Tíminn - 31.12.1987, Side 5
Fimmtudagur 31. desember 1987
Tíminn 5
ÁRAMÓT ÁRAMÓT ÁRAMÓT ÁRAMÓT ÁRAMÓT ÁRAMÓT ÁRAMÓT
Sigríður Hjartardóttir, verslunarmaður
LOTTÓVINNINGURINN
ÞAÐ MINNISSTÆÐASTA
„Góðærið hefur tvímælalaust skil-
að sér til mín á liðnu ári. Fjárráð mín
eru mun rýmri en áður.
Á næsta ári þarf jafnvægi að
haldast í þjóðfélaginu. Það er númer
eitt. Ég geri ekki neinar ákveðnar
kaupkröfur á næsta ári.
Það sem stendur uppúr á síðasta
ári er lottóvinningurinn sem ég fékk,
eða öllu heldur lottovinningurinn
sem ég varð af. Ég var nefnilega eitt
af fórnarlömbum lottódráttarins
fræga, þegar fyrri dráttur lottósins
var dæmdur ógiltur. Um stundarsak-
ir átti ég 2,3 milljónir króna. Þetta
var blendin tilfinning, fyrst upp síð-
an niður og síðan upp aftur. Ég hafðf
þó 980 þúsund upp úr krafsinu. Fyrir
þá peninga keypti ég mér nýjan bíl,
og barnabörnunum gaf ég veglegri
jólagjafir en venjulega.
Varðandi nýtt ár vona ég bara að
fólk hafi það sem best og því gangi
allt í haginn“. óþh
Eðvarð Ólafsson, lögreglumaður
LÖGGAN MEÐ
NÝTT HÚSNÆÐI
„Árið 1987 hefur verið gott ár, og
síst verra en undanfarin ár. Ég bind
þó vonir við að fá einhverja kaup-
hækkun á næsta ári. Sú hækkun
þyrfti að nema 7-8% til að fylgja
verðhækkunum.
Það sem kemur upp í hugann fyrir
síðastliðið ár, er að við í lögreglunni
f Hafnarfirði fengum nýtt húsnæði.
Aðstaðan hjá okkur breyttist geysi-
lega við flutninga í þetta húsnæði.
Ég hugsa að það verði tæplega
stjórnarslit á næsta ári. Ég gæti
ímyndað mér að gróðurfar yrði gott
næsta sumar, eftir svona góðan
vetur. Við þetta bind ég vonir á
næsta ári.“ óþh
Kristján Friðgelrsson, verkamaður
STJÓRNARSKIPTI
BREYTA ENGU
„Ég hef jú heyrt talað um góðærið
í landinu. Og það hefur að vísu
rýmkast minn hagur að undanförnu.
En það tengist nú ekki góðærinu
beint. Ég skipti nefnilega um vinnu,
fór úr kennarastarfinu yfir í fisk-
vinnslu í Meitlinum í Þorlákshöfn.
Mér telst til að fjölskyldan þurfi um
lVi milljón á ári til að lifa þokkalegu
lífi. Og sú tala hefur ekki náðst inn
þrátt fyrir mikla eftirvinnu.
Það stendur ekkert öðru fremur
uppúr á liðnu ári hvað mig sjálfan
varðar. Þetta hefur verið ósköp
tíðindalítið ár.
Ég sé ekkert sérstakt fyrir á næsta
ári. Varðandi pólitíkina held ég að
lítið breytist. Þó svo að núverandi
stjórn velti, kemur bara önnur í
staðinn. Og hverju breytir það? Ætli
ég skjóti ekki á að handboltalands-
liðið okkar verði í einu af tíu efstu
sætunum á næstu Ólympíuleikum,
eigum við ekki að segja 5-6 sæti.“
óþh
Leiðrétting
Sú villa var í frétt Tímans um fólkið sem varð úti á Klettshálsi og
birtist á þriðjudag að bærinn Klettur var sagður í eyði. Það er rangt.
Búið hefur verið á Kletti s.l. 3 ár og biður Tíminn velvirðingar á
þessum mistökum.
Jón Guðnason
ellilífeyrisþegi
VERÐUR
AÐ FÆKKA
FLOKKUNUM
„Ég hef lifað góðæri á árinu 1987.
Ég hef orðið áþreifanlega var við
það. Mér sýnist brúnin vera léttari
hjá fólki en undanfarin ár.
Það hefur auðvitað margt skeð á
síðasta ári, og nánast útilokað að
taka þar eitt út úr.
Fyrir næsta ár myndi ég óska þess
að stjórnmálaflokkunum fækkaði í
stað þess að þeim er alltaf að fjölga.
Það er mun erfiðara að stjórna eftir
því sem flokkarnir eru fleiri. Þeim
fjölgaði nú á þessu ári, eiginlega
einum of mikið." óþh
Sigurbjörg M. Stefánsdóttir,
sjálfstæður atvinnurekandi
TVÖ BARNABÖRN
Á ÁRINU
„Ég hef nú bara ekkert hugsað út
f hvort góðæri hafi ríkt í landinu.
Mér sýnist þó fólk hafa það mjög
gott, þó að það sé auðvitað mjög
mismunandi. Fólk virðist almennt
velta vandanum á undan sér með
notkun krítarkorta.
Það sem mér persónulega er minn-
isstæðast á árinu er að ég eignaðist
tvö barnabörn.
Ég er bjartsýn á nýtt ár og vona
bara að það verði fólki sem farsæl-
ast.“ óþh
Gunnsteinn Jakobsson, nemi í 8.bekk
RÓLEGT LlF Á NÝJU ÁRI
„Ég veit ekkcrt hvað góðæri er.
Að vísu hef ég átt meiri peninga á
þessu ári en undanfarin ár. Þeir hafa
farið í föt og svoleiðis.
Það sem er minnisstæðast frá síð-
asta ári er keppnisferð okkar í 4.
flokki i' fótboltanum í Grindavík til
Finnlands. Við höfum farið þangað
áður, þannig að maður cr farinn að
kannast svolítið við sig í Finnlandi.
Ég bind bara vonir við að taka
lífinu með ró á nýju ári. Það er
aðalmálið". óþh
53 BANASLYS 1987
Skýrslur Slysavarnafélags íslands
gefa til kynna að talsvert færri ís-
lendingar hafi látið lífið í slysum á
þessu ári en í fyrra. Tíu drúkknuðu
eða fórust með skipum í ár, þar af
einn erlendis, en tuttuguogsex árið
1986 og þar af sex erlendis. I um-
ferðarslysum létust tuttuguogfimm
á árinu, þar af tveir erlendis, og
eru það jafn margir og í fyrra, en
þar af dó einn erlendis. 1 flugslys-
um fórust fimm en átta árið á
undan. Þrettán banaslys urðu af
ýmsum toga þetta árið, s.s. vegna
vinnuslysa á sjó og landi, líkamsár-
ása, byltu, hrapi eða bruna og
reyk, en fimmtán fórust af slíkum
völdum árið áður.
Alls eru það 53 íslendingar sem
látið hafa lífið með þessum hætti í
ár, en þcir voru 74 á fyrra ári. 1 ár
létust samtals þrír erlendis, en átta
þar áður.
í skýrslum SVFÍ kcmur fram að
munurinn fclst að mestu í fcbrúar-,
apríl- og dcscmbermánuði, en þá
látast 26 færri cn í sömu mánuðum
árið áður. Hins vegar hljóta fleiri
bana í slysum á sumarmánuðum í
ár en 1986. þj
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
í 1.FL.B1985
Hinn 10. janúar 1988 er sjötti fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 1. fl. B1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 6 verður frá og með 10. janúar nk. greitt sem hér segir:
Vaxtamiðimeð 5.000,-kr. skírteini kr. 313,76
Vaxtamiðimeð 10.000,-kr.skírteini kr. 627,52
___________Vaxtamiði með 100.000,- kr. skírteini_kr. 6.275,28_
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. júlí 1987 til 10. janúar 1988 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1006 hinn 1. janúar 1985
til 1913 hinn 1. janúar 1988.
Athygil skal vakin á þvf að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gialddaga.
Innlausn vaxtamiða nr. 6 ferfram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka Islands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. janúar 1988.
Reykjavík, 31. desember 1987
SEÐLABANKT ÍSLANDS