Tíminn - 31.12.1987, Síða 2

Tíminn - 31.12.1987, Síða 2
2 Tíminn Fimmtudagur 31. desember 1987 r Rannsókn umfangsmesta hassmálsins lokiö: A annan tug bak við lás og slá Tveir menn hafa játað að hafa smyglað til landsins 65 kílóum af hassi í níu ferðum á undanförnum tveimur árum. Lauslega áætlað er virði þess 65 milljónir króna á götunni. Fjöldi manna kemur við sögu bæði hér á landi og erlendis, en hassið var keypt í Hollandi og flutt til íslands um Belgíu. í vitorði með mönnunum tveimur var kona sem sá um dreifingu og að einhverju leyti sölu á fíkniefninu hér á landi. Fíkniefnalögreglan hefur handtekið auk þessa þriggja upp undir tíu manns sem eru viðriðnir málið og verða sóttir til saka. Hinn 16. nóvember lét lögreglan til skarar skríða og handtók mennina tvo, 44 og 39 ára, þar sem þeir höfðu smyglað til landsins meira magni af hassi í einni sendingu en fannst allt árið í fyrra. Hassinu var sökkt í málningardósir og hafa mennirnir viðurkennt að hafa smyglað því öllu, um 65 kílóum, til landsins með sama hætti. Konan, sem er um þrítugt, var handtekin þennan sama dag. Hún ein hafði komið við sögu fíkniefna- lögreglu áður. Arnar Jensson, lögreglufulltrúi, sagði að aðeins einn forsprakkanna sæti í gæsluvarðhaldi enn en rann- sókn málsins væri lokið. Þetta væri umfangsmesta fíkniefnamál sem lög- reglan hér hefði komist í kast við. Til að verða sér úti um fíkniefnin skiptu mennirnir með sér verkum. Annar, sem er viðskiptafræðingur, sá um gjaldeyrisöflun, kaupin á efninu og að senda það frá megin- landi Evrópu til íslands. Hinn hafði á sinni könnu að taka við efninu og sjá um dreifingu þess. Stúlkan hafði með höndum dreifingu á hluta þess og milligöngu um sölu til kaupenda. Mennirnir öfluðu sér gjaldeyris með því að viðskiptafræðingurinn fór til Þýskalands, þar sem hann keypti verðlausa tölvuhluti á nafni fyrirtækis, sem var þar ekki til, og sendi til fyrirtækis sem hinn maður- inn átti hér heima. Skjöl voru fölsuð og voru upphæðir stórar þegar varan kom til landsins. Hún var leyst út með peningum til að fá gjaldeyrisút- tekt til að greiða hinu þýska tölvufyr- irtæki, sem ekki var til. Að þeirri greiðslu fenginni fór sá maður sem staddur var í Þýskalandi tii Hollands og gekk frá kaupum á hassinu. Því var næst sökkt í málningardósir og sent til íslands frá Belgíu. Til málningarinnflutningsins var stofnað fyrirtæki á nafn þriðja aðila, sem hafði enga vitneskju um það. Til að villa um fyrir kaupendum og væntanlega lögreglu einnig skiptu mennirnir oft um bústað meðan á Efíirtalin \dimingsnmiier komu upp í happdrætti Flugbjörgunarsveitanna, 24. desember 1987 95066 - 109752 Macintosh'Plus tölvw: 4861 - 7480 - 22893 26842 - 30482 - 65724 67049 - 77030 - 82398 87068 - 100964 -106049 114646 - 125503 156240 162231 - 163848 GoldStcir myndbandstæki: 5366 - 9135 - 14761 25450 - 28394 - 29327 36676 - 39297 - 39765 52383 - 94386 - 113575 139083- 141160- 144731 148452 - 151138 GoldStcir hljómtækjastæöui*: 8122 - 11571 - 21115 29030 - 31339 - 53568 55644 - 62521 - 80195 84306 - 89104 - 124268 139129- 142216- 147672 150692 - 150998 Hdmilispakkar: 17495 - 90704 111229 - 159148 A MITSUBISHI farsímar: 6197 - 24629 - 28354 36790 - 46168 - 69164 75445 - 81529 - 81827 90033 - 93646 - 126712 133864- 134052- 135455 148679 - 151204 GoldStcir 20" sjónvarpstæki: 4913 - 19780 - 30938 57136 - 70216 - 70830 75564 - 77165 - 85048 89567 - 92614 - 129631 130269- 147858- 150128 156342 - 159706 m GoldStcir ferdatæki: 13434 - 17595 - 19643 19863 - 36214 - 46077 58117 - 66907 - 68489 99818 - 113950 - 122404 145110- 150524- 151924 159025 - 162771 (Birt án ábyrgðar) Vinninganna skal vitjað hjá Grími Laxdal í Radíóbúðinni hf., Skipholti 19, Rvk. Flugbjörgunarsveitin Reykjavík Flugbjörgunarsveitin Hellu Flugbjörgunarsveitin Skógum Flugbjörgunarsveitin V-Húnavatnssýslu Flugbjörgunarsveitin Varmahiíö Flugbjörgunarsveitin Akureyri FLUGBJÖRGUNARSVEITIRNAR þessu stóð. Hagnaði af smyglinu virðist hafa verið varið til greiðslu skulda, einkaneyslu og kostnað, sem var mikill sem gefur að skilja. Sá mannanna, sem sá um viðskiptin erlendis, er viðskiptafræðingur að mennt, en stundaði ekki aðra iðju. Hinn rak innflutningsfyrirtæki svo smátt í sniðum að ekki nægði honum til lífsviðurværis. þj Sól hyggst koma meö „öðruvísi" drykki, m.a. fyrir íþróttamenn: 100 milljóna hlutafjáraukning heimiíuð í Sól Ákveðið hefur verið að auka hlutafé í Smjörlíki-Sól hf. um 100 milljónir. Gefin verða út bréf upp á 25 milljónir að nafnvirði og þau boðin á fjórföldu nafnverði. Davíð Scheving Thorsteinsson framkvæmdastjóri sagði við Tímann í gær að þrátt fyrir að reksturinn gengi vel væri fyrirtækið að sligast undan fjármagnskostnaði. Ástæðan fyrir erfiðleikum og miklum fjármagnskostnaði Smjör- líkis-Sólar hf. má, að sögn Davíðs rekja til mikillar fjárfestingar á undanförnum þremur árum, bæði í húsnæði, lóðum, og vélum, fjárfest- ingu sem ekki hafi farið að skila arði fyrr en nú. „Við fengum ekki nægj- anlega mikið af löngum lánum og urðum að fjármagna þetta með skammtímalánum og fé úr rekstri,“ sagði Davíð. Samhliða hlutafjáraukningunni verður ráðist í endurskipulagningu á fyrirtækinu, einkum stjórnun þess. Verður því skipt upp í deildir og fleiri stjórnendur kvaddir til. Tíminn spurði Davíð hvort þetta þýddi að hann missti völd og hvort hann yrði ekki áfram höfuð fyrirtækisins. „Ég vona nú að ég verði það áfram, en fyrirtækið er orðið það stórt að það er ekki forsvaranlegt að einn maður sé þar allt í öllu,“ svaraði þá Davíð. Hann sagðist hafa valið sama fyrir- tækið og hann valdi til að endurskip- uleggja Iðnaðarbankann til þess að endurskipuleggja Smjörlfki-Sól hf., dijpar Skáeygðir íþróttamenn Enn er dálkuriun Sandknm í UV aö furöa sig á fyrirsögiium Timaus. Nú er að sjá sem þeir hafi fundiö út að á milli linanna séum við á Tímanum vilhallir blökkumönnuin í S-Afríku í baráttu þcirra við aðskilnaðarstcfnu hvíta minnihlulans. „Svört dráp i S-Afriku“ er fyrirsiignin sem DV hvsnast yfir. Fréttin greindi frá innbyrðis átökum svartra í fyrrgreindu laiidi. I mjög svo laiigri og undarlcgri rökseindafierslu kemst DV að þeirri niðurstöðu að morð á livítuin hljóti að vcra „betri“ en á svörtum það sé merking fyrirsagnar Timans. Eðlilegu tengir Sandkorn þetta við cinhverskonar kyuþáttaylirlýsingu. DV er nefiiilegn mjög meðvitað uin hina ýnisu kynþatti. Eiluni t.d. á fyrir- sögn sem birtist á iþróttasíðu DV i síðasta blaði fyrir jóf. „Þeir skáeygðu voru betri“. Var þar átt við leik S-Köreu og fslnnds i handkuattlcik. Dropateljari hefur vcrið að velta því fyrir sér hvorl betra sc aö vera skáeygöur í handknatt- leik og þar af leiðandi nauðsynlegt að taka slikt fratn í Iþróttafrétt. Skyldu skácygðir íþróttamcnn sjá hetur? Ætli þeir cigi auðvclduru með nð skáskjóta sér gegnum vöm aiidstæðinganna? Tdst það meira afrck að sigrast á skacygðunt handknuttlciksmöiuium eu öðmm? Það er of seiut að óska Sandkomi „hvitra“ jóla og segjum við þvi bara gieðilegt nýtt ár. Sviknir svikarar Á aöplfréttasiðu DV, baksiðunni, birtist gagnmerk frétt um daginn um en það er danska ráðgjafafyrirtækið IKO. Aðspurður um framleiðsluna á Sól-gosi sagði Davíð að nýju afurð- irnar grape og appelsín hafi gengið vel það sem af er. Aðra gosdrykki sagði hann ekki hafa gengið vel og t.d. væri ekki lengur lögð áhersla á að selja Sól Cola. Kvað hann fyrir- tækið ætla fyrst og fremst að hasla sér völl.á markaðinum með öðruvísi drykkjum. Þannigervonáfjölmörg- um nýjum drykkjum á næstu mánuð- um. Meðal þeirra er sérstakur drykkur fyrir íþróttamenn, svo kall- aður „ísótónískur drykkur". Slíkur drykkur væri flókin og sérhönnuð blanda sem gæfi íþróttamönnum sér- staklega mikla og eftirsótta orku. „Þannig verðum við ekki í beinni samkeppni við þessa fulltrúa er- lendra auðhringja hér á íslandi. (Coke, Pepsi, 7up). Við munum koma með nýtt cola, en það verður ekki flaggskipið okkar, það verða aðrir drykkir sem enginn annar er með,“ sagði Davíð Scheving Thor- steinsson. -BG fasteignasaU sem hafði orðið á í mess- unni. í fréttinni stóð: „Vaiur liafði svikið viðsemjcndur sína með sviksam- legum hætti.“ Hvílik bý-sn! AHa tíð og tíma hafa sveitungar blaðamanns DV svikið með viiisamlegum hætti, en þetta er nú aumara en tárum taki, aö svikarar haO gcrst svikulir og er til marks um aö heimur hnignandi fer. Það má telja víst að svikarar telji sig iila svikna, þegar svo fádæma djarfur svikari kastar rýrð á stcttina nlla tneð þcssum hætti, ogtekur Dropi upp kyndilinn með DV. Andstaðan hallar sér að Tímanum Sagt hefur það verið að I iniiim haO lekið upp „trúboðið“ á ný. Það virðist ganga ineö aUra bcsta rnóti þvt að jafnvel þingmcnn litlu flokkanna hafa frclsast af boðskap Tímans. Skönnnu fyrir jól var gcOð út nefndarálit niinni- iiiuta viðskiptancfndar, þar sem talið er rétt aö frumvarpi til lánsfjárlaga fyrir 1988 vcrði visað frá þar sem forsendur þess væru óljúsar. Álit sitt byggir minnihlutiun á tveimur fréttum úr Timanuni, sem kom út þann sama dag, og röksemd meö álitinu eru fréttirnar óslyttar, - önnur þeirra viötal við Stelngrim Hermannsson, utanrikisráð- hcrra. Fornmenjar vestur í bæ Einn í lokin um fótboltafélagið vestur í bæ, KR. Það cr sagt að sú hugmynd haO komið upp á stjórnarfundi að ráða eigi Þór Magnússon, þjóðminjavörð, scm húsvörð i KR heimilinu við Erosta- skjól. Hann væri sá cini sem kynni að ráða rúnirnar á verðlauuagripum KR. „Svo aldnir væru þeir.“

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.