Tíminn - 31.12.1987, Síða 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 31. desember 1987
ÁRAMÓT ÁRAMÓT ÁRAMÓT ÁRAMÓT ÁRAMÓT ÁRAMÓT ÁRAMÓT
Bjarni Guðjónsson, fv. verkstjóri:
LÆGSTU LAUNIN
VERÐA AÐ HÆKKA
„Ég held ég verði að segja já við
því að góðærið hafi skilað sér til mín.
Ég verð að taka undir að það hafi
verið góðæri og ég hafi orðið var við
það. En það er voðaleg óvissa hvort
það verði áfram. Gengisfelling er
yfirvofandi eftir áramót og kjara-
samningarnir erfiðir. Ég er mjög
svartsýnn á að nokkuð komi út úr
þeim. Það er gallinn, þótt maður
vonist alltaf eftir þvf að lægstu launin
hækki, þá verður alltaf keðjuverkun
upp allan launastigann. Það er lág-
mark að lægstu launin hækki en
önnur laun standi í stað. Öðruvísi
verður launamisréttið ekki brúað.
Það er ekki hægt að krefjast þess að
laun einhverra hópa lækki.
Ég er enginn spámaður og vil því
ekki spá um gengisfellingu. En ég get
alveg eins búist við henni.“ þj
Valdís Ósk Jónasdóttir, fóstra:
EKKI GÓÐÆRI
BUDDU
„Góðærið skilaði sér ekki í mína
buddu, en það má sjá þess merki
annars staðar, að fólk hafi makað
krókinn á því. Hinir ríkari verða
ríkari og bilið milli þeirra og hinna
lægra launuðu hefur breikkað.
Ég veit ekki hverju má eiga von á
á næsta ári. Maður vonar að stað-
greiðslukerfi skatta komi betur út
fyrir fólk. En ég á ekki von á að
kj arasamningarnir nú breyti nokkru.
Ég vil nú engu spá um næsta ár.
Ég hef þó þá trú að það verði ósköp
svipað því sem er að líða. Frá því er
mér er ekkert ofar f huga en annað. “
Þj
Dregib uar fyrst í Jólahappdrætti Sfifi p. 3. des. um 10 SONV SRF-6
ferbaútuarpstæki. Upp komu eftirtalin númer;
1144 13959 39787 44163 47552
48710 59856 103064 105376 115665
Þar sem útsending miba dróst á langinn heíur stjórn SRfi
ákuebib, ab sú regla gildi um þennan fyrsta drátt, ab dagsetning
greibslu skipti ekki máli. Ef mibi er greiddur uerbur tækib afhent.
10 stk. S0NV D-30 ferbageislaspilarar komu á númer (þ.lO.des);
19155 19581 28812 31263 39424
65772 85089 85659 98833 121327
10 stk rafdrifnir leikfangabílar komu á númer (þ.17.des);
17770 26928 30853 41527 71187
78352 94343 99278 102790 108002
5 stk Pajero jeppar lengri komu á númer (þ.26.des);
841 43662 86610 107266 121439
5 stk Pajero jeppor styttri komu ó númer (þ.26.des);
443 3478 43913 93601 103941
Númer gírósebilsins er happdrættísnúmerib. Uinninga ber ab
uítja á skrifstofu Sfifi Síbumúla 3-5 Reykjauík. Sími 91-82399.
Þökkum stubning nú sem fyrr.
Guðrún Helgadóttir,
ellil ífeyrisþegi:
STÖÐUGT
VERÐLAG
NAUÐSYN
„Ég get ekki kvartað. Ég hef það
góðan ellilffeyri og tryggingu. Og
svo eru þið svo elskuleg við mig,
þarna á blaðinu, að ég fæ heilan
Tíma á hálfvirði. Mér var neitað um
það á Mogganum. Ég á von á að
njóta góðmennsku Tímans áfram.
Ég kýs þann flokk sem hann er
málsvari fyrir.
Hvað stoða kjarasamningar þegar
allt er ruglað í þjóðfélaginu. Það
þarf afruglara á allt og ekki síst
verðlagið. Það þarf að vera stöðugt,
en vörur hækka dag frá degi. Það er
svolítið óviðkunnanlegt fyrir gamalt
fólk. Og ég á ekki von á neinum
breytingum til hins betra á nýju ári
eins og nú standa sakir.
Mér er ekkert sérstaklega minnis-
stætt af árinu. Mér hefur liðið vel og
ég hef haft það gott.“ þj
VIÐ tókum tali tólf manns í gær og bárum
undir þá nokkrar spurningar varðandi árið sem
er að líða og það sem senn gengur í garð. Við
spurðum hvort fólk hefði orðið vart við góðærið
og hvort það ætti von á áframhaldi á því. Því
næstfórum við í samningana og spurðum hvað
fólk ætti von á að kæmi út úr þeim á nýju ári.
Hvaða atburður væri þeim minnisstæðasturfrá
árinu og hvort þau sæju einhverja stóratburði
fyrir á árinu 1988.
Björgúlfur Stefánsson, dyravörður:
BÆTI MIG í
BEKKPRESSU
„Nei, góðærið hefur ekki skilað
sér til nn'n. Ég hef ekki persónulega
orðið var við það og ég vona að
sjálfsögðu að rætist úr þessu á nýju
ári. Ég pæli ekkert í kjarasamning-
um. Ég spái ekkert um niðurstöðu í
þeim.
Hvað verði á næsta ári veit ég
ekki. Ég vona að ég bæti mig í
bekkpressunni.
Minnisstæðast á árinu já. Ferju-
slysið! Það var hryllilegt. Það létust
um 2000 manns.“ þj
Tímamyndir
Pjetur
Jón Óli Sigurðsson, nemi:
STJÓRNARMYNDUNIN
OLLI VONBRIGÐU
„Engan veginn. Ég hef ekki orðið
var við neitt góðæri og á ekki von á
því á næsta ári. Ég hef ekki séð
neinar betrumbætur og engan vilja í
þá átt. Ég á ekki von á að kj arasamn-
ingar breyti nokkru til batnaðar og
ef eitthvað verður þá verður það
strax tekið aftur með gengisfellingu.
Ég spái hiklaust gengisfellingu í
janúar. Það er alveg gefið að það
verður engin kaupmáttaraukning á
næsta ári.
Það sem mér er efst í huga af því
ári sem er að líða er stjórnarmynd-
unin og aðdragandi kosninga. Þær
voru vonbrigði og jafnframt klofnin-
garnir í flokkum. Ég átti von á
öðru.“ þj
Stefán Ingólfsson, arkitekt:
KOSNINGARNAR
VORU SÖGULEGAR
„Ég held að á þessu ári hafi
kaupmáttur fólks aukist töluvert. Ég
hef orðið var við það. Það er aftur á
móti stór spurning hvort góðærið
haldi áfram. Fólk vill meina að
staðgreiðslukerfi skatta komi illa út
fyrir marga. Það gæti þó hugsast að
kjarasamningarnir nú gætu leiðrétt
eitthvað kjör hinna lægstlaunuðu.
Ég á ekki von á að það verði
neinar stórkostlegar breytingar eða
hræringar í pólítíkinni á næsta ári.
Kosningarnar í ár voru auðvitað
sögulegar. Ég átti von á öðrum
úrslitum. Það er mér einna minnis-
stæðast." þj