Tíminn - 30.12.1987, Qupperneq 13

Tíminn - 30.12.1987, Qupperneq 13
Miðvikudagur 30. desember 1987 Tíminn 13 Utgerðarfélag Skagfirðinga sendir starfsmönnum sínum og viðskiptavinum bestu nýársoskir og þakkar samvinnu á árinu sem er að líða Útgerðarfélag Skagfirðinga h.f. Sauðárkróki Stef nt að 6 mánaða fæðingarorlofi Um næstu áramót ganga í gildi tvenn lög um fæðingarorlof. Ann- ars vegar lög um fæðingarorlof nr. 57/1987 þar sem um er fjallað rétt foreldra, sem gegna launuðum störfum til fæðingarorlofs. Hins vegar lög nr. 59/1987 um breytingu á lögum um almannatryggingar nr. 67/1971 með síðari breytingum, þar sem fjallað er um greiðslur bóta í fæðingarorlofi, til heima- vinnandi jafnt sem útivinnandi for- eldra. Markmið með setningu þessara tveggja laga er tvíþætt. Annars vegar að lengja fæðingarorlof í áföngum uns 6 mánaða orlofi verð- ur náð 1. janúar 1990. Hins vegar að breyta gildandi fyrirkomulagi hvað varðar rétt til fæðingarorlofs, m.a. með það fyrir augum að stíga fyrsta skrefið til samræmingar á réttindum kvenna sem starfa hjá opinberum aðilum og þeirra sem starfa á hinum almenna vinnu- markaði. Gefin hefur verið út reglugerð um fæðingarorlof nr. 546 frá 16. desember 1987 með stoð í lögum nr. 59/1987 um breytingu á lögum um almannatryggingar, sbr. lög nr. 57/1987 um fæðingarorlof. í reglu- gerðinni er fjallað um greiðslur Tryggingastofnunar ríkisins á bót- um í fæðingarorlofi. Reglugerðin nær ekki til þeirra sem njóta samn- ingsbundinna launa í fæðingaror- lofi. Helstu nýmæli reglugerðarinnar eru: 1. Frá 1. janúar 1988 verður fæð- ingarorlof fjórir mánuðir. Síðan lengist það um einn mánuð í fimm mánuði frá 1. janúar 1989 og sex mánuði frá 1. janúar 1990. 2. Bætur í fæðingarorlofi verða tvenns konar, fæðingarstyrkur, sem greiðist eingöngu mæðrum, og fæðingardagpeningar, sem foreldr- ar geta valið um hvort tekur, eftir ákveðnum reglum. Fæðingarpen- ingar og/eða fæðingarstyrkur greiðast því í fjóra mánuði á árinu 1988, fimm mánuði á árinu 1989 og sex mánuði frá 1. janúar 1990. Fæðingarstyrkur greiðist þeim konum, sem reglugerðin nær til, án tillits til atvinnuþátttöku. Fæð- ingardagpeningar greiðast hins veg- ar eftir atvinnuþátttöku síðustu 12 mánuðina fyrir töku fæðingaror- lofs. Fullir fæðingardagpeningar greiðast þeim sem unnið hafa 1032 til 2064 dagvinnustundir á tímabil- inu en hálfir greiðast þeim sem unnið hafa 516 til 1031 dagvinnu- stund. Þetta þýðir að hálft starf í hcilt ár dugir til fullra fæðingardag- peninga. 3. Fæðingarstyrkur verður kr. 17.370 frá 1. janúar 1988 og fæð- ingardagpeningar eru tvöfaldir sjúkradagpeningar eða 729 á dag miðað við 1. janúar 1988. Þessar fjárhæðir miðast við 5% hækkun almannatryggingabóta 1. janúar 1987 sbr. reglugerð frá 17. desemb- er 1987. Mánaðarlegar greiðslur fæðingardagpeninga fara eftir dagafjölda mánaðar. Greiðslur í fæðingarorlofi með fullum fæð- ingardagpeningum munu því verða kr. 39.969. miðað við 31 dag í mánuði. Greiðslur í fæðingarorlofi með hálfum fæðingardagpeningum munu verða kr. 28.670 miðað við 31 dag í mánuði. Heimavinnandi mæður eða mæður sem unnið hafa minna en 516 stundir síðustu 12 mánuði fyrir fæðingu munu fá 17.370 á mánuði. 4. Reglugerðin metur á annan hátt en gert var í eldri reglugerð at- vinnuþátttöku maka bænda annars vegar og námsmanna hins vegar. Báðir þessir aðilar fengu aldrei meira % fæðingarstyrks skv. eldri reglugerð. Atvinnuþátttaka maka bænda á sauðfjárbúum og kúabúum er met- in á þann veg að fullir fæðingardag- peningar fást. Sérstaklega skal meta atvinnuþátttöku maka bænda á blönduðum búum og í öðrum búgreinum. Námsmenn sem sannanlega hafa stundað nám í sex mánuði eða meira og sem jafna má til meira en 1032 vinnustunda fá og fulla fæð- ingardagpeninga auk fæðingar- styrks. Námsmenn sem sannanlega hafa stundað nám í 3-6 mánuði og sem samsvarar a.m.k. 516 dag- vinnustundum fá hálfa fæðingar- dagpeninga auk fæðingarstyrks. 5. Nýmæli er í reglugerðinni varð- andi áfrýjun. Gert er ráð fyrir að ef ágreiningur rís um greiðslur fæðingarstyrks eða fæðingardag- peninga þá geti lífeyrisdeild TR eða bótaþegi skotið þeim ágrein- ingi til Tryggingaráðs. Trygginga- ráði er gert skylt að úrskurða um slíkan ágreining innan mánaðar frá því að kæra berst. 6. Bráðabirgðaákvæði laga nr. 59/ 1987 hefur í för með sér að hafi taka fæðingarorlofs ekki hafist fyrir 1. október 1987 munu konur sent fæða börn eftir I. október 1987 njóta fjögurra mánaða fæðingaror- lofs. Á sama hátt munu konur sem fæða börn eftir 1. september 1988 og I. ágúst 1989 njóta fimm og sex mánaða fæðingarorlofs. Um þetta er nánar fjallað í reglugerðinni. 7. Reglugerðin gerir ráð fyrir að þeir sem njóta launaðs fæðingaror- lofs í þrjá mánuði geti sótt fjórða (fimmta og sjötta) mánuð fæðing- arorlofsins til Tryggingastoínunar ríkisins, enda hafi ekki verið sett önnur ákvæði í reglugerðir eða kjarasamninga sem snerta þessa aðila. í reglugerðinni er og gert ráð fyrir að þessir sömu aðilar njóti lengingarinnar sem felst í bráða- birgðaákvæði laga nr. 59/1987, þ.e. að fæðingarorlof verði fjórir mán- uðir vegna fæðinga eftir 11. okt- óber 1987, fimm mánuðir vegna fæðinga eftir 1. september 1988 og sex mánuðir vegna fæðinga eftir 1. ágúst 1989. Tryggingastofnun ríkisins greiðir þennan viðbótar- mánuð, enda hafi ekki verið sett önnur ákvæði í reglugerðir eða kjarasamninga sem snerta þessa aðila. Sendum bestu óskir um til starfsfólks, viðskiptavina landsmanna allra, með þökk fyrir samstarf og viðskipti á liðnu ári. íar hf. - Snæfugl Skipaklettur hf. Reyðarfirði

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.