Tíminn - 16.12.1987, Page 15

Tíminn - 16.12.1987, Page 15
Miðvikudagur 16. desember 1987 Tíminn 15 ARNAÐ HEILLA 75 ára: Engilbert Guðmundsson bóndi að Hallsstöðum við ísafjarðardjúp ísafjarðardjúp var oft nefnt „Gull- kistan" hér áður fyrr. Var það m.a. vegna þess, hve vel Djúpið gaf af sér til matar fyrir fólk, bæði fisk, fugl og sel. - Sagnir frá 18. öld herma, að við Isafjarðardjúp hafi fólk komist bærilega af meðan mannfellir var víða annarsstaðar um landið. Það þætti ekki góður kostur í dag fyrir ungt fólk, að koma sér fyrir á lítilli eyri við ósa jökulár, með kalda tungu Drangajökuls lafandi niður í Kaldalón. Þarna var þó oft hlýtt yfir sumartímann og sjóbleikjan læddi sér fram með eyrinni, inn í Mórillu og þverár hennar. - Byggð hefur verið á Lónseyri um aldir þó nú sé komið í eyði fyrir nokkru og fram á þennan dag í eigu sömu ættar á þriðju öld... Það þótti því sjálfsagður hlutur árið 1890, þegar Guðmundur Engil- bertsson tók við búi af föður sínum, ásamt eiginkonu sinni Sigríði Jens- dóttur. Hún átti fyrir 2 börn, en fyrri manninn missti hún í sjóinn. Þau Guðmundur og Sigríður eignuðust 11 börn. Ellefta og síðasta barn þeirra fæddist að Lónseyri þann 16. desember 1912. Það var drengur og hlaut hann nafnið Engilbert. . Engilbert Guðmundsson sleit barnsskónum að Lónseyri. Hann hefur trúlega snemma lært að um- gangast margbreytilega náttúru Kaldalóns, hina hlýju og litríku ásjónu þess að sumarlagi og síðan kuldalegt yfirbragð vetrarins. Umgengni hans síðar á æfinni við öll dýr hvort sem villt voru eða húsdýr, merkti ýmsa þá uppeldis- þætti sem í heiðri hafa verið hafðir á Lónseyri. - Ég minnist þess oft, er ég hafði nú fengið bílpróf og kom akandi heim að Hallsstöðum, skýrði ég þessum veiðimanni og skyttu frá því að ég hefði nærri náð að aka yfir tófu inni í ísafirði. Hann þagði við en sagði svo: „Gylfi minn, þú mátt aldrei reyna að aka yfir nokkra skepnu, tófan á sinn tilverurétt og ljótur hlutur að skaða hana með þessum hætti“. Trúlegt er að oft hafi verið þröng- ur kostur á'Lónseyri, mörg börnin og allir aðdrættir með versta móti. Fólkið á eyrinni varð að sníða sér stakk eftir vexti, vinna margt heima sem ekki var hægt að borga fyrir annarsstaðar. Peningarnir ultu nú ekki ofan úr hlíðinni. - Snemma bar á að Engilbert var verklaginn og fór vel með byssu. Eldri systkini hans hlutu sína skólagöngu að þeirra tíma hætti í héraði eða voru send á námskeið á ísafjörð. Á fyrri hluta fjórða áratugarins varð mikil bylting í menntunarmál- um við ísafjarðardjúp, er Héraðs- skólinn í Reykjanesi var stofnsettur. - Ráðist var í að senda Engilbert á þennan skóla. Það kostaði meiri peninga en heimilið hafði jafnvel ráð á, en hann var verklaginn og greindur. Það voru hans eldri syst- kini einnig, en þau áttu ekki kost á þessum skóla þá. Jens á Lónseyri mun hafa stutt þessa skólagöngu bróður síns með ráðum og dáð. Skólaár hans voru árin 1936 og 1937, þrír mánuðir hvorn vetur. Sagt er að menntun hans hafi verið með ólíkindum eftir þessa skólagöngu. Eftir 1940 hóf Engilbert búskap á Lónseyri móti Jens bróður sínum. Áður hafði hann stundað sjóróðra og einnig verið um tíma að Áuðnum á Vatnsleysuströnd hjá Kolbeini Guðmundssyni bróður sínum. Sennilega hefur þeim Lónseyrar- bræðrum Jens og Engilbert orðið fljótlega ljóst, að þessi litla eyri mundi ekki bera tvo þessa athafna- menn um framtíð, enda um það leyti miklar breytingar í landbúnaði og lifnaðarháttum fólks, frá því sem áður var. Engilbert leitaði eftir öðru jarðnæði og festi kaup á jörðinni Hallsstöðum í Nauteyrarhreppi, inn- ar við Isafjarðardjúp. Síðar fékk Jens jarðnæði í Bæjum á Snæfjalla- strönd, keypti þá jörð og situr hana enn. Þá lagðist Lónseyri í eyði, en hvert fótmál þar á langa sögu gegn um aldir. Þeir Lónseyrarbræðurgáfu hvor öðrum stuðning og gera enn. Þann 20. júní 1945 rann upp fögur morgunstund við Isafjarðardjúp. Það var blankalogn og sól skein í heiði. Þennan dag hafði Engilbert á Lónseyri valið til að flytjast búferl- um að Hallsstöðum. Að vanda hafði hann íhugað málin vel, undirbúið ferðina af kostgæfni og skipulagt alla þætti málsins. Hann hafði fengið Kjartan Halldórsson frá Bæjum til Lónseyrar með trillu og á henni var öll búslóðin flutt að Hallsstöðum. Hann hafði einnig ráðið systur sína, Ólafíu Guðmundsdóttur til að standa fyrir búi að Hallsstöðum fyrst um sinn. Þennan sama dag lagði hún upp frá Lónseyri á hestum og hafði sér til aðstoðar ungan pilt, Ragnar Sigurðsson að nafni. Hennar hlut- verk var að koma tveimur kúm þeirra Engilberts að Hallsstöðum frá Lónseyri. Á þeim tíma var langur vegur frá Lónseyri að Hallsstöðum. Hún rak kýrnar inn Kaldalón og yfir leirurnar trúlega á fjöru. Lónið skartaði sínu fegursta í júnísólinni og jafnvel jökultungan hefur brosað sínu feg- ursta til ungu konunnar, er hún reið yfir Kaldalón með drenginn og kýrnar. Það hefur verið söknuður hjá kúnum að yfirgefa Lónseyrina sína og fara á vit hins ókunna, en enginn veit hvað unga konan hugsaði sem bar ábyrgð á þessum flutningi frá æskustöðvunum á vit hins ókunna. - Trúlega hefur hún áð í Kaldalóni, síðan fór hún framhjá Ármúla, Melgraseyri, Hamri og þeg- ar hún kom með drenginn og kýrnar inn af Vatnahjallanum sá hún yfir bæinn við voginn. Bærinn var tvílyft timburhús, byggt af Höskuldi Jóns- syni bónda að Hallsstöðum, yfir- smiður var Valdimar. Húsið var orðið gamalt og lúið, en bar sig vel. Flaggstöng var á norðurkvisti og þar var flaggað, er Sveinn Björnsson forseti íslands heimsótti ísafjarðar- djúp á skipi. Útihús voru úr torfi og timbri, gömul og illa á sig komin. Túnið lítið en afgirt, fegurð og friður hvíldi yfir umhverfinu. Er Ólafía kom heim að bænum með sitt föru- neyti, tók á móti henni ungur drengur, Rafn Vigfússon að nafni. Hann hafði dvalið hjá hálfsystur sinni Emilíu Vigfúsdóttur og Jakob Jónssyni að Hallsstöðum um árabil. Þau seldu Engilbert jörðina. Þarna hitti Ólafía fyrir fyrsta drenginn sem hún ól upp. Þeir urðu þrír, sem hún og Engilbert gengu í foreldrastað, fyrir utan tugi barna sem hjá þeim hafa verið um skemmri og lengri tíma. Ólafía yfirgaf aldrei Hallsstaði. Engilbert heyjaði um sumarið og allt slegið með orfi og ljá. Um haustið var féð rekið frá Lónseyri inn að Hallsstöðum. Seint um haust- ið datt niður þakið á fjárhúsum inn á hól. Hann lagaði þakið, en þetta var fyrirboði til hans hver hans verkefni yrðu um framtíð. Næsta sumar fékk hann sér hestasláttuvél. Síðan hófust verkefnin, hvert á fætur öðru. Tún voru stækkuð, öll útihús byggð að nýju og flutt í nýtt íbúðar- hús fyrir jólin 1963. Hann var yfir- smiður að öllum sínum byggingum. Hann lagði víða hönd á plóginn við MINNING Klara Magnúsdóttir Fædd 16. október 1931 Dáin 6. desember 1987 Langt veikindastríð er á enda, lausn er fengin. Kona á miðjum aldri er hnigin í valinn. Góðu dagsverki er lokið. Hvenær er starf eiginkonu og móður ofmetið? Kona sú sem hér er minnst, vann ævistarf sitt innan veggja heimilis síns. Hún helgaði starfsorku sína manni og börnum fyrst og fremst. Klara hét hún og fæddist hinn 16. dag októbermánaðar 1931 í Vest- mannaeyjum. Þar bjuggu foreidrar hennar Magnús Þórðarson og Gísl- ína Jónsdóttir. Þau eignuðust all- mörg börn. Þrjár systurnar giftust til Þykkvabæjar í Rangárþingi. Auk Klöru voru það þær Halldóra Guð- leif, sem giftist Sigurbjarti Guðjóns- syni, oddvita í Hávarðarkoti, og Sigríður, er giftist Yngva Markús- syni bónda í Odds-Parti. Klaragiftist svo ungum bóndasyni í Þykkvabæ árið 1954, Hákoni Hafliðasyni frá Búð. Reistu þau bú á nýbýli út úr Búðarlandi, er þau nefndu Háteig. Þar bjuggu þau í tvo áratugi, að flutt var til höfuðstaðarins. Ég leyfi mér að kenna Klöru við Háteig, því að húsfreyja frá Háteigi þar dvaldi hún besta hluta ævinnar og kom börnum sínum á legg. Þau eru fjögur, talin í aldursröð: Guðrún Birta. gift Trausta Valssyni sálfræði- ngi, Magnús Óskar, í sambúð, Gísl- ína, í sambúð, og Guðfinna, er enn dvelur heima. Mannvænlegur hópur, sem geymir Ijúfar minningar um góða móður. Ég kynntist Klöru að sjálfsögðu, erégdvaldist í Þykkvabænum. Kona mín sáluga og Klara voru miklar vinkonur. Gaman var að blanda geði við Klöru, því að hún var létt í lund og laus við víl, þrátt fyrir slaka heilsu lengst af. Fyrir tæpum átján árum gekkst hún undir mikla aðgerð vegna meinsemdar í brjósti. Virtist þá sem komist hefði verið fyrir sjúkdóminn og hann lét ekki á sér bera næstu árin. En smátt og smátt tók þessi lævísi sjúkdómur að sá sér út og rúmföst var svo Klara, vinkona okkar, frá því í maí sl. Um tíma var hún að vísu til hressingar í Hvera- gerði í sumar sem leið. Var Hákon þá meö henni þar til halds og trausts. Klara var manneskja sern allir héldu af, öllum vildi vel. Hún var hlédræg, í góðri merkingu þess orðs. Hún var ekki að sýnast. Að lokum er samúðarkveðja til Hákonar og barnanna frá okkur hjónum. Minningu Klöru frá Hátegi geyma margir í þakklátum huga, það er ég viss um. Þökk fyrir sam- fylgdina, hún var ánægjuleg. Auðunn Bragi Sveinsson lllllllllllllllllllllllllllllll! nrii húsasmíði í sínu héraði gegn um árin m.a. yfirsmiður að íbúðarhúsinu á Hamri og lagði hönd að bryggju- smíði á Arngerðareyri. Árið 1948 um vorið ákváðu þau Ólafía og Engilbert að taka í upp- fóstur annan dreng. Þau hafa trúlega fundið að aðstaða þeirra og umhverfi kynni að gefa ekki síðri uppvaxtar- skilyrði en annarsstaðar. - Svanfríð- ur amma mín valdi mér þennan stað til að vera á. Ég var fjögurra ára gamall og ég fór um borð í Fagranes- ið á ísafirði. Hann Láki kokkur passaði mig á leiðinni inn í Djúp. Það var kallað að fara til vanda- lausra. Ég man enn veðrið, er Djúpbáturinn kom að Hallsstöðum. Það var sól, en árabáturinn valt svolítið sem kom frá landi. Þeirsettu mjólkurbrúsa upp í Fagranesið og aðra niður í árabátinn. Svo var mér lyft upp út fyrir borðstokkinn. Ég fann traustar hendur taka við mér úr árabátnum og ég var settur aftur í skut. Þetta voru hendur Engilberts á Hallsstöðum. Er í land kom tók ég vörubílinn minn og dró hann upp tröðina heim að bænum. Þarna fann ég fljótt til öryggiskenndar og hefi haldið henni síðan. Ég óx úr grasi og fylgdist grannt með breytingum í búrekstrinum. Eitt sumarið hætti hann að nota hesta fyrir hestasláttuvélina og það kom gömul Ford dráttarvél frá hon- um Kolbeini á Auðnum að Halls- stöðum. Hún var í fínu lagi og dró hestasláttuvélina með einhvern sumarstrák á sláttuvélinni, en Engil- bert stjómaði dráttarvélinni. Svo fékk hann sér jeppa og það var keypt sérfín sláttuvél við hann. Svo kom Massey Ferguson og hann fékk við- eigandi sláttubúnað við hliðina á sér. Síðan kom stór Ford dráttarvél með húsi, þurrku og miðstöð og aftan í hana eitthvað það alfínasta sem gildir enn þann dag í dag, einhver þyrla. Ég man, að hann var alla tíð að lagfæra og gera við tækin sín. Hann fylgdist greinilega vel með framþró- un í sínum rekstri, en ætlaði sér aldrei um of. Búið var aldrei stórt, en það var hagkvæmt og vel rekið. Árið 1960 í september kom enn einn drengur að Hallsstöðum. Hann var fjögurra mánaða gamall, í fýlgd með honum var móðir hans og hún Mumma hans Jens í Bæjum. - Hann varð eftir í umsjá Ólafíu og Engil- berts. Hann heitir Revnir Snædal Magnússon. Þetta var þriðji dreng- urinn, sem þau tóku til fósturs og hann er enn í foreldrahúsum. Það er mikið vandaverk að taka að sér uppeldi barna, ekki síst þegar um annarra börn er að ræða. Halls- staðaheimilið hefur tekið að sér þetta hlutverk í ríkum mæli, bæði til skemmri og lengri tíma. Það mætti vera umhugsunarefni ýmsum, sem ekki sjá fram fyrir nefið á sér. Á þeim tímamótum, er mönnum verður ljóst að þeir eigi 75 ár að baki, er eðlilegt að þeir rifji upp allar sínar athafnir og gjörðir á æfiferlin- um. Engilbert Guðmundsson á Hallsstöðum stendur frammi fyrir því, að eiga fjölda vina í þeim strákum sem hann hefur verið sam- ferða við Djúpið. Hann hefur haldið jörð sinni vel við, í hans umsjá hefur jörðin orðið að dýrgrip. Sumir aðrir gera jarðir sínar að engu. Það var harkalegt, er hann síðast liðið vor missti fjóra fingur af hægri hendi í slysi. Hann átti það ekki skilið, og enginn skildi hvers vegna slysið varð. Hann heldur áfram búskap, en kýmar varð að leiða úr fjósinu, senni- lega í fyrsta sinn í sögu Hallsstaða um margra alda skeið. Ein kýr er þó eftir og mjólkar vel. Engilbert Guðmundsson hefur verið í hreppsnefnd Nauteyrar- hrepps í 16 ár. Hann gaf ekki kost á sér við síðustu kosningar. Hann hafði áhuga á að fiskeldi mætti komast á legg í hans landareign og eru tilraunir f þá átt komnar vel á veg. Tómstundir hans hafa oft og tíð- um verið landslagsmálun og ljóða- gerð. Á yngri árum málaði hann, en á efri árum yrkir hann. Hann hafði einnig gaman af að spila, en það fór með hægri höndinni. Vísnagerðina tekur enginn af honum og hann vélritar vísurnar upp með vinstri hönd. Hann hefur harðbannað mér að birta sínar vísur á prenti en ég tek mér bessaleyfi. Árið 1985 orti hann um alla bæi í Nauteyrarhreppi sem í byggð voru. Síðan tók hann fyrir eyðibæina. - Mér finnst við hæfi að laumast ofurlítið í þennan brunn hans og hnupla hér vísu sem skráð er í „Bæjatali“ varðandi hans eigin bæ. Hallsstaðir fyrr í öllu falli fengu nafn af Landnáms-Hahi en Pórhallur því staðinn kallar þarna svo, að landi hallar. Fyrir hönd okkar þriggja fóstur- sona þinna sendi ég kveðjur og hamingjuóskir á þessum merka æfiáfanga er þú verður 75 ára í dag. - Meðfram okkar óskum koma kveðjur frá öllu því unga fólki sem hefur verið ykkur Lóu samvista gegn um tíðina að Hallsstöðum. Mosfellssveit í desember 1987 Gylfi Guðjónsson. VÖRUMERKI VANDLATRA NÆRFATNAÐUR NÁTTFATNAÐUR CALIDA Heildsölubirgðir: igurjónsson íjf. Þórsgata 14 - sími 24477

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.