Tíminn - 30.12.1987, Blaðsíða 16
16 Tíminn
Miðvikudagur 30. desember 1987
Effco þurrkjan gerir ekki við
bilaða bíla
En hún hjálpar þér óneitanlega að halda bílnum
þínum hreinum og fínum, bæði að innan og utan
einhver sullar eöa hellir niður. En
þaö gerir ekkert til þegar Effco
þurrkan er viö hendina.
Já, þaö er fátt sem reynist Effco
þurrkunni ofraun.
Það er meira að segja svolítið
gaman aö þrífa með Effco þurrk-
unni. Því árangurinn lætur ekki á
sér standa. Rykið og óhreinindin
legg'a bókstaflega á flótta. Þú getur
tekið hana með í ferðalagið eða
sumarbústaðinn. Það er aldrei að
vita hverju maður getur átt von á.
Oft er svigrúm lítið í tjaldi eða
sumarbústað, má því ekki mikið út
af bera til þess að allt fari á flot, ef
Effco-þurrkan fæst á betri bensínstöðvum
og. varahlutauerslunum.
Heildsala Högádeyflr — EFFCO i
Effco -purrKa n )—t
liml 73233
OLL VINNSLA
PRENTVERKEFNA
Við í Prentsmiðjunni Eddu tökum að
okkur hönnun og vinnslu á stórum og
smáum prentverkefnum.
Höfum yfir 50 ára reynslu í prentverki.
Reynið viðskiptin.
i l»REN í SMIDJAN i
Cl
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur.
Sími 45000.
Verkstjóri,
sölumaður í prentun
Óskum eftir að ráða reyndan offsetprentara sem
verkstjóra í prentdeild.
Óskum einnig eftir að ráða sölumann. Prentmennt-
un eða kunnátta um prentframleiðslu æskileg.
Prentsmiðjan Edda
Smiðjuvegi 3, Kópavogi
sími45000
BLIKKFORM
Smiðjuvegi 52 - Sími 71234
Öll almenn blikksmiðavinna.
Vatnskassaviðgerðir. Sílsastál á bíla
o.fl. (Ekið niður með Landvélum)
Er vegurinn háll?
Vertu því viðbúin/n að
vetrarlagi.
lUMFERÐAR FararheHf
Iráð
DAGBÓK
Þórunn Einarsdóttir og Stefán Bjarna-
son.
Gullbrúðkaup
í dag, miövikudaginn 30. desember,
eiga gullbrúðkaup hjónin Þórunn Einars-
dóttir og Stefán Bjarnason, Flögu í
Skriðdal, S-Múlasýslu.
ALMANNATRYGGINGAR 3 ’87
Tryggingaslofnun ríkisins gefur út
tímarit er nefnist Almannatryggingar, en
ritstjóri blaðsins er Örn Eiðsson. Leiðar-
inn nefnist: Heilbrigði er dýrmætasta
eignin. Þá er viðtal viö Pál Sigurðsson,
fyrrv. tryggingayfirlækni, en þar segir í
fyrirsögn: „Allur vafi var túlkaður bóta-
þegum í vil." Þá kemur grein þar scm
greint er frá yfirliti yfir lífeyrisgreiðslur
og stöðu aldraðra á vinnumarkaðnum í
ýmsum löndum. Árni Guðmundsson
deildarstjóri skrifar grein um Lífeyrissjóð
sjómanna, og sagt er frá norrænu fræðslu-
námskeiði um almannatryggingar. Ýmsar
aðrar frcttir og frásagnir eru í blaðinu
Almannatryggingar.
Jólaóratoría Bachs
í Langholtskirkju
Jólaóratoría J.S. Bachs verður flutt
miðvikudaginn 30. desembcr í Langholts-
kirkju.
Flytjendur eru: Ólöf K. Harðardóttir
sópran, Sigríður Ella Magnúsdóttir alt,
Kristinn Sigmundsson bassi og enski ten-
órsöngvarinn Michael Goldthorpe ásamt
kammersveit og kór Langholtskirkju.
Stjórnandi er Jón Stefánsson.
Hafnargallerí:
Sýning á skúlptúrum
Kristín Reynisdóttir opnaði í gær sýn-
ingu á skúlptúrum í Hafnargallerí í Hafn-
arstræti (fyrir ofan Bókaverslun Snæ-
bjarnar). Þetta er fyrsta einkasýning
Kristínar, en hún hefur tekið þátt í
samsýningum. Hún útskrifaðist frá Mynd-
lista- og handíðaskóla (slands sl. vor, en
stundar nú nám í Dússeldorf í Þýskalandi,
en er heima á íslandi um jólin.
Sýningin er opin á verslunartíma og
stendur til 10. janúar.
Brautskráning stúdenta
í Hamrahlíð
Laugardaginn 19. desember braut-
skráðust 74 stúdentar frá Menntaskólan-
um við Hamrahlíð. Við athöfnina söng
kór skólans að vanda undir stjórn Þor-
gerðar Ingólfsdóttur og strokkvartett fé-
laga í kórnum flutti jólalög, en kórinn átti
tuttugu ára afmæli nú i haust og minntist
þess með veglcgum tónleikum í skólanum
22. nóvembcr sl.
Hæsta einkunn á stúdentsprófi hlaut
Ragnheiður Þórarinsdóttir, stúdent af
náttúrufræðabraut.
í ræðu sinni minnti rektor á að ekki
hefur cnn verið reist fþróttahús við
skólann. Einnig minnti hann á vanda
fatlaðra nemenda í hjólastól, sem alltaf
eru nokkrir við skólann, en þeir komast
ekki leiðar sinnar um allan skólann, m.a.
hvorki á bókasafn, skrifstofu né kennara-
stofu.
KVENNAATHVARF
Húsaskjól er opið allan sólarhringinn
og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa
verið ofbeldi í heimahúsum eða orðið
fyrir nauðgun.
Síminn er 21205 - opinn allan sólar-
hringinn.
Sunnudagsferð F.i.
Kl. 13:00 Úlfarsfell (295 m). Fyrsta
gönguferðin á nýju ári. Gott útsýni af
Úlfarsfelli. Brottför frá Umferðarmið-
stöðinni, austanmegin. Farmiðar við bíl
(500 kr.). Frítt fyrir börn í fylgd fullorð-
inna. Ferðafélag íslands
Keflavíkurkirkja
Gamlársdagur: Aftansöngur kl. 18:00.
Nýársdagur: Hátíðarguðsþjónusta kl.
14:00. Kór Keflavíkurkirkju syngur, org-
anisti og stjórnandi Siguróli Geirsson.
Sóknarprestur
Rauða kross-húsið
í Tjarnargötu
Hjálparstöð fyrir börn og unglinga f
Tjarnargötu 35 cr opin allan sólarhring-
inn. Síminn er 62 22 66.
MARILYN M0NR0E
sokkabuxur
Glansandi
gæðavara
Heildsölubirgöir:
^/t^lgurfdnuon bf-
Þórsgata 14.
Sími: 24477
Allir vita,
en sumir
að reiðhjól barna eru
best geymd ínni að
vetrarlagi.
v
FYRST SAGÐT HÁfilN'
NEI TAKK,
EN SVO,',,.
llllllll BLÖÐ OG TÍMARIT :||||||||!|||||||||||||||||||||||||||||||!!j
SKÁKTÍDINDI
-Jólablað
Á forsfðu Skáktíðinda er mynd af
hinum unga skáksnillingi Jóhanni Hjart-
arsyni.
Þráinn Guðmundsson, forseti Skák-
sambands lslands, skrifar Jólakveðju,
sem er fremst í blaðinu og gerir svo grein
fyrir skákárinu 1987 og segir frá stórmót-
fum og meisturum.
„Sitja tveir að tafli - talast ekki við", er
frásaga af drápu mikilli, sem Ólafur
Ásgrímsson, yfirdómari í landsliðskeppni
á Skákþingi Islands, sem fór á Akurcyri í
september sl. Höfundur, eða höfundar
drápunr.ar voru ókunnir, cn böndin bár-
! ust að yfirdómaranum Ólafi og aðstoðar-
i dómaranum Albert Sigurðssyni. Drápan
cndar þannig:
„Klukkur telji, tifi, - taflið eilíft vari! -
Húrra! Lengi lifi - lands vors skákmeist-
ari!
Grein er í blaðinu um Reimar ráða-
góða, sem margir taflmenn kannast við.
Viðtal er við Jóhann Hjartarson sem
nefnist „Gott að vera skákmaður á ls-
landi"
Útgefandi er Skáksamband Islands.
Bjarmi
Bjarmi hefur komið út f 81 ár, en 10.
tbl.1987 er nýkomið út. Ritstjóri er
Gunnar J. Gunnarsson. Hann skrifar
leiðara, sem hann nefnir: Þeim sem tóku
við honum. En sú fyrirsögn er tekin úr
setningu í lok leiðarans, þar sem ritstjóri
tekur upp eftir Jóhannesi guðspjalla-
manni, er hann hafði lýst þvf með trega
að eigin þjóð Jesú Krists hefði ekki tekið
við honum: „En öllum þeim, sem tóku
við honum, gaf hann rétt til að verða
Guðs börn, þeim, er trúa á nafn hans".
(Jóh, 1, 12). Helga St. Hróbjartsdóttir
kennari á hér jólakvæði sem nefnist: Hið
sanna ljós. Verk Jesú er verk Guðs.
„Hvað nema Jesú blessað blóð?" nefnist
smásaga um ferð heim á jólum. Ýmsar
aðrar jólaminningar og jólasögur, inn-
lendar og erlendar, eru f blaðinu. Fréttir
frá útlöndum og myndir og Bréf frá
Eþíópíu o.fl.
Fréttir frá starfinu og tilkynningar um
Biblíuskóla o.fl. eru einnig í þessu blaði.
SKINFAXI6. tbl. 78.árgangur
Tímaritið Skinfaxi hefur nú verið gefið
út í 78 ár. Þaðer gefið út af Ungmennafé-
lagi lslands. I þessu blaði er margvíslegt
efni. Ritstjórinn, Ingólfur Hjörleifsson
skrifar forystugrein, sem nefnist Anna-
samt ár að líða.
Forsíðuviðtal blaðsins er við Gunnar
Einarsson, þjálfara Stjörnunnar í Garða-
bæ. Þá er grein um Laugarvatn og
bollalagt um hvert verði hlutskipti þessa
menningarseturs f framtíðinni. Sagt er frá
afmælisráðstefnu UMFl og birtar myndir
frá henni. Þórólfur Þórlindsson skrifar
grein: Hefur þátttaka í fþróttum fyrir-
byggjandi áhrif á neyslu ávana- og fíkni-
efna? Þráinn Hafsteinsson skrifar um
fþróttir og ungmennafélagshreyfinguna,
og Helgi Gunnarsson um félagsmála-
fræðslu og menntakerfið. Þá eru félags-
og íþróttafréttir ásamt myndum í blaðinu.
VERA 6. hefti 6. árgangs
- Málgagn kvenfrelsisbaráttu
Síðasta hefti tímaritsins VERA á árinu
1987 er nýkomið út. í leiðara, sem
skrifaður cr af Ms, er sagt frá umfjöllun
um bók sem nýkomin er út í Bandaríkjun-
um, - þarsem m.a. segir... „að konurséu
fjúkandi reiðar út í karla sfna og jafnvel
komnar á frcmsta hlunn með að fleygja
þeim á dyr sem félögum. Og hver er
ástæðan? Jú - ástæðuna telur bókin vera
þá, að „nútímakonan sitji uppi með
úreltan karl“, - karl sem cr ekki reiðubú-
inn til að axla ábyrgðarhlutverk kvenna
með þeim, á meðan konur hafa gengið í
hlutverk karla á vinnumarkaði og á
stjórnmálasviðinu."
1 blaðinu eru Lesendabréf, Kvenna-
saga, Tvö Ijóð eftir Sigrúnu Björnsdóttur,
en mynd eftir Elínu Rafnsdóttur. Þá er
fjallað um bandarísku bókina eftir Share
Hite í frásögnum og viðtölum.
„Skáldkonur kynntar" cr löng grein
eftir Soffíu Auði Birgisdóttur, sem er 28
ára bókmcnntafræðingur. Hún ræðir hér
um íslenska kvcnrithöfunda - frá Torf-
hildi Hólm og fram á okkar tíma. Kristín
Ástgeirsdóttir skrifar: Ráðhúsið í Tjörn-
inni. Þá eru greinar um borgarmál og
stjórnmál, og margar smágreinar og frá-
sagnir eru í þessu blaði, sem er um 50 bls.
Á forsfðu er mynd af nútímakonunni -
að moka karlmönnunum út!
Ljósmyndari er Rut Hallgrímsdóttir en
fyrirsæta Snæfrfður Baldvinsdóttir.
Þroskahjálp 5. tbl. ’87
Tímaritið Þroskahjálp 5. tbl. er komið
út, en útgefandi þess er Landssamtökin
Þroskahjálp.
Að venju eru í ritinu ýmsar greinar;
viðtöl, upplýsingar og fróðleikur um má-
lefni fatlaðra.
Leiðari þessa tölublaðs er um Kópa-
vogshæli og er hann skrifaður af Unni
Ölafsdóttur. 1 heftinu er m.a. fjallað
nokkuð um Landsþing Þroskahjálparsem
haldið var í október sl. Spjallað er við
formenn samtakanna, fráfarandi og ný-
kjörinn; - þau Eggcrt Jóhannesson og
Ástu B. Þorsteinsdóttur. Þá eru nokkrir
þingfulltrúar teknir tali og sagt er frá því
helsta scm gerðist á þinginu.
í þættinum „Að norðan" birtist viðtöl
við þær Björgu Pétursdóttur og Svanfríði
Larsen, sem báðar eru búsettar á Akur-
eyri og tengjast málefninu og hafa báðar
starfað fyrir samtökin. RannveigTrausta-
dóttir skrifar pistil frá Bandaríkjunum,
og fluttar fréttir af þingi norrænna sam-
taka um málefni vangefinna, sem haldið
var í Svíþjóð á liðnu sumri, m.a. erindi
Þórarins Eldjárns. sem hann flutti á þessu
þingi.
Tfmaritið Þroskahjálp kemur út fimm
sinnum á þessu ári og sex hefti eiga að
koma út á árinu 1988. Það er sent til
áskrifenda og cr til sölu á skrifstofu
Þroskahjálpar að Nóatúni 17, 105
Reykjavík.. Einnig fæst ritið í nokkrum
bókabúðum og blaðsölustöðum.
Áskriftarsíminn cr 91-29901.