert
athugunar enn þann dag í dag.
Heildarútgáfa á skáldskap Nordals
hefur ekki verið til í aðgengilegu
formi til þessa, og að því leyti má
segja að fyrsta bindið sé hér sérstak-
lega gagnlegt.
Að öðru leyti eru það svo vita-
skuld fyrst og fremst gamlir kunn-
Sigurður Nordal, blýantsteikning
eftir Nínu Tryggvadóttur.
ingjar sem við rekumst á í þessum
bókum. f öðru bindinu eru til dæmis
ýmsar greinar sem gamlir Nordals-
aðdáendur þekkja vel, svo sem Mar-
ía guðsmóðir, Laugardagur og
mánudagur og Drengskapur. f því
þriðja eru til að mynda greinar eins
og Kurteisi, og greinin Manndráp,
sem mikla athygli mun hafa vakið á
sínum tíma. Allt eru þetta verk sem
vel eru þekkt frá fyrri tíma en hafa
til þessa verið dreifð hingað og
þangað um hinar ýmsu bækur
höfundar síns.
Af óprentuðu efni vil ég fyrst og
fremst nefna erindið Pundið, sem
Sigurður flutti yfir stúdentum í ís-
lenskum fræðum hér við Háskólann
vorið 1966 og fengur er að fá á prent.
Þá vil ég einnig nefna grein sem
nefnist Loftferð yfir Eystrasalt, en
hún mun hafa verið prentuð í Eim-
reiðinni 1926 og einhverra hluta
vegna hefur hann ekki tekið hana
upp í bækur sínar.
Þessa grein hafði ég ekki lesið
fyrr, og er svo skemmst frá að segja
að hún kom mér skemmtilega á
óvart. í henni segir Nordal frá fyrstu
flugferð sinni, sem hann mun hafa
farið frá Helsinki til Stokkhólms
sumarið áður, vaatanlega 1925.
Þetta er lýsing írá fyrstu dögum
flugsins, en nánar Á tekið fór hann
þarna með sjóflugvél, og raunar
tveimur frekar en einni, og far-
þegarnir voru aðeins þrír. Þetta varð
hin mesta hrakningsferð, því að fyrri
vélin varð að nauðtenda á sjónum,
og reyndar einnig sú sem send var í
stað hennar, þótt búo kæmist svo að
lokum á leiðarenda. Ekki vissi ég
fyrr að sjálfur Sigurður Nordal hefði
orðið svo frægur að lenda í flug-
hrakningum, en hér er á ferðinni
bæði greinargóð lýsing á ferðalaginu
og góð heimild úr norrænni flugsögu
frá árdögum hennar.
f stuttu máli sagt þá verður að
telja verulegan feng að þessum þrem
bindum, líkt og hinum sem komu út
í fyrra. Sigurður Nordal var sá risi í
íslensku menningar- og bókmennta-
lífi að til verka hans verður vitnað
um langa hríð og til þeirra ieitað
þegar menn þurfa að skýra einhverja
þætti í íslenskri menningarsögu sam-
tíma hans. Vissulega er hér ekki
margt nýtt á ferðinni, en efniviður-
inn er það vænn að það er meir en
við hæfi að gefa hann út í vönduðum
búningi líkt og hér er verið að gera.
Út á frágang þessara þriggja binda
kann ég ekki að setja, að því frátöldu
að í fyrsta bindi er sagt að blýants-
teikning eftir Nínu Tryggvadóttur af
Sigurði Nordal standi þar gegnt
titilsíðu, og hið sama er endurtekið
í myndaskrá aftast í þriðja bindi.
Hún er þar þó ekki í eintaki því sem
ég fékk í hendurnar, en aftur er hún
utan á öskjunni sem bækurnar þrjár
eru í. Vonandi er þetta ekki svona í
öllu upplaginu. -esig
Hnitmiðuð líkingasaga
Ómar Þ. Halldorsson:
Bllndflug,
Almenna bókafélagið 1987.
Sálfræðilegar skáldsögur eru sann-
ast sagna elfki ýkja margar til hér-
lendis, en ekki sé ég þó betur en að
hér hafi ein slík bæst við. Að ytra
formi er þetta saga ungrar konu
þann stutta tíma sem hún er á leið
með flugvél frá Reykjavík áleiðis til
Egilsstaða. Nánar til tekið ber þetta
þannig til að Flugleiðir aflýsa flugi
þangað, en í staðinn taka nokkrir
væntanlegir farþegar sig saman og
safna hópi í tíu manna leiguvél.
Raunar fer svo að vélin lendir í
óveðri á leiðinni og verður að nauð-
lenda, en þrátt fyrir það fer því fjarri
að hér sé einungis um að ræða
einhverja innantóma spennulýsingu
á ævintýralegri flugferð sem endar
með flugslysi og farsælli björgun
aðalpersónunnar. Hér er allt annað
til umfjöllunar.
Nánar til tekið er hér um það að
ræða að verið er að gera sálfræðilega
úttekt á þessari konu, lífi hennar og
andlegu ásigkomulagi. Til skýringar
skal þess getið að hún er nýlega
skilin við mann sinn, sem er há-
menntaður kennslufræðingur. í um-
rótinu eftir skilnaðinn hefur hún átt
vingott við eina þrjá karlmenn, tón-
listarkennara og ungan pilt vestan af
eru Ijósin
í lagi?
yUMFERÐAR
RÁÐ
fjörðum, sem báðir eru sjúklingar á
geðsjúkrahúsi þar sem hún starfar,
og ungan leðurjakkapilt sem hún
kynntist á veitingastað. Með þessum
mönnum hefur hún fifað í taumlausu
kynsvalli, og nú er hún á flótta heim
til foreldra sinna fyrir austan, sem
svo er að skilja að hafi spillt henni í
bernsku með eftirlæti og ofdekri. Og
hið eiginlega viðfangsefni sögunnar
er að lýsa því er konan rifjar upp
ýmsar minningar sínar frá nýliðnum
mánuðum, svo og öðru því sem fram
fer í hugskoti hennar meðan á þess-
ari flugferð stendur.
Nú er það sannast sagna að eftir
því sem konunni er lýst þarna þá má
víst teljast leika meir en vafi á því að
hún sé heil á geðsmunum. Sálf-
ræðingar og geðlæknar eiga vafa-
laust eitthvert nafn yfir það sem hér
er á ferðinni, en frá leikmannssjón-
armiði liggur kannski einna beinast
við að tala um ósköp venjulega og
hreint yfirgengilega sjálfselsku.
Sjúkdómsgreining gæti hljóðað
eitthvað á þá leið að manneskjan
væri svo upptekin af sjálfri sér að
það kæmi í veg fyrir að hún gæti
komist í heilbrigt og eðlilegt vinátt-
usamband við annað fólk. Óþægind-
in, sem þetta veldur henni, birtast
svo fyrst og fremst í ofskynjunum,
þegar henni finnst að framundan sér
sé einungis svartnætti og óyfirstígan-
legar gjár sem engu sé fært yfir. Með
öðrum orðum alvarleg þunglyndis-
köst sem hún virðist ekki ráða við
eða geta hrist af sér.
Það fer víst ekki á milli mála ao
nú á dögum er lífið orðið töluvert
flóknara en var í gamla sveitasamfé-
laginu hér áður fyrr. Þetta veldur því
að það fjölgar þeim tilvikum þegar
fólk lendir í sálrænum erfiðleikum af
ýmsu tagi, eða kemst beinlínis í
andlegt kreppuástand að því er varð-
ar sjálfa grundvallarspurninguna um
tilvist sína, hlutverk sitt í lífinu og
tilganginn með því að vera yfirleitt
að basla við þetta allt áfram.
í slíku ástandi er þessi kona, og
verður víst síður en svo sagt að
hlutskipti hennar sé öfundsvert.
Ekki verður séð að höfundur setji
hér fram neina lausn á vanda hennar,
Ómar Þ. Halldórsson rithöfundur.
enda má meir en vera að hún sé
engin til, utan þá að leita aðstoðar
sérfræðinga í geðrænum vandamál-
um. Þvert á móti virðist sá vera
megintilgangur hans að lýsa þessu
ástandi, draga upp af því mynd.
Og í því efni tekst honum í einu
orði sagt forkunnarvel til. Hér er á
ferðinni annars vegar lýsing á and-
legu kreppuástandi konunnar, sem
erfitt er að sjá að geti endað annars
staðar en í innilokaðri blindgötu.
Hér er svo hins vegar á ferðinni
lýsing á flugvél í blindflugi beint út í
óveður, og sú ferð er sömuleiðis út í
óvissuna og endar raunar með þeirri
brotlendingu sem fagmannlega er
undirbúin allt frá upphafi sögunnar.
Listrænt gildi þessarar skáldsögu
felst svo að langstærstum hluta til í
því hvernig þessar tvær yfirgrips-
miklu myndir eru þar felldar saman
í eina líkingu, sem síðan verður allur
burðarásinn í bókinni: Á sama hátt
og flugvélin heldur út í tvísýnu sem
á fyrir sér að enda með skelfingu þá
er konan komin í þá blindgötu sem
getur ekki leitt til annars en að hún
rekist þar á vegg sem loki fyrir allar
undankomuleiðir.
Það er í þessari tvískiptu listrænu
uppbyggingu sem mér virðist að
góður árangur höfundarins liggi hér
fyrst og fremst. Þessutan er ljóst að
hann hefur tamið sér mjög vönduð
vinnubrögð, enda ber allur texti
hans það með sér að vera þaulhugs-
aður og vel og fagmannlega unninn
allt frá upphafi til enda. Viðfangsefni
sögunnar er að vísu heldur
óskemmtilegt vandamál, sem af
sjálfu leiðir að erfitt er að gera um
bók sem sé einn saman skemmtilest-
ur. Hugsanlega hefði mátt bæta þar
dálítið úr með því að breyta um
söguhorn af og til, sýna sviðið til
dæmis frá sjónarhóli einhvers þátt-
takanda með óbrenglað veruleika-
skyn, eða þá með augum alviturs
sögumanns. En frumleg líkinga-
smíði, sem ber vott um óskeikult
skáldlegt hugmyndaflug, samfara
vönduðum og fagmannlegum vinnu-
brögðum höfundar, valda því eigi að
síður að bók hans kemur jsægilega á
óvart.
Út á frágang bókarinnar kann ég
ekki að setja, utan hvað kápumynd
er villandi. Konan sést þar í gegnum
glugga á flugvél sem er miklu stærri
en sú sem hún flaug með í sögunni
og minnir raunar meira á Fokkerinn
sem hún fór ekki með. -esig
Annálar flugmála
Komin er út bókin Annálar ís-
lenskra flugmála 1936-1938 eftir
Arngrím Sigurðsson. Er þetta fjórða
bókin í ritröð um þetta efni, en hinar
fyrri náðu yfir árin 1917-1928, 1928-
1931 og 1931-1936. Fyrri bækurnar
voru gefnar út af Bókaútgáfu Æsk-
unnar, en útgefandi þessa bindis er
íslenska flugsögufélagið.
t formála þakkar höfundur ís-
lenska flugsögufélaginu fyrir að hafa
tekið útgáfuna að sér. Hann bendir
þar á að þeim, sem fletti þessum
spjöldum flugsögunnar, verði ljóst
að flugmálaþátturinn í lífi þjóðar-
innar hafi ekki alltaf haft byr, síst
undir báða vængi. í þessu bindi segir
hann að sé fjallað um þá menn og
þau félög sem rutt hafi brautina til
ANNÁLAR
ÍSLENSKRA FLUGMÁLA
1916-1938
frambúðar. Störf þeirra hafi borið
þann árangur að á okkar tímum sé
rekin margþætt og í raun glæsileg
flugmálastarfsemi á íslandi. Þá ritar
Sigurður Helgason stjórnarformað-
ur Flugleiða ávarp í bókina, í tilefni
af því að í ár eru liðin 50 ár frá
stofnun Flugfélags Akureyrar, fyr-
rennara Flugleiða.
I bókinni er síðan rakin saga flugs
hér á landi á þessum árum. Áberandi
er að starfsemi svifflugmanna er
fyrirferðarmikil þar, en einnig segir
þar mikið af fyrstu flugvélunum sem
reknar voru hér á landi. Bókin er
ríkulega myndskreytt og hin for-
vitnilegasta heimild um flugið hér á
landi á þessum árum. -esig.