Tíminn - 30.12.1987, Side 2

Tíminn - 30.12.1987, Side 2
2 Tíminn Miðvikudagur 30. desember 1987 Bætur almannatrygginga: Hækka um 5% 1. jan. Siglufjörður: 60 þúsund tonnum af loðnu landað Frá 1. janúar 1988 hækka allar almennar bætur almannatrygginga um 5% en tekjutrygging og heimilis- uppbót hækka um 8%. Hækkun á bótum almannatrygginga skiptist þannig að 3% hækkun verður vegna almennra launahækkana í landinu um áramót, en það sem upp á vantar, 2% hækkun, er hlutur heil- brigðis- og tryggingaráðuneytis af 280 milljónum vegna fyrirhugaðra breytinga á tolla- og skattalögum, en hinir tveir þriðju hlutar upphæðar- innar fara til niðurgreiðslna land- búnaðarvara og hækkunar barn- abóta. Eftir hækkun verða bótaupphæðir þessar: Elli- og örorkulífeyrir einsiaKnngs ..............«•-»->-» Ellilífeyrir hjóna...........5.363 Tekjutryging einstakl. . . . 15.247 Tekjutrygging hjóna........ 30.494 Heimilisuppbót...............5.183 Sérstök heimilisuppbót .... 3.565 Barnalífeyrir (1 barn)......5.227 Mæðra/feðralaun (1 barn) . . 3.276 Mæðra/feðralaun (2 börn) . . 8.583 Mæðra/feðralaun (3 börn) . 15.224 Ekkju/ekklab., 6 mán og 8 ára bætur (skv.17.gr. almtrl) . . 10.695 Ekkju/ekklabætur, 12 mánaða bætur (skv. 17. gr. almtrl) . . 8.020 Fæðingarstyrkur ...........17.370 Fæðingardagpeningar...........729 Vasapeningar (skv. 19. gr. almtrl) ....................5.263 Vasapeningar (skv. 51. gr. almtrl) ....................4.423 Eftir þessa hækkun verða hæstu bætur einstaklings, sem fær fulla heimilisuppbót kr. 32.530. óþh Öm I»órarinsson fréttaritari Tímans í Fljótum skrífar: Tæp 60 þúsund tonn af loðnu bárust til Síldarverksmiðju ríkisins á Siglufirði á haustvertíðinni sem er að ljúka, en á sama tíma í fyrra voru komin 140 þúsund tonn til Siglufjarðar en þá var einnig met- vertíð. Síðasta einn og hálfan mánuð hefur verið brætt stanslaust hjá SR, en bræðslu var hætt 21. þessa mánaðar og verður ekki byrjað aftur fyrr en eftir áramót þar sem ekki þykir taka því að ræsa verk- smiðjuna fyrir bræðslu 3 til 4 sólarhringa. 4 til 5 þúsund tonn af loðnu eru nú í þróm verksmiðjunnar og gera forsvarsmenn hennar sér vonir um talsverða viðbót þegar veiðar hefj- ast aftur eftir áramótin. Um 40 manns vinna við loðnu- bræðsluna og er unnið á tvískiptum vöktum. I 70 AR G - GERIÐ VERÐSAMAIMBURÐ |i2oo* yoo INNI-BOMBUR 1 30 KJjNtJ »>* #*>•*•* < fHANOBLVSjij « * ♦ * » > V* i'i-**;^**: ::::::::::: -'*»**i *» »* t ♦.< ««»»♦**»’» • < tt * A ste 7o J OPIÐ 28., 29., 30. DES. TIL KL. 18.30, GAMLÁRSDAG TIL KL. 12.00. Ánanaustum, Grandagarði 2, símar 28855 - 13605. Til skipa: Pains Wessex línubyssur, svifblys og handblys - vörur með gæðastimpli. FariÖ varlega. GleÖilega hátíÖ. E

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.