Tíminn - 30.12.1987, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 30. desember 1987
Tíminn 19
Rambó „ó „ó!
Það þýðir ekki annað fyrir hetjuna
Rambó, sem Sylvester Stallone hefur
skapað á hvíta tjaldinu, en að vera í „f ínu
formi“. Þjálfarar hans eru hér að nota
smáhlé í upptöku til að teygja og toga
fætur hans.
í þessum ofsalegu bardagamyndum
sem Stallone leikur í reynir stundum svo
á fæturna, að hann hefur fengið krampa
og sinadrátt með miklum kvölum. Hér er
þjálfari að reyna að vinna bug á slíkum
óþægindum. Rambó er hálfbeygjulegur
á svipinn.
Upp með fótinn ... og svo togum við í 1 - 2 - og 3!
ELAINE
PAIGE
- Smávaxin söngkona
með mikla rödd
Elaine Paige er falleg og hrífandi söngkona á sviði. Á lítlu myndunum er hún með tónskáldinu Tim Rice.sem
hún segist dá mjög, ... og svo með heimilishundinum „Tugger“, sem sér um að Elaine leiðist ekki að búa ein.
„Ég er ekki há í loftinu, - um 150 sm eða svo - en
ég þoli ekki að fólk tali við mig eins og ég sé einhver
krakki,“ segir söngkonan vinsæla Elaine Paige, sem
var stjarnan í söngleiknum Evita, Kettir (Cats) og Skák
(Chess) og fleiri söngleikjum í leikhúsum í London á
undanförnum árum.
Hún byrjaði reyndar mjög ung í
„Hárinu" á sjöunda áratugnum
sem söng- og danspía. í lokasöngn-
um var það orðið að vana að
dansfólkið henti af sér fötunum og
að síðustu dönsuðu flestir naktir.
Þetta var samt ekki skylda, og
sumir dansararnir gerðu þetta og
aðrir ekki, eða kannski bara einu
sinni.
Pegar söngleikurinn Hárið hafði
verið nokkuð lengi á fjölunum
höfðu flestir dansararnir einhvern
tíma dansað nektardans - nema
Elaine. En hún var hvött til þess og
þar sem dansfólkið var undir hálf-
gegnsærri slæðu í síðasta atriðinu
þá var þetta ekkert mál, sögðu
vinir hennar og samstarfsfólk.
ekki fjölskyldu og börn, - en svo
finnist sér stundum sem hún hafi
nóg með sjálfa sig. „Mig langar til
að eignast barn, - og ég hef
„umsækjanda um föðurhlutverk-
ið“, því nú á ég fastan vin, en ég
segi ekki hvað hann heitir," sagði
söngkonan nýlega í viðtali. Hún
endaði viðtalið með því að lýsa því
yfir, að hún byggi ein með hundin-
um sínum.......því að búa með
öðrum svo vel fari er vandi, og ekki
þá alltaf hægt að fara sínu fram
eins og ég er orðin vön að geta
gert.“
Mistökin
Gary Hamilton, hár og grannur
leikari, sem var mjög mikill vinur
Elaine, sagði: „Ég skal standa hjá
þér og halda í hendina á þér og þú
verður ekkert feimin eða hrædd.“
Elaine segist svo frá, að hún hafi
tekið í sig kjark, og undir slæðunni
fleygði hún af sér þessum fáu
flíkum og svo ætlaði hún að grípa
í Gary vin sinn. „En það var þá alls
ekki hönd hans sem ég greip í! Ég
hélt ég yrði ekki eldri! „ segir
Elaine og enn roðnar hún þegar
hún segir frá þessu. Henni var ekki
einu sinni strítt með mistökunum,
því hún var svo miður sín.
Ein með hundinum
Elaine segir það vera það versta
sem hún lendi í að vera í fjölmennu
kokkteilboði, eða annars staðar
þar sem fjöldi manns stendur upp
á endann. Þá fái hún hálsríg af því
að horfa upp á fólk scm hún er að
tala við og fái innilokunarkennd ef
hún lendir í þrengslum. „Einu
skiptin sem ég get horft framan í
fólk án þess að reigja höfuðið aftur
á bak, - er á sviðinu," segir hún og
bætir því við, að hún njóti þess að
geta horft ofan á koliinn á þeim
sem sitja á fremstu bekkjunum.
Hún hefur leikið í mörgum ástar-
hlutverkum og þykir hrífandi falleg
á sviðinu, og auðvitað hafa ótal
menn verið ástfangnir af henni, en
enn hefur Elaine ekki gengið í
hjónaband.
Hún og Tim Rice, höfundur
laganna í Evitu, Chess o.fl. söng-
leikja, voru miklir vinir, og gengu
sögur um að samband þeirra væri
meira en vinskapur. Elaine gerir
hvorki að játa því né neita. Hún
segist stundum sakna þess að eiga